Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.02.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 2 7 Mciría Guðmundsdótt- ir — Minningarorð Fædd 12. maí 1930 Dáin 29. janúar 1982 Hún Didda mágkona mín er dá- in aðeins 51 árs, og þá vaknar spurningin: Hvers vegna hún? Hún var búin að ala upp 6 börn og þá finnst okkur að það sé kominn tími fyrir móður að eiga tima fyrir sig. Allt sitt líf var hún til staðar, til hjálpar öðrum. Ung giftist hún Arnmundi Jón- assyni og eiga þau 6 myndarbörn og góða þjóðfélagsþegna. Eg minnist þess sérstaklega er ég kom inn á heimili tengdafólks míns aðeins 17 ára, og þar átti ég mitt fyrsta barn, Ástu fædda 1952. Ef ég þurfti að koma henni fyrir, þá var það aldrei spurning hvar hún ætti að vera, það var svo sjálfsagt að hún yrði hjá „Diddu frænku" og vil ég nú þakka henni alla þá vináttu sem hún veitti mér og börnum mínum í 30 ár, og báð- ar vorum við kallaðar Didda. Didda, eins og hún var kölluð af öllum, var fædd í Reykjavík þann 12. maí 1930. Faðir hennar var Guðmundur Guðnason og lifir hann dóttur sína 89 ára gamall, og dvelst hann nú á Dvalarheimili aldraðra sjómanna. Móðir hennar var Ingveldur Árnadóttir og lést hún árið 1942. Didda var næstelst fimm systkina en þau eru: Lúðvík fæddur 1929, María fædd 1930, Guðríður fædd 1934, Ása Inga fædd 1940 og Ingveldur fædd 1942. Þetta voru erfiðir tímar fyrir ein- stæðan föður þeirra, að ala upp börnin sín fimm án nokkurrar að- stoðar, en mikið kom í hlut Diddu, sem aðeins var 12 ára, og Lúðvíks, þá 13 ára, að hjálpa til með yngri systurnar. Veit ég að söknuður systkinanna er mikill og sár, því þau gátu alltaf leitað til „Diddu systur" allt fram á hennar síðasta dag. Lífið heldur áfram og sú stund kemur að við hittumst aftur, ég kveð mína kæru mágkonu. Guð blessi minningu þeirrar góðu konu, sem vildi öllum gott gera. Elsku Mundi minn, ég sendi þér og börnum ykkar, tengdadóttur og barnabarni, alnöfnunni Maríu litlu Guðmundsdóttur, systkinum hennar, föður og öðrum ástvinum samúðarkveðjur mínar og barna minna, sem öllum þótt vænst um hana „Diddu frænku". Móðir mín biður einnig góðan Guð að styrkja ykkur öll í þessari miklu sorg, en Didda var henni alltaf góð, sem og öllum öðrum. „Yaktu minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf.“ (H.P.) Kveðja frá Diddu mágkonu. í dag, föstudaginn 5. febrúar verður til moldar borin, María Guðmundsdóttir, Hjaltabakka 12, Reykjavík. Það hefur verið trú mín í fjölda ára að þeir deyji ungir sem guð- irnir elska. Annað er ekki hægt en að þeir hafi elskað hana Diddu, eins og við öll kölluðum hana. Ég á fáa en góða vini, sem ég er stoltur af að eiga og í þeim hóp hef ég lengi talið Diddu og Munda. Kynni okkar hófust fyrir um 20 árum. Þá bjuggu þau með börnum sínum í lítilli 2ja herb. íbúð og það fyrsta sem ég tók eftir í fari þeirra að þar var alltaf endalaust pláss, ef einhver þurfti mat, gistingu eða aðra aðhlynningu. Hún Didda mátti aldrei neitt aumt sjá, alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálpar- hönd og það voru margir sem þáðu það í orði og verki, þar á meðal ég. Það væri svo margt hægt að skrifa um manngæsku hennar en það væri andstætt því, sem hún hefði viljað, svo ég læt það ógert hér. Þetta eru fátækleg orð vinar sem hefði viljað segja meira, en ég fylgi Diddu í huganum yfir landa- mærin miklu. Megi sá almáttugi veita Munda, Konna, Distu, Ingu, Jónasi, Ástu, Svanhildi og öðrum ástvinum styrk í sorg okkar. tíunnar Margur einn í aldurs blóma undi sa*ll vid jjlaúan ha>», bráll þá froj;nin heyrðist hljóina: lleill í K»*r, en nár í daj;.