Morgunblaðið - 02.12.1981, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
35
Sagt frá íslendingum í Minneapolis
Eftir Valdimar
Björnsson
Söngur Lanuholtskirkjukórs í
Central Lutheran Church í
Minneapolis sunnudagskvöldið, 30.
ágúst, vakti hylli og hrifningu um
700 áheyrenda er viðstaddir voru.
Er sú kirkju að nokkru leyti
„Dómkirkja Norðmanna“ hér um
slóðir, og veittist tækifæri á eftir
að hitta söngfólkið er kaffj og
veitingar voru bornar fram í sal
tengdum kirkjunni. Kórinn kom
hingað frá Winnipeg eftir söng-
kvöld þar í stórum húsakynnum
nær miðborginni og rétt á undan
komuna til Minneapolis var sung-
ið í Eau Claire og Madison,
Wisconsin.
Greinar um kórinn minnast
þess hve ungir meðlimirnir séu og
hve frískur og líflegur blær sé yfir
framkomu þeirra. Það reyndist
dómur fólks hér og fengu þau
lofsyrðin óspart, kórmeðlimir, Jón
Stefánsson söngstjóri þeirra og
einsöngvarinn, kona hans, Ólöf
Kolbrún Harðardóttir. Sérstök at-
hygli margra hér beindist að
lögum Þorkels Sigurbjörnssonar,
er útskrifaðist frá Hamline Uni-
versity í St. Paul fyrir nokkrum
árum, og voru mágkona Þorkels og
dóttir hans og Barböru Powell
sem átti heima í Waseca, Minne-
sota, viðstödd. Heitir hún Mist og
er sjálf nú við nám í Hamline, þar
sem foreldrar hennar útskrifuðust
bæði. Hekla klúbburinn, félag
íslenzkra kvenna í Minneapolis og
St. Paul, undir forystu Matthildar
Kvaran, konu Jóns Björnssonar,
aðstoðaði við veitingarnar á eftir
og Minnesota-deild American
Scandinavian Foundation var með
í því að koma út tilkynningum
fyrirfram. Annars kom Lang-
holtskirkjukórinn hingað sam-
kvæmt boði John Ferguson,
organista og söngstjóra Central
Lutheran Church
Baldur Möller ráðuneytisstjóri
og frú Sigrún Markúsdóttir kona
hans voru í Minneapolis nýlega í
heimsókn hjá syni þeirra, Mark-
úsi, sem er langt kominn með það
að fá doktorsgráðu í hagfræði við
Minnesota-háskólann. Júlía Ingv-
arsdóttir Helgasonar, kona Mark-
úsar, hefur líka sótt nám við
háskólann; drengur þeirra heitir
Baldur Helgi, eftir afa og langafa,
og var sá síðarnefndi Helgi læknir
á Vífilsstöðum.
Það er ekki oft að kvenmenn
nema vélaverkfræði, en hér er
stúlka sem nær doktorsgráðu í
þeirri grein við Minnesota-háskól-
ann í haust, Sigrún Pálsdóttir;
faðir hennar er Páll Theodórsson,
Jakobssonar. Hún var lærlingur
Valdimars Jónssonar við Háskóla
íslands. Á sínum tíma fékk Vald-
imar doktorsnafnbót í vélaverk-
fræði við Minnesota-háskólann og
var ritgerð hans um „Heat Trans-
ference", sama efnið sem Sigrún
tók að mestu leyti til meðferðar í
doktorsritgerð sinni.
Annar lærlingur Valdimars
Jónssonar í vélaverkfræði sem er
langt kominn með framhaldsnám
í greininni við Minnesota háskól-
ann er Pétur Thors, sonur Thors
Ólafssonar Thors og Stellu, dóttur
Bjarna Bíó — Bjarna Jónssonar á
Galtafelli og Sesselju konu hans.
Kona og sonur Péturs eiga heima í
St. Paul á meðan hann er við
námið — Anna af Asjælunds-
ættinni sem settist að á ísafirði,
og Axel sonurinn.
Friðrik Guðbrandsson læknir er
við starf og framhaldsnám hér við
Háskólann; áttu hann og Sóley
Bender hjúkrunarkona son rétt
fyrir lok ágústmánaðar. Sóley
hefur starfað sem hjúkrunarkona,
aðallega á St. Mary’s spítalanum;
er hún ættuð úr Berufirði og
Kelduhverfinu.
Bernharður Hannesson og Sig-
urlaug kona hans voru hér nýlega
í heimsókn hjá Jóhönnu dóttur
þeirra sem starfar hér sem hjúkr-
unarkona; er Jóhanna skroppin
heim til Reykjavíkur í fríi.
