Morgunblaðið - 05.02.1982, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1982
31
• Kristján Ágústsson var stigahæstur í liði Vals.
Valsmenn yfir
100 stig gegn ÍS
VALSMKNN sigruðu ÍS örugglega
101—89 í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik í gærkvöldi, staðan í hálf-
leik var 54—45 fyrir Val. I»etta var
fjörugur leikur á köflum og hittni
leikmanna með betra móti, úrslit
leiksins hins vegar eins og búast
mátti við.
Valsmenn höfðu forystu allan
tímann í gærkvöldi, þetta 6—16
STAÐAN
Staðan í úrvalsdeildinni er nú
þessi:
Njarðvík 14 II 3 1201:1097 22
Fram 14 • 5 1171:1079 18
Valur 15 9 6 1235:1189 18
KR 14 8 f. 1086:1152 16
ÍR 14 5 9 1089:1150 N
Is 15 1 14 1208:1363 2
ÍSiValur
89:101
Stig. Var sigur liðsins í raun aldrei
í hættu. John Ramsey, Ríkharður,
Torfi og Kristján báru af hjá Val,
Jón var og þokkalegur. Hjá ÍS var
það Pat Bock sem sýndi bestu
taktana, Gíslr var einnig sleipur.
Stig ÍS: Pat Bock 29, Gísli Gísla-
son 24, Ingi Stefánsson 12, Guð-
mundur Jóhannsson 9, Bjarni
Gunnar Sveinsson 8, Árni Guð-
mundsson 6 og Þórður Óskarsson
3 stig.
Stig Vals: Kristján Ágústsson
26, John Ramsey 25, Torfi Magn-
ússon 20, Ríkharður Hrafnkelsson
18 og Jón Steingrímsson 10 stig.
— RB-
Einkunnagjöfín
LIÐ ÍS:
Árni Guðmundsson 5
Ingi Stefánsson 6
Bjarni Gunnar Sveinsson 5
Gísli Gíslason 7
Þórður Óskarsson 4
Guðmundur Jóhannsson 5
LIÐ VALS:
Torfi Magnússon 7
Kíkharður Hrafnkelsson 6
Kristján Ágústsson 7
Jón Steingrímsson 6
Valdemar Guðlaugsson 4
Gylfi Þorkelsson 4
Tekst ÍR að sigra
Njarðvík aftur?
Bikarkeppni SKÍ
BIKARKEPPNI SKÍ verður haldin í
Bláfjöllum um helgina og hefst hún
á laugardaginn klukkan 14.00. Verð-
ur þá keppt í skíðagöngu. Á sunnu-
daginn hefst keppnin á sama tíma og
verður þá keppt í skíðastökki, en
mörg ár eru síðan að keppt hefur
verið í þeirri grein hér sunnanlands.
Flestir bestu göngu- og stökkmenn
landsins verða meðal keppenda á
mótinu.
Einn leikur fer fram í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í kvöld, IJMFN
og ÍR mætast í Njarðvík og hefst
leikurinn klukkan 20.00. Njarðvík er
forystusauðurinn í deidinni, en
Fram gæti náð liðinu að stigum ef
UMFN tekur upp á því að tapa fleiri
stigum en þeim átta sem þegar eru
farin.
ÍR hefur þegar sigrað Njarvík
einu sinni og gæti gert það aftur,
sérstaklega nú, er falldraugurinn er
á bak og burt og ÍR hefur unnið tvo
leiki í röð.
ÍR-ingar í 19. sæti
í Evrópuhlaupinu
ÍR-ingar urðu í 19. sæti í Evrópu-
keppni félagsliða í víðavangshlaup-
um, sem háð var í ('lusone í nyrstu
héruðum Ítalíu um helgina. Til
keppninnar mættu lið frá flestöllum
ríkjum VesturEvrópu og eitt austan-
tjaldslið, frá Júgóslavíu, og voru
margir heimsfrægir hlauparar meðal
keppenda.
