Morgunblaðið - 05.02.1982, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að-
alsiræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunnl 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 100 kr. á mánuðl innanlands. I lausasölu 6 kr. eintakið.
„Almættidu og
Alusuisse
Forystugrein Þjóðviljans í gær ber yfirskriftina: Syndakvittun fá
þeir ekki. „Þeir“ í þessu tilviki eru „hinir fjölþjóðlegu svikahrapp-
ar“ eins og Þjóðviljinn kallar stjórnendur Alusuisse, eiganda álversins í
Straumsvík, sá, sem vald hefur til að veita „syndakvittunina", er auðvit-
að enginn annar en Hjörleifur Guttormsson. Þjóðviljinn segir, að stjórn-
endur Alusuisse hafi verið staðnir að „einhverjum hrikalegustu fjár-
svikum, sem okkar saga kann frá að greina".
Eins og sjá má af orðavali Þjóðviljans, málgagns „almættisins", hafa
kommúnistar þegar dæmt stjórnendur Alusuisse. Að mati Þjóðviljans
stendur valið nú á milli þess eins að veita „hinum fjölþjóðlegu svika-
hröppum" aflausn eða reka þá út í hin ystu myrkur. Þjóðviljinn telur
jafnframt einsýnt, að það beri að velja síðari kostinn. Um leið og það er
gert, sýnist blaðið að vísu vilja halda áfram viðskiptum við Alusuisse!
Þeir, sem eru að vísu ekki eins kunnugir innviðum ríkisstjórnarinnar
og ritstjórar Þjóðviljans, hljóta að efast um forsendurnar fyrir stóryrt-
um ásökunum blaðsins í garð stjórnenda Alusuisse og réttmæti þeirrar
skoðunar Þjóðviljans, að Hjörleifur Guttormsson sé „almáttugur" í
þessu máli. Við blasir nefnilega, að bæði utan og innan rikisstjórnar
hafa aðrir tekið ráðin af Hjörleifi Guttormssyni gagnvart Alusuisse.
Enginn treystir lengur forræði iðnaðarráðherrans í þessu máli frekar en
öðrum. Það eru ekki aðeins stjórnmálaandstæðingar iðnaðarráðherra,
sem vantreysta honum, sömu sögu er að segja um valdamikla menn í
hans eigin flokki. Er ekki örgrannt um, að sjálfur þingflokksformaður
Alþýðubandalagsins sé farinn að gjóta hýru auga til iðnaðarráðherra-
stólsins á Alþingi.
Gagnvart Alusuisse snýst vandinn ekki um það, hvort veita beri
„syndakvittun" eða ekki, heldur hvernig unnt sé að komast til botns í því
máli, sem kommúnistar og Þjóðviljinn telja nú þegar til lykta leitt. Hitt
er svo óleyst gáta, hvort þingflokkur Alþýðubandalagsins og aðrir
stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar séu til þess búnir að veita „almætt-
inu“ í iðnaðarráðuneytinu syndakvittun.
Yfirlýsing Alberts
Það hefur verið næsta einkennileg árátta hjá andstæðingum Sjálf-
stæðisflokksins, bæði í ræðu og riti, að þeir hafa látið eins og þeir
gætu seilst inn fyrir vébönd flokksins, mælt fyrir munn stofnana hans
eða einstakra forvígismanna. Tíminn, málgagn Framsóknarflokksins,
hefur verið sérstaklega iðinn við þetta undanfarna mánuði og þá einkum
beint spjótum sínum að borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna. Hér
hefur áður verið vikið að furðulegum árásum blaðsins á Davíð Oddsson,
formann borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna, árásum, sem snúast
um hrein aukaatriði.
Undanfarnar vikur hefur Tíminn svo tekið til við að rægja Albert
Guðmundsson, borgarfulltrúa og Alþingismann, og meðal annars sagt
frá því, að Albert hafi orðið að sæta úrslitakostum og nánast verið
þvingaður til að taka sæti á borgarstjórnarlista Sjálfstæðisflokksins.
Albert Guðmundsson svarar þessum Tímarógi hér í blaðinu í gær og
segist að sjálfsögðu vera á Iista Sjálfstæðisflokksins af fúsum og frjáls-
um vilja. Það er rétt til getið hjá Albert Guðmundssyni í yfirlýsingu
hans í gær, að sjálfstæðisfólk sér í gegnum það sjónarspil, sem andstæð-
ingar þess setja á svið til að skapa ólgu innan Sjálfstæðisflokksins.
Albert Guðmundsson sagði, að nú væri, í fyrsta sinn, hafinn undir-
búningur að sóknarsigri sjálfstæðismanna í Reykjavík — tími varnar-
sigra væri um garð genginn. „Til að sigur náist, verðum við, sem styðj-
um Sjálfstæðisflokkinn og berum hag Reykjavíkurborgar fyrir brjósti,
að standa saman í þeirri baráttu," sagði Albert Guðmundsson.
Umhyggja fyrir E1 Salvador?
r
Aþriðjudag urðu umræður um málefni El Salvador á Alþingi. Frum-
kvæði að þeim hafði Kjartan Jóhannsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, en jafnaðarmenn um heim allan hafa tekið ákveðna afstöðu til El
Salvador og styðja einn aðila að borgarastyrjöldinni þar. Beindi Kjartan
fyrirspurn til Olafs Jóhannessonar, utanríkisráðherra, um afstöðu ríkis-
stjórnarinnar til herforingjastjórnarinnar í landinu. Efnislegt svar
ráðherrans kom síður en svo á óvart, undir fordæmingu á ógnarstjórn-
um hvar sem er taka allir Islendingar. Þá tók til máls Ólafur R. Gríms-
son fyrir hönd Alþýðubandalagsins og hélt á loft hefbundnum Bandar-
íkjarógi þess flokks. Enginn þingmaður sjálfstæðismanna kvaddi sér
hljóðs og liggur auðvitað beinast við að túlka þögn sjálfstæðismanna
sem stuðning við svar utanríkisráðherra. Annað er þó uppi á teningnum.
í fréttatíma hljóðvarpsins var reynt að gera þessa þögn dularfulla og
sjálft Alþýðublaðið ritar heilan leiðara um hana og hvorki Tíminn né
Þjóðviljinn láta sitt eftir liggja í dylgjum. Þegar málum er þannig
komið, að þegjandi samþykki eins stjórnmálaflokks við afstöðu utan-
ríkisráðherra þjóðarinnar er orðið að aðalatriðinu í umræðum um E1
Salvador má spyrja: Hvar er umhyggjan fyrir E1 Salvador?
Húsið Hólmur virðist hér standa upp úr miðjum vatnselginum. Að sögn húsráðenda var þar rafmagnslaust um
tíma í gær, en engar skemmdir af völdum vatnsins. (Ljmm. Mbl. KAX tók allar myndirnar.)
Á leið í Gvendarbrunna, en vegurinn er hvergi sjáanlegur hvorugu megin við brúna.
Þetta hús
„Mesti vatnsel^
síðan í flóðunui
segir yfirverkfræðingur Vatnsveitunnar á Heií
Tveir slíkir fossar mynduðust rétt ofan við. Lækjarbotna um 50 metra frá veginum. Á þessum slóðum tínir fólk jafnan ber á hi