Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981 55 21 árs og’ stjómar elztu lúðrasveitiraii Kk hcf eÍKÍnleKa lagt stund á tónlist með einhverjum hætti allt frá því að ég man fyrst eftir mér. Á sjöunda ári fór ég i Rarnamúsikskóiann og lærði þá á píanó hjá Halldóri Har- aldssyni. Siðar stundaði ég nám við Tónlistarskóla Garðabæjar og lærði píanóleik hjá Gisla Magnússyni. Ég var svo 10 ára þegar ég fór að læra á trompet hjá Páli P. Pálssyni í Hljóm- skálanum — ég var hjá honum i fimm ár og það var einmitt þá sem ég fór að fikta við básún- una. Þannig fórust Oddi Björnssyni orð í samtali við blaðamann Morgunblaðsins en hann tók í byrjun þessa árs við stjórn elztu lúðrasveitar landsins, Lúðra- sveitar Reykjavíkur. Hann er aðeins 21 árs en þykir hafa sýnt óvenjulega hæfileika í sínu tón- listarnámi, — sérstaklega í bás- únuleik, en undanfarin ár hefur hann snúið sér alfarið að því hljóðfæri. Rætt við Odd Björnsson sem tók við stjórn Lúðrasveitar Reykjavíkur í janúar sl. frá þeim, þar sem mér var boðin skólavist. Ég fer því utan i haust og verð þarna við nám næstu fjögur árin, en ætlunin er að ljúka BA-prófi við skólann. Nei, ég held varla að ég ílendist erlendis — maður endar sjálfsagt alltaf hér heima hvað sem maður tekur annars fyrir. Talið berst að Lúðrasveit Reykjavíkur. I lúðrasveitinni leikur faðir Odds, Björn r. Einarsson sem er okkar þekkt- asti básúnuleikari. á baryton- horn og reyndar leikur föður- bróðir hans, Guðmundur R. Einarsson einnig með hljóm- sveitinni. — Já, það hefur leitt til þess að við höfum séð hvorn annan oftar en ella, feðgarnir", sagði Oddur og hló við. Ég leitaði reyndar langt yfir skammt þeg- ar ég var að telja upp kennara mína hérna áðan — faðir minn hefur verið kennari minn í básúnuleik undanfarin tvö ár og ég hefði varla náð þeirri færni sem ég hef ef ég hefði ekki notið tilsagnar hans. Hann hefur geysimikla reynslu í básúnuleik — hefur m.a. leikið með sinfón- íuhljómsveitinni allt frá því að hún tók til starfa. Mér hefur líkað mjög vel að starfa með Lúðrasveit Reykja- víkur. Allir meðlimir hljóm- sveitarinnar eru mjög áhuga- samir — enda er þetta áhuga- starf, við erum allir ólaunaðir sem að lúðrasveitinni stöndum. Þegar ég tók við lúðrasveitinni voru komin í hana skörð t.d. vantaði tréhljóðfæri. Ég hef reynt að bæta úr þessu og hef fengið ungt og áhugasamt fólk úr Tónlistarskólanum til að leika með okkur. Ég held að segja megi að hún sé nú tiltölulega vel skipuð. Við æfum nú af fullum krafti fyrir hljómleikaferð sem við munum fara til Vestmannaeyja á Hvítasunnunni. Það er svo föst venja að við spilum á 17. júní og eins þegar jólatréð er sett upp á Austurvelli. Þá hefur heimsókn á Landspítalann á jólum og páskum verið fastur liður hjá Lúðrasveit Reykjavíkur síðast- liðin 50 ár og aldrei brugðist. Fyrir utan ýmis tilfallandi verk- efni er nokkur vinna að æfa upp prógröm fyrir útvarpið. Þar eig- um við fastan tíma á gamlárs- kvöld og útvarpið hefur alltaf sýnt því áhuga að fá frá okkur efni þannig að það fer mikið eftir því hve duglegir við erum að æfa hversu mikið heyrist til okkar í útvarpinu, sagði Oddur að lokum. þann fjölda sem kom hér til að fá hann til að árita bókina var mjög mikið um að menn hringdu utan af iandi og pöntuðu áritað- ar bækur. Þessi bók selst mjög mikið — og ég hef orðið var við að margir kaupa bókina fyrst og fremst til að sýna samstöðu með Korchnoi og því málefni sem hann berst fyrir. Til þess að árita bækurnar ver Korchnoi hinum mjög svo nauma frítíma sínum — hann lítur á þetta sem þátt í baráttu sinni fyrir því að fjölskylda hans fái að fara frá Sovétríkjunum." Oddur Björnsson við stjórn Lúðrasveitar Reykjavíkur ffclk ff fréttum Vilja sýna samstöðu með Korchnoi + STÓRMEISTARINN Viktor Korchnoi áritaði bók sína „Fjandskák“ í Bókhlöðunni við Laugaveg síðastliðinn miðviku- dag frá kl. 15 til 16. Að sögn Eyjólfs Sigurðssonar í Bókhlöð- unni áritaði hann hátt í 300 eintök á þessum klukkutíma. „Það var svo sannarlega mikið um að vera hérna hjá okkur meðan Korchnoi stóð hér við,“ sagði Eyjólfur. „Fyrir utan allan * l.jósmynd Emilia. Viktor Korchnoi áritar bók sína „Kjandskák“ i Bókhloðunni við Laugaveg. — I Tónlistarskólann í Reykjavík fór ég svo 13 ára og byrjaði þá aftur í píanónámi hjá Halldóri Haraldssyni. Þá hóf ég einnig nám í slaghljóðfæraleik sem leiddi til þess að ég fór til Bandaríkjanna árið 1978 og var þar í eitt ár við nám í Berkley College of Music í Boston. Þar kynntist ég mörgum básúnist- um, bæði kennurum og nemend- um. Árið eftir ákvað ég svo að snúa mér alfarið að básúnunni og hóf nám hjá Don nokkrum Sanders, sem er þekktur básúnu- leikari og vann fyrsta sætið á alþjóðlegu básúnukeppninni í Prag 1978. Ég kom svo heim á síðasta ári og innritaðist í básúnukennara- deild Tónlistarskólans í Reykja- vík en þaðan útskrifaðist ég í vor. Hyggurðu svo á frekara nám? — Já, ég sótti um skólavist í New England Conservatory of Music í Boston í vetur og þreytti þar inntökupróf í byrjun marz. Ég var með þaulæft prógram sem ég átti að Ieika fyrir dóm- nefnd skólans en það var ekki fyrr en daginn sem ég tók inntökuprófið að ég komst að því að 25 aðrir myndu þreyta prófið en aðeins þrem yrði hleypt inn. Ég gerði alls ekki ráð fyrir því að ég slyppi og afskrifaði skól- ann eiginlega — þar til fyrir nokkrum dögum að ég fékk bréf í frystihúsi + ÞESSI mynd var tekin í Grindavík fyrir páska í aflahrotunni miklu sem enn sér ekki fyrir endann á og sýnir hún starfsfólk Ilraðfrystihúss Þórkötlustaða hf. þar sem það hefur gert örstutt hlé á vinnu til að slappa af og sieikja sólskinið. Það veitti heldur svo sannarlega ekki af, því um þessar mundir var lítið um frí — unnið var sleitulaust alla daga, jafnt sunnudaga sem aðra, enda landburður af fiski. Annar frá vinstri er Guðmundur Jónsson verkstjóri í Ilraðfrystihúsi Þór- kötlustaða hf. Grindavik en aðra sem á myndinni eru kunnum við því miður ekki að nafngrcina. Ljósm. Olafur Rúnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.