Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
5
Prestskosning-
ar á Akureyri
á sunnudaginn
PRESTTSKOSNINGAR verða á Ak-
ureyri næstkomandi sunnudag, 6.
desember. Fara þá fram kosningar í
tvö prestsembætti, annars vegar fyrir
hina nýju Lögmannshlíðarsókn og
hins vegar í annað embættið í Akur
eyrarprestakalli. Tveir umsækjendur
eru um hvort embætti. Um Lög-
mannshlíðarsókn sækja sr. Gylfí
Jónsson og sr. Pálmi Matthíasson og
um Akureyrarsókn sr. Jón A. Bald-
vinsson og sr. Þórhallur Höskulds-
son.
Séra Gylfi Jónsson er fæddur 28.
apríl 1945 á Akureyri og lauk hann
stúdentsprófi frá MA 1965 og guð-
fræðiprófi vorið 1973. Var honum
þá veitt Staðarfellsprestakall í
Köldukinn, en frá árslokum 1973
þjónaði hann prestakalli í Uppsöl-
um og stundaði þar framhaldsnám
í trúarbragðafélagsfræði. í nóvem-
ber 1974 var honum veitt Bjarn-
arnesprestakall í Hornafirði. Sr.
Gylfi hefur starfað við Sumarbúð-
ir kirkjunnar við Vestmannsvatn.
Kona hans er Þorgerður Sigurð-
ardóttir og eiga þau einn son.
Séra Jón A. Baldvinsson er
fæddur 17. júní 1946 á Ófeigsstöð-
um í Köldukinn. Tók hann stúd-
entspróf í MA árið 1968 og lauk
guðfræðiprófi vorið 1974. Var hann
settur sóknarprestur í Staðar-
fellsprestakalli í júní 1974 og
skipaður í maí 1975. Árin 1978 til
1979 var hann við framhaldsnám í
sálgæslu við Edinborgarháskóla.
Kona hans er Margrét Sigtryggs-
dóttir og eiga þau tvær dætur.
Séra Pálmi Matthíasson er
fæddur á Akureyri 21. ágúst 1951.
Lauk hann stúdentsprófi frá MA
vorið 1971 og guðfræðinámi 1977
og vígðist það haust til Melstað-
arprestakalls í Húnavatnspróf-
astsdæmi. Hefur hann þjónað þar
síðan með búsetu á Hvammstanga.
Kona hans er Unnur Ólafsdóttir og
eiga þau eina dóttur.
Séra Þórhallur Höskuldsson er
fæddur 16. nóvember 1942 á Skriðu
í Hörgárdal. Hann varð stúdent
frá MÁ 1962 og lauk guðfræðiprófi
haustið 1968. Hann stundaði einn-
ig nám í uppeldis- og sálarfræðum
1966 til 1967. Hann vígðist til
Möðruvallaprestakalls í Hörgárdal
í nóvember 1968 og hefur þjónað
þar síðan. Hann hefur setið í
æskulýðsnefnd þjóðkirkjunnar.
Kona hans er Þóra Steinunn Gísla-
dóttir og eiga þau tvo drengi og
eina stúlku.
Stjórn Blaðamannafélags íslands:
Vítir fyrirvaralaus-
ar fjöldauppsagnir
vegna sameining-
ar síddegisblaða
STJORN Blaðamannafélags íslands
kom saman til fundar sl. mánu-
dagskvöld og ræddi þar skyndilegar
uppsagnir blaðamanna við síðdegis-
blöðin vegna samciningar þeirra. Á
fundinum voru einnig boðaðir þeir,
sem misslu vinnu sína og trúnaðar
menn BÍ. Á fundinum var ákveðið að
skrifa stjórnum þeirra útgáfufélaga
er gáfu út Vísi og Dagblaðið til að
árétta að þeir sem sagt var upp starfi
fengju lögmætum réttindum og kröf-
um sínum fullnægt og var útgáfufé-
lögunum gefinn frestur til að svara til
7. desember.