Séra Guðmundur Óskar Ólafs-
son prestur í Nessókn er hér
áfram á Luther Theological Sem-
inary í St. Paul — prestaskóli
norsks lútherskra hér um slóðir;
búa þau hjónin þar nálægt, Ingi-
björg Hannesdóttir, kona hans, og
Guðbjörg dóttir þeirra; Holger P.
Clausen hefur verið í heimsókn
hjá þeim.
Gunnar Pétursson kom hingað
ekki alls fyrir löngu með konu
sína, Guðnýju, sem kom í annað
skipti á vegum Arnar Arnar
læknis, til uppskurðar á höndinni.
Jón Óttar Ragnarsson, sonur
Ragnars í Smára og Bjargar
Ellingsen, er komin hingað aftur
og verður í nokkra mánuði við
Minnesota háskólann, þar sem
hann fékk sína doktorsgráðu í
næringarefnum ekki alls fyrir
löngu. Honum hefur verið veitt
kennarastaða í greininni á meðan.
Með honum er dóttir hans, Sól-
veig, og kona, Sigrún Stefánsdótt-
ir, vel þekkt á íslandi fyrir
sjónvarpsþætti sína; svo eru þau
hér líka móðir fyrri konu Jóns
Óttars sem lést, frú Sólveig Búa-
dóttir og Héðinn Björnsson sonur
hennar.
Við nám hér nokkuö lengi hefur
verið Eva Hallvarðsdóttir; maður
hennar og ungur sonur með, Ás-
geir Valdimarsson af Arnardals-
ættinni í Hnífsdalnum. Afar Evu
eru Valgeir Björnsson, fyrrv.
hafnarstjóri og Tryggvi Ófeigsson
útgerðarmaður. Rannveig, dóttir
Tryggva og móðir Evu, var hér
nýlega í heimsókn, ásamt systur
sinni. Aðrir við nám siðasta árið
og meir, hafa verið Erlingur
Magnússon, kominn heim til Is-
lands í fríinu frá Hamline Uni-
versity í St. Paul, og Ingibjörg
Björnsdóttir við Hubert Hum-
phrey Institute of Governmental
Affairs við Minnesota háskólann.
Kona á skrifstofu C. Peter
Magrath, rektors Minnesota há-
skólans, lagði af stað til íslands
fyrir skömmu að ráðgast við
kennara í Háskólanum í Reykja-
vík um sitt starf sem ráðgjafi eða
„consultant" námsmanna, að sjá
hvort skipað embætti væri ekki
æskilegt við Háskóla Islands.
Magrath rektor sagði undirrituð-
um á dögunum að þegar þetta
mikla verður 1982 og 1983,
„Scandinavia Today", þá kemur
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands til Ameríku, og um leið til
Minneapolis að hausti næsta árs.
„Ég tek á móti henni,“ sagði
Magrath, „og hún gistir hér á
vegum Háskólans." Magrath hefur
nokkrum sinnum lýst hrifningu
sinni á íslandi síðan hann fór
þangað í vor að ræða aukin
sambönd milli háskólans hér og í
Reykjavík.
— Valdimar Björnsson
® niONEER
það nýjasta í sólkerfi okkar
Pioneer hefur nú bætt fimm nýjum
stjörnum í sólkerfið, og þú getur
meira að segja náð til þeirra allra.
Ótrúlegt en þó ískyggilega satt.
Þessi nýja magnaða magnaralína
hefur náð þeim eiginleikum að
sameina fullkomnustu tækni sem
völ er á, fallegt útlit og stærðar-
hlutföll sem koma skemmtilega á
óvart.
Þess vegna leyfum við okkur að
halda því fram, að það nýjasta í
sólkerfinu séu fimm stjörnur, sem
ekki geta hrapað.
A-LÍNAN
Magnarar:
Gerð Mögnun Tíðnisvið Bjögun
A9 2x110w RMS 5-200.000 HZ 0.003%
A8 2x 90w RMS 5-200.000 HZ 0.005%
A7 2x 70w RMS 5-200.000 HZ 0.007%
A6 2x 60w RMS 20-20.000 HZ 0.008%
A5 2x 35w RMS 20-20.000 HZ 0.009%
áfgl^ HLJÓMTÆKJADEILD
ffijj) KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Karnabær Glæsibæ — Fataval Keflavík — Portió
Akranesi — Patróna Patreksfirði — Eplið ísafiröi —
Álfhóll Siglufirði — A. Blöndal Ólafsfirði — Cesar
Akureyri — Bókav. Þ.S. Húsavík — Hornabær Horna-
firði — M.M.h/f Selfossi — Eyjabær Vestmannaeyjum