Morgunblaðið - 26.08.1981, Qupperneq 32
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
lOIOO
Jttoruimblabib
orjfifwWn^íí)
&&e Ljósaperur
lAAáÁi Þeim geturöu
I i f treyst
Einkaumbod á íslandi
SEGULLHF. Nýlendugötu 26
MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1981
Úrskurður kjörnefndar:
Séra Pétur hlaut flest
atkvæði í biskupskjöri
Séra Ólaíur 1 atkv. færra — Séra Árni Pálsson kærir niðurstöðu kjörnefndar
SF.RA PÉTUR Sigurjíeirsson, vÍKslubiskup. hlaut flest atkvæði í síðari umferð í úrslitum biskupskjors
’ samkvæmt niðurstöðum kjörnefndar í j;ær. Hlaut hann 72 atkvæði. en séra ólafur Skúlason dómprófastur
hlaut 71 atkvæði. Séra Arngrimur Jónsson fékk 1 atkvæði. Þrjú atkvæði voru dæmd ógild vegna formtcalla
otc eitt atkvæði dæmdi kjörnefnd úr leik þar sem það hefði borizt of seint til róðuneytisins. 148, sem höfðu
rétt til biskupskjörs, kusu því öll, en 144 atkvæði voru metin gild. Viðtöl eru við séra Pétur Sigurgeirsson
vígsluhiskup og séra ólaf Skúlason dómprófast á miðsiðu blaðsins. Þegar niðurstaða kjörnefndar lá fyrir
upplýsti séra Arni Pálsson að hann myndi kæra niðurstöðu kjörnefndar þar sem hann teldi að kjörstjórn
hefði hrugðizt hlutverki sinu í ógildingu atkvæða. Sagði séra Arni í samtali við Mbl. i gær að hann hefði
tekið við atkvæði Jósafats Líndals i votta viðurvist þar sem hann hefði með eigin hendi útfyllt kjörseðil
sinn. og séra Árni kvaðst síðan hafa afhent kjörseðilinn í ráðuneytinu þar sem móttakan hefði verið bókuð
i votta viðurvist og þvi kvaðst hann ekki sætta sig við niðurstöðu kjörnefndar á formgalla vegna
afhendingar yfirlýsingar frá kjósandanum. Kvaðst hann kæra ógildingu atkvæðanna þriggja þar sem
yfirlýsing fylgdi ekki.
tali við Mbl. í gærkvöldi að hann
myndi leggja áherzlu á það í
afgreiðslu þessa máls, að farið
yrði að lögum og málið yrði tekið
til afgreiðslu fljótlega eftir að
kærufrestur, sem er ein vika,
rennur út.
Morgunblaðið spurði Pétur Sig-
urgeirsson hvað hann vildi segja
um kæruna, en þetta er í fyrsta
skipti sem niðurstaða biskups-
kjörs er kærð. „Það stendur í
lögunum að heimilt sé að kæra
niðurstöðu kjörnefndar til ráð-
herra ef menn sjá ástæðu til,“
sagði séra Pétur, „og ef menn sjá
agnúa á, tel ég rétt að það fari til
réttra aðila. Eg treysti niðurstöðu
kjörnefndar og mun treysta niður-
stöðu ráðherra og taka þeim
úrskurði eins og vera ber.“
Séra Ólafur Skúlason segir um
kæruna á miðsíðu blaðsins í dag:
„Það er óskaplega leiðinlegt ef
kæra þarf að koma til og ég skil að
mönnum sárni ef formgalli kemur
fram sem viðkomandi menn telja
ekki réttmætan. Það er leiðinlegt
að fá þriðja þáttinn í þessa
orrahríð, þátt lagaflækjunnar, og
ég hefði óskað að þessi staða hefði
aldrei komið upp.“
Friðjón Þórðarson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sagði í sam-
Herra Sigurbjörn Einarsson
biskup mun láta af embætti 1. okt.
nk.
Þau þrjú atkvæði sem dæmd
voru ógild af kjörnefnd voru
atkvæði Jósafats Líndals í Kópa-
vogi, séra Sigurjóns Einarssonar á
Kirkjubæjarklaustri og séra Auð-
ar Eir Vilhjálmsdóttur. í viðtali
við Mbl. á miðsíðu í dag segir séra
Ólafur Skúlason að hann viti að
tvö af þessum atkvæðum hafi
verið ætluð sér, en Mbl. fékk það
ekki staðfest í gær. Ekki náðist í
Jósafat og séra Sigurjón kvaðst
furða sig á því að nöfn ákveðinna
kjósenda hefðu lekið út frá kjör-
stjórn, sem ætti að vera eiðsvarin,
enda ætti þessi kosning að vera
leynileg. Séra Auður Eir kvaðst
engum hafa sagt sína afstöðu,
enda ætti þessi kosning að vera
leynileg.
