Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 30

Morgunblaðið - 02.12.1981, Side 30
62 Iðnaðardeild Sambandsins: MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Krefst rannsóknar vegna gruns um ólög- legan innflutning IÐNAÐARDEILD Sam- bandsins á Akureyri hyggst krefjast opinberrar rann- sóknar vegna gruns um ólöglegan innflutning frá löndum Austur-Asíu. Grunur Akranes: Víkingur með fullfermi af loðnu Akranesi, 30. nóvember. TOGARARNIR Haraldur Böðvarsson AK 12 og Kross- víkin AK 300 voru hér í lok síðustu viku með afla, sem samanstóð að mestu af með- alstórum karfa. Haraldur var með 115 lestir og Krossvíkin var með 132 lestir. Línuveiðibátarnir Grótta og Sólfari hafa verið með 4—6 lestir í verðiferð að undanförnu. Uppi- staðan í afla þeirra var væn ýsa, en ennfremur var um „þokka- legan" þorsk að ræða. Vélskipið Víkingur er á leið hingað með fullfermi af loðnu af norðurslóðum til vinnslu í SFA. Verksmiðja SFA hefur nú tekið á móti liölega 17 þúsund lestum. — Júlíus hefur vaknað um að fatnaður frá Hong Kong og öðrum stöðum í A-Asíu sé fluttur tollfrjáls hingað til lands. Er þessi varningur, til dæm- is skór og gallabuxur, þá flutt- ur inn í gegnum hollensk eða þýzk heildsölufyrirtæki, sem breyta vörumerkjum og afla nauðsynlegra gagna svo hægt sé að flytja þennan varning inn samkvæmt fríverzlunar- samningum og er þá látið líta svo út, sem varan sé framleidd í Evrópu. Lausleg könnun fyrirtækis- ins bendir til að talsvert magn af t.d. skófatnaði og gallabux- um sé flutt hingað til lands á þennan hátt og selt í verzlun- um hérlendis. Þessum brögð- um mun einnig beitt við inn- flutning til hinna Norðurland- anna. Hjörtur Eiríksson hjá Iðn- aðardeild Sambandsins sagði að við athugun hefði komið í ljós að mál þetta væri flókn- ara en menn hefðu haldið í upphafi. Hins vegar væri grunur ráðamanna Iðnaðar- deildar hinn sami og áður og ýmsir hefðu tjáð sig sama sinnis. Kodak Ektralite400 myndavél sem vekurathygli Falleg og stílhrein myndavél með linsu f/6.8 — Ijósopi 24 mm. — Innbyggðu flassi — Föstum fókus frá 1,2m til óendanlegt. í fallegri gjafaöskju. Verð kr.: E2 HANS PETERSEN HF BANKASTRÆTI S: 20313 GLÆSIBÆR S: 82590 AUSTURVER S: 36161 Umboðsmenn um allt land Frá æfingu Litla leikfélagsins á Gullna hliðinu eftir Davíð Stefánsson. 24 leikarar taka þátt í sýningunni, þar af nokkur börn. Ljósm. Arnór. Litla leikfélagið í Garði: Sýnir Gullna hliðið í tilefni 5 ára afmælis (iarói, 30. nóvember. FIMMTUDAGINN 3. desember frumsýnir Litla leikfélagið leikritið Gullna hliðið eftir Davíð Stefáns- son, en þetta verk er tekið til sýn- ingar í tilefni 5 ára afmælis félags- ins sem var sl. fdstudag. Gullna hliðið var fyrst sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur fyrir tæpum 40 árum, eða annan í jólum 1941. Sex stór hlutverk eru í leikrit- inu. María Guðfinnsdóttir leikur kerlinguna, Ólafur Sigurðsson Jón bónda, Margrét Snæbjörns- dóttir leikur Vilborgu, óvininn leikur Unnsteinn Kristinsson, Viggó Benediktsson Lykla-Pétur og Gisli Eyjólfsson leikur Pál postula. Mjög mörg hlutverk eru í Gullna hliðinu, eða alls 24. Jón Júlíusson leikari hjá LR leik- stýrir verkinu, en leikmyndir hefir Hjördís Bergsdóttir teikn- að. Tónlistin er eftir Pál ísólfs- son. Eins og fyrr sagði verður frumsýningin á fimmtudag. Hefst sýningin kl. 21 í samkomu- húsinu. Önnur sýning verður svo sunnudaginn 5. desember kl. 16. Litla leikfélagið hefir ætíð farið með leikrit sín á flakk ef svo má að orði komast, þ.e. sýnt verkin í nágrannabyggðum og verður væntanlega svo einnig nú, en ekkert hefir þó verið ákveðið enn í þeim efnum. Formaður litla Leikfélagsins er Sigfús Dýrfjörð. Arnór. Framfarafélagið kynnir Ártúns- og Seláskipulag Framfarafélag Seláss- og Ár bæjarhverfis heldur aðalfund sinn í félagsheimilinu Árseli við Rofa- bæ nk. fimmtudagskvöld 3. des- ember kl. 20.00. Auk venjulegra aðalfundar- starfa munu verða kynntar til- lögur að deiliskipulagi á Ár- túnsholti og austurhluta Seláss. Arkitektarnir Knútur Jeppesen, sem er höfundur að skipulagi Ártúnsholts, og Hrafnkell Thorlacius, höfundur skipulags austurhluta Seláss, munu mæta á fundinum og skýra hugmynd- ir sínar og svara fyrirspurnum fundarmanna. Mun því þarna á fundinum gefast einstakt tækifæri til að kynnast frá fyrstu hendi hug- myndum um byggð á þessum umdeildu svæðum. Eru allir Ár- bæjar- og Selássbúar hvattir til að mæta. Stjórn FSÁ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.