Morgunblaðið - 05.02.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 05.02.1982, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 Öll fangelsin eru yfirfull <)sló, 4. fehrúar. Krá Jan Krik Laurc, fréllamanni Morgunhladsins. ÖLL fanuolsi í SuðurNoregi eru nú yfirfull og ástandið er svo slæmt, að skápabrjótur nokkur, sem var hand- tekinn, varð að bíða í 4 vikiir eftir klefa í fangelsi. Sé einhver handtekinn að degi verður lögretjlan að gera svo vel að hrinnja í alla huKsanlejía staði, sem hafa yfir fangatjeymslum að ráða, O)? athujía hvort e.t.v. leynist einhversstaðar pláss fyrir einn til viðbótar. Á miðvikudagskvöld voru aðeins þrír fangaklefar laus- ir í allri Oslóborg. Mið-Austurlönd: Erfiðleikar vegna mikillar snjókomu Boirul, 4. februar, Al*. STOKIR hlutar Líhanons, Sýr lands og Jórdaníu voru í dag undir snjó og olli það miklu um- ferðaröngþveiti jafnt á vegum sem í járnbrautarsamgöngum. í ísrael, þar sem þurrviðri hafa verið mikil að undanförnu, féll í dag fyrsti snjórinn í Jerúsalem og var borgin um tíma einangruð vegna ófærðar. I fréttum frá Beirut segir, að í hríðinni hafi rafmagns- og símastaurar brotnað niður í nyrstu héruðunum og að til fjalla séu mörg þorp einangruð vegna mikillar snjókomu og skafrennings. í Beirut-borg og annars staðar við Miðjarðar- hafsströndina rigndi hins veg- ar eins og hellt væri úr fötu. í norðanverðu Sýrlandi og höfuðborginni, Damaskus, snjóaði allmikið og var ógreitt um samgöngur milli borgar- innar og annarra landshluta. Ekki var ástandið betra í Jórd- aníu en þar skipaði Hussein konungur hernum að koma til hjálpar þar sem mest bjátaði á vegna þessara óvæntu harð- inda. Þinghúsbruninn aftur fyrir rétt Krankfurl, 4. fehrúar. Al*. HÆSTIRÉTTUR Vesturl>ýzkaland.s varð í dag við tilmælum bandaríska lögfræðingsins Robert M.W. Kempner um ný réttarhöld og sýknu í máli Marinusar van der Lubbe, Hollendingsins sem dómstóll í Berl- ín da-mdi til dauða 1933 fyrir Ríkis- þinghúsbrunann, sem nazistar not- uðu til að bæla niður andstæðinga sína. Dómstóll í Berlín tekur málið aftur fyrir og Kempner mun reyna að fá hann til að hnekkja úrskurði dómstólsins sem dæmdi van der Lubbe. Hann var líflátinn 1934. Ekki hefur verið ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir. Kempner sagðr að hann mundi kveðja nokkiír vitni til að reyna að sanna að Hermann Göring og Jos- ef Göbbels hefðu gegnt mikilvægu hlutverki í þinghúsbrunanum. Hann kemur fram fyrir hönd Markusar van der Lubbe, bróður Marinusar Lubbe. Nazistar notuðu þinghúsbrun- ann 27. febrúar 1933 að yfirvarpi til að setja svokölluð heimildarlög, “Ermáchtungsgesetz“, til að leita uppi kommúnista og sósíaldemó- krata, sem síðan voru lokaðir inni í fyrstu fangabúðunum. ■' f -v 3^^ ji *■» m f miv i Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, er hafður í haldi á annarri hæð í þessu húsi, en það er í því hverfí Varsjárborgar þar sem háttsettir embættismenn stjórnarinnar búa. Skammt frá er heimili Jaruzelskis hershöfðingja. AP-símamynd. -V.-.—.