Þá hafði Mbl. samband við séra
Sigfús Jón Árnason á Hofi í
Vopnafirði, en hans atkvæði tók
kjörnefnd ekki til greina þar sem
það barst of seint til ráðuneytisins
eftir nokkurra daga ferðalag í
pósti. „Jæja, var það mitt atkvæði
sem var ekki tekið til athugunar
hvað þá meira," sagði séra Sigfús
Jón, „en mér er engin launung á
því að ég studdi minn gamla
biskup, séra Pétur, og ég sendi
mín kjörgögn í ábyrgð og hrað-
pósti frá Vopnafirði upp úr miðri
síðustu viku, svo mér þykir kyn-
legt að það sé ekki talið gilt, því
með þessu móti hefði það átt að
berast ráðuneytinu á tilsettum
tíma fyrir kl. 5 sl. mánudag og í
lögunum um kosningu er ætlazt til
að gögn séu send í ábyrgðarpósti."
Sjá viðtöl og fréttir á miðsíðu.
Bílskúr sprakk í loft upp,
engin slys, en talsvert tjón
GÍFURLEG sprenging varð í
bílskúr við Bröttukinn 8 i
Hafnarfirði laust fyrir klukkan
23 í gærkvöldi af völdum gas-
leka. að því að talið er. Bilskúr-
inn gjöreyðilagðist og er nánast
horfinn af grunninum. Rúður
hrotnuðu í næstu húsum, bif-
reiðum og í groðurhúsi á næstu
lóð. Fngin slys urðu á mönnum.
Tildrög sprengingarinnar
munu vera þau. að eigandi
bilskúrsins vann i honum við
járnsmíðar og pípulagnir og
notaði hann logsuðutæki við
vinnuna. Af ókunnum ástæðum
hefur gas lekið af kút og loftið
inni í skúrnum mettazt af því.
Hið gasmettaða loft hefur siðan
komizt i snertingu við oliu eða
rafmagn og þvi sprungið, að
sögn slökkviliðsmanna. Svo öfl-
ug var sprengingin, að hennar
varð vart i mörg hundruð
metra fjarlægð. Þrátt fyrir, að
fólk væri nálægt gluggum i
næstu húsum meiddist enginn
ug verður að teljast mildi að
ekki fór verr.
Ljósmvnd Mbl. Sverrir Pálsson. Akureyri.
Séra Pétur Sigurgeirsson. Myndin var tekin á heimili hans í gær á
Akureyri eftir að úrslit höfðu verið tilkynnt í biskupskjöri. Sjá viðtal
á miðsíðu.
GengisfeUing:
Meðalgengi gjald-
miðla hækkar um 5%
— Hefði þurft að vera 25% segja iðnrekendur
— Fyllilega tímabært segja frystihúsin
GENGI ÍSLENSKU krónunnar var fellt í gær um 4,76%, og meðalgengi
erlendra gjaldmiðla hækkar um 5%. Ákvörðunin er tekin af hankastjórn
Seðlabanka íslands, að höfðu samráði við bankaráð og að fengnu samþykki
ríkisstjórnarinnar. I frétt Seðlabankans segir að ástæður gengisfellingar-
innar séu einkum mikil hækkun Bandarikjadollars gagnvart öðrum
gjaldmiðlum, sem valdið hafi verulegum erfiðleikum fyrir bæði margar
greinar útflutningsframleiðslu og samkeppnisiðnað. Að auki bætist við, að
verðlxilga og kostnaðarhækkanir hér á landi séu enn verulega umfram
það, sem á sér stað í hclstu viðskiptalöndum Islcndinga, segir í frétt frá
Seðlahankanum um málið.
í frétt Seðlabankans er ennfremur
minnt á að framundan séu frekari
kostnaðarhækkanir í kjölfar tæp-
lega 9% hækkunar vísitölu fram-
færslukostnaðar hinn fyrsta ágúst
síðastliðinn.
í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi fagnaði Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson forstjóri SH gengisfell-
ingunni, sem hann taldi fyllilega
timabæra nú. Sagði hann hana rétta
verulega hlut frystiiðnaðarins í
landinu, sem átt hefði við mikil
vandamál að stríða að undanförnu,
það er sá hluti er selur á markað í
Vestur-Evrópu.
Davíð Sch. Thorsteinsson formað-
ur Félags ísl. iðnrekenda kvaðst
einnig útaf fyrir sig geta fagnað
þessari gengisfellingu, en hún væri
allt of lítil, iðnaðurinn í landinu yrði
áfram rekinn með „hrikalegu tapi“.
Sjá nánar á blaðsíðu 5 í Morgun-
blaðinu í dag.