Morgunblaðið - 02.12.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
43
íslenzk auglýsingagerð er
óneitanlega nokkurt metnað-
armál hjá mér, því segja má að
ég hafi beinlínis og óbeinlínis
menntað flesta mína samkeppn-
isaðila. Ég hef m.a. kennt aug-
lýsingateiknun við Myndlista-
og handíðaskólann í 19 ár og þar
hafa flestir farið í gegn sem nú
starfa að auglýsingum. Þá hafa
margir þeirra sem nú reka aug-
lýsingastofur verið starfsmenn
mínir hér á Auglýsingastofunni
og öðlazt hér sína fyrstu starfs-
reynslu.
Það hefur eiginlega komið í
minn hlut að vera eins konar
lærifaðir þessa 70 til 80 manna
hóps sem starfar að auglýsinga-
gerð hér á landi og hafa for-
göngu um fræðslu- og félagsmál
í greininni. Þannig hefur Aug-
lýsingastofan hf. staðið fyrir því
undanfarin 7 ár að fá hingað til
sýningar þær sjónvarpsauglýs-
ingamyndir sem hlotið hafa
bezta dóma á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes. Þá tekur Auglýs-
ingastofan hf. þátt í alþjóðlegu
samstarfi í gegnum tvö erlend
samtök auglýsenda, Scan Vik-
ing, sem starfar innan Norður-
landanna, og AAAI, sem er al-
þjóðlegt samband auglýsinga-
stofa. Þá beitti Auglýsingastof-
an hf. sér á sínum tíma fyrir
stofnun Sambands íslenzkra
auglýsingastofa og hefur það fé-
lag t.d. staðið fyrir fjölmiðla-
könnunum með tilliti til gildi
auglýsinga í hverjum fjölmiðli
fyrir sig. Auglýsingastofan hf.
hefur einnig gefið út bækling á
handíðaskólans frá 1974—’76.
Þá gerði ég tilraun til að slíta
mig frá framkvæmdastjóra-
starfinu, sem mistókst, en nú er
að sjá hvernig fer.
Hvað er það sem framar öðru
þarf til að vera góður auglýsinga-
teiknari?
Auglýsingateiknari þarf að
hafa opinn huga og vera mót-
tækilegur fyrir því sem er að
gerast í kring um hann. Þolin-
mæði og traust skapgerð eru
gott veganesti í þessu starfi því
það er krefjandi — menn verða
að kunna að skipuleggja tíma
sinn og geta unnið í náinni sam-
vinnu við aðra. Þá má aug-
lýsingateiknari alls ekki standa
í stað — hann verður sífellt að
endurnýja sig. Það er engin
formúla til fyrir því hvernig góð
auglýsing lítur út, og góð aug-
lýsing fyrir tíu árum bar allt
annan svip en góð auglýsing í
dag. Menn verða að skynja þetta
einhvernveginn — hvað við á —
og til þess þarf maður að vera
opinn.
Auglýsingateiknarar hér eru
margir frábærir teiknarar og
þjálfaðir við hin margbreyti-
legustu verkefni. í þessu starfi
er maður að fást við teikningu
meira og minna allan daginn, og
alltaf að takast á við ný verk-
efni. Oft kemur upp hjá manni
löngun til að nota þessa reynslu
og snúa sér að almennri mynd-
list — á bakvið er það náttúru-
lega alltaf draumurinn hjá
manni, draumur sem hæglega
gæti snúizt upp í martröð ef
maður léti það eftir sér.
Starfsfólk Auglýsingastofunnar hf.
ensku, „Advertising in Iceland",
og eru þar tölfræðilegar upplýs-
ingar um Iand og þjóð og aug-
lýsingaleiðir á Islandi.
Nú hefur þú látið af störfum
sem framkvæmdastjóri Auglýs-
ingastofunnar hf. þegar hún hefur
starfað undir þinni stjórn í 20 ár.
