Morgunblaðið - 02.12.1981, Qupperneq 16
48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
Stöndum vörð
um skólann!:
„I»að er siðferðileg
skylda Sjálfstæðisflokks-
ins við lýðræðið og æsku
landsins að hann tryggi að
í skólum sé fjallað um hin
ýmsu efni hlut- og hleypi-
dómalaust, og að engum
kennara sé liðið að draga
taum sérstaks stjórnmála-
flokks eða stjórnmála-
skoðana. I>að er best
tryggt með því að Sjálf-
stæðisflokkurinn taki
skóla- og fræðslumál til
gagngerrar endurskoðun-
ar.“
eftir Óla Björn
Kárason
Stöndum vörð um skólann!
Meðal þeirra gæða, sem sóst er
eftir í þjóðfélaginu, er menntun.
Sérþekkingar og meiri menntunar
er krafist eftir því sem þjóðfélagið
þróast og verður flóknara. Þess
vegna hefur hlutverk skólanna
orðið þýðingarmeira.
Forsenda þess að þjóð fái þrifist
og þróast er að hún eigi gott skóla-
og fræðslukerfi. Þetta hafa Islend-
ingar gert sér ljóst og búið vel að
námsmönnum, gert þeim kleift að
nema það sem hugurinn girnist og
þroska þá hæfileika sem í hverjum
og einum búa. Þannig hefur ein-
staklingurinn verið í hávegum
hafður.
En nú virðist sem breytinga sé
að vænta. Völd og áhrif skipu-
lagshyggjumanna hafa vaxið.
Skipulagshyggju gætir í æ ríkara
mæli og þar eru menntamál engin
undantekning. Ekki aðeins skóla-
stjórar, kennarar og nemendur
eru orðnir áhrifalitlir, heldur hef-
ur sjálfur menntamálaráðherra
verið gerður valdalaus eða valda-
lítill. Það eru kommúnistar sem
ráða ferðinni, með Ragnar Arn-
alds fjármálaráðherra í broddi
fylkingar.
Þróun skólamála hefur í reynd
verið þróun ófrelsis og hafta.
Skipulagshyggja er
ekki réttlætanleg
Forsvarsmenn skipulagshyggj-
unnar hafa reynt að réttlæta hana
með því að halda því fram að með
skipulagi í skólamálum verði kom-
ið í veg fyrir peningabruðl og
offjölgun menntamanna. Það sé
því ekki aðeins þjóðhagslega æski-
legt heldur nauðsynlegt að skipu-
lagshyggja ráði ferðinni í þessum
efnum.
En reynslan sýnir okkur allt
annað. Miðstýring leiðir til spill-
ingar og óhagkvæmni í rekstri.
Engin einn maður, stofnun eða
flokkur getur dæmt um það
hvernig þessum málum sé best
skipað, til þess er samfélagið allt-
of margþætt og flókið. Þess vegna
er lýðræðið það skipulag sem best
hentar, þrátt fyrir alla galla. For-
senda þess er frelsi einstaklings-
ins til orðs og æðis og um það
verður að standa vörð.
Frelsi til framfara
Vegna þessa hlýtur það að vera
krafa allra lýðræðissinna að horf-
ið verði frá miðstýringu í skóla-
málum landsmanna. Það hlýtur að
teljast eðlileg krafa að heima-
menn í hverju héraði, skólastjór-
ar, kennarar og nemendur fái að
ráða sínum málum sjálfir, innan
marka ákveðinna reglna sem
tryggja eiga lágmarksgæði
menntunarinnar. Því hver er betri
dómari á þarfir og langanir ein-
staklingsins en hann sjálfur?
Einnig er nauðsynlegt að búið
verði þannig í haginn að einka-
skólar geti starfað. Samkeppni
milli skóla tryggir bestu gæði
menntunar. Það er einnig nauð-
synlegt að samkeppni sé á milli
bókaútgefenda í skólabókaútgáfu,
og að skólum verði gert kleift að
kaupa þær bækur sem þeir telja
bestar. Þannig er öruggt að góðar
kennslubækur séu á boðstólum.
Augljóst er að frelsi er besta
trygging framfara. Við megum því
ekki hefta það, hvorki í skóla- eða
atvinnumálum, eða á nokkurn
annan hátt.
Skólinn og róttæklingar
Róttæklingar hafa fyrir löngu
gert sér grein fyrir því hve mikil
áhrif hægt er að hafa á ungt fólk.