--------------------------- IRA býður fram skæruliðaleiðtoga Dvflinni, 4. Tehrúar. Al*. SEAMUS McElwaire, einn leiðtogi írska lýðveldishersins (IRA) er bíð- ur réttarhalda á Norður írlandi ákærður fyrir morð á tveimur her mönnum, er einn fímm frambjóð- enda, sem Sinn Fein, stjórnmála- hreyfíng IRA, hefur tilnefnt í þing- kosningunum. Sinn Fein hóf kosningabarátt- una í gærkvöldi með yfirlýsingu MAUNO KOIVISTO Kinnlandsforseti fól í dag Veikko Helle varaþingforseta úr flokki sósíaldemókrata að kanna moguleika á myndun meirihlutastjórn- ar á sama grundvelli og áður. Koivisto bað Helle að skýra sér frá niðurstöðum sínum snemma í næstu viku þegar hann hefði rætt við full- trúa allra átta þingflokka. Allir flokkarnir nema Lands- byggðarflokkurinn eru hlynntir stjórn á núverandi grundvelli fram að næstu þingkosningunum. Koiv- um stuðning við „rétt þjóðarinnar til að heyja vopnaða baráttu fyrir þjóðfrelsi sínu“. McElwaine er tvítugur Belfast- búi og verður í framboði í kjör- dæminu Cavan-Monaghan rétt hjá landamærunum þar sem „Provo“- armur IRA nýtur mikils stuðn- ings. Dæmdur IRA-maður, Kieran Doherty, vann þingsætið í síðustu kosningum. Doherty lézt í ágúst. isto var sjálfur leiðtogi fráfarandi stjórnar, sem sósíaldemókratar, kommúnistar, Miðflokkurinn og Sænski þjóðarflokkurinn stóðu að. Þar sem enginn ágreiningur er um stjórnargrundvöllinn snúast deilur flokkanna um menn en ekki málefni. Sósíaldemókratar og Miðflokkur- inn vilja ekki forsætisráðherraemb- ættið einu ári fyrir kosningar á tíma atvinnuleysis og versnandi efna- hagskreppu. Koivisto sagði að ef skjót lausn fyndist ekki yrði þjóðin að búa sig undir skjótar þingkosningar. Hann var einn 10 dæmdra skæru- liða, sem sveltu sig í hel í Maze- fangelsi, á Norður-Irlandi. Meðal annarra frambjóðenda í kosningunum 18. febrúar er gam- alreyndur baráttumaður IRA, Joe McGirl, sveitarstjórnarfulltrúi Sinn Fein í Sligo-Leitrim, sem var kosinn á írska þingið 1957, en neit- aði að taka sæti á þingi. Frændi hans, Francis McGirl, var hand- tekinn vegna tilræðisins við Mountbatten jarl, en seinna sýkn- aður. Vopn fundust Lögreglan í Irska lýðveldinu lagði í dag, fimmtudag, hald á 100 pund af sprengiefni í vopna- geymslu IRÁ nálægt landamær- unum eftir bendingu sem hún hafði fengið, trúlega frá uppljóstr- ara. Þetta er 12. vopnageymsla skæruliða sem hefur fundizt síðan 17. janúar meðfram landamærun- um. Þetta hefur verið meiriháttar áfall fyrir IRA. Uppljóstrarar hafa verið skæru- liðum skeinuhættir á síðustu mán- uðum og afleiðingin hefur orðið sú að aðgerðir skæruliða hafa næst- um því algerlega stöðvazt í Belfast og á öðrum svæðum. Hreinsun uppljóstrara stendur yfir í IRA. Sjöunda barn Walesa N arsjá, 4. fehrúar. Al*. DANUTA Walesa, eiginkona Lech Walesa, leiðtoga Sam- stöðu, sem nú er í haldi, er orð- in léttari og átti stúlku, sjöunda barn þeirra hjóna. Danuta ól barnið í Gdansk 27. janúar og er það óskírt enn. Walesa hefur verið í haldi síð- an 13. desember sl. og er talið, að hann hafi enn ekki fengið að sjá dóttur sína. 36 farast í flugslysi l'arís. 4. febrúar. Al*. ÞRJÁTIU og sex menn úr frönsku útlendingahersveit- inni fórust í gær þegar her- flutningaflugvél flaug á fjall í Djibouti, að