Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 18

Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982 Niðurgreiðslur 1982: Þrefalt hærri en framkvæmdir skóla, sfúkrahúsa, hafiia og flugvalla Ráðherrar gagnrýndir fyrir að vanrækja þingskyldur „Skýrsla ríkis.stjórnar“ um efnahagsmál kom til framhaldsumræðu í fyrra- dag. Kins og frá var sagt í Mbl. í gær töludu Lárus Jónsson (S), Birgir ísleifur Gunnarsson (S), Eióur Gudnason (A) og Kjartan Jóhannsson (A) í fyrri hluta umræóunnar, þ.e. fram að þingflokkafundum, en fjör færðist í leikinn síó- degis, er forsætisráðherra, Gunnar Thoroddsen, hóf svarræðu sína. Ræðurnar ókomnar væru ákveðnar, væru þær þó ekki í Morgunblaðinu hærri en verið hefði 1978, er Gunnar Thoroddsen, forsætis- Kjartan Jóhannsson var ráðherra, ráðherra, sagði m.a., að óvenjulegt e^a ^ ^ na móti 11% þá. Svo talaði væri að halda útvarpsumræðum áfram, eftir að útsendingu lýkur, þó heimild væri til í þingsköpum. Það er víst enginn vafi á því, sagði ráðherra, að sumir sem töldu sig sjálfkjörna til þátttöku í útvarps- umræðunum, en komust ekki að, hafa viljað láta ljós sitt skína. Þá er það athyglisvert, sagði ráöherra, að ræður þeirra tveggja, sem þá töluðu fyrir hönd stjórnar- andstöðu í Sjálfstæðisflokknum, hafa ekki fundið náð fyrir augum Morgunblaðsins, en nú eru liðnir 5 útkomudagar án þess að þar sjáist tangur eða tetur af ræðum Friö- riks Sophussonar og Ólafs G. Ein- arssonar. (Kallað fram í: Veit for- sætisráðherra skýringu á því?) Já, það er dómur Mbl. og væntanlega stjórnarformanns þess, að það sé ekki fengur í að birta þessar ræð- ur! Má vera að Mbl. beri fyrir sig plássleysi, en vart er það fram- bærilegt, því þessa daga hefur Mbl. komið út í 256 blaðsíðum, auk Lesbókar, svo nægt ætti rýmið að hafa verið. Forsætisráðherra sagði ræður Lárusar Jónssonar (fyrr um dag- inn) hafa verið „innihaldslitla". Ymis atriði í efnahagsaðgerðum væru sótt í stefnuskrá Sjálfstæð- isflokksins, s.s. að draga úr af- skiptum af verðlagsmálum, lækka ríkisútgjöld og aukið svigrými sveitarfélaga. Rangt væri hjá Lárusi og Kjart- ani Jóhannssyni að vísitöluspá Þjóðhagsstofnunar á þessu ári væri 40—42%. Þessi tala væri byggð á því að ekkert frekar yrði gert til áhrifa á efnahagsþróunina en það sem þegar hefur verið ákvarðað. Vitanlega þarf að gera fleira, ef ná á því marki að verð- bólguhraðir.n verði 30% í lok árs- ins. Forsætisráðherra sagði að með þeim niðurgreiðslum, sem nú Kjartan um vísitöluleik. Þá þakkaði ráðherra Friðrik Sophussyni fyrir að lesa upp blaðagrein eftir sig, hvar raktir væru annmarkar niðurgreiðslna (kallað fram í: hvernig væri að lesa hana aftur?) — ég meina hvert orð sem í greininni stendur, sagði ráðherra, en það þarf bara að losna við höfuðannmarka vísi- tölukerfisins, þá fæst rými til að lækka niðurgreiðslur. Gunnar Thoroddsen sagði fulla samstöðu innan ríkisstjórnarinn- ar (og raunar þjóðarinnar) um, hverjir væru helztu ókostir vísi- tölukerfisins, þ.e. sjálfvirknin og víxlhækkanirnar. Úm stöðu at- vinnuveganna, sagði ráðherra að- spurður, að árangur í vísitölu- hjöðnun næðist ekki, án þess að um tíma herti einhversstaðar að. Þá vék ráðherra að kenningunni um stöðugt gengi og hverjar væru að hans dómi orsakir þeirrar þróunar á gengi nýkrónunnar, sem orðin væri. Reiður ráðherra — rýr svör Lárus Jónsson (S) sagði svör ráðherra í rýrara lagi en reiði hans þeim mun fyrirferðarmeiri. í raun stæði það eitt eftir í efna- hagsskýrslu ríkisstjórnarinnar, þegar orðskrúðið væri skafið af, að greiða ætti niður verðbætur á laun um 6% samtals. Það hvort