Vegna þessa hafa þeir kappkostað
að koma sér fyrir í skólakerfinu,
sem kennarar, skólastjórar eða í
önnur þau störf þar sem hægt er
að hafa áhrif á skólakerfið. Þetta
hafa þeir gert, jafnvel þó þessi
störf séu oft frekar illa launuð,
enda ræður þar hugsjón bylt-
ingarmannsins.
Róttæklingum hefur orðið veru-
lega ágengt í áróðri sínum, enda
unnið mikið og fórnfúst starf.
Kennslubækur, blöð og greinar, er
flæða yfir nemendur framhalds-
skólanna, eru allar því marki
brenndar að í þeim er verið að út-
breiða úreltar kenningar Karls
Marx og annarra falsspámanna
alræðishyggjunnar. Þær hug-
myndir, sem nemandinn fær við
lestur þessa áróðurs, á ekkert
skylt við þjóðskipulag lýðræðis og
frelsis, heldur „villutrú" úr hug-
arheimi alræðishyggjumanna.
Það er grátlegt til þess að vita
hve sjálfstæðismenn og aðrir lýð-
ræðissinnar hafa verið blindir
fyrir þeirri þróun sem að á sér
stað í skólum landsins. Þeir verða
að vakna upp af þeim „þyrnirós-
arsvefni" sem þeir sofa nú.
Það er siðferðileg skylda
Sjálfstæðisflokksins við lýðræðið
og æsku landsins að hann tryggi
að í skólum sé fjallað um hin ýmsu
efni hlut- og hleypidómalaust, og
að engum kennara sé liðið að
draga taum sérstaks stjórnmála-
flokks eða stjórnmálaskoðana.
Það er best tryggt með því að
Sjálfstæðisflokkurinn taki skóla-
og fræðslumál til gagngerrar
endurskoðunar.
Að lokum
„Eg er sannfærður um að mað-
urinn tortímir menningu sinni ...
Hann tortímir henni með því að
ofmeta skynsemi sína — ofmeta
skynsemi einhvers eins manns eða
fárra og fela þeim því of mikil
völd. Menn verða að læra af mis-
tökum sínum, hætta þeim vinnu-
brögðum, sem gefast verr, og taka
upp önnur, sem gefast betur, þótt
enginn hafi lagt á ráðin um þau.
Vera kann, að eina vonin sé að
menn læri af mistökum sínum."
(Friedrich A. Hayek: Miðjumoðið,
Frelsið, 1. hefti 1980, bls. 15.)
Menning Islands hvílir á föstum
grunni og það er hlutverk skólans
að varðveita hana. Það er ein mik-
ilvægasta trygging fyrir sjálf-
stæði okkar. Við megum ekki láta
samhyggjumenn ráða ferðinni.
Snúum vörn í sókn. Hefjum ein-
staklinginn aftur til vegs og virð-
ingar og stöðvum miðstýringuna í
skólamálum. Stöðvum framgang
alræðishyggjunnar, verum ekki
sofandi á verðinum, annars vökn-
um við fyrr eða síðar undir ráð-
stjórn.
Óli Björn Kárason
Samið um kjör öldungadeildakennara:
Samningurinn
fordæmdur og for-
maðurinn víttur
HIÐ ISL. kennarafélag samdi nýlega við fjármálaráðuneytið um
greiðslu til kennara vegna kennslu í öldungadeildum fram-
haldsskóla. Viðræður um kjör öldungadeildakennara hafa staðið
yfir frá því í vor og var ekki í gildi samkomulag um greiðslu fyrir
þessa kennslu á haustönn nema í MH og á Akureyri, og sagði Jón
Hnefill Aðalsteinsson formaður félagsins hinn nýja samning gera
ráð fyrir breyttu fyrirkomulagi, m.a. nokkurri hækkun hjá þeim
sem kenna fleiri en 20 nemendum, en lækkaðri greiðslu fyrir
yfirvinnu svo og greiðslu til þeirra er kenna 19 eða færri nemend-
um í hóp.
Viðbrögð 28 kennara við öld-
ungadeild MH eru þau að hefja
ekki störf í öldungadeild eftir ára-
mót og 19 kennara í fjölbrauta-
skólum Akraness og Suðurnesja
sagði Jón Hnefill hafa fordæmt
samning þennan og samþykkt vít-
ur á formann Hins ísl. kennarafé-
lags. Jón Hnefill sagði að stjórn
HIK hefði ákveðið að kanna sjón-
armið fleiri kennara í þessu 800
manna félagi og því væri ráðgerð-
ur félagsfundur 21. nóvember nk.
