Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981
Jakob Magnússon hljómlistarmann kann-
ast flestir við. Hann gerði garðinn frægan
m.a. sem hljómborðsleikari með Stuð-
mönnum og bresku hljómsveitunum White
Backman Trio og Long John Baldrey and
the River Band. Fyrir þremur árum flutti hann til
Kaliforníu og komst á samning hjá útgáfufyrirtæk-
inu Warner Brothers eftir að hafa dvalist í
Bandaríkjunum í rúmt ár. Þá gaf hann út sína
fyrstu plötu í Bandaríkjunum, Special Treatment. Á
þeirri plötu eru lög eftir Jakob einungis leikin á
hljóðfæri. Hann leikur sjálfur á hljómborð en aðrir
hljóðfæraleikarar eru bandariskir.
Nú vinnur Jakob að útgáfu nýrrar plötu sem
hefur einnig að geyma lög eftir hann sjálfan og eru
hljóðfæraleikarar þeir sömu og á fyrri plötunni.
Jakob er giftur Onnu Björnsdóttur sem er
eftirsótt fyrirsæta í Kaliforníu auk þess sem hún
hefur lagt fyrir sig kvikmyndaleik. Hún lék eins og
menn muna í bandarísku kvikmyndinni „American
Graffiti41 sem sýnd var hér á landi fyrir um það bil
ári.
Fyrir skömmu var Jakob staddur hér á landi, m.a.
vegna upptöku sjónvarpsþáttar. Þótt hann dveldi
hér aðeins tæpa viku gaf hann sér tíma til að spjalla
við blaðamann um átörf sín og konu sinnar og fleira.
Jakob var fyrst spurður nánar út í nýju plötuna.
Sagan aí
„Hann lendir fyrir
tilviljun á vegum
ferdaskrifstofu
á bandarískri
ferdamannaströnd.“
Jakobi
Segiil-
Maímússyni
í máli og myndum
„Þessi plata er að mörgu leyti
nýnæmi á bandaríska plötumark-
aðinum," sagði hann. „Á annarri
hliðinni er einungis tónlist leikin á
hljóðfæri en á hinni er jafnframt
söngur. Þetta er auk þess ein af
fyrstu plötunum sem hugsuð er
einnig sem videoplata. í Banda-
ríkjunum er nú, eftir tilkomu
videosnældanna og videoplatn-
anna, að eiga sér stað bylting. Nú
er það ekki aðeins tónlistin sem
skiptir máli í plötuútgáfu heldur
og að myndefni fylgi með. Fram
að þessu hefur engin hljómsveit
eða tónlistarmaður gert það sem
við erum að reyna að gera, video-
plötu með heilli frásögn.
Enn hefur ekkert verið ákveðið
hvort videoplatan kemur út en þó
eru miklar líkur til þess. Ef af því
verður mun Warner Brothers
einnig sjá um þá útgáfu.
Efnisþráðurinn er í gamansöm-
um tón, íslenskur galgopahúmor.
Þar segir frá fyrirbæri sem nefn-
ist Jack Magnet. Hann er fæddur
á hinum magnaða Arnarstapa á
Snæfellsnesi og er gæddur þeim
óvenjulega hæfileika að geta laðað
að sér allt málmkennt. Hann
verður ekki var við þennan hæfi-
leika fyrr en hann lendir fyrir
tilviljun á vegum ferðaskrifstofu á
bandarískri ferðamannaströnd
sem heitir Redneck Riviera. Þar
festist hann við ljósastaura og
stöðumæla, allt sem er úr málmi.
Hann vekur von bráðar athygli
stór-mógúls frá Las Vegas sem
drífur unglinginn með sér þangað
og kemur honum á framfæri sem
hinn „Incredible Jack Magnet".
Jack auðgast ofboðslega á þessu
á skömmum tíma og tileinkar sér
bandaríska háttu og yfirleitt allt
það sem gerir Bandaríkjamenn
frábrugðna öðrum þjóðum. Auð-
inn setur hann í iðnfyrirtæki sem
bera nafn hans. Fyrirtækin fram-
leiða tyggigúmmí, spray alls kon-
ar, líkjör og sokka. Þá stofnar
hann trúarbrögð, Magnetologie,
sem eru samansull úr vinsælustu
trúarbrögðum og heimspekikenn-
ingum.
I skrautsölum Las Vegas laðar
Jack að sér hálsfestar, nælur og
eyrnalokka og borðbúnað ýmiss-
konar. Vekur þetta mikla athygli
og hrifningu Kananna.