- I dag kveðjum við elskulega frænku mína, sem nú er farin yfir í ríki friðarins, þar sem við mun- um öll hittast að lokum. Það er erfitt að trúa því, að hún Didda frænka sé dáin, en Didda frænka var hún alltaf kölluð af okkur frændsystkinunum. Hún var ein þeirra fáu, sem alltaf höfðu tíma og pláss fyrir aðra, og alltaf fylgdi góða skapið hennar með, þrátt fyrir sitt stóra heimili, sem oft á tíðum var bæði erfitt og þröngt. Didda frænka og Mundi eiga sex börn, það yngsta fermdist síðasta vor, og missa þau ekki bara elsku- lega móður heldur líka bestu vin- konu sína og trúnaðarvin. Sjálf var hún næst elst fimm systkina og var hún aðeins ellefu ára þegar hún missti móður sína, sem hún hefur nú hitt aftur. Alla tíð síðan ég man eftir, hafði hún allan þann tíma í heimi, allt til síðasta dags, fyrir afa minn, föður sinn, sem í dag er há- aldraður maður á elliheimili. Já, það var gott og alltaf gaman að skreppa til Diddu frænku, bara til að sitja saman og spjalla um allt og ekkert á meðan mikið kaffi var drukkið, en tíminn flaug alltaf of hratt í þeim heimsóknum, sem undirstrikar hversu skemmtileg og kát hún alltaf var. Ekki er ætlun mín hér að fara að rifja upp allar minningar mín- ar um hana Diddu frænku, ég á þær sjálf og mun þær vel geyma en aldrei gleyma. Þetta eru aðeins nokkrar línur í kveðjuskyni, því eins og ég byrjaði: Þessu er erfitt að trúa. Elsku Mundi minn og börnin ykkar öll, góður Guð veri með ykk- ur öllum í þessari miklu raun og um alla ókomna framtíð. Blessuð veri minning frænku minnar. „Kar þú í friói, friður (*uðs þig blessi, hafðu þokk fyrir allt uj; allt. (■ekkst þú með <>uði, (iuð þér nú fylj;i, hans dýrðarhnoss þú hljóla skalt.“ Ásta Engin orð fá lýst þeim mikla harmi, sem grúfir yfir við lát elskulegrar systur okkar, Maríu Guðmundsdóttur, er lést 29. janú- ar sl. og sem við í dag kveðjum hinstu kveðju. Systurinnar, sem við héldum að við hefðum alltaf hjá okkur og við treystum á. En svo kemur harmafregnin: Hún Didda systir er dáin, burt kölluð fyrst af okkur systkinun- um. En Drottinn gaf og Drottinn tók, við eigum minningarnar. Þakka ber það. Hún var okkur stoð og stytta hvenær sem á þurfti að halda og ævinlega boðin og búin okkur til hjálpar og aðstoðar. Nú þegar að leiðarlokum er komið og kveðju- stundin runnin upp þökkum við elsku Diddu allt sem hún hefur verið okkur. Guð blessi hana. „Kar þú í friói frióur (iuds þij; blessi hafdu þokk fyrir allt oj; allt.“ Systkini og makar. Sigrún Ásmundsdótt- ir - Minningarorð Fædd 4. júní 1904 Dáin 11. maí 1981 „Nú til þín, fadir, flý éj; á fbðurhjartað kný éj;, um aðstoð éj; bið þij;. Æ, vert með mér í verki, ég veit þinn armur sterki í stríði lífsins styður mig.“ ((■uðm. (•uðm. Sb. nr. .'195.) Páll postuli ritar þessi orð: „Berið hver annars byrðar og upp- fyllið þannig lögmál Krists" (Gal. 6:2). „Því að allt lögmálið er upp- fyllt með þessu eina orði: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig“ (Gal. 5:14). Amen. Eitt sinn var Jesús Kristur spurður af lögvitringi, hvað hann ætti að gera, til að hann öðlaðist eilíft líf. Jesús spurði á móti, hvað hann læsi sjálfur í orði Guðs. Lögvitringurinn svaraði að bragði: „Elska skalt þú Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum og af öllum huga þínum, og náunga þinn eins og sjálfan þig“ (Lúk. 10:27). Síðan hefur þetta boðorð verið nefnd hið tvöfalda kær- leiksboðorð eða lögmál Krists. Jesús benti á, að vegur kærleik- ans væri vegur eilífs lífs, og gekk þann veg á undan okkur. Allt hans iíf speglaði takmarkalausan kær- leika Guðs til okkur. Það sýnir Biblían okkur. Guð mætti okkur í Jesú Kristi og í honum sýndi Guð okkur, hvernig við skyldum mæta hinu illa í veröldinni, sjúkdómum, óréttlæti, synd og dauða. En Kristur Jesús var ekki aðeins for- dæmi í góðum orðum og verkum, heldur gaf hann sjálfan sig dauð- an. Lét hið illa vald, óréttlætið og syndina kremja sig og deyða á krossi, til að sigra það. í nýju lífi, upprisu frá dauðum, feist sigur Guðs í Kristi. Sigur yfir öllu illu, öllu, sem niðurbrýtur Guðs góðu sköpun. Og fyrir trú á Jesú, guðs son, eigum við allt með félaginu við Krist Jesúm, er allt komið undir trú, sem starfar í kærleika. Það er trúin, sem er tengiliður milli Guðs og manns, og