í framhaldi af þessum fundi er
síðan ráðgert að boða til félags-
fundar BI miðvikudaginn 9. des-
ember til að ræða um breytt við-
horf í íslenskri blaðaútgáfu og
fleiri mál. Þá samþykkti stjórn
Blaðamannafélags Islands eftirfar-
andi ályktun á fundi sínum í gær:
„Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands vítir fyrirvaralausar fjölda-
uppsagnir blaðamanna við samein-
ingu Vísis og Dagblaðsins. Þær
starfsaðferðir að reka blaðamenn
heim án nokkurrar viðvörunar eru
afar ógeðfelldar að dómi stjórnar
Rithöfunda-
kvöldvaka
FÉLAG íslenskra rithöfunda gengst
fyrir kvöldvöku, sem haldin verður
að Hótel Esju á fimmtudagskvöld.
Gestir kvöldvökunnar verða:
Sigurbjörn Einarsson fyrrv. bisk-
up og Ólafur Ragnarsson rithöf-
undur og bókaútgefandi. Auk
gestanna lesa úr nýútgefnum
verkum sínum rithöfundarnir
Indriði G. Þorsteinsson og Jón
Bjarman.
Blaðamannafélagsins og geta að-
eins orðið til að spilla fyrir eðli-
legum samskiptum blaðamanna og
útgefenda í framtíðinni.
Störfum í blaðamannastétt hefur
fækkað um einn tíunda í einu vet-
fangi, þeir sem fengu uppsagnir
eiga erfiðara með að leita annað,
vegna þess að störfum við blaða-
mennsku hefur fækkað. Stjórn
Blaðamannafélags íslands álítur
að einhliða fækkun starfsmanna
þessara tveggja blaða sé siðlaus og
hefði einungis átt að koma í kjölfar
viðræðna milli starfsfólks og fram-
kvæmdastjórna blaðanna. Þeir
blaðamenn, sem enn vinna á
Dagblaðinu og Vísi eru nú snögg-
lega að störfum hjá nýjum vinnu-
veitanda. Slíkar breytingar án
samráðs við starfsfólk orka tví-
mælis.
Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands harmar að bágur fjárhagur
og áform um tæknivæðingu skuli
hafa orðið til þess að sjálfstæðum
ritstjórnum íslenskra dagblaða
hefur fækkað. Stjórnin telur lýð-
ræði og frjálsri skoðanamyndun í
landinu best þjónað með fjöl-
breyttu framboði dagblaða, í sam-
ræmi við fjölbreytni íslensks þjóð-
lífs.
Stjórn Blaðamannafélags ís-
lands ítrekar af þessu tilefni yfir-
lýsingu í nýgerðum kjarasamningi
um að útgefendur og blaðamenn
skuli gera með sér samkomulag um
innleiðingu tækninýjunga á blöð-
unum.
Stjórn Blaðamannafélagsins lýs-
ir áhyggjum vegna hugsanlegs at-
vinnuleysis meðal blaðamanna
annarra blaða, í kjölfar samein-
ingar Dagblaðsins og Vísis. Jafn-
framt bendir stjórn Blaðamannafé-
lágs íslands á, að Frjáls fjölmiðlun
hf., sem gefur út hið sameinaða
blað, er ekki aöili að kjarasamningi
blaðamanna og útgefenda frá 17.
nóvember síðastliðnum.“
Fataefnin eru frá vióurkenndum framleiðendum. Klæðskeri í verzluninni,
svo þú ert í góðum höndum.
Veldu klæðnaðinn hjá okkur, hann gerir örugglega meira en að hylja nekt
þina.
//
IHi
K
Snorrabraut 56 Simi 13505
Glæsibæ Sími 34350
Austurstrxti 10
sínii: 27211
Þaðeru
margar leiðir til að
hylja
nekt þlna.
Við bendum þér á leiðina, sem margir velklæddir viðskiptavinir okkar hafa
farið og vakið athygli annara.