Morgunblaðið - 05.02.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
5
Helmingur hlutafjár Videoson til sölu:
Fjórir aðilar íhuga kaup
FJÓRIR adskildir aðilar íhuga nú kaup á helmingi hlutabréfa
myndbandafyrirtækisins Videoson, bædi einstaklingar og fyrir
tæki.
Njáll Harðarson, annar eigenda Videoson-fyrirtækisins, hefur
falið fasteignasölu hér í bæ að leita eftir kauptilboðum í sinn
hlut og fjölskyldu sinnar í fyrirtækinu, en þar er um helmings-
hlut að ræða og jafnvel nokkru meira.
Að sögn Njáls vill hann son, en að sögn Kára Fanndal
Talsverð nýmyndun íss
norður af landinu
selja sinn hlut í fyrirtækinu
vegna anna við eigið vélaleigu-
fyrirtæki. Á fundi í Félagi
kvikmyndahúsaeigenda sem
haldinn var sl. miðvikudag var
alfarið hafnað þeirri hugmynd
að kaupa þennan hlut í Video-
hjá Fasteignaþjónustunni,
sem fer með þessi mál fyrir
Njál Harðarson, hafði hann
nefnt þetta við Grétar Hjart-
arson formann, Félags kvik-
myndahúsaeigenda, þar eð
honum þótti eðlilegt að kvik-
myndahúsin hefðu áhuga á að
geta nýtt myndir sínar í
myndbandakerfi.
Kári sagði að auk þessara
fjögurra aðila, hefðu allmargir
spurst fyrir og virtist sér sem
áhuginn kæmi úr ólíklegustu
áttum. Taldi hann að annars
vegar væru aðilar sem hefðu
áhuga á myndbandatækni og
fjölmiðlun, en á hinn bóginn
margir sem teldu að starfsemi
á borð við Videoson gæti gefið
góðan arð.
HAFÍS milli íslands og Grænlands
hefur aukist nokkuð síðan um ára-
mót. Talsverð nýmyndun á sér stað
um þessar mundir bæði vestur og
norður af landinu. Fjarlægðin frá
Vestfjörðum og Kolbeinsey er um 60
sjómilur (rúmlega 100 km).
Landhelgisgæsla Islands kann-
aði jaðarinn út af Vestfjörðum og
vestanverðu Norðurlandi sl. laug-
ardag (30. janúar). Meginjaðarinn
lá um eftirtalda staði: 70 sjómílur
norðvestur af Barða, 60 sjómílur
norðvestur af Straumnesi, 82 sjó-
mílur norður af Horni og 60 sjó-
mílur norð-norðvestur af Kol-
beinsey.
Meginbrúnin er þétt og eru þar
8 til 9 hlutar hafs þaktir ís, en
meðfram henni er 5—20 sjómílna
breitt jaðarsvæði með krapi og
stökum jökum. Norðaustur frá
Horni voru í þessu jaðarsvæði eða
belti þéttar rastir og flákar.
Brotalínur á kortinu tákna jafn-
hitalínur við yfirborð sjávar (sjáv-
arhita). Er þar farið eftir veður-
tunglamyndum. Gera má ráð fyrir
ónákvæmni í ágiskuninni, en víst
þykir að sjór sé enn tiltölulega
kaldur fyrir norðan land.
Stjórnmálaskóli Sjálf-
stæðisflokksins 15.-27. febr.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðis-
flokksins verður starfræktur dagana
15.—27 febrúar nk. Skólinn verður
að þessu sinni kvöld- og helgarskóli,
sem hefst virka daga kl. 20.00 og
stendur yfir til kl. 23.00. Laugardaga
hefst skólinn kl. 10.00 og stendur
yfir til kl. 18.00. Sunnudaginn kl.
13.30—18.00. Skólahald fer fram í
Valhöll, Háaleitisbraut 1, þar sem
innritun nemenda er hafin, en skóla-
gjald er 300 krónur.
