Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981 Atómstöðin kvikmynduð - - . • (Ljósm. Valdimar.) Keppnishestar í læknisskoðun Siðdegis i Kær fór fram læknisskoðun á hestum þeim er keppa á Evrópumótinu sem hefst i Larvik i Noregi á föstudag. Að sögn Páls Agnars Pálssonar yfirdýralæknis reyndust þeir allir við góða heilsu og fengu því brottfararleyfi. Hér sést Páll aldursgreina Valsa og Sigurbjörn Bárðarson heldur i. Reiknað er með að hestarnir fari fyrir hádegi á morgun með flugvél frá Iscargo. Námsgagnastofnun: Húsnæðismál í óvissu og f járskortur háir útgáfu UM ÞESSAR mundir cr J>or- steinn Jónsson, kvikmyndagerð- armaður, að skrifa handrit að Atómstöð Halldórs Laxness og mun hann Ijúka verkinu eftir um það bil fjóra mánuði. í viðtali við Þorstein kom einnig fram. að búið væri að ráða Sigurð Sverri Pálsson til að kvikmynda verkið, um aðrar mannaráðningar sagði Injrsteinn að allt væri enn óákveðið. Næsta vor verður byrjað að velja í hlutverk og munu fara fram prófanir áður en endanleg hlutverkaskipan verður ákveðin. Áætlað er að taka myndarinnar fari fram í júlí, ágúst og septem- ber. Þeir sem standa að Atómstöð- Meira veitt af minki í Breiða- firði en áður Stykkishólimir. 21. áKÚst. MIKIÐ hefir veiðst af mink hér við lireiðafjorðinn í sumar og ef til vill sjaldan eins og nú. Það er komið á annað hundraðið og enn er vitað um mink í eyjum en hann hefir því miður ekki náðst. Þar sem minkur hefir verið í sumar hefir lundinn svo að segja alveg horfið, enda segir minkurinn fljótt til sín þegar hann heimsækir eyjarnar. Er mikill hugur í mönnum hér að gera betur og byrja snemma næsta vor á eyðingum. Frcttaritari. RAGNHEIÐUR Hafstein Thorar- ensen lézt í Reykjavík síðastlið- inn laugardag, 78 ára að aldri. Ragnheiður fæddist á ísafirði 4. janúar 1903. Hún var dóttir Hann- esar Hafstein, þáverandi sýslu- manns og síðar fyrsta íslenzka ráðherrans, og konu hans Ragn- heiðar Hafstein. Hún fluttist til Reykjavíkur með foreldrum sínum og stundaði síðan nám um tíma við Menntaskólann í Reykja- vík og lauk þaðan gagnfræðaprófi. Ragnheiður giftist síðan Stefáni Thorarensen 1923 og varð þeim 6 barna auðið og eru þau öll á lí/i. Mann sinn missti hún árið 1975. inni eru Þorsteinn Jónsson, sem mun skrifa handrit og leikstýra verkinu, Örnólfur Árnason, rit- höfundur og Þórhallur Sigurðs- son, leikari. Að sögn Þorsteins verður kvikmyndin fjármögnuð líkt og „Punkturinn", með láns- fjármagni, auk þess sem sótt verður um styrk úr kvikmynda- sjóði. Bifreið á ljósastaur: • • OkumaÖur alvarlega slasaður BIFREIÐ lenti á ljósastaur skammt frá hrúnni yfir Ölfusá við Selfoss, um klukkan 04 í fyrrinótt. Ökumaður, sem var einn í hílnum. slasaðist alvar- lega. Hann var fyrst fluttur á sjúkrahúsið á Selfossi, en síðan á slysadeild Borgarspítalans og liggur hann nú á gjörgæsludeild. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar virðist ökumaðurinn, sem er 29 ára gamall, hafa misst stjórn á bifreiðinni rétt austan söluskálans Arnbergs, en maður- inn var á leið til Selfoss. Hafnaði bíllinn síðan á Ijósastaur hinum megin götunnar. Bíllinn sem er af Mazda-gerð og var á Ö-númeri, er mikið skemmdur. — Námsgagnastofnunin á í miklum vandræðum vegna fjár- magnsskorts, sem veldur því að námsgögn koma ekki út á réttum tima. sagði Ásgeir Guðmundsson námsgagnastjóri i viötali við Morgunblaðið. „Við bregðumst við þessum vanda á þann hátt, að við leggjum áherslu á að koma út núna í byrjun skólaársins svokölluðum kjarnabókum, það er að segja bókum, sem kennurum er alfarið nauðsynlegar til að halda uppi kennslu. Margvíslegt annað efni verður látið bíða fram eftir haust- inu eða útkomu þess verður frestað til næsta árs.“ „Þessi töf á útkomu kennslu- gagna mun óhjákvæmilega koma niður á kennslunni og breyta vinnubrögðum kennara, sem þýðir meðal annars að kennari þarf að vinna meira að því að útbúa sín námsgögn og mun mikill tími fara í það og er það ekki síður kostnaðarsamt." „Námsgagnastofnunin á líka við annan vanda að glíma en það eru húsnæðismái stofnunarinnar," sagði Ásgeir. „Það var áætlað að stofnunin færi inn í Víðishúsið og höfum við þegar flutt verslunina á neðstu hæð hússins. Við erum núna að vinna að því að koma upp kennslumiðstöð, einnig á neðstu hæðinni, en þær framkvæmdir geta stöðvast, ef við fáum ekki að nýta okkur heimild í fjárlögum til lántöku, en hún bynst ákvæðum um aðrar lagfæringar á húsinu. „Það virðist vera vonlítið verk að fá tekna ákvörðun um það að koma þessum framkvæmdum af stað og er ég búinn að berjast í því það sem af er þessu ári að koma af stað viðræðum um framtíðar- 172 TANNL/EKNAR eru starfandi á landinu eða 1 á hverja 1300 íbúa. I Reykjavík eru starfandi 115 tann- læknar eða einn á hverja 750 íhúa. áform í húsnæðismálum náms- gagnastofnunarinnar. Þessi tregða hefur þau áhrif á starfsemi okkar, að við komumst ekki með starfsemina á einn stað og getum því ekki hafið uppbygg- ingu námsgagnastofnunarinnar samkvæmt lögum og reglugerðum um þessa stofnun frá árunum 1979—'80. Ég hef þó trú á því að þegar farið verði af stað með þessa hluti, þá muni þeir ganga vel fyrir sig,“ sagði Ásgeir Guðmundsson náms- gagnastjóri. Samanlagt eru í Reykjavík og á Reykjanesi 131 tannlæknir eða 1 á hverja 1000 íbúa. Utan þcss sva'ðis er 41 tannlæknir eða 1 á hverja 2300 íbúa. Aðeins 3 þjoðir, Svíar. Norðmenn og Danir hafa betra hlutfall milli tannlakna og ibúa eða 1:100. og það hlutfall er talið nást hér 1990. Stærstu svæðin án tannlæknis hér á landi eru frá Stykkishólmi til ísafjarðar, þar sem búa 5772 íbúar; frá ísafirði til Blönduóss, þar sem búa 2731 íbúi; frá Eskifirði til Hornafjarðar með 1721 íbúa. Mest aðkallandi er talið að auka tann- læknaþjónustu á eftirfarandi svæð- um: Búðardal, Patreksfirði, Þing- eyri, Suðureyri, Hólmavík, Hvammstanga, Sauðárkróki, Fá- skrúðsfirði, Ólafsfirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði, Breiðdalsvík og Djúpa- vogi. Áætlað er að hið opinbera hafi greitt 3,5 milljarða g-króna fyrir tannlækningar 1980. í Reykjavík eru sem fyrr segir 115 tannlæknar, 14 eru á Akureyri, 5 í Hafnarfirði, 5 í Kópavogi, 3 í Kefla- vík, 3 á Selfossi, 2 á Akranesi, Isafirði, Húsavík, Vestmannaeyjum, Hellu og Álafossi. Einn tannlæknir er á eftirtöldum stöðum: Borgarnesi, Ólafsvík, Bolungarvík, Blönduósi, Sauðárkróki, Siglufirði, Dalvík, Vopnafirði, Egilsstöðum, Neskaup- stað, Eskifirði, Höfn, Hvolsvelli og Garðabæ. Á öðrum stöðum hérlendis starfa ekki tannlæknar. (Heimild: Sveitarstjórnarmál/ Magnús R. Gíslason, tannlæknir.) * Aðalfundur Skógræktarfélags Islands: Skógrækt búgrein á Islandi? Arangur Fljótsdalsáætlunar mjög góður, lerkið orðið 4 metra hátt nú, 10 árum síðar AÐALFUNDIJR Skógræktarfélags íslands var haldinn i Egils- staðakauptúni 22.