Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 25 birti þau hvergi, en gaf mér afrit. Hygg ég, að hann hljóti að hafa látið eftir sig eitthvað af ljóðum og fjölmargar tækifærisstökur. Ég lagði annars ekkert að hon- um um iðkun ljóðlistar og honum mun hafa verið ljóst, að mikið þurfti til, ef eitthvað marktækt skyldi leggja til íslenzkrar ljóða- gerðar á fornum grunni erfða- menningar, svo mörg stórskáld sem iðkað höfðu ljóðlistina á 19. öld og fram yfir 1930. En mér var mjög hugleikið, að Þórleifur — með sína ágætu frásagnargáfu og næmu mannþekkingu semdi skáldsögur, sem gerðust á heima- slóðum hans. Hann var Horn- strendingur, alinn upp við furðu- lega hrikalega náttúru og innst inni mótaður af þeim dulúðga og feiknkennda blæ, sem slík nátt- úruundur gæðir börn sín frá fyrstu bernsku. Ég er Arnfirðing- ur, og Arnfirðingar voru, ásamt Hornstrendingum, taldir fjölvís- astir galdramenn allra íslendinga, allt fram á þessa öld. Ég var og uppalinn í skauti slíkrar náttúru, að fæðingarstað mínum var ein- hvern tíma í fyrndinni valið heitið Lokinhamrar — og ber það nafn með réttu. Ég lét mér svo til hugar koma, að Þórleifur kynni að geta ritað hliðstæða sögu eða sögur og fastmótuðustu sögur mínar, svo sem Þátt af Neshólabræðrum. Tengsl hans við náttúru Horn- stranda voru sízt ómáttugri en mín við Arnarfjörð, og eins og mér bjó honum í hug sá uggur, að þau öfl mannlegs lífs, sem barist höfðu öld eftir öld í heimabyggðum okkar við trölldóm brims og bjarga, hefðu nú beðið fullnaðar ósigur. Eg fór varlega í sakirnar við Þórleif, þó að milli okkar ríkti sem áður segir fullur trúnaður og ein- læg vinátta, sem aldrei kom brest- ur í. En vissulega fékk hann að vita, hvers ég bjóst við af honum. Og vorið 1946 kom hann til mín og fleygði í mig — eða svo gott sem — umslagi, sem hafði að geyma handrit af skáldsögunni Og svo kom vorið. Jú, jú, þetta var vel rituð saga, og okkur kom saman um, að hún yrði gefin út í snoturri bók. Hún reyndist prentuð á 88 blaðsíður og varð vinsæl hjá al- mennum lesendum, enda fór hún vel, þó að það gætu nú varla talizt sæmilega góðar bækur, sem ekki enduðu á einhvers konar ósköpum. En þó að hún hafi ekki það að flytja, sem ég vildi fá frá Þórleifi skipulega samið og skáldlega fram reitt, benti efni hennar til þess uggs, sem var nú að verða að fyllsta veruleika! Maður kemur í byggð, sem eitt sinn var blómleg, en vetur illra og meinlegra að- stæðna er að eyða. En þegar hann fer þangað á ný, hefur vor fram- taks og góðrar getu reist þar blómlegt nýbýli. Skömmu síðar en þessi bók kom út, kom Þórleifur til mín og sýndi mér frumrit að smásögu um mann, sem þraukaði einn í mann- lausri heimasveit sinni, unz hann Ioks fiuttist í kaupstað. Þar vann hann alla virka daga við ýmis lítt launuð störf, en á sunnudögum reikaði hann út úr kaupstaðnum og ráfaði síðan linnulaust um fjöll og aðrar óbyggðir í grenndinni. Þegar ég hafði lesið smásögu- kornið, sagði ég: „Ég hef nú sitt- hvað út á þetta sögukorn að setja sem smásögu, en ég held, að þér sé óhætt að trúa mér, því að á smá- söguforminu hef ég sjálfur náð nokkuð góðum tökum." Nú varð Þórleifur glottaralegur á svip, þar sem hann sat og tottaði pípu sína. Síðan mælti hann á þessa leið: „Þegar ég hafði lokið við Hornstrendingabók og séð, hve allur þorri manna lét sér hana vel líka, fór ég að hugsa um að skrifa alvöruskáldrit — þú veist, hvað ég meina með þessu orði — um hina fallegu en tröllslegu náttúru heimasveitar minnar og lífsbar- áttuna þar. Nú er sagan orðin innra með mér að þremur bindum, og þetta á að verða síðasti kafli ritsins, en bindin eiga að heita: Hvað sagði tröllið?, Tröllið sagði, — og það síðasta: Mannaþefur í helli mínum.“ „Það er nú rétt þar um bil, að ég megi mæla og lært svo nægja þessi heilögu orð: „Amen, halel- úja.