Morgunblaðið - 26.08.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
25
félk í
fréttum
+ Hvað sem Jimmy Carter,
fyrrverandi forseta Bandaríkj-
anna, kann að finnast um
stjórn Ronald Reagans, forseta,
þá er Billy Carter, bróðir hans
þeirrar skoðunar að Reagan sé
hæfur forseti og hafi unnið gott
starf.
„Þingið styður hann og hann
á traust fólksins. Jimmy átti í
stöðugum erfiðleikum með
hvort tveggja," segir Billy.
A minni myndinni má sjá
Billy, bróður fyrrv. forseta, en
hin myndin var tekin af Reag-
an þegar hann skrifaði undir
mestu skattalækkun, sem um
getur í sögu Bandaríkjanna.
Reagan
góður
forseti
Um tvennt
að velja
+ Leikarinn Orson Welles
hefur átt við offitu að
stríða árum saman og
látið sér það í léttu rúmi
liggja. Nú hefur hann
hins vegar snúið við blað-
inu og samkvæmt fyrir-
skipun lækna tekið upp
strangan megrunarkúr.
Sögðu læknarnir honum,
að ef hann grennti sig
ekki verúlega lægi ekkert
annað fyrir honum en
skjótur og öruggur dauði.
Orson Welles lét sér segj-
ast, enda er hann farinn
að taka meira mark á
læknum en kokkum í
seinni tíð.
„Vestræn
menningaráhrif4
+ Jane Fonda, sem tekið
hefur upp baráttu fyrir
mörgu þjóðþrifamálinu,
varð fyrir vonbrigðum
nýlega þegar ekki fékkst
sýningarleyfi í Singa-
pore fyrir myndina „9
til 5“, sem hún leikur í. í
einu atriði kvikmyndar-
innar fara fram hass-
reykingar og vildu yfir-
völd í Singapore losna
við „vestræn menning-
aráhrif" af þessu tagi.
Nýr
fylgisveinn
+ Kristína Onassis hefur
átt í miklum erfiðleikum
með að velja sér réttan
maka. Hún er aðeins 31
árs gömul, en á að baki
þrjú misheppnuð hjóna-
bönd.
Síðast þegar fréttist af
henni, var hún í fylgd með
19 ára gömlum Grikkja,
Costas Mavreleon. Hann
virðist taka samband
þeirra alvarlega og hefur
lagt á hilluna hagfræði-
nám til þess að geta verið
hjá Kristínu öllum stund-
um.
Fullkomin
hljómgæði
+ Olivia Newton-John,
Grease-söngkonan
fræga, vill hafa full-
komin tóngæði í bíln-
um sínum, og hún hef-
ur efni á því. Nýlega lét
hún koma fyrir'sextán
hátölurum í Porsche-
sportbílnum sínum,
sem hún hafði þá ný-
lega keypt. Þetta
kostaði 150 milljónir
króna.
ZEBOP
Platan Zebop með Santana hefur gengiö mjög vel
víðast hvar í helminum, enda naut lagið I’ Winning
geysilegra vinsælda lengi vel. Nu er lagið The
Sensitive Kind á hraöri leiö upp bandaríska
vinsældalistann. Zebop er ein besta plata Santana
í seinni tíð.
Heildsöludreifing
flslncirhf
Símar 85742 og 85055.