-24. ágúst síðastliðinn. Aðalumræðueíni fund- arins auk venjulegra aðalfundarstarfa var svæðaáætlun og skógrækt sem búgrein. Sigurður Blöndal skógræktar- stjóri flutti erindi, sem hann nefndi „Bændaskógur" og gerði grein fyrir forsendum ræktunar þeirra og hugsanlegum aðferð- um, til þess að koma þeim á. Þegar talað er um bænda- skóga er átt við það, hvort að skógrækt geti orðið búgrein á íslandi. Tilraun hvað þetta varð- ar hófst hér fyrir 10 árum Þá veitti ríkið fjármagni til nokk- urra jarða í Fljótsda! í Norður- Múlasýslu og kalla skógrækt- armenn þessa tilraunastarfsemi Fljótsdalsáætlun. Á fundi Skógræktarfélagsins, sagði Guttormur bóndi í Geita- gerði í Fljótsdal frá Fljót.sdalsá- ætluninni og reynslu af henni frá sjónarhóli bóndans. Sagði hann meðal annars að eftir 10 ár þá væri hæð ierkisins orðin um 4 metrar og komið væri að því að grisja lerkið og fengjust þá staurar til nytja. Sagði Gutt- ormur, að honum fyndist skóg- rækt vera tilvalin sem búgrein. Að umræðum loknum fóru fundarmenn í skoðunarferð um skóginn undir leiðsögn Jóns Loftssonar skógarvarðar. í þá för slógust í hópinn 34 eyfirskir bændur, sem vildu kynna sér skógrækt sem búgrein, en slíkt átak er ofarlega á baugi í Eyjafirði. I viðtali við Jónas Jónsson búnaðarmálastjóra og formann Skógræktarfélags íslands, kom fram að fleiri héruð hefðu áhuga á að taka upp skógrækt, til dæmis bændur í Borgarfirði, Sunnlendingar og Suður-Þingey- ingar. Sagði hann jafnframt að uppbygging þessarar búgreinar yrði að vera þannig háttað, að verulegu fjármagni væri veitt til plöntunar og til að friða landið. Sagði hann, að í skóglausum héruðum í Noregi þá væri veitt 70—85% fjárframlag af stofn- kostnaði til þeirra bænda, sem vildu hefja skógrækt sem bú- grein og yrði svipað fyrirkomu- lag að vera hér á. Því það væri ekki fyrr en eftir um það bil 20 ár, sem venjulega væri hægt að byrja að nytja nýskóga og hafa af þeim tekjur. Aðalfundur Skógræktarfélags íslands sóttu á annað hundrað manns, fulltrúar héraðsskóg- ræktarfélaganna og gestir þeirra, þeirra á meðal fulltrúi frá norsku skógræktarfélögun- um, Ivar Vindal og kona hans. Formaður Skógræktarfélagsins, Jónas Jónsson búnaðarmála- stjóri, setti aðalfundinn og flutti skýrslu um störf félagsins á síðasta ári ásamt Snorra Sig- urðssyni framkvæmdastjóra Skógræktarfélagsins. Fundar- stjóri var Þorsteinn Sveinsson, kaupfélagsstjóri. Fundarmönnum bar saman um góðan árangur af Ári trésins 1980 og vaxandi áhuga bæði hjá hinu opinbera, meðal almenn- ings og sveitarstjórna víðs vegar um land á trjá- og skógrækt og landverndarsjónarmiðum yfir- leitt. Ragnheiður Hafstein Thorarensen látin 172 tannlæknar starfandi: 131 í Reykjavík og Reykja- nesi — 41 utan þess svæðis Enginn tannlæknir milli Blönduóss og ísa- fjarðar né milli Stykkishólms og Isafjarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.