Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 „Engin formúla ívrir því hvernig góð auglýsing lítur út“ Rætt við Gísla B. Björnsson auglýsinga- teiknara, stofnanda fyrirtækisins Auglýsingastofan hf. var fyrsta augtýsingastofan sem starfrækt var hér á landi, en hún mun stofnuð á haustmánuðum árið 1961 og á því tuttugu ára starfsafmæli um þessar mundir. Stofnandi Auglýsingastofunnar hf. var Gísli B. Björnsson auglýsingateiknari og hefur hann verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun að undanteknum 2 árum er hann var skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands. Gísli hefur með starfi sínu, fyrst sem brautryðjandi hérlendis með alhliða auglýsingaþjónustu, en síðan sem eins konar leiðtogi þeirra sem starfa að auglýsingagerð, haft mikil áhrif á þróun auglýsingamála hér á landi. Hann hefur átt frumkvæði að því að koma íslendingum inn í alþjóðlegt samstarf á auglýsingasviðinu og útgáfu kynningarrita um auglýsingastarfsemi hér á landi. Þá hefur Gísli riðið á vaðið með ýmsar nýjungar í auglýsingamálum — það var t.d. Auglýsingastofan hf. sem stóð að fyrstu sjónvarpsauglýsingunni sem gerð var hér á landi. I tilefni af 20 ára afmæli Auglýsingastofunnar hf. tók blaðamaður Morgunblaðsins eftirfarandi viðtal við Gísla og var hann fyrst spurður hvemig auglýsingamálum hefði verið háttað áður en Auglýsingastofan hf. kom til sögunnar. — Það voru fyrst og fremst einstakir teiknarar sem önnuð- ust auglýsingagerð áður en Auglýsingastofan hf. tók til starfa, sagði Gísli. Þessi starf- semi var yfirleitt lítið skipulögð og óneitanlega nokkur byrjendabragur á auglýsingum frá þessum tíma. Þó voru nokkr- ir færir teiknarar og myndlist- armenn sem stunduðu auglýs- ingateiknun töluvert og gerðu sumir mjög góða hluti. Það má nefna menn eins og Halldór Pét- ursson, Atla Mar, Ásgeir Júlí- usson og fleiri. Einnig var nokk- ur hópur listmálara sem stund- aði auglýsingateiknun í hjáverk- um en um eiginlega sérhæfingu í þessari grein var ekki að ræða. Það hlaut að því að reka að hér yrði stofnuð auglýsingaskrif- stofa sem gæti veitt fyrirtækj- um alhliða þjónustu á þessu sviði og tryggt þeim sem beztan árangur af því fjármagni sem til auglýsinga er varið. Hvað varð til þess að þú ræðst í að stofna fyrstu auglýsingastofuna hér á landi? Mér var ljóst að mikil þörf var á slíku fyrirtæki og miklir möguleikar væru með rekstri þess. Ég Iærði almenna mynd- list við Myndlista- og handíða- skóla íslands og stundaði síðan framhaldsnám við listaaka- demíuna í Stuttgart í auglýs- ingateiknun og bókagerð. Þegar ég kom heim árið 1961 sneri ég mér strax að auglýsingateiknun og ákvað þá að veita alhliða auglýsingaþjónustu með svip- uðu sniði og tíðkast hjá auglýs- ingafyrirtækjum erlendis. Á haustmánuðum það ár stofnaði ég svo Auglýsingastofuna hf., sem starfað hefur óslitið síðan. Á auglýsingastofu fer fram mun víðtækari starfsemi en flestir gera sér ljóst. Þar er samankominn starfshópur sem þekkir þetta svið frá öllum hlið- um. Fyrirtækin sem skipta við okkur fela okkur að gera tillögur um ráðstöfun þeirra fjármuna sem þau ætla til auglýsinga- starfsemi en síðan sjáum við að mestum hluta um að skipu- leggja og framkvæma auglýs- ingastarfsemi viðkomandi fyrir- tækis. Við leggjum fram okkar