Morgunblaðið - 05.02.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
Bretar veðja
á Roy Jenkins
liondon, 4. febrúar. Al*.
VEÐMÁL hófusl { London í dag um
úrslit næstu þingkosninga þótt þær
fari ekki fram fyrr en að allt að
tveimur árum liðnum og veðjað er á
að Roy Jenkins, leiðtogi bandalags
sósíaldemókrata og frjálslyndra,
verði næsti forsætisráðherra.
Líkur Jenkins á því að verða
forsætisráðherra eru taldar 44%,
Margaret Thatchers forsætisráð-
herra 9,1%, Michael Foots 25% og
David Steels 16,7%. Því er jafnvel
spáð að frú Thatcher tapi kjör-
dæmi sínu, Finchley í Norður-
London.
Veðmangarinn Ron Pollard
sagði að erfiðara væri að spá um
úrslit næstu þingkosninga en
nokkurra annarra kosninga frá
stríðslokum, því svo margt færi
eftir aðgerðum stjórnarinnar á
næstu vikum og hvernig málin
þróuðust innan Verkamanna-
flokksins og nýja flokksins.
Jenkins situr ekki einu sinni á
þingi, en er spáð sigri í aukakosn-
ingu í Hillhead í Glasgow í næsta
mánuði. Pollard spáir því að Jenk-
ins verði leiðtogi nýja flokksins á
þingi. Hann telur líka að enginn
hinna þriggja flokka fái meiri-
hluta atkvæða, heldur um 30%
hver, og að hrossakaup sem fylgja
muni í kjölfarið leiði til þess að
Jenkins verði forsætisráðherra.
Möguleikar bandalagsins á sigri
í næstu kosningum eru rúmlega
80%, íhaldsmanna 66%, Verka-
mannaflokksins 44%, segir Poll-
ard. Fimm af hundraði telja að
utanríkisráðherrann, Carrington
lávarður, verði næsti forsætisráð-
herra.
Vissu flugmennirnir
um ísinguna á vélinni?
Flugslysið í Washington:
Washington, 4. febrúar. AIV
SAMTÖL milli flugmannanna á Air Florida-þotunni, sem hrapaði ofan í
Potomac-ána í V\ ashington 13. janúar sl., benda ákveðið til þess, að þeir
hafi vitað um ísinn og snjóinn á vængjum vélarinnar en reynt flugtak
þrátt fyrir það. I»etta kemur fram í The Washington Post í dag, sem
vitnar til ónefndra heimilda innan bandaríska loftferðaeftirlitsins.
Við rannsókn á slysinu hefur
komið í Ijós, að 43 mínútur liðu
frá því vélin var afísuð þar til
hún fór í loftið en það var of
mikill tími miðað við ríkjandi
aöstæður. Um það bil 30 sekúnd-
um eftir flugtakið heyrist að-
stoðarflugmaðurinn, Roger Al-
an, segja við flugstjórann: „Við
erum að hrapa, Larry.“ „Ég veit
það,“ svaraði þá Larry Wheaton,
flugstjórinn á vélinni.
The Washington Post segir, að
fyrstu rannsóknir á vélarhljóð-
inu, sem segulböndin í svarta
kassanum geyma, bendi til þess,
að hreyflarnir hafi aðeins skilað
80% eðlilegs afls þegar vélin fór
í loftið og að það hafi tekið vél-
ina 47 sekúndur að ná flug-
takshraða í stað 30 venjulega.
Einnig segir, að heyra megi í
tæki, sem hristist ef hætta er á
að vélin ofrísi, og hafi hristing-
urinn byrjað þegar vélin var
komin á 267 km hraða, sem er 38
km meiri hraði en eðlilegur
ofrishraði. Það styðji þá kenn-
ingu, að ís og snjór hafi dregið
úr lyftikraftinum og valdið ofrisi
á meiri hraða en að öllu jöfnu
hefði mátt búast við.
Herferð gegn íbúum
héraðs í Nicaragua
Managua, 4. febrúar. AP.
