Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
Loðnuveiðarnar:
Þrjú skip í gær
með 2.040 lestir
Ljósm. Mhl.: RAX
Staðurinn við Vogastapa, þar sem líklegast er talið að hafbeitarstöðin rísi.
Tryggingaeftirlitið um skipatryggingar:
Vátryggingar erlendis eru háð-
ar leyfi íslenskra stjórnvalda
ÞRJÚ skip tilkynntu loðnunefnd
um afla á síðasta sólarhring,
samtals 2.040 leátir og gengur
loðnuveiðin ,við Jan Mayen enn
treglega. Skipin sem tilkynntu um
afla voru Gísli Árni með 630
lestir, Örn, 580, og Pétur Jónsson,
830.
Yfirnefnd verðlagsráðs sjávar-
útvegsins fundaði um loðnuverð í
„Þetta er Ameríka44
LAUGARÁSBÍÓ tekur nú til sýn-
ingar „Þetta er Ameríka" eftir
Lamont Johnson. I myndinni er
brugðið upp mynd af ýmsum
furðulegum fyrirbærum í þjóðlífi
Bandaríkjanna. Myndin er byggð
á bók eftir Robert Ward. Meðal
leikara eru Burt Lancaster, John
Savage og Rod Steiger.
Frumsýning
í Háskólabíói
IIÁSKÓLABÍÓ frumsýnir í dag
myndina „Svik að ieiðarlokum**
— The Ilostage Tower. sem
byggð er á sogu Alistair McLean.
Þessi saga kom út hjá Iðunni i
sumar. Meðal leikenda eru Peter
Fonda. Maud Adams og Britt
Ekland.
Myndin fjallar um það er snjall-
asti glæpamaður heims ræðst i
það að ræna móður Bandaríkja-
forseta, þegar hún var á ferð í
París og halda henni í gíslingu í
Eiffelturni.
gær án þess að komast að niður-
stöðu og verður næsti fundur
hennar í dag.
Tónskóli SDK
tekur til starfa
NÚ ER að hcfjast 18. starfsár
Tónskólans.
Síðastliðinn vetur var skólinn
fullskipaður og voru nemendur á
sjötta hundrað á öllum stigum
námsskrárinnar.
Skólinn hefur frá upphafi tekið
á móti nemendum á öllum aldri og
nýlega sett á laggir undirbúnings-
deild fyrir fullorðna, þar sem
byrjendur fá kennslu í nótnalestri
og nokkra þjálfun í að hlusta á
tónlist. Þessi deild býr nemendur
undir nám í hljóðfæraleik eða
söng og samsvarar því forskóla-
námi yngri nemenda.
í skólanum gefst nemendum
tækifæri á að vinna saman í
samspili, hljómsveitarleik og kór-
söng og á vegum Tónskólans eru
haldnir fjölmargir tónleikar ár
hvert.
Skólinn starfar ekki aðeins
niður í bæ, við Hellusund, heldur
einnig við Norðurfell og undirbýr
nú kennslu í hinni nýju félags-
miðstöð Árbæinga, Árseli.
Innritun og móttaka náms-
gjalda verður í skólahúsinu við
Hellusund 7, seinnipart dags í
þessari viku.
Sjá nánar í auglýsingu í blaðinu
í dag. FréttatilkynninK
Leiðrétting
ÞAU MISTÖK urðu í myndatext-
um við frásögn Morgunblaðsins í
gær af því er þyrla varnarliðsins
sótti sjúkan mánn um borð í
rússneskan togara að Hannes
Hafstein, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins var ranglega
nefndur Jakob. Morgunblaðið bið-
ur hann velvirðingar á þessum
mistökum.
Þá lenti skammstöfun Ólafs K.
Magnússonar, ljósmyndara Morg-
unblaðsins, undir mynd af þyrl-
unni yfir togaranum, en þá mynd
tók Ólafur ekki. Hún var tekin af
Ijósmyndara varnarliðsins og er
hann beðinn velvirðingar á þeim
mistökum.
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um Faxaflóakeppnina var sagt að
vélin í Frekjunni hafi bilað. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Mbl.
hefur nú fengið er það ekki rétt,
heldur hafði vélin ekki undan
ágangi sjávar og þess vegna var
ekki hægt að beygja upp í sjógang-
inn. Af þessum sökum varð að
taka Frekjuna í tog. Þá misritað-
ist nafn eins keppnisbátsins.
Hann heitir Brabant.
