Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 51 (Ljósm. 6l.K.M»(-n.) Gamla húsið, neðst á Skólavörðustígnum, þar sem verzlunin Kistan er til húsa, er eitt hinna fáu í borginni sem hlaðin eru úr steini, en innréttingar eru nýjar. Laura Ashley- búð í Reykjavík KISTAN heitir ný verzlun að Skóla- vörðustíg 4, en þar verða til sölu vörur frá Laura Ashley í Bretlandi, en það fyrirtæki er þekkt fyrir sér stæða hönnun í rómantískum stfl. Náttúruleg efni, einkum baðm- ullarefni, hafa frá byrjun verið uppistaða í framleiðslu frá Laura Ashley, en á síðstu árum hefur fyrirtækið lagt vaxandi áherzlu á húsbúnað, svo sem veggfóður, lampaskerma, borðlín og glugga- tjaldaefni í sömu litum. Einnig verður Kistan með tízku- fatnað á börn og fullorðna frá Laura Ashley, en eigendur verzl- unarinnar eru Edda Ólafsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir og Inga og Rannveig Halldórsdætur. Brúðarkjólar og samkvæmiskjólar úr smárósóttum efnum frá Laura Ashley. Fulltrúafundur LKL öruggur akstur DAGANA 15. og 16. október sl. var haldinn fulltrúafundur Landsamtak- anna öruggur akstur að Hótel Sögu. Kundinn sóttu 27 fulltrúar frá 33 klúbbum auk allmargra gesta, m.a. forseta íslands, frú Vigdísi Kinnboga- dóttur, dómsmálaráðherra, Kriðjóni l*órðarsyni o.fl. Formaður Landsamtakanna, Hörður Valdimarsson, setti fund- inn, og Friðjón Þórðarson dóms- málaráðherra flutti ávarp, en aðrir fyrirlesarar voru Ólafúr Ólafsson landlæknir sem talaði um afleiðingu umferðarslysa fyrir þjóðarheildina, Bjarni Torfason læknir fjallaði um niðurstöður rannsókna umferðar- slysa ársins 1975, og Stefán Jóhannsson, erindreki Áfengis- varnaráðs, ræddi um akstur og vímugjafa. Fyrirspurnir og umræð- ur fylgdu í kjölfar erindanna. Á fundinum voru samþykktar ýmsar tillögur. M.a. var því fagnað að lögboðin hefur verið notkun ör- yggisbelta í bifreiðum, og skoraði fundurinn á alla landsmenn að nota bílbeltin eins og lög gera ráð fyrir. Þá skoraði fundurinn einnig á dómsmálaráðherra að beita sér að því að Umferðarráð fái það fjár- magn sem það þarf á að halda til þess að geta haldið uppi þeirri starfsemi sem því er ætlað lögum samkvæmt. Kosin var stjórn Landsamtaka klúbbanna öruggur akstur og er hún þannig skipuð: Aðalmenn: Baldvin Ottósson, lögregluvarðstjóri, Reykjavík, for- maður, Gísli Björnsson, lögreglu- fulltrúi, Reykjavík, frú Jónína Jóns- dóttir frá Gemlufalli, Dýrafirði, Daníel Oddsson, deildarstjóri, Borg- arnesi, og Guðjón Einarsson, lög- regluþjónn, Hvolsvelli. Varamenn: Hermann Björnsson, póstfulltrúi, Isafirði, og Magnús Steinarsson, tryggingafulltrúi, Ak- ureyri. Formaður Landsamtaka klúbbanna öruggur akstur, Hörður Valdimarsson, í ræðustól. SUMIR VERSLA DÝRT - AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR Libbu>IIIB°DS VERD Ferskjur Blandaðir ávextir 21 1/1 dós »95 1/1 dós Perur Aprikósur Ananas n',80 1730 1/1 dós X /1/1 dós ,95 1/1 dós! Frá Búlgaríu: Jarðaiter 1 Q,80 Blönduð 1/1 dós X Z7 ávaxtasulta Jarðarberja 12,50 sulta 500 e-12,50 I jólabaksturinn: Ljóma áZ >201 Sykur ^ ,00 Pr- smjörlíkiVf stk 127 kg.pk.^ kg PB. hveiti 5 lbs. tn,u- ^ 10 Ibs. 15’60 2Q»80 JL v/ pr.pk. Maá ^ pr.pk. Marzipan 3 litir. Úrval af bökunarvömm á SÉRTILBOÐSVERÐI. Danskar smákökur í gríðarlegu úrvali. STARMYRI 2 — AUSTURSTRÆTI 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.