YFIRVÖLD í Nicaragua hafa boðað herferð gegn skilnaðarhreyfingu „gagn-
byltingarmanna" í austurhéraðinu Zelaya og segja að rúmlega 100 hafi verið
handteknir.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur sakað stjórn Sandinista um
að kúga Miskito-indíána í Zelaya,
sem er aðallega byggt enskumæl-
andi blökkumönnum. Ráðuneytið
sagði að stjórnin hefði lýst yfir
hernaðarástandi í héraðinu, sem
er um það bil helmingur yfirráða-
svæðis Nicaragua, sett hömlur á
ferðalög um svæðið, lagt undir sig
aðalútvarpsstöðina, bannað dreif-
ingu eina óháða blaðsins og rekið
starfsmenn trúarsamtaka úr hér-
aðinu.
Talsmaður landvarnaráðuneytis
Nicaragua, Roberto Sanchez höf-
uðsmaður, sagði að hinir hand-
teknu hefðu tekið þátt í samsæri
„gagnbyltingarmanna" um að-
skilnað Zelaya-héraðs, sem er auð-
ugt af málmum, og Nicaragua.
Sanchez segir að leiðtogi hreyf-
ingar skilnaðarsinna sé Fagoth
Muller höfðingi, Miskito-indíáni
af þýzkum ættum, sem áður var
leiðtogi Misurasata, samtaka
þriggja ættflokka indíána sem
byKRja Zelaya. Muller flúði úr
landi í maí og býr í Honduras.
Sanchez segir að skilnaðarhreyf-
ingin heiti „Hernaðaraðgerð rauð
jól“ og hún tók til starfa í nóvem-
ber. Hann sagði að samsærismenn
vildu ala á andúð í garð stjórnar-
innar meðal íbúa héraðsins og
koma af stað uppreisn. Þannig
segir hann að búið verði í haginn
fyrir íhlutun „erlends herliðs sem
mundi skilja aðskilnaðaráætlun-
ina“.
Erlendir blaðamenn, sem hafa
ferðazt um Zelaya, segja íbúana
íhaldssama mótmælendur og
kirkjurækið fólk, sem eigi erfitt
með að aðlaga sig byltingarstjórn
Nicaragua. Talsverður fjöldi hefur
flúið til Honduras.
Herlið sent?
í New York hermdi sjónvarps-
stöðin ABC að fulltrúar Ronald
Reagans forseta hefðu farið þess á
leit við Argentínustjórn að hún
sendi hermenn til Nicaragua til að
stöðva birgðaflutninga til E1
Salvador frá Kúbu um Nicaragua.
Ef allt gengi að óskum skyldu
hermennirnir gera gagnbyltingu.
Hermennirnir eigi ekki að klæðast
einkennisbúningum heldur kalla
sig suður-amerískar frelsishetjur
og berjast sem skæruliðar sam-
kvæmt fréttinni.
ítalskir kommúnistar
úthrópaðir í Kreml
Kremlverjar bókstaflega úthrópuðu ítalska kommúnistaflokkinn síð-
astliðinn sunnudag. Var honum gefið að sök að hafa afneitað kenningum
Marx og Leníns, ásamt öllu öðru því er tengir hann við alheimssamtök
kommúnista, og þar með sýnt beinan stuðning við heimsvaldastefnuna.
I yfirlýsingu frá sovéska
kommúnistaflokknum eru leið-
togar ítalskra kommúnista harð-
lega ávítaðir fyrir það, sem
nefnt er „afkáralegar" og „víta-
verðar" ákvarðanir síðan herlög
gengu í gildi í Póllandi 13. des-
ember í fyrra. Fjórir helstu leið-
togar ítalskra kommúnista voru
sérstaklega nafngreindir í yfir-
lýsingunni; Enrico Berlinguer,
aðalritari flokksins, Pietro
Ingrad, Girogio Napolitano og
Alfredo Reihlin. Búist er við
snörpum deilum innan kommún-
istahreyfingarinnar vegna and-
stöðu sovéskra við ítalska skoð-
anabræður sína.