tillögur um hvernig hagkvæm- ast og bezt sé að vinna viðkom- andi auglýsingar og dreifa þeim. í þessu fyrirtæki, sem hefur 15 starfsmenn, eru þrír í stöðugu sambandi við viðskiptafyrirtæki okkar og vinna eingöngu að því að kynna sér hvernig hagkvæm- ast sé að auglýsa og kynna þá vöru eða þjónustu sem þau hafa á sínum vegum. Þessir menn eru í stöðugu sambandi við forráða- menn fyrirtækjanna og fylgjast með öllum breytingum sem verða á markaði frá degi til dags. Þegar starfsemin er komin á þetta stig er auglýsingateiknar- inn raunverulega orðinn sam- starfsaðili við gerð auglýsingar- innar — hann vinnur að miklu leyti eftir ákveðnum línum sem honum eru gefnar, þó vissulega sé það undir miklu komið að hann leysi starf sitt vel af hendi. Hér á Auglýsingastofunni vinna alls 7 teiknarar, þrír starfsmenn annast almenn skrifstofustörf og svo vinna þrír menn að kvikmyndagerð í dótturfyrir- tæki Áuglýsingastofunnar, Sýn hf. Kemur það fyrir að hugmyndum ykkar er hafnað þannig að þið sitj- ið uppi með fullunna auglýsingu án þess að fá nokkuð fyrir fram- lagða vinnu? Það er nánara samstarf með auglýsingastofu og viðskiptafyr- irtækjum hennar en svo að hætta sé á þessu. Forráðamenn fyrirtækjanna fylgjast með auglýsingunni á öllum stigum og koma með sínar athugasemd- ir áður en gengið er frá endan- legri gerð hennar og dreifingu. Oftast varir samstarfið milli auglýsingaskrifstofu og ein- stakra viðskiptafyrirtækja nokkuð lengi. Auglýsingastofan hf. annast til dæmis enn auglýs- ingaþjónustu fyrir nokkur af þeim fyrirtækjum, sem við byrj- uðum með, og mörg viðskipta- fyrirtækja okkar hafa skipt við okkur samfellt í 15 til 20 ár. Þó verð ég að viðurkenna að fyrstu árin voru óneitanlega nokkuð erfið hvað samstarf við viðskiptafyrirtæki varðaði. Þá kom oft fyrir að stjórnendur fyrirtækja vildu ráðskast með mig meira en mér þótti gott — þeir vildu ekki gangast inn á þær kenningar sem ég vildi fara eftir um auglýsingar og tóku fram fyrir hendurnar á mér, oft með óheillavænlegum afleiðing- um að því er ég tel. Að liðnum nokkrum árum komst samstarf- ið hins vegar á fastari grundvöll og hefur yfirleitt gengið snurðu- laust og vel síðan. Hvernig var að standa að brautryðjendastarfi á þessum vettvangi fyrir 20 árum? Ég get ekki annað sagt en að allt hafi gengið vel fyrir utan ýmsa minniháttar erfiðleika, sem varð að sigrast á fyrstu ár- in. Okkur tókst fljótlega að fá fjölmiðla til að viðurkenna sér- stöðu okkar og veita okkur af- slátt á verði auglýsinga sem frá okkur komu. Það er grundvall- armismunur á starfsemi auglýs- ingastofu og starfi aðila sem koma utanaf götunni, ef ég má komast þannig að orði, með drög að auglýsingu þess sem þeir vilja selja. Auglýsingastofa ber í öllum tilvikum meiri kostnað af auglýsingu sem hún gerir fyrir fyrirtæki en slíkur aðili. Við höfum yfir að ráða sérhæfðu starfsliði um hvernig og hvar hagkvæmast er að auglýsa, og með því að skipta við auglýs- ingastofu nýtur viðskipta- vinurinn auðvitað í ríkum mæli góðs af þessari þekkingu. Aug- lýsingastofur hafa tekjur af tvennu. í fyrsta lagi af gerð auglýsingaefnis og í öðru lagi þjónustugjald af birtingum auglýsinga. í sambandi við eina einustu auglýsingaherferð verð- um við kannski að hafa sam- skipti við tugi aðila með ýmsum