“ Það var svo ekki fyrr en árið 1948, að fyrsta bindið kom frá hendi Þórleifs. Ég las handritið og lagði yfir það blessun mína, enda hefur Hvað sagði tröllið? að geyma fjölmargar eftirminnilegar persónur, spaugilegar og alvarleg- ar, flytur sannar lýsingar þar, meðan allt var það í blóma. Það varð úr að senda Norðra handrit- ið. Þá var dómari um það, hvaða fyrirferðarmikil og kostnaðarsöm skáldrit Norðri gat út og hver yrðu endursend, einmitt sá maður, sem nú hefur lengi verið einna mest virtur sakir glöggskyggni sinnar á bókmenntir í bundnu og óbundnu máli. Þegar svo við Þór- leifur forum að heiman frá móður minni til að fá hjá Albert Finn- bogasyni fréttir af örlögum hand- ritsins, vorum við svo heppnir að mæta neðarlega á Laugaveginum hinum valdamikla dómara og dirfðumst að heilsa honum og leita frétta. Jú, jú, hann hafði lagt til, að handritið væri gefið út. Þar væri fjallað um forvitnileg efni frá Furðuströndum, og meðferð efnisins væri höfundi til sóma. Bókin kom út og vakti mikla at- hygli, en lítið var um hana ritað, enda Þórleifur ekki eftirlætisbarn þeirra manna, sem þá réðu all- miklu um bókadóma, unz mikil- vægi stefnu þeirra reyndist heimskulegur heilaspuni, sem engri byltingu olli í bókmenntum Þórleifur Bjarnason vestan járntjalds, en hefur valdið skáldum og listamönnum austan þess sárum vanda og jafnvel dauða eða fangelsum og eyðileggj- andi langdvölum á geðveikrahæl- um. En það varð löng bið á því að annað bindi skáldritsins mikla kæmi út. Hún var hvorki meira né minna en tíu ár eða frá 1948—’58. Sakir þessa varð bókin um skeið minna lesin en ella hefði orðið raunin. Ný kynslóð var komin á legg í landinu og margir eigendur og unnendur hins fyrra bindis látnir. Og það var svo ekki fyrr en upp úr 1969, að Þórleifur gaf sér tóm til að hefja ritun þriðja bind- isins, Mannaþefur í helli mínum. Og svo kom þá til sögunnar og kvaddi Þórieif allt í einu á brott, sá, sem engum þyrmir, hversu brýn sem þörf hans er til að ljúka verkefnum hér í heimi. Þá hafði Þórleifur frá því síðustu ár sín á Akranesi varist af mikilli varúð og að því er virtist óttaleysi þeim vágesti, sem læknar nefna krans- æðastíflu, aftur og aftur í meira en áratug risið svo að segja úr dauðadái og tekið til starfa á ný, jafnvel þolað þá miklu andlegu og líkamlegu áraun, sem missir Sig- ríðar eiginkonu hans var honum. Hvað var það svo, sem olli því, hve seint Þórleifi vannst það verk, sem ég vissi, að var honum hjart- fólgnast? Jú, átthagafélag Sléttu- hrepps, sem nú var kominn í auðn, vildi, áður en elzta kynslóð Sléttu- hrepps væru öll, láta semja íbúa- og býlatal hinnar eyddu sveitar svo vandlega, sem heimildir fram- ast leyfðu, og fyrir þeim var eng- inn miður áhugasamur en Gunnar Friðriksson, frá Látrum í Aðalvík, sem fyrir löngu er orðinn þjóð- kunnur sem frábærlega dugandi og happasæll forseti Slysavarna- félags Islands. Hann þekkti Þór- leif af elju og dugnaði, samfara einstakri samvizkusemi, og treysti honum til að vinna hið tafasama og langvinna verk öðrum fremur, sem hann þekkti til. Svo taldi þá Þórleifur það skyldu sína að taka að sér að vinna þetta nauðsynja- verk. Hóf hann starf sitt að úr- lausn vandans strax á síðustu ár- um sínum á Akranesi og hélt því áfram einn síns liðs, en fékk loks til starfa með sér hinn unga og áhugasama mennta- og fræði- mann Kristinn Kristmundsson, nú skólameistara Menntaskólans á Laugarvatni. Ritið kom svo út á kostnað Átthagafélags Sléttu- hrepps árið 1971, og er það þannig að öllu leyti úr garði gert sem framast varð á kosið, enda var samvinna þeirra Þórleifs og Krist- ins með ágætum. Er ritið því sem næst 500 blaðsíður í allstóru broti og í því mikill fjöldi mynda. Þá hafði Þórleifur og látið frá sér fara bókina Hjá afa og ömmu. Hún kom út á kostnað Almenna bókafélagsins 1960 og er þar skemmtileg og forvitnileg lýsing á lífinu á heimili gömlu hjónanna og ber heimilismenningu Horn- strendinga ljóst vitni. Og 1955 ha- fði frá hans hendi komið Þrettán spor, sem Isafoldarprentsmiðja gaf út, en sú bók flytur 13 smásög- ur, sem Þórleifur hafði samið, þegar af einhverjum ástæðum varð hlé á störfum hans sem námsstjóra, en þau störf urðu honum auðveldari eftir því sem kynni hans jukust af því ástandi, sem ríkti