I frétt frá skólanefnd segir að
Sala stöðvuð
á Nina Paris
snyrtivörum
Morgunblaðinu barst í gær eftir
farandi fréttatilkynning frá Heil-
brigðiseftirliti ríkisins:
„Heilbrigðiseftirlit ríkisins hef-
ur látið stöðva sölu og fyrirskipað
innköllun á snyrtivörum frá Taiw-
an með vörumerkinu Nina Paris
þar sem mikið blýmagn hefur
fundist í þeim. Hér er um að ræða
plasthylki með ýmsum litum, svo
sem augnskuggum, augnlitum,
varalitum, kinnalitum og augn-
háralit.
Stofnunin varar við notkun
þessara snyrtivara, sem ekki mega
innihalda blý sbr. 6. gr. reglugerð-
ar nr. 129/1971 um notkun og
bann við notkun tiltekinna eitur-
efna og hættulegra efna. Getur
notkun þeirra haft í för með sér
sýkingarhættu."
lögð verði áhersla á það í skóla-
starfinu, að kynna almenn félags-
störf, ræðumennsku, uppbyggingu
launþega- og atvinnurekenda-
samtaka, stefnumörkun og stefnu-
framkvæmd Sjálfstæðisflokksins,
starfshætti og sögu ísl. stjórnmál-
aflokka og fundarsköp. Fjallað
verður um utanríkis- og öryggis-
mál, kjördæmamálið, sveitar-
stjórnarmál, ásamt ýmisum öðr-
um áhugaverðum þáttum sem lúta
að stjórnmálum.
Fararstjóranámskeið
Feröaskrifstofan Útsýn efnir til námskeiðs á næstu vikum fyrir tilvonandi
fararstjóra erlendis. Þátttökuskilyrði eru góö almenn menntun, góö ensku-
kunnátta og nokkur færni í annaöhvort spænsku eöa ítölsku. Kennsla fer
fram eitt kvöld í viku í 2—3 stundir í senn.
Kennslugreinar:
Saga Ítalíu og listasaga
Kennari: Pétur Björnsson.
Saga Spánar
Kennari: Örnólfur Árnason.
Hagnýt fræðsla um störf fararstjóra
Kennari: Ingólfur Guöbrandsson o.fl.
Þátttökugjald kr. 800.
Skrifleg lýsing á tilhögun námskeiðsins
ásamt eyðublööum fyrir umsækjend-
ur fást á skrifstofu Útsýnar og sé skilað fyrir 12. febrúar.
Feróaskrifstofan
UTSÝN
I |íj|r=o VANTAR ÞIG VINNU (nj Wjr\ VANTAR ÞIG FÓLK i 1 ÞL ALGLÝSIR UM ALLT 1 LAMl ÞKGAR Þl Al G- j | LYSIR I MORGl'NBLAÐIM |
—
II
>1
Góðar sölur f
Grimsby og Hull
TVÖ íslcnzk fiskiskip scldu í Eng-
landi í gærmorgun og fengu bæði
ágætis verð.
Gissur Hvíti frá Hornafirði
seldi 61,2 tonn í Hull fyrir 678.800
þúsund krónur og var meðalverð á
kílói kr. 11,09.
Ýmir frá Hafnarfirði seldi síðan
132,7 tonn í Grimsby fyrir
1344.300 þúsund krónur og var
meðalverð á kíló kr. 10,12.
BlLASYNING
LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 1 — 6.
Sýndar verða 1982 árgerðirnar af MAZDA 323, MAZDA
626 og sérstaklega kynnum við hinn nýja MAZDA 929,
sem kemur nú á markaðinn í nýju og gjörbreyttu útliti,
með fjölmörgum tæknilegum nýjungum.
KOMIÐ OG SKOÐIÐ ÞAÐ NÝJASTA FRÁ MAZDA.
BÍLABORG HF. Smiöshöfða 23.
íi-r^