Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
19
„Kjarnorkuvígbúnaður, helstefna eða lífsstefna," var heitið á 1. des. hátíð sem stúdentar við Háskóla íslands héidu i
Háskólabíói í gær. I>ar voru haldnar ræður, sungið og leikjiáttur fluttur af f élögum úr Alþvðuleikhúsinu, lesið úr Ijóðum og
Bubbi Morthens söng nokkur lög. Dagskránni lauk með balli sem haldið var í Sigtúni um kvöldið.
„Brauðlausir“ prestar
hyggjast stofna félag
í UNDIRBÍJNINGl er nú stofnun fé-
lags brauðlausra presta, þ.e. þeirra
presta, sem ekki inna af hendi þjón-
ustu hjá ákveðinni sókn, en gegna
ýmsum sérembættum. Er þar um að
ræða æskulyðsfulltrúa þjóðkirkjunn-
ar, fangaprest, sjúkrahúsprest, skóla-
prest o.fl. Séra Jón Bjarman er for
rnaður undirbúningsfélags, en stofn-
fundur er ráðgerður í tengslum við
prestastefnu næsta sumar.
Séra Jón Bjarman tjáði Mbl., að
þeir prestar, sem ekki þjóna
ákveðnum söfnuði hafi í raun vant-
að ákveðna stöðu innan samfélags
presta og félagið sé stofnað til að
þeir geti átt samleið og samfélag og
verði félagið deild í Prestafélagi Is-
lands. Sagði hann t.d. hugmynd að
standa fyrir námskeiðum og útgáfu
fræðsluefnis.
Hér er um að ræða embætti bisk-
upsritara, æskulýðsfulltrúa þjóð-
kirkjunnar, sjúkrahúsprests, fanga-
prests og þeirra presta, sem launað-
ir eru úr kristnisjóði, t.d. frétta-
fulltrúa kirkjunnar, rektor Skál-
holtsskóla og sendiráðsprest og
presta, sem ráðnir eru til starfa hjá
öðrum aðilum, t.d. skólaprest og
prest SÁÁ sem vigja á bráðlega. Þá
sagði sr. Jón Bjarman hugmyndir
uppi um að þessir prestar yrðu á
einhvern hátt tengdir við ákveðnar
sóknir og hefðu þar takmarkaða
prédikunarskyldu.
Nafnið, Félag brauðlausra presta,
mun ekki endanlega ákveðið, en
sem fyrr segir verður hinn eiginlegi
stofnfundur haldinn um presta-
stefnuna seint í iúní á næsta ári.
Bjartur heim á morg-
un eða fimmtudag
VÉLBÁTURINN Bjartur er væntan-
legur hingað til lands á fimmtudag
eða föstudag, en Bjartur hefur síð-
ustu 18 mánuði verið í sérstöku
þróunarverkefni á Grænhöfðaeyjum.
Bjartur hafði viðkomu í Cork á ír
landi á heimleið, en hélt þaðan á
mánudag.
Við heimkomu verður Bjartur
Halldór Haraldsson
seldur og hafa margir spurst fyrir
um skipið, sem er hentugur vertíð-
arbátur, en Bjartur er 270 tonn að
stærð, byggður í A-Þýzkalandi.
Ekki er ólíklegt að kaupverð
Bjarts verði í kringum 8—9 millj.
kr. og verður það fé þá notað til
smíða á öðru skipi, sem notað
verður við þróunaraðstoð.
Ólafur Egilsson, sendiherra
sagði í samtali við Morgunblaðið
að markvisst væri unnið að undir-
búningi nýs skips í stað Bjarts.
Kvað hann frumteikningar nú
liggja fyrir og væri gert ráð fyrir
að skipið yrði smíðað í íslenzkri
skipasmíðastöð, en gert er ráð
fyrir að það verði 150 tonn að
stærð og sérhannað fyrir frekari
aðstoð á Grænhöfðaeyjum og ann-
ars staðar í þróunarríkjum. Að
sögn Ólafs verður hið nýja skip
hannað og byggt af þeirri reynslu
sem fengist hefur af Bjarti við
þróunaraðstoð og sagði hann að
bygging þess þyrfti að hefjast sem
fyrst, sem þýddi að ákvörðun um
það yrði tekin alveg á næstunni.
Halldór Haraldsson
á Háskólatónleikum
SÍÐUSTU Háskólatónleikar fyrir
jól verða föstudaginn 4. desember
í Norræna húsinu kl. 12.30—13.00.
Haildór Haraldsson leikur á pianó
verk eftir Béla Bartók þ.e. rúm-
enska þjóðdansa, svítu op. 14 og
sónötuna frá 1926.
INNLENT
Blúsbandið snýr aftur
THE MISSISSIPPI Delta Blues
Band mun halda tónleika í Reykja-
vík á fimmtudag og föstudag. Verða
tónleikarnir á fimmtudag í Súlnasal
Hótel Sögu og hefjast kl. 21.00.
Tónleikarnir á föstudag verða í
klúbbi NEFS, verður húsið þá
opnað kl. 20.00 en hljómsveitin
hefur leik sinn klukkustund síðar.
Það er Jazzvakning sem stendur
íyrir þessum hljómleikum, en
hljómsveitin er nú á heimleið til
Bandaríkjanna eftir hljómleika-
ferð um Evrópu. í byrjun október
sl. hélt The Mississippi Delta
Blues Band tvenna tónleika hér og
var uppselt á þá báða.
SKOÐUN:
SHARP myndsegulbandið er
sjálfvirkt og framhlaðið lárétt,
nokkuð sem er stór kostur þegar
varna þarf ryki og óhreinindum
að setjast á viðkvæman tækni-
búnað
7-7-7
UPPTÖKUR/PRÓGRAMMINNI:
Með stillingu getur tækið tekið
upp 7 þætti frá 7 mismunandi
stöðvum á allt að 7 dögum fram í
tímann. Tækið kveikir og slekkur
á sér sjálft.
Verð frá kr. 14.300.-
ÆMB
Tækið getur
fundið strax
nákvæmlega það atriðfá filmunni
sem þú ætlar að skoða. —
„frystir" filmuna eða sýnir í
hægagangi, jafnvel mynd fyrir
mynd — eykur hraöann, spólar til
baka eða áfram.
HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SlMI 25999
mynd
band
með óendanlega
möguleika
SHARP myndsegulbandið
byggir á háþróaðri japanskri
örtölvutækni og árangurinn er
líka eftir því— myndsegulband
sem ekki á sinn líka í mynd
gæðum og tækninýjungum.