MORGIJNBLAÐINU hcfur borist
eftirfarandi yfiriýsing frá Trygg-
ingacftiriiti ríkisins, vegna
frétta. sem birst hafa í hlaðinu
undanfarið um skipatryggingar
erlendis:
„Vegna blaðaskrifa að undan-
förnu (sbr. Mbl. 21. og 23. ágúst
Afmæli í dag
SEXTÍU og fimm ára er í dag, 26.
ágúst, Ragnar Sigurmundsson
vélstjóri, Eskifirði. Hann er fædd-
ur í Svínhólum í Lóni, en fluttist
til Eskifjarðar laust eftir 1930 og
hefur átt þar heima síðan.
Ragnar hefur verið vélstjóri á
fiskiskipum yfir 40 ár og er nú
vélstjóri á Hólmanesi SU 1.
Lexa og Artemis
sameinuð í
eitt fyrirtæki
TVÖ fyrirtæki. Hálsbindagerðin
Lexa og Nærfatagerðin Artemis
hafa verið sameinuð i eitt fyrir-
tæki. Samruni þessara fyrirtækja
fór þannig fram, að fram-
kvæmdastjóri Lexa, Axei Aspe-
lund. keypti Artemis af hjónun-
um Kjartani Magnússyni og Sig-
ríði Guðmundsdóttur. sem rekið
hafa Artemis í 46 ár.
Að sögn eiganda fyrirtækisins,
Axels Aspelund, verður rekstur
fyrirtækjanna mun hagkvæmari
við samrunann, því það fellur
niður stjórn og söiukostnaður hjá
öðru fyrirtækinu og því góð þróun
á þessum samkeppnis- og erfið-
leikatímum.
Hið nýja fyrirtæki er flutt í nýtt
og glæsilegt hús að Skeifunni 9,
Reykjavík.
sl.) um að íslenskir aðilar hyggist
vátryggja skip sín erlendis án
milligöngu vátryggingarfélags hér
á landi, vill Tryggingaeftirlitið
vekja athygli á því, að samkvæmt
íslenskum lögum eru vátryggingar
af þessu tagi háðar leyfi íslenskra
stjórnvalda.
í 2. mgr. 22. gr. laga nr. 50 16.
maí 1978 um vátryggingarstarf-
semi segir, að aöilar hér á landi,
sem hyggjast tryggja erlendis
verðmæti, sem eru eign viðkom-
andi að einhverju eða öllu leyti án
milligöngu vátryggingarfélags,
sem hefur starfsleyfi á íslandi
skv. þessum lögum, skuli sækja
um leyfi til tryggingamálaráð-
herra, sem að fenginni umsögn
tryfJKÍnsaeftirlitsins getur veitt
slíkt leyfi til eins árs í senn.
I sömu lagagrein segir, að aðil-
ar, sem fá slíkt leyfi, skuli senda
tryggingaeftirlitinu árlega
skýrslu um tryggingar sínar svo
sem um væri að ræða íslenskt
vátryggingarfélag. Þeir eru einnig
gjaldskyldir til tryggingaeftirlits-
ins á sama hátt og íslensk vá-
tryggingarfélög."
Heba heldur
heilsunni
Nýtt námskeið að heíjast
Dag- og kvöldtímar tvisvar eóa
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leíkíimi - Liós - Megrun - Nudd
Hvíld - Kctíli - o.ll.
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Heba
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Við bygajum
Hjúkrunarneimiii
aldradra
i Kópavogi
Formaður Lionsklúhhs Kópavogs, Oddur Helgason, afhendir
formanni hyggingarnefndar Hjúkrunarheimilis aldraðra í Kópa-
vogi. Ásgeiri Jóhannessyni. peningagjöf.
Lionsklúbbur Kópavogs gefur út
sögu Kópavogskaupstaðar:
Agóðinn rennur til Hjúkr-
unarheimilis aldraðra
í TIIÆFNI 20 ára aímælis
Lionsklúhbs Kópavogs og
vegna 25 ára afmadis Kópa-
vogskaupstaðar. heíur
Lionsklúhhurinn gengist fyrir
útgáfu á sögu Kópavogs og
verður verkið í tveim hindum.
Fyrra bindið mun koma út í
haust og verður borið út til
kaupenda, en klúbbfélagar vinna
sjálfboðavinnu við sölu og dreif-
ingu bókarinnar, segir í frétta-
tilkynningu frá Lionsklúbbnum.
Allur ágóði bókanna rennur til
óyggingar Hjúkrunarheimilis
aldraðra í Kópavogi og hafa
klúbbfélagar nú þegar afhent
fyrstu upphæðina sem er
35.000.00 krónur.