hér og þar í umdæmum hans. Sama máli gegnir um Hreggbarin fjöll, sem Almenna bókafélagið gaf út sama árið og Þórleifur fluttist til Akureyrar. Sú bók hefur að geyma tíu smá- sögur. Allar eru smásögur Þórleifs betur gerðar en flest það af sama tagi, sem út hefur verið gefið á síðustu áratugum og sumar sög- urnar frábærlega vel skrifaðar og án alls tízkutildurs. En forvitni- legust um hug hans til eyðibyggð- anna norðan Isafjarðardjúps er máski hin langa smásaga Strönd- in handan flóans, en hún er næst síðust í safiýnu Hreggbarin fjöll. Seinasta skáldritið, sem frá Þór- leifi kom, var heimildaskáldsagan Sú grunna lukka, sem Örn og Ör- lygur gáfu út árið 1978. Er sú saga að öllu leyti í samræmi við raun- verulega harmsögu, sem Þórleifur rakst á í leit sinni að tæmandi efni í hið mikla rit þeirra Kristins Kristmundssonar og sótti svo fast á huga og hjarta Þórleifs, að hann lagði frá sér í bili það, sem hann hafði þá ritað af Mannaþefur í helli mínum. Er sú bók ef til vill of sönn til þess að beztu eiginleikar Þórleifs sem skálds fengju notið sín til fulls. Einkum í seinasta hluta bókarinnar hefur fræðimað- urinn tekizt ærið fast á við skáld- ið. En forvitnileg er sagan og minnisstæð verður hún. Og vissu- lega gæti hún orðið ströng áminn- ing til þeirra, sem nú ráða seina- gangi dómsmála á landi hér. Af öðrum ritverkum Þórleifs um fræðileg efni minni ég aðeins á Al- dahvörf, sem út komu 1974. Það er saga íslands á elleftu öldinni, greinargott yfirlitsrit með fjöl- mörgum myndum ... Vorið 1979 bauð menningarfélag og bæjarstjórn ísafjarðar okkur hjónum vestur. Þá var Þórleifur Bjarnason fenginn til að koma og flytja ræðu og lesa upp á sam- komu í yfirfullu Alþýðuhúsi ísa- fjarðar. Og að þeirri samkomu lokinni, þar sem fleiri komu fram, sagði hann nokkur skenjmtileg orð í veizlu, sem haldin var á eftir samkomunni. Fáum dögum síðar flaug hann á brott. Við kvöddumst með löngu og föstu handtaki og horfðumst í augu í spurn. Hvort og hvenær? Nú hefur þeirri spurningu verið svarað. Við sáumst þarna í siðasta sinn — í bili. Mýrum í Reykholtsdal 2. til 10. október. Guðmundur Gíslason Hagalín. Þjóðsögur og þættir úr Mýrdal BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf. hefur nú sent frá sér bokina Þjóósögur og þættir úr Mýrdal eftir Eyjólf Guðmundsson frá Hvoli í Mýrdal, en Þórður Tómasson safn- vörður á Skógum bjó bókina til prentunar. Eyjólfur Guðmundsson var fæddur 31. ágúst árið 1870, en lést 16. október 1954. Hann var lengst af ævi sinnar bóndi að Hvoli í Mýrdal, en gaf sig þó mikið af fræðistörfum og skrifum og allar þær bækur er hann sendi frá sér hlutu einstaklega góðar viðtökur, einkum þó bækurnar „Pabbi og mamma" og „Afi og amrna" sem komu út á árunum 1941 og 1944. Þegar Eyjólfur lést lá mikið magn óprentaðra handrita í skrifborði hans, m.a. mannlífsþættir úr Mýrdal, þjóðsögur og ýmis fróð- leikur yngri og eldri. Þórður Tóm- asson tók saman safn úr þessum handritum og birtist það í bók- inni. Þórður Tómasson ritar einn- ig formála bókarinnar. Utvarpssaga gefin út BÓKAÚTGÁFAN Vaka hefur gefið út bókina Hús handa okkur öllum, sem er saga fyrir börn og unglinga eftir danska höfundinn Thöger Birkeland. Saga þessi var lesin í útvarpi í sumar. Þýðandi er Sigurður Helgason. í umsögn á bókarkápu kemur meðal annars fram, að í bókinni segi frá samskiptum og sambúð þriggja kynslóða, daglegu lífi þeirra og leyndarmálum. „Fjölskyldurnar, sem koma við sögu, eru náskyldar, en búa hver á sínum stað. Til þess að treysta fjölskylduböndin ákveða þær að kaupa allstórt gamalt en hrörlegt hús. Allir leggjast á eitt við að gera það upp og hefja sameiginlegan búskap. Þá fyrst fer nú að verða gaman að lifa,“ segir þar. Bókin var að öllu leyti unnin hjá Prentsmiðjunni Odda hf. WIKA Þrýstimælar Allar stæröir og geröir SðyirÐaiuigjyir oJ<§)in)©©®ini <§t Vesturgötu 16, sími 13280 Fenner Reimar og reimskífur Ástengi Fenner Ástengi Leguhús Vald Poulsen Suöurlandsbraut 10, sími 86499.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.