Morgunblaðið - 26.08.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGUST 1981
15
Schmidt samþykkur
nifteindasprengju
IIELMUT Schmidt, kanslari
Vestur-býzkalands, sasði í sjón-
varpsviðtali á sunnudag. að
bjóðverjar myndu taka við nift-
eindasprengju Bandarikja-
manna. ef þremur skilyrðum
verður fullnægt. Hann vill, að
NATÓ-aðildarlöndin taki af-
stöðu til sprenKjunnar fyrst, að
önnur lönd en Vestur-býzka-
land í Evrópu samþykki að hafa
hana. ok hann vill aðeins taka
við henni, ef stórveldin ná ekki
samkomulagi um vopnatak-
markanir.
Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti, hefur ekki beðið Evrópu-
menn að taka við nifteinda-
sprengjunni, sem hann ákvað
nýlega að láta framleiða.
Schmidt setti Jimmy Carter, fv.
forseta, sömu skilyrði 1978, áður
en Carter hætti við að láta
framleiða sprengjuna.
Orð Schmidts í viðtalinu eru í
anda ríkisstjórnar hans, en hann
kann að sæta mikilli gagnrýni i
Sósíaldemókrataflokknum fyrir
þessi orð. Margir áhrifamenn í
flokknum, eins og Egon Bahr og
Hans Koschnick, eru á móti
sprengjunni. Hvort það veldur
Schmidt vandræðum á næsta
landsþingi, sem verður haldið í
apríl, er ekki víst, en hann hefur
einnig sætt gagnrýni í flokknum
fyrir skoðanir sínar á meðal-
drægum eldflaugum, sem
Bandaríkjamenn vilja koma
fyrir í Evrópu.
Sendiráð
írans tekið
Brussel. 25. ágúst. AP.
TUTTUGU og átta iranskir
námsmcnn lögðu undir sig
sondiráð írans í Briisscl í morg-
un. cn yfirgáfu bygginguna.
Námsmennirnir afhentu
sendifulltrúa sendiráðsins bæn-
arskjal, þar sem mótmælt er
stöðugum aftökum andstæðinga
núverandi ríkisstjórnar í íran.
Sautján námsmannanna voru
handteknir þegar þeir höfðu
yfirgefið bygginguna.
„Khomeini er morðingi. Bani
Sadr mun snúa aftur,“ sagði einn
námsmannanna þegar hann var
færður burtu.
Innrás í
Angóla
Lissahon. 25. ágúst. AP.
TVÆR suður-afrískar skrið-
drckasvcitir. alls 32 skriðdrckar,
rcðust inn á yfirráðasva'ði Ang-
óla í gær og harðir bardagar
geisa á tveimur svæðum í Suður-
Angóla að sögn angólsku
frcttastofunnar í dag.
Önnur suður-afríska skrið-
drekasveitin lenti í bardögum við
herlið Angólamanna skammt frá
Xangongo, um 150 km frá landa-
mærum Namibíu (Suð-vestur-
Afríku). Fréttastofan sagði að
Suður-Afríkumenn hefðu einnig
gert harðar loftárásir á þetta
svæði.
Hin skriðdrekasveitin á í hörð-
um átökum við stjórnarherlið í
nokkurra km fjarlægð frá landa-
mærum Namibíu.
Landvarnaráðuneyti Angóla
segir að skriðdrekasveitirnar séu
hluti 45.000 manna herliðs sem
Suður-Afríkumenn hafi kallað út
til að hertaka hluta Angóla.
Ríkisstjórn Angóla hefur beðið
framkvæmdastjóra Sb, Dr. Kurt
Waldheim, að skerast í leikinn til
að binda endi á innrás í Angóla.
Talsmaður suður-afríska hers-
ins í Pretoria sagði að Suður-
Afríkumenn nenntu ekki að svara
hverri einustu ásökun Angóla-
manna. Hann sagði að Suður-
Afríkumenn héldu áfram aðgerð-
um gegn skæruliðum Swapo (sam-
taka blökkumanna í SV-Afríku,
Namibíu), jafnvel þótt það leiddi
til þess að sækja yrði inn fyrir
landamæri Angóla.
