Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
55
Fara fram á
að E1 Salva-
dor loki landa-
mærum sfnum
San Salvador, 12. mars. AP.
TÍU MENN úr hópi skæru-
liða vinstri manna í El Salva-
dor létu Ifið er til átaka kom
á milli þeirra og stjórnar
hermanna í smábænum Tac-
achico. í árás skæruliðanna á
hermennina lést einn með-
limur hjálparsveitanna. Þær
eru skipaðar almennum
borgurum.
Annars staðar í nágrenni höfuð-
borgarinnar fréttist af aðgerðum
skæruliða. Brenndu þeir m.a.
fimm hús og tvær bensínstöðvar.
Sveit 1200 hermanna kembdi San
Vicente-héraðið í gær í leit að
skæruliðum. Er þetta í fimmta
sinn, sem slík leit er gerð, en hér-
aðið hefur verið ein helsta bæki-
stöð skæruliða í landinu.
Stjórn Costa Rica hefur farið
þess á leit við yfirvöld í E1 Salva-
dor að þau tryggi öryggi manna,
sem vinna við vöruflutninga í
Mið-Ameríku, en loka landamær-
um sínum ella. í yfirlýsingu, sem
barst frá varaforseta sambands
mið-amerískra vöruflutninga-
manna, er tekið í sama streng.
Talið er að um 1200 flutningabif-
reiðir hafi verið eyðilagðár eða
þeim stolið undanfarin 3 ár.
Tryggingar eru óþekkt fyrirbrigði
í E1 Salvador.
Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna samþykkti í dag með 25
atkvæðum gegn 5 að leggja til að
kosningum í E1 Salvador verði
frestað. Þá var samþykkt með yf-
irgnæfandi meirihluta að fara
fram á ítarlega rannsókn á
mannréttindabrotum í Guate-
mala. A meðal þeirra 5, sem
greiddu atkvæði gegn því að kosn-
ingum verði frestað í E1 Salvador,
voru Bandaríkjamenn.
A fundi Evrópuráðsins í dag
voru utanríkisráðherrar Evrópu-
landa eindregið hvattir til að
vinna með Bandaríkjamönnum að
lausn vandamálanna í E1 Salvador
og samþykkja málamiðlunartil-
lögu Mexíkómanna.
ad kaupa nýjan Skoda
Nonni litli þarf ekki einu sinni að bijóta baukinn sinn og lána þér, því verðið er aðeins
frá03*000 kr.
og greiðsluskilmálamir eins góðir og hugsast getur. Enda selst hann grimmt þessa
dagana nýi Skódinn og því betra að tryggja sér bíl strax.
PASKAFERÐ 8. aprfl - Verð frá kr. 7.150,-
URVAL
VID AUSTURVOLL SÍMI 26900
Allir bestu gististaðirnir: Royal Magaluf — Royal Torrenona — Banatica — Hotel Pionero.
Beint leiguflug með Flugleiöaþotu. Góðar og skemmtilegar skoðunarferðir.
— Úrvals-ferð — Úrvals-verð — Úrvals-kjör —
Ferðaáætlun fyrirliggjandi. Upppantað í ágústferðir. Úrvals-ferðir fyllast óðum.
Ferðakynning/Skemmtikvöld: Broadway sunnud. 14. mars. Hnífsdal: Þriðjud. 16. mars. Vestmannaeyjum:
Miðvikudag 17. mars. Hollywood: Fimmtud. 18. mars.