Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 32
TUDOR rafgeymar wjá þessir meó 9 líf " SKORRIHF Laugavegi 180, sími 84160 Síminn á afgreiðslunni er 8303? JflorjrjtmMafoifo MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Skýrt verður frá stöðv- un loðnuveiðanna í dag IJÓST 1»YKIR NÚ, að loðnuveiðar verði stöðvaðar á næstu dögum og samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, þá mun Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra skýra frá stöðv- un vciðanna á fundi með eigendum og skipstjórum loðnuskipa árdegis. Hins vegar er Morgunblaðinu ekki kunnugt um hvaða dag ráðherra ætlar sér að stöðva veiðarnar né hve lengi. Á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna fyrir Flugleiðir: Vilja 22% hækk- un innanlands skömmu sagði sjávarútvegsráð- herra að ef stofnstærðarmæl- ingar Bjarna Sæmundssonar sýndu ekki meira en 300 þúsund tonna magn í sjónum, þá myndi hann stöðva veiðar fram yfir áramót. í byrjun janúar þyrfti síðan að mæla stofninn á ný og taka ákvörðun um veiði út frá því. Sagði ráðherra að það gæti verið gott að geyma að veiða eitthvað af loðnunni þar til síð- ar í vetur, þar sem talið væri að gott verð fengist nú fyrir loðnu- hrogn. Rannsóknaskipið Bjarni Sæ- mundsson kom til Reykjavíkur í gærmorgun og síðdegis í gær átti Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur fund með sjáv- arútvegsráðherra og mun hann þá hafa skýrt frá niðurstöðum leiðangursins, en lítil sem engin loðna mun hafa fundist um- fram það, sem áður hefur verið greint frá eða um 300 þúsund lestir. Um borð í Bjarna Sæ- mundssyni var að þessu sinni einnig Pétur Stefánsson, skip- stjóri á Pétri Jónssyni, en Mbl. tókst ekki að ná tali af honum í gær. Ellefu loðnuskip voru í gær búin með sinn kvóta og sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Verðlagsráð samþykkti, að heimila 6,9% hækkun á gasolíu, sem hefur í för með sér, að hver lítri hækkar úr 2,90 krónum í 3,10 krónur. Heimilað var að hækka fargjöld í innanlandsfluginu um 10%. Samþykkt var að heimila 10% Morgunblaðið fékk hjá Loðnu- nefnd í gær voru önnur 10 skip í sinni síðustu veiðiferð. Alls fengu 52 skip leyfi til loðnu- veiða að þessu sinni og eru sum þeirra rétt byrjuð veiðarnar. Nú eru komnar á land 440 þús- und lestir af loðnu, en upphaf- lega var heimilað að veiða 617 þús. tonn að þessu sinni. hækkun á öli og gosdrykkjum. Sömuleiðis 10% hækkun á smjör- líki. Allar þessar hækkanir taka gildi þegar í dag og þurfa ekki staðfestingu ríkisstjórnarinnar. Verðlagsráð samþykkti hins vegar að heimila 15% hækkun á Um borð í Bjarna Sæmundssyni á dögunum, er skipið var við stofn- stærðarmælingar á loðnustofninum. Ljósm.: Rafn Olafsson saltfiski og þarf sú ákvörðun að fara fyrir ríkisstjórnina til að hljóta samþykki. Sem dæmi um hækkanir á gos- drykkjum kostar flaska af appel- síni frá Ölgerðinni 2,80 krónur, en hækkar í 3,08 krónur, flaska af Pepsí frá Sanitas kostar 2,90 krón- ur, en hækkar í 3,19 krónur og stór Coke-flaska frá Vífilfelli kostar 3,20 krónur, en fer í 3,52 krónur. Benzínlítrinn hækkar í 8,45 krónur f dag Öl, gosdrykkir, smjörlíki og flugfargjöld innanlands hækka um 10% VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi, að heimila 5,6% hækkun á benzíni, sem hefur í för með sér, að hver lítri benzíns hækkar úr 8 krónum í 8,45 krónur. Hækkunin tekur gildi þegar í dag. „ELUGLEIÐIR sóttu um 22% hækk- un á innanlandsfargjöldum 1. októ- ber sl., en hafa ekki fengið neina afgreiðslu á því máli,“ sagði Sigurð- ur Helgason, yngri framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Flugleiða í sam- tali við Mbl. í gærkvöldi, en í sam- bandi við frumvarp það