mikilvæg- ast alls frá Guði komið til okkar mannanna, er kærleikur hans í Jesú Kristi. Því er það mikil Guðs blessun að fá að kynnast og þekkja mann- eskjur knúnar kærleika Krists. Þær þurfa ekki að vera fullkomn- ar, heldur einstaklingar, sem lifa í náð Guðs í fyrirgefningu. Ein- staklingar, sem bera byrðar ann- arra, byrðar þjáningar og sárs- auka, byrðar veikinda og sjúk- dóma. Einstaklingar, sem setja sig í annarra spor, af næmni þess, sem sér Krist Jesúm í hverjum manni, sínum minnsta bróður. Slíkar manneskjur eru hendur Krists á jörðu, tilbúnar að líkna og græða, bæta úr hverju böli. Slíkar manneskjur uppfylla lög- mál Krists. Þannig verður trú, sem starfar í kærleika, lofsöngur Guðs til dýrar. Þetta hef ég í huga, er ég heiðra minningu Sigrúnar Ingveldar Ásmundsdóttur, sem lést 11. maí 1981. Hún fæddist í Garpsdal í Austur-Barðastrandasýslu hinn 4. júní 1904. Foreldrar Sigrúnar voru þau Ólöf Pálsdóttir og Ásmundur Guðmundsson. Ung að aldri var hún tekin í fóstur af Ólafi Egg- ertssyni og Þuríði Runólfsdóttur á Króksfjarðarnesi. Þar ólst hún upp við góða aðhlynningu og at- læti. Er hún missti fóstru sína gekk Bjarney, eldri uppeldissystir hennar, henni í móður stað. Tæp- lega tvítug að aldri veiktist Sigrún af berklum í baki. Var það erfiður sjúkdómur hverjum, sem hann fékk, ekki sízt ungri stúlku í blóma lífsins. Var hún vistmaður á Vífilsstöðum í um það bil 7 ár. Tók það hana mörg ár að ná sér af berklaveikinni og afleiðingum hennar. Sigrún kom heim að Króks- fjarðarnesi á nýjan leik 1932. Þá kyntist hún mannsefni sínu, Helga Jónssyni, sem var þar í vegavinnu. Felldu þau hugi saman og gengu í hjónaband. Árið 1934 eignuðust þau svo dóttur, Maríu Elísabetu. Sigrún og Helgi flutt- ust til Reykjavíkur og bjuggu á Hlíðarenda undir Öskjuhlíð fyrstu árin. Árið 1942 eignuðust þau svo sitt annað barn, Jón Gylfa. Stuttu síðar festu þau kaup á húseigninni við Reykjavíkurveg 23 í Skerja- firði, þar sem þau bjuggu síðan. Helgi vann hjá Sambandi ís- lenskra Samvinnufélaga, þar til hann lést í apríl 1971. Sigrún bjó börnum sínum gott heimili og þegar barnabörnin fæddust í heiminn og uxu úr grasi, tók hún þau að sér með þeirri hlýju, sem einkenndi hana alla tíð. Sigrún var gáfuð kona og hafði skarpa dómgreind. Veikindi henn- ar og mótlæti mörkuðu líf hennar og þorska. Hún þekkti þjáningar og veikindi af eigin raun. Því var hún mikil styrkur ástvinum í þeirra eigin raun. Þrátt fyrir mót- læti og erfiðleika æðraðist hún ei. heldur tók hlutskipti sínu og sinna í auðmýkt. Sigrún var einlæg trúmanneskja. Alla tíð hélt hún tryggð við bernskustöðvarnar, því sveitin var henni kær. Sjálf heimsótti hún oft venzlafólk á Króksfjarðarnesi og Staðarfelli. Þar voru börn hennar einnig í sveit. Allir, sem kynntust Sigrúnu hrifust af henni. Sjálfur fékk ég að ganga með henni lítinn spöl. Minnist ég þeirra ára með þakk- læti til Drottins. Mér kom hún fyrir sjónir, sem einlæg öldruð kona með gnótt mannkosta. Ávöxtur þess manns, sem hefur heilagan anda Krists, leynir sér ekki. Heilagt orð segir: „En ávöxt- ur andans er: kærleiki, gleði, frið- ur, gæzka, góðvild, langlyndi, trúmennska, hógværð, bindindi" (Gal. 5:22). Síðustu árin jukust smám sam- an veikindi hennar, þó svo til langvarandi legu drægi ekki fyrr en á síðasta ári. Sjálf vissi hún að hverju stefndi og áður en hún dó, fékk hún sjúkrahúsprestinn til sín og neytti heilagrar kvöldmáltíðar. í sátt við Guð og menn dó hún 11. maí 1981 í Landspitalanum í Reykjavík. Ég votta börnum hennar, barn- abörnum og ástvinum öllum mína dýpstu samúð með þessum orðum Jesú Krists frelsara okkar og Drottins: „Ég er upprisan og lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi" (Jóh. 11:25). Vinur (Magnús Björnsson, Seyðisfirði.) 80.41 Veisbi hvaða litsjónvaipstæki feest meö útborgun fiá kr.2-3bUS.og eftirstöðvum til alltað8 mánaða? ¥

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.