Já, ég vildi nota þetta tæki-
færi til að snúa mér að sérgrein
minni, auglýsingateiknun og
bókagerð. Yfirumsjón reksturs
fyrirtækisins hefur oft tekið
tíma minn allan og ég þar af
leiðandi lítið getað sinnt teikn-
ingunni. Halldór Guðmundsson
hefur tekið við sem fram-
kvæmdastjóri, en hann hefur
áður gegnt því starfi hér um
tíma. Það var þegar ég tók að
mér skólastjórn Myndlista- og
En allt um það. Það orð hefur
lengi legið á að auglýsingateikn-
un væri einhver strangasta
deildin í Myndlista- og handíða-
skólanum og sumir jafnvel látið
að því liggja að ég gerði of
strangar kröfur til nemenda
minna. Það kann að vera satt að
ég hafi verið strangur kennari
og vænzt mikils af nemendum
mínum, jafnvel svo að sumum
hafi fundizt um of. En það hefur
líka komið fyrir að eftir að nem-
endur mínir hafa tekið til starfa
í greininni og kynnzt þeim kröf-
um, sem starfið gerir til þeirra,
að þá hafi þeir gefið mér í skyn
undir fjögur augu að þeir séu
mér þakklátir fyrir þann
stranga undirbúning sem ég
veitti þeim á námsárunum.
Tveir úr happdrættisnefndinni við bílinn, Árni Bjömsson og Stefán Gunnlaugsson.
KA vann bílinn sjálft
Ekkert álit
komið frá
þingnefndum
SVERRIK Hermannsson, forseti
neðri deildar Alþingis, gat þess í
upphafi þingdeildarfundar í gær, að
engin þingnefnd hefði enn skilað
nefndaráliti, þó fjöldi mála væri hjá
þeim til umfjöllunar.
Stefnt er að því, sagði þingdeild-
arforseti, að síðasti starfsdagur
Alþingis fyrir jólahlé verði föstu-
dagur 18. desember nk., þann veg,
að aðeins eru tæpar þrjár vikur
eftir af starfstíma þingsins á
þessu ári. Beindi hann þeirri
áskorun til þingnefnda að setja
skrið á málaafgreiðslu. Þá minnti
hann og ríkisstjórn á, ef hún vildi
fá einhver mál afgreidd fyrir jóla-
hlé, þá væri ekki seinna vænna að
gera upp hug sinn í því efni..
ÞANN 15. október sl. var dregið í bfla-
happdrætti KA, en vinningurinn var
Suzuki-bifreið, árg. 1981. Var dregið
hjá bæjarfógetanum á Akureyri, og
kom upp númerið 3219. Reyndist það
vera óseldur miði. Kom bfllinn því í
hlut knatLspyrnudeildar KA, og verður
hann notaður næstu árin fyrir þjálfara,
eða annan starfsmann deildarinnar.
Bifreiðin kostar í dag um 73.000,00 en
vegna sérstakrar lipurðar umboðsaðil-
anna, sem eru Sveinn Egilsson hf. f
Reykjavík og Bflasalan hf. á Akureyri,
fengum við bflinn allmiklu ódýrari, og
má segja, að sala á miðum hafl dugað
fyrir bflnum, og þar sem enginn kostn-
aður varð við happdrættið, eigum við
bflinn nú skuldlausan.
Færum við öllum fyrirtækjum og
einstaklingum, sem studdu okkur
með kaupum á miðum, eða á annan
hátt, okkar bestu þakkir og erum
þess fullvissir að flestum þeirra, sem
keyptu miða, finnst bíllinn vera vel
kominn í okkar höndum, enda höfðu
flestir látið að því liggja að þeir
gæfu okkur bílinn, kæmi vinningur-
inn á þeirra miða.
(Frétt frá happdrættisnefnd
knattspyrnudeildar KA.)
NÝTT OG MEIRA
VATNSNUDDTÆKI
GROHE vatnsnuddtækið hefur breytst í útliti og aukið hefur
verið við notagildi þess. Lögun nýja tækisins er nú þannig að
fólk á mun betra með að stýra bununni á t.d. axlir og mjaðmir.
GROHE vatnsnuddtækið hefur náð vinsældum hér á íslandi
eins og erlendis. Það hefur reynst þeim sem þjást af gigt,
vöðvabólgum og þess háttar sérstaklega vel.
Hægt er að mýkja og herða bunu tækisins að vild, þannig að
hver og einn getur haft vatnsnuddið eins og hann helst kýs.
GROHE vatnsnuddtækið er hægt að tengja við gömul
blöndunartæki jafnt sem ný. Leitið uþþlýsinga, verið ekki
lengur án GROHE vatnsnuddtækisins.
GROHE - brautryðjandi og leiðandi fyrirtæki á sviði blönd-
unartækja.
B.B. BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HÚSIÐ)