Sigurvegari í hlaupinu var
Portúgalinn Carlos Lopes, fyrrum
heimsmeistari í víðavangshlaup-
um og silfurverðlaunamaður í 10
km hlaupi á Ólympíuleikunum í
Montreal. Félag hans sigraði í
sveitakeppninni. I öðru og þriðja
sæti í hlaupinu urðu Spánverjar,
en hinn frægi hlaupari, Belgíu-
maðurinn Emil Puttemans, sem
orðið hefur heimsmeistari í víða-
vangshlaupum á sínum langa og
litríka ferli, margfaldur Evrópu-
meistari, Ólympíuverðlaunahafi
og heimsmethafi, varð í 19. sæti.
Lopes tók strax forystu og leit
aldrei um öxl, en hlaupararnir
mynduðu eina samfellda halarófu
þegar á leið hlaupið og voru ÍR-
ingar alltaf í harðri baráttu við
einhverja hlaupara um sæti. Um
eitthundrað hlauparar lögðu upp
og heltist aðeins einn úr, enda
missti hann af sér skó og týndu
honum með öllu í förinni.
Gunnar Páll Jóakimsson varð í
79. sæti, Ágúst Ásgeirsson í 83.,
Sigfús Jónsson í 85. sæti og Stein-
ar Friðgeirsson í 89. sæti. Skutu
þeir aftur fyrir sig hlaupurum frá
Hollandi, Sviss, N-írlandi, Wales,
Danmörku og Luxemborg. Fyrsti
Norðurlandabúinn í mark var Svíi
sem var 30., næstur kom Norð-
maður í 38. sæti, þá annar Norð-
maður í 42. sæti og fyrsti danski
hlauparinn varð í 44. sæti.
Hlaupnir voru fjórir hringir,
samtals um 9,6 kílómetrar, og var
brautin eitt forarsvað, eða eins og
jafnan er við að búast í evrópskum
víðavangshlaupum. Þúsundir
manna fylgdust með keppninni og
voru ÍR-ingar ört hvattir áfram af
áhorfendum, sem jafnframt hylltu
þá kröftuglega við kynningar-
athöfn í upphafi hlaupsins.
Herða á eftirliti með
lyffjanotkun íþróttamanna
„Því er ekki að neita, að sögur
hafa verið uppi um að íslenskir
íþróttamenn hafi notað örvandi lyf
án þess að upp hafi komist. Það hafa
þá verið einstaklingar sem ekki hafa
vitað hvað þeir voru að gera,“ sagði
Páll Eiríksson læknir í gær, en hann
hefur tekið sæti í nýskipaðri nefnd
sem á að sjá um að framfylgja ný-
legri reglugerð varðandi lyfjapróf
hér á landi. Með honum í nefndinni
eru Alfreð Þorsteinsson, sem er
Landsliðið í
borðtennis i
Evrópukeppni
LANDSLIÐIÐ í borðtennis tekur
nú í fjórða sinn þátt í Evrópu-
keppni landsliða. Að þessu sinni
fer keppnin fram á Jersey 5.-7.
febrúar. Þær þjóðir aðrar sem að
þessu sinni keppa eru: Guernsey,
Portúgal, Tyrkland og Jersey.
Liðið sem keppir er þannig skip-
að: Tómas Guðjónsson, KR, Gunn-
ar Þ. Finnbjörnsson, Erninum,
Stefán Konráðsson, Víkingi, Ásta
Urbancic Erninum.
Þjálfari og fararstjóri er
Hjálmar Aðalsteinsson. Tómas
Sölvason var valinn til fararinnar
en hann meiddist nokkrum dögum
fyrir keppnina og var Stefán val-
inn í hans stað.
formaður hennar, og Jóhannes Sæ-
mundsson, fræðslufulltrúi ÍSÍ.
Samkvæmt reglugerðinni er
hægt að krefjast lyfjaeftirlits í
samvinnu við viðkomandi sérsam-
bönd á öllum íþróttamótum og al-
þjóðamótum, sem haldin eru hér á
landi, og á íþróttaæfingum.