niðurgreiðslur væru hrikalegar eða -ekki gætu menn bezt séð af því, að þær niðu'-greiðslur, sem nú væri stefnt tii, m.a. með skattpen- ingum fólks, næmi meira en þre- faldri þeirri fjárhæð, sem ríkis- stjórnin hygðist verja til fram- kvæmda í landinu við skólabygg- ingar, sjúkrahús, hafnir og flug- velli o.s.frv. Þetta kalla ég hrika- legar niðurgreiðslur. Forsætisráðherra talar um 7% niðurgreiðslur en sjávarútvegs- Gunnar ráðherra, sem er sýnilega betur heima í heildardæminu, um 11%. Niðurgreiðslur kosta nú mun meira en þegar þessi sami maður sagði í blaðagrein: „Niðurgreiðslur úr ríkissjóði á landbúnaðarvörur sem kosta nú milli 20—30 millj- arða (að sjálfsögðu gkr. á ari) eru komnar úr hófi." Hann talaði og um að slíkar niðurgreiðslur skekktu almennt verðlag, drægju úr hvöt til að ráðast í nýjar bú- greinar og biðu heim hættu á mis- notkun. Þetta er það eina sem hæstvirt ríkisstjórn er sammála um að gera. Framreiknuð verðbólga til árs- loka er 40—42% (framfærsluvísi- tala) og 45—47% (byggingarvísi- tala), þrátt fyrir hinar hrikalegu niðurgreiðslur og þó því aðeins ekki hærri, að ekki sé reiknað með neinum frekari grunnkaupshækk- unum. Þetta eru fagaðilar sam- Fyrirspurn um utanferðir: Svarið heil bók Matthías Bjarnason (S) bar fram fyrirspurn á Alþingi 10. nóv- ember 1981 um kostnað við utan- landsferðir á vegum Alþingis, rík- isstjórnar og ríkisstofnana. Fyrir nokkrum dögum gerði hann athugasemd utan dagskrár, vegna þess að svar við þessari fyrirspurn hafði enn ekki borizt. Hann beindi fyrirspurn til forseta Sameinaðs þings, hvar mál þetta væri á vegi statt og hvað hefði tafið það, ein- hversstaðar væri stífla í upplýs- ingamiðluninni. Ég vona að forsæt- isráðherra hafi ekki falið einhverj- um þeim að vinna svar við fyrir spurninni, sem hafa dvalið æ síðan erlendis, sagði Matthías. Jón Ilelgason, forseti Sþ., sagði sér kunnugt um, að forsætis- ráðuneyti hefði þegar sent út beiðni um svör til þeirra stofn- ana, er spurningarnar náðu til. Borizt hefðu svör frá „allmörg- um þessara aðila en ekki frá þeim öllum og Alþingi er ein af þeim stofnunum, sem svar liggur ekki fyrir frá“, en skrifstofulið Alþingis væri fámennt og anna- tími frá því spurningin kom fram. Árni Gunnarsson (A) sagðist hafa lagt fram spurningu um viðvörunarkerfi í Mývatnssveit, sem ósvarað væri enn, en í þing- sköpum Alþingis stæði: „Fyrir- spurn skal þó ekki tekin á dagskrá síðar en 8 virkum dög- um eftir að hún er leyfð." Matthías Bjarnason (S) spurði, hvort utanlandsreisum manna á vegum þess opinbera hefði fjölg- að svo mjög, að það þyrfti að taka meira en ársfjórðung að vinna svarið. Almennum atvinnurekstri er gert að skyldu, að settum viðurlögum, að skila hvers konar upplýsingum innan ákveðinna tímamarka, s.s. launamiðum og ýmisskonar framtölum. Ekki stendur á refsi- ákvæðum, sektum í stórum stíl. Þá er ekki spurt, hvort bæta þurfi við starfsfóiki til að sinna upplýsingaskyldunni. Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra, sagði m.a. slíka fyrir- spurn hafa verið borna fram fyrir u.þ.b. 4 árum, og miðað við prentuð svör þá, mætti búast við að svarið við þessari fyrirspurn yrði „á annað hundrað blaðsíður, heil bók.