Fréttaritari BBC í Luanda sagði
að Suður-Afríkumenn hefðu gert
loftárásir á tvo bæi, 25 mílum
innan landamæra Angóla og jafn-
að þá við jörðu. Skriðdrekainnrás
hefði fylgt í kjölfarið. Bardagarnir
hefðu verið harðir.
Jazzistinn
Coleman látinn
Toulousc. Frakklandi. 25. áKÚst. AI’.
BILL Colcman, kunnur amcrísk-
ur jazztónlistarmaður, lézt i
sjúkrahúsi í Suður Frakklandi i
morgun, 77 ára að aldri.
Jazztrompetleikarinn Bill Cole-
man var fæddur í Paris, Kentucky,
og lék með mörgum beztu jazz-
hljómsveitum áranna milli 1920
og 1930 og með Fats Waller 1935.
Kosið 18.
október í
Grikklandi
Aþ<‘nu. 21. ágúst. AP.
CONSTANTIN Caramanlis, for-
seti Grikklands, ákvað i dag, að
þingkosningar skuli haldnar i
Grikklandi 18. októbcr. Lögum
samkvæmt hcfðu kosningar átt
að vcra haldnar 20. nóvcmbcr,
þcgar kjörtímahili stjórnar
Gcorgc Rallis, forsætisráðhcrra,
lýkur.
Yfir sex milljónir Grikkja munu
greiða atkvæði um 300 þingsæti.
Stjórnarflokkurinn hefur nú 177
sæti á þingi, en Pasok-hreyfingin
undir stjórn Andreas Papandr-
eous hlaut 25% atkvæða í kosn-
ingunum 1977. Kommúnistaflokk-
urinn hlaut þá 11% atkvæða.
Hann fluttist frá Bandaríkjunum
1948 og bjó eftir það í Frakklandi.
„Margir blökkumenn fluttust úr
landi til þess að flýja kynþátta-
aðgreiningu í Bandaríkjunum,"
sagði Coleman einu sinni í viðtali.
Coleman lék með mörgum frá-
bærustu jazz-tónlistarmönnum
sögunnar, þeirra á meðal Billie
Holliday, Coleman Hawkins og
Django Reinhardt. Hann var
kunnur fyrir túlkanir sínar á
mörgum klassískum jazz-tónverk-
um eins og „Down by the River-
side“ og „When the Saints".
A úr massivu bevkí
rurivCl eikog ask
Hagstætt verð/góð greiðslukjör
Biðjið um mynda/ista ísíma l8430
Timburverzlunin Völundur hf.
KLAPPARSTIG 1 S. 18430
Þórsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131
HEFUR ÞÉR KOMIÐ
TIL HUGAR
aó fylgjast meó öllu
í gegn um sjónvarp
Þessi lausn er nokkuð sem fáum hefur dottið í hug að notfæra sér. Þeir halda að það þurfi
stórfyrirtæki til að nota svona kerfi. En þegar farið er að skoða hlutina betur, skilja menn
hagkvæmni þessa kerfis. Engin hlaup, ekkert óöryggi, þú getur fylgst með öllu úr
sætinu þínu, um leið og þú vinnur pappírsvinnuna.
Sem dæmi mætti nefna vinnusali, vélasali, skrifstofu, birgðageymslu. vöruafgreiðslu, pökkun,
verslun, færiböndum, lestun, útisvæði, og svona mætti lengi telja.
Hægt er að senda myndir milli húsa ef á þarf að halda. Mikil hagræðing er i því að geta brugöið
upp skjölum og pappírum á skjáinn, og senda á milli ef þörf er á.
Einnig er hægt að nota kerfið á næturnar til að fylgjast með óviðkomandi mannaferðum.
Möguleikarnir eru fjölmargir, ef þig vantar frekari upplýsingar um nánara notagildi, erum við
tilbúinir að kynna þér tækin betur.
()U Radíóstofan h£