sem ríkis- stjómin er nú með í smíðum varð- andi Flugleiðir er gert ráð fyrir hækkun fargjalda innanlands. Sigurður sagði að beiðnin um 22% hækkun 1. október hefði mið- ast við hallalausan rekstur á þeim tíma, en síðan hefði kostnaður aukist, en það þýddi þó ekki að Flugleiðir myndu hækka fargjöld- in nú þegar eða í einni svipan um 22% ef þau yrðu gefin frjáls. Kröfu um að fíkniefnadómarar víki var hnekkt í Hæstarétti Starfsmenn Fíkniefnadómstólsins og lögreglumenn sakaðir um að hafa beitt andlegum og líkamlegum pyntingum við yfirheyrslur í FYRRADAG féll dómur í Hæstarétti þar sem þess var krafist, að dómarar fíkniefnadómstólsins víki úr dómarasæti, þar sem þeir væru vanhæfir til að dæma í tilteknu fíkniefnamáli. Annars vegar, að Asgeir Friðjónsson, saka- dómari, teldist vanhæfur til að láta fjalla um mál þetta og hins vegar, að bórður Þórðarson, fulltrúi sakadómara teldist vanhæfur til að dæma í málinu. Vmsar endurbætur og lagfæringar standa nú yfir á Gamla bíói, sem er nú eign íslenzku óperunnar og er nú unnið af fullum krafti við að sfækka svið hússins, smíða hljómsveitargryfju, setja sviðsljós og sitthvað fleira, en húsið verður opnað á ný I. janúar með frumsýningu á Sígaunabaróninum og síðan verða bæði bíósýningar og sýningar á vegutn Islenzku óperunnar í húsinu. Á myndinni er Garðar Cortes söngvari, skólastjóri og stjórnarformaður íslenzku óperunnar að fylgjast með framkvæmdum. Ljósmynd Mbl. ÓI.K.M. Hæstiréttur vísaði málinu frá vegna formgalla kæranda. Þá úr- skurðaði Hæstiréttur, að kæru- málskostnaður yrði ekki greiddur, en lögmaður kæranda hafði gert kröfu til þess. í dómsniðurstöðu segir m.a.: „Ástæða er til að taka fram, að varnaraðili hefur ekki rennt haldbærum stoðum undir þá kröfu sína, að Þórður Þórðarson, fulltrúi sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum, sé vanhæfur til að fara með og dæma mál þetta." Samsvarandi athugasemd gerði Hæstiréttur varðandi kröfuna um, að Ásgeir teldist vanhæfur. Kærandi taldi að Ásgeir væri vanhæfur til að láta fjalla um mál þetta og Þórður væri vanhæfur til að dæma í málinu, vegna þess að kærandi og 52 aðilar sendu fyrir skömmu dómsmálaráðherra und- irskriftarlista, þar sem krafist var rannsóknar á starfsaðferðum fíkniefnadómstólsins og báru þeir starfsmenn fíkniefnadómstólsins og lögreglu þeim sökum, að hafa beitt andlegum og líkamlegum pyntingum við yfirheyrslur. Svo virðist sem fíkniefnaaðilar, dreifendur og neytendur, hafi sagt fíkniefnadómstólnum stríð á hendur og reyni markvisst að grafa undan honum, meðal annars með því að kasta rýrð á dómara, fulltrúa hans og einnig lögreglu- menn. Að undanförnu hefur mjög borið á því, að þessir aðilar höfn- uðu dómssáttum þrátt fyrir játað- ar sakir og tafið þannig mál. Þá hafa áfrýjanir til Hæstaréttar verið áberandi að undanförnu. Blys sprakk í andlit tveggja 7 ára drengja TVEIR sjö ára drengir brenndust nokkuð í andliti er blys sprakk framan í þá í Norðurbænum í Hafnarfirði um klukkan 15 í gær. Talsvert hefur verið um að blys og flugeldar hafi sprungið á þessum slóðum undanfarið og er talið að skotfærin séu úr flug- eldasölu Ilauka í Hafnarfirði, en þaðan var stolið nokkru af flug- eldum og blysum síðastliðinn vetur. Þeir sem þar voru að verki náðust, en sögðu þá að þeir hefðu losað sig við flugeldana og blysin. Lögreglan í Hafnar- firði telur hins vegar að svo sé ekki og blys það er litlu dreng- irnir fundu í gær hafi verið meðal þess, sem stolið var í byrjun ársins. Hvetur lögregl- an í Hafnarfirði foreldra til að vera vel á verði ef vart verður hættulegra hluta eins og blyss- ins sem olli slysinu í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.