Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 Fjölsóttur atvinnumálafundur sjálfstæðismanna á Selfossi: Hluti fundarmanna á Selfossfundinum, sem var fjölsóttur. Verðlagshömlur þær sem hér er búið við eru einn mesti vandi íslenskra atvinnufyrirtækja - sagði Þorsteinn Pálsson Sjálfstæðisflokkurinn efndi til fundar á Sel- fossi um síðustu helgi, og var fundurinn liður í fundaherferð Sjálf- stæðisflokksins síð- ustu vikur um atvinnu- mál, en yfirskrift fund- anna hefur verið „Leiðin til bættra lífskjara“. Á Selfoss- fundinum voru frum- mælendur Salóme Þorkelsdóttir, alþingis- maður og Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri, en hann á nú sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. Salóme l'orkelsdóttir, alþingis- maóur, sagði í upphafi ræðu sinn- ar, að hún fagnaði því tækifæri að fá að koma austur á Selfoss á fund sem þennan, æskilegt væri að þingmenn hittu fleiri að máli en kjósendur í eigin kjördæmum, og mikilvægt væri að stjórnmála- menn ættu þess kost að fá að heyra sjónarmið fólks, ábendingar og viðhorf í ýmsum málum, og væri sá tilgangur fundanna ekki síður mikilvægur en sá, að menn hlýddu á það sem frummælendur hefðu fram að færa. Þingmaðurinn vék máli sínu því næst að nýlega afstöðnum lands- fundi Sjálfstæðisflokksins, þar sem hún sagði glögglega hafa komið fram, að ekki væri um mál- efnalegan ágréining að ræða um höfuðstefnuatriði innan flokksins, en ágreiningurinn stæði á hinn bóginn um þátttöku í núverandi stjórnarsamstarfi. Þar væri það svo að stefna Alþýðubandalagsins réði ferðinni, og „niðurtalning" Framsóknarflokksins teldi verð- lag nú upp í landinu. Verðbólgan yrði um 50 til 55% á þessu ári, og athyglisvert væri, að það væri sú tala sem sveitarstjórnir víðs vegar um land reiknuðu nú með í gerð fjárhagsáætlana, hvað sem yfir- lýsingum ráðherra og annarra stjórnarliða um lægri verðbólgu- spár segðu. Salóme sagði, að ástand efna- hagsmála væri nú þannig, að hver nýr íslendingur sem liti dagsins ljós, tæki um leið við 40 til 50 þús- und króna skuldabagga. Erlend lán væru tekin til að framlengja eldri lán, greiða af þeim vexti og afborganir, eða til að greiða halla á ríkisfyrirtækjum. Flestir væru þó í rauninni sammála um að er- lendar lántökur væru því aðeins réttlætanlegar, að þær fari í upp- byggingu og framkvæmdir. I atvinnumálum landsmanna sagði Salóme, að ekki blési byrlega um þessar mundir. Gott dæmi um ástandið í atvinnulífi landsmanna væri sú kreppa sem ríkt hefði í sjávarútvegi framan af árinu, og ekki væri raunar séð fyrir endann á ennþá. Landsmenn hefðu beðið í ofvæni eftir einhverjum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem aldrei hefðu komið. Rétt eftir að Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, hafði dásamað það í áramóta- ávarpi í útvarpi og sjónvarpi, að hér væri ekkert atvinnuleysi, þá hafi þúsundir íslendinga verið búnir að missa atvinnuna og gengu um án atvinnu. Landsmenn yrðu að hafa það hugfast sagði þingmaðurinn, að hér á landi yrði ekki um að ræða sókn þjóðarinnar til bættra lífs- kjara, hér yrði ekki byggt upp betra þjóðfélag, nema með því að styrkja atvinnulífið í landinu, án þess væri allt annað nánast óhugsandi ef grundvöllinn vant- aði. Framtíðarmöguleika þjóðar- innar væri að finna í orkuvinnslu, en næg óbeisluð orka væri hér á landi, og orkuna yrði síðan að nota til að byggja hér framtíðarat- vinnufyrirtæki. I þessu sambandi minnti Salóme á tillögur 19 þing- manna Sjálfstæðisflokksins í orkumálum, landbúnaðarmálum og fleiri málaflokkum, þar sem leitast væri við að horfa aðeins lengra en til næsta dags, og reynt að marka framtíðarstefnu í svo mikilvægum málaflokkum. Hún minnti einnig á tillögur sjálfstæð- ismanna um varanlega vegagerð, sem væri tvímælalaust mjög arð- bær fjárfesting. Talið væri að oliumöl greiddi sig upp á fjórum árum, og að endingartími bifreiða lengdist um tvö ár, væri þeim ekið á varanlegu slitlagi. Samgöngur sagði Salóme því vera mikilvægan þátt atvinnumála, sem ekki mætti verða útundan þegar hugaö væri að framtíðaruppbyggingu á því sviði. Þorsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri, kvaðst vera kominn til Sel- foss til að læra og fá upplýsingar frá fundarmönnum, ekki síður en til að flytja ákveðinn boðskap. I efnahagsmálum sagði Þor- steinn höfuðviðfangsefni flestra ríkisstjórna einkum vera tvíþætt: Annars vegar væri verið að fást við leyndardóma gengisskrán- ingarinnar, og hins vegar væri viðfangsefnið það sem Þorsteinn nefndi