Hin 2500 orða langa yfirlýsing
var keimlík að innihaldi þeim,
sem sendar voru Tító marskálki
í Júgóslavíu 1948 og Kínverjum
1960, er sló í brýnu á milli þar-
lendra og sovéskra kommúnista-
leiðtoga. Yfirlýsingin, sem birt-
ist í Prövdu sagði ákvarðanir
þessar vera áfall fyrir ítalska
kommúnista þar sem þær væru í
algerri mótsögn við stefnu sósí-
alista — baráttuna fyrir friði í
heiminum.
Yfirlýsingin á sunnudag virð-
ist hafa verið hápunkturinn á
langri hugmyndafræðilegri deilu
á milli Kremlverja og ítalskra
kommúnista, sem lagt hafa
áherslu á nýjar og nútímalegri
aðferðir við útbreiðslu kommún-
ismans. Þá er það alkunna að ít-
alskir kommúnistar hafa undan-
farin ár staðið einir sér á meðal
skoðanabræðra í afstöðu gagn-
vart vandamálum líðandi stund-
ar.
Afstaða Kremlverja hefur ver-
ið túlkuð á þann veg í Austur-
Evrópu að opnuð hafi verið
hyldjúp gjá, sem ekki muni
verða auðvelt að brúa. ítalirnir
hafa fordæmt setningu herlag-
anna í Póllandi og kveðið þau
bera hrakandi ástandi „kerfis-
ins“ vitni, það sé löngu úr sér
gengið.
(Byggt á Washington Post.)
Enrico Berlinguer, leiðtogi ítalskra kommúnista.
■ i > | Vj > i ( ; ípí il > te! ; i i
15
ÍSLANDS
Lestun í erlendum
höfnum
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Bakkafoss 16 febr.
Junior Lotte 26 febr.
Bakkafoss 10. marz
Junior Lotte 26. marz
NEWYORK
Ðakkafoss 18. febr
Ðakkafoss 12. marz
HALIFAX
Goöafoss 8. febr.
Selfoss 26. febr.
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Alafoss 8. febr.
Eyrarfoss 15. febr.
Alafoss 22. febr.
Eyrarfoss 1. marz
ANTWERPEN
Alafoss 9. febr
Eyrarfoss 16. febr.
Alafoss 23. febr.
Eyrarfoss 2 marz
FELIXSTOWE
Alafoss 10. febr.
Eyrarfoss 17. febr.
Alafoss 24. febr.
Eyrarfoss 3. marz
HAMBORG
Alafoss 11. febr.
Eyrarfoss 18. febr
Alafoss 25. febr
Eyrarfoss 4. marz
WESTON POINT
Vessel 9. febr.
NOROURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 15. febr.
Dettifoss 1. marz
Dettifoss 15. marz
KRISTIANSAND
Dettifoss 16 febr
Dettifoss 2. marz
Dettifoss MOSS 16. marz
Mánafoss 9. febr.
Dettifoss 16. febr.
Manafoss 23. febr.
Dettifoss 2. marz
GAUTABORG
Manafoss 10. febr.
Dettifoss 17. febr.
Mánafoss 24 febr
Dettifoss 3. marz
KAUPMANNAHOFN
Mánafoss 11. febr.
Dettifoss 18. febr.
Mánafoss 25 febr.
Dettifoss 3. marz
HELSINGBORG
Mánafoss 12. febr.
Dettifoss 19. febr.
Mánafoss 26. febr.
Dettifoss 5. marz
HELSINKI
Irafoss 10 febr.
Mulafoss 24. febr.
Irafoss 4. marz
Mulafoss 18. mars.
RIGA
Mulafoss 26. febr.
Irafoss 6 marz
Mulafoss 20. marz
GDYNIA
Irafoss 13. febr.
Mulafoss 1. marz
Irafoss 8. marz
Mulafoss 22. marz
THORSHAVN
Mánafoss 4. marz.
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá iSAFIRDI alla þriójudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100
(ruiiu5 j I !;| (•; i;i(t
I i I > >;'' I r i > (í • (
i’gsljií>■ t„!(I :J4f-iimt'.M