hætti. Við sjáum alfarið um dreifingu auglýsingarinnar og greiðslu þess kostnaðar sem af henni stafar. Öll þessi gjöld eru tekin saman í eitt uppgjör sem við sendum viðkomandi fyrir- tæki innan tiltekins tíma. Fyrir- tækin geta auðvitað haft áhrif á hvar auglýsingarnar birtast og eru í stöðugu sambandi við trún- aðarmenn sína hjá okkur — en yfirleitt önnumst við þetta dreifingarstarf án afskipta viðskiptafyrirtækja okkar. Hefur ekki samkeppnin harðn- að að mun síðan auglýsingastofum fjölgaði hér á landi? Það reynir auðvitað alltaf meira á að standa sig og skila góðu verki eftir því sem sam- keppnin er meiri. Samkeppni hlýtur þó ávallt að vera með nokkuð sérstökum hætti hjá auglýsingastofum vegna sér- stöðu starfsgreinarinnar. Ef auglýsingastofa annast t.d. auglýsingar fyrir Hótel Esju getur hún varla tekið að sér að auglýsa fyrir Hótel Sögu svo vel fari. Auglýsingastofa á ekki gott með að annast auglýsingar fyrir fyrirtæki sem starfa á sama vettvangi og keppa þar af leið- andi hvort við annað — það gef- ur auga leið. í eðli sínu gerir viðskiptalífið þannig ráð fyrir að til staðar séu margar auglýs- ingastofur. Stundum getur einnig komið upp erfið staða hvað þetta snertir, t.d. þannig að fyrirtæki sem lengi hefur skipt við auglýs- ingastofu færir út kvíarnar og stofnar deild með starfsemi af sama tagi og annað fyrirtæki sem skiptir við sömu auglýs- ingastofu. Slík mál verður að taka til athugunar og leysa í samvinnu við þau fyrirtæki sem í hlut eiga, þannig að báðir aðil- ar fái vel við unað. Nú annaðist Auglýsingastofan hf. gerð fyrstu sjónvarpsauglýs- ingarinnar sem gerð var. — Já, það urðu tímamót í starfi okkar þegar við fórum út í sjónvarpsauglýsingar 1966. Þessi fyrsta sjónvarpsauglýs- ingamynd var þó kvikmynda- iega séð algjörlega byggð á reynslu þeirra kvikmyndagerð- armanna sem hér voru þá. Fyrir mig hefur kvikmyndagerð eig- inlega alltaf verið lokuð bók, þó ég stjórnaði gerð myndarinnar frá auglýsingalegu sjónarmiði. Þessi fyrsta sjónvarpsauglýsing var 30 sek. löng og leikin af Bessa Bjarnasyni. Þrándur Thoroddsen og Magnús Jónsson sáu um kvikmyndina, en Jón Þór Hannesson um leikhljóð. Síð- astliðið vor gáfum við Kvik- myndasafninu þessa mynd og mun hún geymd þar framvegis. Síðan hafa sjónvarpsauglýs- ingar orðið stór starfsgrundvöll- ur fyrir auglýsingastofur. Á okkar vegum eru nú unnar um 100 sjónvarpsauglýsingar á ári, og töluverð vinna er við að endurvinna, hljóðsetja og breyta erlendum sjónvarpsauglýsing- um. Nú halda sumir því fram að reisa þurfi skorður við notkun er lendra sjónvarpsauglýsinga. Ég sé ekki neina þörf á því. Erlendar sjónvarpsauglýsingar veita okkur þvert á móti holla samkeppni. Hér á landi hafa sjónvarpsauglýsingar mótazt öðruvísi en tíðkast erlendis, því auglýsingamönnum er venjulega skorinn þröngur stakkur með fjármagn. Hinu er ekki að neita að stundum verður maður öf- undsjúkur þegar maður sér er- lendar sjónvarpsauglýsingar, þeir sem standa að gerð þeirra hafa greinilega nóg fé handa á milli. Þó tel ég hiklaust að margt af því sem hér er gert í auglýsingum sé fyllilega sam- keppnisfært við það sem er gert erlendis. £ I AuglýJngastofan hf. u ára: Gísli B. Björnsson að störfum. LjÓNm. Emilía.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.