“ „Það er einhver gróska í þessu,“ sagði Matthías Bjarna- Lárus mála um. Það þarf því að standa að 5% plús 5% verðbótaskerðingu (kaupráni á máli komma), ef verð- hjöðnunarmarkmið ríkisstjórnar- innar á að nást. Er það trompið í ermi hennar? Olafur G. Einarsson (S) spurði forsætisráðherra í framhaldi af umsögn hans um þingræður og birtingu þeirra í Mbl., hvort það hefði verið til að þjóna stjórnar- andstöðusjónarmiðum að ræða hans sjálfs, forsætisráðherrans, hefði birzt í heild í því blaði. Rangt væri hjá ráðherranum að talsmenn Sjálfstæðisflokks hefðu engar ábendingar sett fram, varð- andi efnahagsúrræði, og mætti hann gjarnan kanna ræðurnar nánar, ef hann vildi holl ráð þiggja á þeim vettvangi, ekki myndi af veita. Þá mætti ráðherrann og, að ósekju, lesa yfir stefnumörkun landsfundar Sjálfstæðisflokksins í atvinnu- og efnahagsmálum, ef hann tryði því sjálfur, er hann héldi fram, að ríkisstjórnin fylgdi fram stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokkum. Stjórnarandstaðan saman- stendur af tveimur stjórnmála- flokkum, sagði Ólafur, svo það þarf ekki að koma forsætisráð- herra á óvart, að þeir skili hvor sínu nefndaráliti í umsögn mála, en það nýtir ráðherrann sér til að tala um „klofna stjórnarand- stöðu". Forsætisráðherra segist ekki vilja ná niður verðbólgu með því að skapa atvinnuleysi. Veit hann ekki að allir helztu atvinnuvegir þjóðarbúsins eru reknir með tapi og skuldasöfnun, m.a. vegna skammsýni stjórnvalda, og ganga á svokölluðum kreppulánum til þess að stöðvast ekki. Ekki styrkir slík rekstrarstaða undiratvinnu- vega atvinnuöryggið, þvert á móti hefur stjórnarstefnan teflt því í algjöra tvísýnu, án þess að ná nokkrum frambúðarmarkmiðum í verðbólguhjöðnum, samanber framreiknaða vísitölu 1982. Ráð- herrann ætti að kynna sér þann lánsbeiðnalista hjá Byggðasjóði, sen^ þar liggnr fyrir frá fjölda at- Ólafur G. vinnufyrirtækja, sem jafnframt mætti kalla lista um neyðarköll fyrirtækja. Skýrsla sú, sem hér er nú rædd, er lögð fram í nafni ríkisstjórnar- innar allrar, og spannar mála- flokka, er heyra undir hin ýmsu fagráðuneyti. Það er því óvirðing við Alþingi að nær állir þessarra ráðherra eru fjarstaddir þessa umræðu, þó þingmenn vildu gjarnan beina til þeirra ýmsum fyrirspurnum um þá málaflokka, er þeir leiða í ríkisstjórninni. Ég tek undir þá almennu kröfu þing- manna, að einstakir ráðherrar gegni þingskyldum sínum betur hér eftir en hingað til, en fjarvist- ir þeirra eru allt of tíðar. Það þótti sérstakt fréttaefni í útvarpi í gær, að þingmenn Sjálfstæðisflokks sáu ekki ástáeðu til athugasemda við svar utanríkisráðherra við til- tekinni fyrirspurn, þ.e. tóku ekki til máls í þeirri umræðu. Það þyk- ir hinsvegar ekki fréttaefni á þeim bæ að hvorki ráðherrar Alþýðu- bandalags né Framsóknarflokks vóru viðstaddir umræðu um eigin skýrslu um efnahagsmál. Það er jú hægt að gæta „virðingar Al- þingis" með ýmsum hætti. Og hvað á forsætisráðherra við, er hann þvær hendur ríkisstjórn- arinnar í vísitölumálum. Er hann að reyna að koma syndum póli-. tískra stjórnvalda yfir á Kaup- lagsnefnd? Skýrt og skorinyrt: Megn óánægja kom fram ... STJORNARLIÐAR í sjávarút- vegsnefnd neðri deildar hafa lagt fram nefndarálit um stjórn- arfrumvarp um tímabundið olíu- gjald til fiskiskipa. Þar segir m.a.: „Nefndin hefur rætt frum- varpið á fundi sínum í dag og samþykkt að standa að af- greiðslu þess.“ Venjulegt orðalag er að „mæla með samþykkt" en ekki að „standa að afgreiðslu", ef umsögn er jákvæð. Næsta málsgrein hljóðaði svo: „Megn óánægja kom fram í nefndinni þar sem nefndar- mönnum sýnist þeir standa frammi fyrir orðnum hlut.“ Undir þetta rita Garðar Sig- urðsson (Abl.), Páll Pétursson, formaður þingflokks Fram- sóknarmanna og Halldór Ás- grímsson, varaformaður Framsóknarflokksins. Garðar Sigurðsson verður framsögumaður fyrir þessu nefndaráliti. t, . .. . r jl( ö2 .< 11 i vait Jiii 1 úS *Jel *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.