töframátt vísitölukerfisins. Efnahagsstefnuna sagði hann svo einkum hafa snúist um eftirtalda þætti: Verðstöðvun, niðurgreiðsl- ur, feluleik með gengi, vaxandi af- skipti hins opinbera af rekstri fyrirtækja með reglum og láns- fjárskömmtunum. — Inn í þetta blandistsvo utanaðkomandi hlutir á borð við verðhækkanir á fisk- mörkuðum erlendis og þróun doll- arans, sem væru eins konar happ- drættisvinningar er féllu ríkis- stjórnum í té. Öll þessi atriði sagði Þorsteinn, að hlytu óhjákvæmilega að hafa áhrif á afkomu atvinnufyrirtækj- anna, og þar með afkomu þjóðar- innar á hverjum tíma, og væri því ástæða til að dæma þessar aðgerð- ir og aðgerðir stjórnvalda af feng- inni reynslu. Nú væri til dæmis unnið að því að telja niður verðlag að sögn stjórnarherranna. Það væri norsk hugmynd er Fram- sóknarflokkurinn hefði ákveðið að taka upp og nota hér á landi. Al- þýðubandalagið hefði á hinn bóg- inn komið til sögunnar í núver- andi stjórnarsamstarfi, og áður en niðurtalningin svonefnda var reynd, hafi alþýðubandalagsmenn talið framsóknarmönnum trú um að unnt væri að ná árangri í bar- áttunni við verðbólguna með því einu að setja verðstöðvun. Það hafi verið gert með því, að á fyrsta tímahili hafi verðhækkanir átt að vera innan 7% marka. Á næsta tímabili hafi svo átt að vera innan 8% marka, og á því þriðja innan 10% marka. Á fjórða tímabili væri svo sagt að ekki væri unnt að setja nein slík viðmiðunarmörk! Verðlagshömlur, þær sem ís- lenskt atvinnulíf býr við, sagði Þorsteinn vera einn mesta vanda atvinnufyrirtækjanna. Tilkostn- aður hækkaði, en framleiðendur fengju ekki að hækka vörur sínar í samræmi við það, vegna vísitölu- leiksins. Hækkunarbeiðnum væri ýtt áfram án þess að þær fengjust afgreiddar, og í níu manna verð- lagsráði sætu menn og skömmt- uðu mönnum hækkanir, oft án til- lits til raunverulegrar þarfar, þar væru aðrir hagsmunir oft settir ofar. I kerfi sem þessu sagði Þorsteinn „gróða" raunverulega vera bannorð. Um leið og eitthvert fyrirtæki sýndi hagnað, gæfi það mönnum um leið tilefni til að koma í veg fyrir að slíkt fyrirtæki fengi eðlilegar hækkanir. Þetta væri gert til að halda vísitölunni niðri, en í rauninni væri mönnum sama um lífskjör almennings í þessu samhengi, aðeins væri um að ræða að koma verði einhverrar ákveðinnar vöru niður. Þannig gæti innlendur framleiðandi feng- ið synjun á eðlilega verðhækkun- arbeiðni, en danskt eða sænskt fyrirtæki sem flytti inn sömu vöru mætti hækka verðið að vild. Gott dæmi um vísitöluhræsnina sagði hann einnig vera hin svonefndu vísitölubrauð. Þar væri verið að halda verði niðri á nokkrum brauðtegundum, en síðan mættu bakarar hækka önnur að vild! Vísitöluna sagði Þorsteinn í upphafi aðeins hafa verið vinnu- tæki hagfræðinga, sem hafi notað hana til að fylgjast með þróun efnahagsmála. Síðar hafi mönnum svo dottið í hug að reikna mætti vísitöluna út í margvíslegum öðr- um tilgangi, þannig hefðu bændur Kirgir Viðar Halldórsson, matreiðslumeistari, (annar frá vinstri) ásamt starfsfólki sínu á hinum nýja stað, Uóðborgaranum. Þar munu starfa fjórir starfsmenn, og rúm er fyrir 40 manns í sæti. Ilm helmingur viðskiptavinanna kýs þó að taka mat sinn út og snæða heima hjá sér, segir Birgir í spjalli við blaðamann. Ljó.sm.: Kmilía BjörnsdúUir. Nýr veitingastaður: Góðborgarinn við Hjarðarhaga „NKI, ég óttast það ekki að mikil samkeppni á þessu sviði valdi okkur erftðleikum hér, enda erum við í rauninni ekki að bæta við nýjum stað, heldur erum við að betrum- bæta það sem fyrir er,“ sagði Birgir Viðar Halldórsson, matreiðslumeist- ari, í samtali við Morgunblaðið í vik- unni, er hann opnaði nýjan veit- ingastað í Vesturbænum. Góðborg- arinn heitir hinn nýji staður, og er í húsakynnum þeim er áður hýstu veitingahúsið Vesturslóð, sem Birgir hefur nú keypt. „Fyrsta verk okkar hér var að leggja vínveitingarnar niður,“ sagði Birgir Viðar ennfremur, „enda er það fjölskyldufólk fyrst og fremst sem við viljum fá hingað inn. Það hefur sýnt sig að það fer ekki saman, að fólk með börn borði á einu borði, og víns sé uéytl-méð ni4tnum á því næsta. — Ég er ekki fanatískur á vínveit- ingar, en við höfum ekki áhuga á þeim hér,“ sagði Birgir. Á Góðborgaranum verður fyrst og fremst hægt að fá ýmsa fljót- lega rétti, svo sem allar gerðir hamborgara, fiskborgara, roast- beef borgara og fleira, og kjúkl- ingar munu bætast á meðseðilinn um mánaðamótin. Þá eru einnig seld salöt, sósur, kartöflur og fleira.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.