Morgunblaðið - 05.02.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
17
Imerkursvæðinu
„I»ETTA er mesti vatnselgur síð-
an í flóðinu ’68“ sagði I»orvaldur
Steinar Jónsson, yfirverkfræð-
ingur Vatnsveitunnar á Heið-
merkursvæðinu, í samtali við
Mbl. í gær. Morgunblaðsmenn
voru á ferðinni upp við Lækjar-
botna og var þar allt fljótandi í
vatni, vegir horfnir víðast hvar,
og virtust stórfljót, fossar og
stöðuvötn hafa myndast þar sem
áður voru í mesta lagi litlar lækj-
arsprænur. „l»að er erfítt að gera
sér grein fyrir skemmdum að svo
stöddu, en tvær trébrýr eru illa
farnar, ef þær fara þá ekki alveg
í þessum umbrotum."
Að sögn Páls Bergþórssonar,
á Veðurstofunni, hefur ýmis-
legt hjálpast að við myndun
þessa vatnselgs, úrkoma var
um 20 mm á sólarhring í
Reykjavík og hiti um 8 stig.
„Hlákan hefur þó greinilega
haft sitt að segja að þessu sinni
þar sem úrkoma hefur oft
mælst mun meiri eða allt að 60
mm.“
Ef þessi veðrátta heldur
áfram má gera ráð fyrir að Iít-
ið verði um snjó á skíðastöðum
sunnanlands um helgina, en
nægur snjór er þó enn fyrir
norðan að sögn þeirra á Skíða-
hótelinu í Hlíðarfjalli, þrátt
fyrir rigningu að undanförnu.
lustin
Rétt austan við Gunnarshólma var þessi sumarbústaður umflotinn vatni og ýmis leiktæki komin í kaf.
Bærinn Brú virðist næstum í kafi, rétt fyrir neðan Fáksheimilið.