Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 28

Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Fljótur inn í kústaskápinn, maður- Trúóir þú því, að pabbi væri milli inn minn er að koma upp stigann, eða hvað? heyri ég! HÖGNI HREKKVlSI Þá mundi glaðna yfir Austurstræti 3041-7488 skrifar: „Hinn 27. okt. skrifar 0545-0098 í Velvakanda og kvartar undan því hve eigendur húsa við Austur- stræti haldi framhliðum húsa sinna illa við. Ekki ætla ég að svara fyrir hús- eigendur við Austurstræti, en ég er vel kunnugur þeim erfiðleikum sem sérstakur skattur á skrif- stofu- og verslunarhúsnæði hefur bakað eigendum fasteigna af þessu tagi. Þessi skattur, sem meir en tvöfaldar eignaskattinn, hefur gjörsamlega útilokað að eig- endur geti haldið húsum sínum við. Verslunarrekstur hefur al- mennt gengið illa og hefur ekki getað tekið þennan skatt á sig í formi hærri húsaleigu. Eigendur þessara fasteigna hafa því setið uppi með skattinn án þess að hafa tekjugrundvöll til að greiða hann. Niðurstaðan hefur því orðið hrein eignaupptaka. 0545-0098 ætti því að beina spjótum sínum að alþingis- mönnum, sem nota vald sitt til þessarar illgirnislegu fjárkúgun- ar. Ef það mætti verða til þess að fá þessari illræmdu skattheimtu aflétt, er ég viss um að glaðna mundi yfir Austurstræti og víð- ar.“ Réttur þinn: Endursýnið þættina fyrir gamla fólkið Ellilífeyrisþegi skrifar: „Undanfarin miðvikudagskvöld hafa verið fluttir í sjónvarpinu þættir um tryggingamál. Hafa þeir verið mjög fróðlegir, en ég veit um margt gamalt fólk, sem misst hefur af þeim vegna þess hve seint þeir hafa verið á kvöldin. Þess vegna langar mig að stinga upp á því, hvort sjónvarpið sæi sér ekki fært að endursýna þá t.d. á laugardags- og sunnudagseftirmiðdögum. Sérstaklega vil ég vekja athygli á hve áheyrilegur flutningur Mar- grétar Thoroddsen var. Maður missti ekki af einu einasta orði.“ Þessir hringdu . . . Réttast að gæta sín á mynd- lampaábyrgðinni Ásta Jóhannsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég ráðiegg öllum, sérstaklega öldruðu fólki og ungu fólki sem er nýbúið að stofna heimili sín, svo og öðrum sem hafa litla peninga á milli handanna, en eiga samt sjónvarpstæki, að láta ekki ábyrgðartíma tækj- anna líða án þess að láta yfir- fara þau, því að þarna eru mikl- ir peningar í húfi. Ég keypti fyrir þremur árum og tveimur mánuðum litatæki hjá fyrir- tækinu Nesco og nýlega gaf myndlampinn sig í tækinu, tveimur mánuðum eftir að ábyrgð rann út. Þeir dæmdu sjálfir hjá Nesco að tækið hefði verið gallað frá upphafi, og einnig annað tæki sem komið hefði á sama tíma, en samt vildu þeir engar bætur bjóða og lítið fyrir mig gera annað en skipta um myndlampa í tækinu, en það hefði kostað mig milli 7 og 8 þúsund krónur. Þeir lánuðu mér svart/ hvítt tæki og sögðu að mitt tæki fengi ég að öllum líkindum ekki fyrr en í vor, ef senda ætti myndlampann til víðgerðar erlendis. Af þessu sést glögglegga, að það er betra að athuga sinn gang áður en ábyrgðartíminn er liöinn, til þess að hafa réttinn örugglega sín megin. ísfirðingur skrifar: „Velvakandi. Nú hefir kvikmyndin um Gísla kappa Súrsson verið sýnd í Reykjavík í heilan mánuð eða meira við frábærar undirtektir. Hvenær eigum við hér á lands- byggðinni von á að sjá öll herleg- heitin því margir eru að vonum orðnir langeygir eftir kvikmynd- inni og þá ekki sízt þeir sem eru aldir upp á söguslóðum Gísla sögu. Hvenær megum við því til dæmis vænta hennar hingað vestur á ísa- fjörð? Eða þurfum við kannski að bregða okkur suður til að berja hana augum?“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.