En eftir því sem árin líða,
maginn stækkar og hárum fækk-
ar, virðist sem segulmagn Jacks
fari dvínandi. Eftir 25 ár af hinu
ljúfa lífi í Las Vegas er svo komið
að Jack getur í mesta lagi laðað til
sín einn léttan eyrnalokk. Undir-
tektir áhorfenda fara dvínandi og
svo fer að Jack er farinn að sýna
listir sínar í búllum í úthverfun-
um. Þetta veldur honum þungum
áhyggjum og hann leitar til sál-
fræðings og ýmiss konar sérfræð-
inga.
Eftir miklar rannsóknir tekst
sérfræðingunum að rekja orsakir
segulmáttarins til uppruna Jacks,
Arnarstapa, sem er eins og menn
vita einn af þremur mögnuðustu
stöðum á jörðinni. Ástæðan fyrir
því að mátturinn fer dvínandi er
sú að Jack hefur dvalið of lengi
fjarri heimahögum og honum er
ráðlagt að halda heim til að hlaða
sig á ný. Jack tekur þessum
ráðleggingum og heldur heim. En
þá er illt í efni því Arnarstapi
hefur verið leigður út til vísinda-
rannsókna í 25 ár og er afgirtur.
Jack gamli verður þvt að sætta sig
við örlög sin og til að hafa í sig og
á leikur hann í saumaklúbbum, á
fundum kvenfélaga og í giftinga-
veislum til æviloka."
— Þessi efnisþráður plötunnar
kemur fram í textum, myndum á
plötuumslaginu og auðvitað einnig
á videoplötunni ef hún verður
gefin út. Jakob vann að gerð
myndarinnar fyrir plötuna hér
heima og leikur hann sjálfur Jack
Magnet, allt frá vöggu til grafar.
Myndir af Jakobi sem barni tók
afi hans, Jakob Frímannsson á
Akureyri fyrir 24 árum. Aðrar
myndatökur fóru fram í Los Ang-
eles og Reykjavík.
Kvikmynd um
íslendinga í
Brasilíu
Jakob hefur ásamt konu sinni
snúið sér æ meira að kvikmynda-
gerð.
„Tónlist og kvikmyndir eru til-
tölulega skyld fyrirbæri," sagði
hann.
— Ein þeirra kvikmynda sem
Jakob vinnur nú að er um Brasilíu
og íslendinga þar í landi.
„Við fórum á kjötkveðjuhátíð í
Brasilíu á sl. ári þeirra erinda m.a.
að grafast fyrir um afdrif þeirra
íslendinga sem flýðu til Brasilíu
af völdum óæris í kringum 1865.
Þetta voru fyrstu Vesturfararnir
ef frá eru taldir þeir sem fóru til
Utah.
í Brasilíu fundum við fjölda
íslendinga sem við kvikmynduð-
um í sínu rétta umhverfi auk þess
sem við leituðumst við að sína
Brasilíu í sem réttustu ljósi.
Þessi kvikmynd er nú að verða
fullunnin en þetta er óskaplega
mikið verk. Við erum bæði mjög
önnum kafin og hlaupum í þetta
þegar við höfum frí sem er ekki
oft. Auk þess skaut önnur mynd
upp kollinum þegar við vorum í
miðju kafi með Brasilíukvikmynd-
ina. Það er fyrsta litkvikmyndin
sem tekin var á íslandi. Það var
fyrir tilviljun að ég rakst á
háldraðan mann af armenískum
ættum sem hafði dvalið hér á
landi á árunum 1943—1944 og
tekið í hverjum mánuði eina
litkvikmynd á filmur sem móðir
hans sendi honum. Úr þessu varð
3lÆ tíma kvikmynd sem munaði
minnstu að færi í hundana því
gamli maðurinn er einstæðingur.
Hefði hann fallið frá hefðu mynd-
irnar hreinlega glatast. Því ákváð-
um við að kaupa þær af honum
meðan þess var kostur. í þessu
myndasafni eru sömuleiðis fleiri
hundruð litskyggnur.
Við erum nú að klippa myndirn-
ar til í þrjá þætti sem samtals
taka um 2 tíma í sýningu. Þetta er
mjög gott efni, stórkostleg heimild
um Island á þessum árum. Þar
sést m.a. Sveinn Björnsson forseti
í miklum fagnaði á Hótel Borg í
kringum hátíðahöldin 1944 og
Ólafur Thors að flytja ræðu á
Austurvelli. 'Þá eru myndir af
glæstum íþróttamönnum á Mela-
vellinum, allt stjórnarliðið horfir
á þá og Pétur Pétursson útvarps-
þulur kynnir. Einnig eru fnyndir
úr nærliggjandi sveitum, af bú-
skaparháttum all frumstæðum og
tísku fólksins á þeim tíma, húsum
sem nú eru löngu horfin og bílum