Morgunblaðið - 14.03.1982, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. MARZ 1982
85
n ^
VELVAKANOI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ÉtffHtéa MM
í Velvakanda
fyrir 30 árum
Ekki alltaf feitan
gölt að flá
Þegar vorar er eðlilegt, að
menn fari að bollaleggja
um tekjurnar, sem megi hafa af
erlendum ferðamönnum. Því er
þá eðlilega á lofti haldið jafn-
framt, hvað við eigum erfitt
með að taka á móti ferðamönn-
unum vegna gistihúsaskortsins
og annarrar vöntunar undir-
búnings. — Eitthvað ætti þó að
rætast úr, ef stúdentagörðunum
verður breytt í sumargistihús
fyrir útlendinga.
En það er svo sem ekki allt
fengið með að fá erlendu gest-
ina inn í landið, því að þar er
sannarlega ekki feitan gölt að
flá sums staðar.
Veida engan lax í sumar
Norðmönnum hefir tekizt
að gera land sitt eftir-
sóknarvert fyrir ferðamennina
og hafa af því drjúgar tekjur. í
fyrra skruppu 30 þúsundir
Breta til Noregs, og horfur eru
ekki á, að sú tala lækki á sumri
komanda.
. með veiðistöngiua uin öxl
En Bretarnir hafa ekki mik-
inn eyðslueyri, ein 25 pund á
móti 250 pundum áður. Þessa
gætir svo m.a. í þvi, að gestirnir
standa skemur við, velja ódýr-
ari gistihús, eða verja miklu
minna fé í minjagripi og annan
varning o.s. frv. En líklega fell-
ur Norðmönnum þyngst að
Bretarnir geta ekki tekið lax-
árnar þeirra á leigu í sumar.
Sem sagt: Þó að ferðamenn-
irnir séu eftirsóknarverðir, þá
getur verið mismikill slægur í
þeim.
Hvers vegna ekki
hjúskaparskóla?
Margir hafa orðið til að
fetta fingur út í, að hér
á landi skuli eitt hjónaband
vera leyst upp með hjúskapar-
slitum á móti hverjum tíu, sem
stofnað er til. Og svona rétt eins
og til að undirstrika þetta þá er
fjórða hvert barn óskírgetið.
Það er hvort tveggja, að menn
eru tiltölulega tregir til að
ganga i heilagt hjónaband og
eins óðfúsir að komast úr því
eftir þessum tölum að dæma.
En hvers vegna er ekki settur
hér á stofn hjúskaparskóli, til
að veita nýgiftum nauðsynlega
fræðslu svo og þeim, sem eru á
leið í hjúskapinn? í Danmörku
hafa ýmsir ágætismenn gengizt
fyrir þess konar skólum á veg-
um KFUM. Þar er fjallað um
hússtjórnarmál, kynferðisleg og
efnahagsleg vandamál og allt
þar á milli.
Frá yfirdýralækni í Reykjavfk:
Lögum samkvæmt skal
lóga dýrum, sem flutt
eru ólöglega til landsins
í dálkum „Velvakanda" 11. þ.m.
beinir E.K. þeirri fyrirspurn til yf-
irdýralæknis, hvort smithætta
stafi af skjaldböku, sem hann á og
var smyglað til landsins fyrir all-
löngu síðan.
Ekki er hægt að svara spurn-
ingu E.K. nema að hafa kynnt sér
mál hans sérstaklega.
Hins vegar vil ég benda á að
mörg ár eru nú síðan sýnt var
fram á í grannlöndum okkar að
skjaldbökur gætu verið hættulegir
smitberar langtímum saman og þá
einkum að því er varðar salmon-
ella-sýkla og smitberar af þessu
tagi eru stundum nokkuð algengir.
Hér á landi mun dr. Guðni Al-
freðsson fyrstur manna hafa
ræktað Salmonella paratyfi B frá
skjaldböku fyrir 2—3 árum.
Lögum samkvæmt skal lóga
dýrum sem flutt eru ólöglega til
landsins og gildir það jafnt um
skjaldbökur sem önr.ur dýr, t.d.
ketti, hunda og fugla. Því ætti
E.K. að farga skjaldböku sinni
sem fyrst, og það ættu aðrir þeir,
sem eiga smygluð gæludýr líka að
gera, því af þeim getur alltaf staf-
að smithætta bæði fyrir önnur dýr
en líka fyrir börn, sem í leik hafa
oft náin skipti við þessi dýr, en
gleyma þá oft að gæta nægilegs
þrifnaðar.
Páll A. Pálsson
Hraðfermiskip
Mig langar að leggja smávegis orð
i belg í dálkum þínum Velvakandi.
Er það út af bréfi „Jóns á Klappar-
stígnum“ um orðskrípið fjölhæfni-
skip. Er ég sammála Jóni þessum í
einu og öllu. En mig langar að koma
með tillógu um samheiti þessarar
tegundar flutningaskipa, íslenzkt
samheiti, sem að minni hyggju nær
að lýsa þessari skipagerð í einu og
sama orðinu: Hraðfermiskip. Hvað
segir þú um þetta heiti, Velvakandi
góður?
Kunningi „Jóns á Klapparstígnum".
83? SlGGA V/ÖGA í A/LVERAW
AV V1V5R50 ViiVl/«0(J í)VDA/A
Í/N5 0G
vo m ans og moGov y ( v
uMzövmwuúim Pí-U
1
Fyrir
þvottahús
fjölbýlishúsa
VANDLÁTIR VEUA
WESTING HOUSE
Westinghouse þvottavélin og þurrkar-
inn eru byggð til að slanda hlið við
hlið, undir borðplötu eða hvort o/an á
öðru við enda borðs t eldhúsi eða
þvottahúsi, þar sem golt skipulag nýtir
rýmið til hins ýtrasta.
Trauslb vggðar vélar með 30 ára
reynstu hér á landi.
Þiö getiö veriö
örugg sé vélin Westinghouse
KOMIÐ — HRINGIÐ — SKRIFIÐ!
við veitum allar nánari upplýsingar.
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Fteykiavik Simi 38900
HUSGAGNA-
ÝNING
ÍDAG
kl.2-5
u k V A \ r • 1
Smiðjuvegi 6 - Simi 44544
'HWUttXJ A0 Vl)
[m wq w mi
\fclNL\MS M mWl
(M WlTAl
EINA Sítf
'íMtf “bMNSINN A ty
mA'XOLWSfc
wvoaotf a
WOtGNAWA