Morgunblaðið - 05.02.1982, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
13
Gylfi Bjarnason, Hafnarfírdi:
Sé eigið húsnæði leigt út skal
þá telja leigutekjur fram sem
hreinar tekjur eða er leyfilegt að
reikna þar einhvern frádrátt?
Svar:
Frá leigutekjum vegna útleigu
íbúðarhúsnæðis má draga kostn-
að tengdan öflun þessara tekna
t.d. viðhald húsnæðis og fast-
eignagjöld. Þó má ekki draga frá
vexti af skuldum, afföll, gengis-
töp eða fyrningar eigna. Frá-
dráttur hvers árs má aldrei
nema hærri fjárhæð en sem
nemur þeim tekjum sem hann
leyfist til frádráttar.
Rósa Halldórsdóttir, Akranesi:
Lækkun útsvars vegna fjöl-
skyldu er kr. 761, en hvað bætist
við fyrir hvert barn?
Svar:
Persónuafsláttur útsvars:
Einstaklingur: kr. 762
Vegna barna, 1., 2. og 3.: kr. 153
Vegna 4 barna og fleiri: kr. 306
Kristinn Briem, Reyðarfírði:
a) Er 10% frádráttur veittur
af tekjuafgangi á rekstrarreikn-
ingi?
b) Hver er persónuafsláttur
barna til skatts og til útsvars?
c) Geta skattayfirvöld gert
ómerka upphæð þeginna spari-
merkja ef launþegi hefur ekki
getað lagt þau inn á póststöð
fyrir áramót?
d) Varðandi svar til J.H. sl.
sunnudag. Geta hjón beðið um
að þau verði skattlögð sem ein-
staklingar ef það kemur þeim
betur? Bæði fái þá persónuaf-
sláttinn, 11 þús. kr., og væri því
á þeim forsendum skynsamlegra
að rjúfa hjónabandið?
Svar:
a) Nei.
b) Enginn, sbr. 2. málsgrein
67. gr. laga nr. 75/1981 og 2. mgr.
25. gr. laga nr. 73/1980.
c) Frádráttur vegna skyldu-
sparnaðar byggir á því að um
sannanlegan sparnað hafi verið
að ræða, sem telst ekki staðfest
nema lagt hafi verið inn á
skyldusparnaðarreikning við-
komandi.
d) Frá stofnun hjúskapar til
slita skulu hjón sem samvistum
eru, telja fram og skattleggjast
samkvæmt þeim sérreglum er
gilda um hjúskaparaðila.
Tekið er á móti spurningum um
skattamálin í síma 10100 kl. 13 til
15 virka daga.
og gerðar eru í atvinnulífinu. Há
aðflutningsgjöld af tölvum og öðr-
um skrifstofuvélum letja hins veg-
ar til víðtæks hagræðingarátaks.
Niðurfelling þessara gjalda getur
því skilað miklum arði fyrir þjóð-
arbúið.
2.7. Skattur á banka og spari-
sjóði. Bankar greiða nú landsút-
svar og gjaldeyrisbankarnir
greiða verulegan skatt af gjald-
eyrisviðskiptum. Sá skattur er svo
hár, að hann stendur í vegi fyrir
því, að fleiri bankar óski eftir
heimild til gjaldeyrisviðskipta.
Auknir skattar á banka og
skattlagning sparisjóða munu
hækka vexti og auka þannig til-
kostnað atvinnuveganna. Þeir
skapa heldur ekkert réttlæti. Ef
verið er að leita að réttlæti, væri
nær að skattleggja þann opinbera
atvinnurekstur, sem nú nýtur
skattfríðinda, og er í samkeppni
við einkarekstur.
3. Lokaorð
Skammtímaaðgerðir í efna-
hagsmálum geta verið nauðsyn-
legar meðan verið er að skapa
svigrúm til varanlegra lausna.
Fátt bendir til að sú sé ætlunin
nú. Því harmar Verzlunarráð ís-
lands, að enn skuli verða bið á
markvissri framtíðarstefnu í
efnahagsmálum. A slíkri stefnu-
mörkun er nú brýn þörf.
Gunnar Örn opnar sýningu
„ÞETTA er 12 einkasýning mín,
en ég hef ekki sýnt hér í Reykja-
vík sl. 5 ár, síðast sýndi ég hér á
Kjarvalsstöðum 77,“ sagði Gunn-
ar Örn sem opnar sýningu á 63
myndum sínum í Listmunahúsinu
á laugardag. Myndirnar eru flest-
ar málaðar á árinu 1981, nokkrar
eru frá 1980 og tvær málaðar ’79.
Blm. spurði Gunnar hvort
einhverjar nýjungar væru hér á
ferðinni. „Já, það má segja það.
Ég hef að undanförnu málað
mikið af andlitsmyndum, og má
segja að andlitið sé komið sem
efniviður í myndsköpun mína í
stað konulíkamans áður. Þetta
eru þó fremur óvenjulegar and-
litsmyndir, ég leyfi mér að
vinna myndirnar á minn hátt.
Þessi myndsköpun snýst öll um
það að túlka sjálfan sig og til að
auka myndmálið nota ég bæði
ýmsa liti og form til viðbótar
andlitunum."
Sýningin opnar, sem fyrr
segir, nk. laugardag og verður
opin á þriðjudögum til föstu-
dags frá 10—18, lokað á mánu-
dögum og opið frá 14—22 laug-
ardaga og sunnudaga.
Þetta er sölusýning og verður
hún opin til febrúarloka.
Gunnar Örn við tvö verka sinna í Listmunahúsinu, en þau heita andlit.
Ljósm. OI.K.M.
BÝÐUR ÞÚ
VENJULECA TÉKKA EÐA
ÁBYRGÐAR
TÉKKA ^
FRA UTVEGSBANKANUM
m\
1 . 1
Sé Útvegsbanklnn þinn viðskiptabanki, eða opnir þú þar
reikning nú, getur þú sótt um að íá rétt
til útgáíu ábyrgðartékka.
Þá íylgir hverjum tékka sem þú geíur út, skilyrðislaus
innlausnarábyrgð írá
Útvegsbanka íslands að upphœð kr. 1.000-
Hve mikið íé þú átt inni á tékkareikningi þínum
skiptir þann engu máli sem tekur við tékka írá þér.
Bankinn ábyrgist innlausnina, s.s. áður segir.
Jaíníramt íœrð þú skírteini írá Útvegsbankanum
sem sannar það
að bankinn treystir þér fyrir útgáíu ábyrgðartékka.
Allir aígreiðslustaðir bankans veita
nánari upplýsingar um ábyrgðartékkana og notkun þeirra.
UTVEGSBANKI
ÍSLANDS
/