Framkvæmdanefnd þessi hefur
farið hægt í sakirnar, en á næstu
vikum verður látið til skarar
skríða og íþróttamenn geta vænst
þess að fá rannsóknarmenn inn á
æfingar til sín. Þeir íþróttamenn
sem veljast í prófanir þessar eru
skyldugir til þess að láta skoða sig
í samræmi við gildandi reglur um
þessi mál. Sýni þau, sem tekin
verða, verða síðan send til Sví-
þjóðar til úrvinnslu.
Að lokum má geta þess, að oft
og mörgum sinnum hafa íslenskir
íþróttamenn verið prófaðir er-
lendis og aldrei orðið uppvísir að
Mikill stórleikur er á dagskrá í 2.
deild íslandsmótsins í handknatt-
leik í kvöld, Stjarnan og Haukar
mætast í Ásgarði og hefst leikurinn
klukkan 20.00.
Hér er mikið í húfi, Stjarnan,
sem hafði lengst af forystu í deild-
inni tapaði henni í siðustu um-
ferðinni er ÍR lagði liðið að velli í
Ásgarði. Fátt virðist geta stöðvað
ÍR, en Stjarnan hefur tapað 7 stig-
notkun umræddra lyfja. Viðurlög-
in eru hörð, lengra eða skemmra
keppnisbann til handa viðkomandi
íþróttamanni svo og þeirra sem
kunna að hafa hvatt hann eða að-
stoðað á annan hátt.
— gg-
Erlendir fim-
leikagestir
Allt bendir til þess, að 2—4 Lux-
emborgarar verði meðal keppenda á
íslandsmeistaramótinu í fimleikum
sem fram fer í mars næst komandi.
Luxemborgarar hafa tvívegis boðið
íslenskum keppendum á meistara-
mót sín og Fimleikasamband ís-
lands hefur nú hug á að endurgjalda
greiðann. Luxemborgararnir munu
keppa sem gestir á mótinu.
um og hefur ekki ráð á að tapa
mörgum til viðbótar, því að
minnsta kosti tvö lið eiga mögu-
leika á því að skjóta liðinu aftur
fyrir sig. Annað þeirra er lið
Hauka, sem hefur þó verið afar
ósannfærandi í síðustu leikjum
sínum. Þeim mun meiri ástæða til
að standa sig gegn Stjörnunni í
kvöld. Það má því fastlega gera
ráð fyrir miklum hörkuleik.
2. deildin í handknattleik:
Úrslitaleikur (?)
í Asgarði
Elnkunnagjofln
LIÐ VÍKINGS:
Kristján Sigmundsson 7
Ellert Vigfússon 7
Steinar Birgisson 8
Páll Björgvinsson 7
Hilmar Sigurgíslason 7
Þorbergur Aðalsteinsson 7
Sigurður Gunnarsson 7
Olafur Jónsson 7
Óskar Þorsteinsson 6
Guðmundur Guðmundsson 8
Kinar Magnússon 6
Árni Indriðason 7
LIÐ FRAM:
Sigurður Þórarinsson 5
Hermann Björnsson 5
Hinrjk Olafsson 5
Jón Á. Rúnarsson 5
Dagur Jónasson 4
Egill Jóhannesson 6
Hannes Leifsson 4
Björn Eiríksson 3
Gauti Grétarsson 4
Kambahlaup
á sunnudag
Tíunda Kambaboðhlaup ÍR og
HSK fer fram næstkomandi sunnu-
dag og hefst við Kambabrún klukk-
an 10 fyrir hádegi. Samkvæmt upp-
lýsingum Veðurstofunnar er gert ráð
fyrir suðaustanátt þennan dag og
eiga hlaupararnir því von á meðvindi
alla leiðina. Væntanlegar þátttöku-
sveitir eru beðnar um að mæta tím-
anlega austur undir Kambabrún, en
hlaupinu lýkur við ÍK-húsið í Tún-
götu. Keppt er í fjögurra manna
sveitunt og hleypur hver hlaupari 10
kflómetra.