Morgunblaðið - 05.02.1982, Qupperneq 1
56 SÍÐUR
Ljósm. Mbl. Ka^nar Axvlsson.
Gífurlegir vatnavextir - Feðgar sem
óttast var um fundust heilir á húfi
GÍFURLEGIR vatnavextir voru víða um land í gær, mestir á Suð-Vesturlandi. Vatn óx
geysilega í Elliðaánum og var um tíma óttast um feðga, 48 og 7 ára, sem höfðu
yfirgefið bíl sinn í Víðidal um hálfáttaleytið. Hundruð leitarmanna leituðu þeirra í
gærkvöldi og á öðrum tímanum í nótt bárust þau gleðitíðindi að kafarar hefðu fundið
feðgana heila á húfi í hesthúsi í Víðidal, sem var umflotið vatni. Þeir voru nokkuð
þrekaðir en hressir eftir atvikum.
Vegfarendur um Suðurlandsveg ráku upp stór augu í gær er þeir sáu þetta
„stórfljót" á myndinni, belja fram rétt fyrir ofan Lækjarbotna, um 50 metra frá
veginum. Venjulega rennur þarna lítill og saklevsislegur lækur og á haustin tínir fólk
ber á þessum stað. En í hlýindunum og rigningunni í gær fossaði vatnið þarna um, og
að sögn Vatnsveitunnar var vatnselgurinn á Heiðmerkursvæðinu sá mesti síðan í
flóðunum 1968. Hús voru umflotin vatni á nokkrum stöðum en skemmdir eru ekki
verulegar að því er talið er.
Sjá: „Mesti vatnselgur síðan í flóðunum ’68“ og fleiri myndir á miðopnu og frétt á
baksíðu.
Hundrad ungmenni í
fangelsi eftir uppþot
Pólland:
Varsjá, 4. febníar. Al*.
Kl'nVlLEGA hundrað ungmenni í Gdansk voru í dag dæmd í cins til þriggja
mánaða fangelsi fyrir þátttöku í uppþotunum ( borginni um síðustu helgi, að
sögn l'AP-fréttastofunnar, og tugir hlutu fjársektir.
Jafnframt voru níu náma-
vcrkamenn við Ziemowit-námuna
í Slésíu dæmdir í þriggja til sjö
ára fangelsi hver fyrir hlutdeild í
12 daga verkfalli, sem efnt var til í
námunni í mótmælaskyni við her-
lagasetninguna í Póllandi.
Litið er svo á, að fangelsun ung-
mennanna í Gdansk, eigi að vera
aðvörun af hálfu herstjórnarinnar
til þeirra sem hyggja á mótmæli
af hvers kyns tagi í landinu.
Rúmlega 200 voru hnepptir í
varðhald eftir uppþotin, en að
sögn yfirvalda tóku þátt í þeim
rúmlega þrjú þúsund manns.
Lögregla notaði táragas til að
dreifa fjöldanum, en a.m.k. átta
lögreglumenn og sex óbreyttir
slösuðust.
Utnefndur var í dag nýr fylkis-
stjóri fyrir Gdansk-svæðið og sagt
að íbúar svæðisins yrðu að bera
afleiðingar uppþotanna í auknum
boðum og bönnum. Ólætin í
Gdansk byrjuðu eftir að ungmenni
lögðu kröfuspjöld og kransa að
minnisvarða um verkamenn er
féllu í átökum fyrir utan Lenin-
skipasmíðastöðina 1970. Veltu
ungmennin lögreglubifreið og
köstuðu grjóti að lögreglunni.
Jozef Glemp erkibiskup og tveir
hefðarklerkar komu til Róma-
borgar í dag til viðræðna við Jó-
hannes Pál páfa annan um
ástandið í Póllandi og til að ráð-
færa sig við páfa um stefnu pólsku
kirkjunnar gagnvart stjórnvöld-
um í Varsjá.
Maria Pia Fanfani, kona Amintore Fanfani þingforseta, tekur á móti Jozef
Glemp erkibiskupi vid komu leiðtoga pólsku kirkjunnar til Rómaborgar í
gær. Glemp og tveir pólskir hefðarklerkar komu til Kómar í gær til viðræðna
við Jóhannes Pál páfa um ástandið í Póllandi. Simamynd. Al*.