þar sem samningurinn yrði til um-
ræðu. Sagði Jón Hnefill viðbrögð
manna skiljanleg, sumir sæju
fram á nokkra tekjurýrnun, en
mat manna hefði verið að ekki
hefði verið unnt að ná meiru fram
að svo stöddu.
Fyrir dyrum stendur úttekt á
kennslu i öldungadeild og síðan
samningagerð í framhaldi af
henni. Sagði Jón nokkurn ágrein-
ing hafa ríkt um hvernig greiða
ætti meðan þessi úttekt færi fram.
Myndin er tekin í nýjum húsakynnum bakarísins Kornið að Engihjalla átta í
Kópavogi.
„Kornið“ flytur um set
BAKAKÍIÐ Kornið, Hjalla
brekku 2, hefur opnað nýtt bak-
arí að Engihjalla 8, Kópavogi, í
Kaupgarðshúsinu.
Eigendur eru Jón Þorkell
Rögnvaldsson og Kári Eyþórs-
son. Vinnuplássið er hannað af
Rögnvaldi Þorvaldssyni verk-
fræðingi og innréttingar smíð-
aðar hjá Hlyni og Valþóri
Skemmuvegi 14. Bakaríið verð-
ur opið alla daga vikunnar.
Cable-
hljódfæri
hérlendis
HAFINN er innflutningur Cable-
hljóðfæra. Cable eru bandarísk
hljóðfæri, hafa verið framleidd síðan
1875.
I píanóinu eru sérstaklega
hannaðar bakstoðir, hver þeirra er
4 sentimetrar á þykkt og er valinn
viður í þeim, handunninn til að ná
sérstakri áferð. Þrír pedalar eru á
píanóinu, og eru skábrýr skrúfað-
ar í hljómbotn með tréskrúfum en
ekki járni til að ná betri tóni.
Þá er svokallaður pulsator, sem
dreifir tóninum hraðar og jafnar
um hljómbotninn. Cable-hljóðfæri
fást í Állandi, Álfheimum 6. Eig-
endur eru Magnús Kjartansson,
Gerður Sigtryggsdóttir, Teitur
Eyjólfsson og Lovísa Viðarsdóttir.
Aðalfundur
Sambands iðn-
fræðsluskóla
AÐALFUNDUR Sambands iðn-
fræðsluskóla á íslandi og Iðnskóla-
útgáfunnar var haldinn í byrjun nóv-
ember. Fundurinn var haldinn í
Iðnskólanum í Hafnarfirði.
Fundinn sóttu 28 fulltrúar frá 10
skólum víðs vegar að af landinu.
Fundarstjóri var Steinar Steins-
son en fundarritarar Guðmundur
Hjálmarsson og Hallgrímur Guð-
mundsson.
í skýrslu stjórnar SIÍ kom fram
að stjórnin fjallaði um mörg mál-
efni tengd iðnfræðslunni á starfs-
tíma sínum. Stjórn SIÍ hefur einn-
ig rætt mikið um nýsetta reglugerð
um iðnfræðslu.
Á starfstíma stjórnarinnar var
m.a. unnið að því að koma á jöfnu
mati bóklegs og verklegs náms,
reynt að koma á samstarfi milli
stjórnar SIÍ og fræðslunefnda
iðngreinanna, gefin út þrjú frétta-
bréf sem fjölluðu um málefni
tengd iðnfræðslunni o.fl.
Á síðasta aðalfundi SIÍ var kos-
in milliþinganefnd er semja átti ný
lög fyrir sambandið og útgáfuna.
Lagði nefndin fram tillögur sínar
er samþykktar voru einróma. Sam-
kvæmt nýjum lögum er heiti sam-
bandsins nú Samband iðnfræðslu-
og tæknimenntaskóla á íslandi —
SIÍ.
Eftirtaldir menn voru kosnir í
stjórn SII, Ingvar Ásmundsson
formaður, Jón Böðvarsson og
Pálmar Ólason meðstjórnendur og
varamenn Jón Fr. Hjartarson, Að-
algeir Pálsson og Guðmundur
Hjálmarsson.
í stjórn Iðnskólaútgáfunnar
voru kosnir Ólafur Ásgeirsson,
Steinar Steinsson og Agúst B.
Karlsson, til vara Björgvin Jó-
hannsson, Ingólfur Halldórsson og
Hjörleifur Þórlindsson.