því er franska varnarmálaráðuneytið skýrði frá í gær. Slysið varð þegar út- lendingahersveitin var að æf- ingum í Djibouti, fyrrum franskri nýlendu við Rauða- haf, en þær fara þar fram reglulega fjórða hvern mánuð. Sendiráðs- maður dæmdur fyrir morð AJx-nu, 4. febrúar. Al*. DÓMSTÓLL í Aþenu hefur dæmt belgískan sendiráðs- mann í 15 ára fangelsi fyrir að hafa orðið konu sinni að bana og tók þá ekkert tillit til þeirr- ar ástæðu, sem maðurinn til- greindi fyrir manndrápinu, að eiginkonan hefði haldið fram hjá honum með mörgum mönnum. Belginn var hand- tekinn í apríl 1980 þegar hann hafði skotið konu sína í leigu- bíl fyrir utan Aþenuflugvöll en hann hafði komið til borgar- innar frá Bagdad, þar sem hann gegndi störfum, til að vera samvistum við hana um páskana. Fjörutfu fallnir í Napólí Napólí, 4. febrúar. Al*. FJÓRIR menn hafa fallið síð- asta sólarhringinn í hjaðn- ingavígum glæpaflokkanna í Napólí og hafa þá 40 verið drepnir það sem af er árinu. Á liðnu ári félíu í valinn 200 menn í þessum átökum, sem snúast um yfirráðin yfir glæpastarfseminni, einkum eiturlyfjasölunni. ítalska lög- reglan hefur verið að sækja í sig veðrið að undanförnu í bar- áttunni við glæpalýðinn og nú síðustu dagana hafa 32 verið handteknir fyrir ýmsar sakir og ákærur þyngdar á hendur öðrum 16, sem þegar sitja í fangelsi. Stjórnarmyndun reynd í Finnlandi llelNÍnki, 4. febrúar. Al*. Árangurslitlar viðræður Papandreous og Schmidts Bonn, 4. febrúar. Al*. ANDREAS Papandreou, forsætisráðherra Grikkja, hélt í dag heim eftir fjögurra daga heimsókn í VesturÞýskalandi þar sem hann reyndi að fá Helmut Schmidt kanslara til að fallast á þá hugmynd sína, að tengsl Grikkja og Kfnahagsbandalagsins yrðu með nýjum og sérstökum hætti. Svo virðist sem hann hafí ekki haft erindi sem erfíði í þeim efnum. Papandreou kom til Vestur- Þýskalands sl. mánudag og hef- ur síðan átt viðræður við helstu frammámenn í vestur-þýskum stjórnmálum og iðnaði, en Grikkir skipta ekki meira við áArá. Júpþ. „sn, V.-t>jóðY«yjíi..qgi hafa farið fram á það að þeir auki fjárfestingu sina í Grikk- landi. Þetta er fyrsta meirihátt- ar utanferð Papandreous síðan Sósíalistaflokkur hans komst til valda í október sl., en fyrir kosn- ingar hét hann því að taka til endurskoðunar aðild Crikkja að NATO og Efnahagsbandalagi Evrópu. Papandreou vill að sérstakt tillit verði tekið til Grikkja inn- an EBE til að auðvelda þeim samkeppnina við önnur aðild- arlönd en á þessa hugmynd mun Schmidt ekki hafa viljað fallast enda hefur hann ætíð verið and- vígur slíkum tillögum áður, t.d. frá Bretum. Papandreou hefur svipaðar hugmyndir um stöðu Grikkja innan NATO en Schmidt mun einnig hafa vísað þeim eindregið á bug. í viðræðum þeirra Papandr- eous og Schmidts bar sambúð Grikkja og Tyrkja mjög á góma og vildi Papandreou, að Vestur- Þjóðverjar beittu áhrifum sín- um til að finna lausn á Kýpur- deilunni. Grikkir hafa einnig farið fram á það við NATO, að það ábyrgist öryggi þeirra gagn- vart Tyrkjum en á það hefur ekki verið fallist þar sem það væri ósvífni í garð þeirra síðar- nefndu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.