Morgunblaðið - 17.03.1982, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
Bæjarstjórn Keflavíkur um Helguvíkurmálið:
Undirbúningur í sam-
ráði við heimamenn
segir í bókun bæjarfulltrúa Framsóknar-
flokks, Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks
„Gagnstætt því sem áður hefur tíðkast, hefur undirbúningur þessa máls
verið unninn í samráði við heimamenn og það tryggt að þeir geti fylgst með
hönnun og framkvæmdum og komið þar sínum skoðunum að,“ segir í bókun
bæjarfulltrúa Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks á fundi í
bæjarstjórn Keflavíkur 9. mars þegar fjallað var um samning við varnar
máladeild um leigu á landi undir staðsetningu olíubirgðastöðvar Varnarliðs-
ins.
Bæjarstjórn Keflavíkur sam-
þykkti með 8 atkvæðum ofan-
greindra bæjarfulltrúa gegn 1 at-
kvæði bæjarfulltrúa Alþýðu-
bandalagsins að leigja Varnar-
máladeild 13 hektara lands á
Hólmsbergi, eins og greint hefur
verið frá í Mbl. Segir einnig í bók-
un bæjarfulltrúanna að á sameig-
inlegum fundi bæjarráða Kefla-
víkur og Njarðvíkur hafi verið
fallist á að heppilegasta staðsetn-
ing olíuhafnar væri í Helguvík,
eftir umræður um mengunar-
hættu og skipulagsmál. Þá segir
m.a. í umræddri bókun: 011
mannvirki skulu uppfylla ströng-
ustu kröfur um búnað og frágang,
umsjón, afgreiðsla og öll öryggis-
gæsla á hafnarsvæðinu verður í
höndum íslenskra aðila, staðið
verði þannig að framkvæmdum að
þær komi að sem fyllstum notum
við frekari hafnargerð í Helguvík
og að landrýmið sem Varnarmála-
deild fái sé aðeins ræma meðfram
bjargbrún, utan þess svæðis sem
líkur séu til að nýtanlegt verði til
Þorlákur
Helgason
verkfrœð-
ingur látinn
Þorlákur Helgason, verkfræðing-
ur, lést í Reykjavík sl. mánudag 77
ára að aldri. Var hann fæddur 17.
desember 1904 á ísafirði.
Þorlákur lauk stúdentsprófi í
Reykjavík 1923 og prófi í bygg-
ingaverkfræði í Noregi 1934. Arin
1926 til 1930 starfaði hann m.a.
sem fréttaritari við norsk blöð. Þá
var hann formaður Stúdentafé-
lagsins í Þrándheimi árin 1925 og
1926. Frá árinu 1935 var hann
verkfræðingur hjá Vita- og hafna-
málastjórninni og starfaði ein-
göngu að hafnamálum. Gerði
hann mælingar að hafnasvæðum
víða um land og hannaði og
stjórnaði byggingu hafnarmann-
virkja, m.a. á Olafsvík, Dalvík,
Þorlákur Helgason
Siglufirði, Húsavík, Neskaupstað
og víðar. Þá stjórnaði hann árið
1953 framkvæmdum við stíflugerð
í ós Bessastaðatjarnar. Þorlákur
var tvíkvæntur og er síðari kona
hans Elísabet Björgvinsdóttir.
Lætur hann eftir sig 4 börn.
Páll Pétursson í Tímanum:
Höfum ekki efni á að
vera landbúnaðarráð-
herralausir í mörg ár
„Páll er spaugsamur, tek þessar setning-
ar ekki alvarlega“ segir Pálmi Jónsson
Hjörleifur tæki við landbúnaðar-
málunum, vegna þess að við höf-
um ekki efni á því að vera land-
búnaðarráðherralausir mörg ár í
röð“.
Fyrirsögn fréttarinnar sem
birt er á forsíðu blaðsins er
„Hjörleifur ræður sér ekki sjálf-
ur“ og fjallar hún um viðbrögð
formanns þingflokks Framsókn-
arflokksins vegna undirritunar
Blöndusamninga. Eftirfarandi
er haft orðrétt og innan gæsa-
lappa eftir Páli: „Ég hygg að
Hjörleifur sé tæplega tekinn við
embætti iðnaðarráðherra af
Pálma síðan á Norðurlandaþing-
inu sem haldið var nýverið. Hins
vegar væri kannski rétt að
Hjörleifur tæki við landbúnað-
armálunum, vegna þess, að við
höfum ekki efni á því að vera
landbúnaðarráðherralausir
mörg ár í röð,“ segir Páll Péturs-
son.“
„ÞAÐ ER öllum kunnugt að Páll
er spaugsamur. Ég tek þessar setn-
ingar ekki alvarlega, fremur en
aðrar slíkar," svaraði Pálmi Jóns-
son, landbúnaðarráðherra, er Mbl.
bar undir hann yfirlýsingar Páls
Péturssonar, formanns þingflokks
Framsóknarflokksins, í dagblað-
inu Tímanum í gær, en þar segir
Páll m.a., að Pálmi sé eiginlega
orðinn allt annað en landbúnaðar
ráðherra. „Hins vegar,“ segir Páll
ennfremur, „væri kannski rétt að
skipulegra bygginga og telja bæj-
arfulltrúarnir að með samningn-
um hafi fengist viðunandi lausn á
mengunar-, slysa- og skipulags-
vandamálum.
Karl G. Sigurbergsson, bæjar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins, bók-
aði m.a.: „Þar sem ekki hefur verið
valin fljótvirkasta leiðin til að
hamla gegn olíumengun af völdum
olíugeyma „Varnarliðsins" og
samningsdrög þau er hér liggja
fyrir til afgreiðslu, fela ekki í sér
neitt sem réttlætir svo umfangs-
mikla aukningu umsvifa Banda-
ríkjahers og NATO hér á landi,
sem samningsdrögin bjóða upp á,
greiði ég atkvæði gegn þessu
máli.“
Við umræður á Alþingi í gær
gerði Jóhann Einvarðsson bókun
bæjarfulltrúanna 8 að umtalsefni,
sem hann sagði spegla skoðun
mikils meirihluta heimamanna og
kvaðst hann ítreka stuðning þing-
flokks framsóknarmanna við
utanríkisráðherra.
María Gísladóttir dansar Giselle
FIMMTUDAGINN 18. mars, Töstudaginn 19. og sunnudaginn 21. mun
María Gísladóttir dansa hlutverk Giselle fjórum sinnum sem gestur í
sýningu Þjóðleikhússins á samnefndum ballett, ásamt Helga Tómas-
syni. Sýningarnar á fimmtudag og föstudag hefjast klukkan 20.00, en
sýningarnar á sunnudag klukkan 14.00 síðdegis og klukkan 20.00.
Ilppselt er á allar kvöldsýningarnar.
María Gísladóttir var hér síð- Sl. tvö ár hefur hún verið aðal-
ast á ferð á Listahátíð 1980 og
vakti þá mikla hrifningu þeirra
sem sáu, en hún hafði ekki dans-
að hér heima í rösklega tíu ár.
dansari við ballettinn í Wiesbad-
en í Vestur-Þýskalandi og fengið
frábæra dóma, m.a. fyrir túlkun
sína á Giselle.
Arnarflug leigir Britannia
Boeing 737 200-þotu til árs
Munu væntanlega flytja 80—90 þúsund farþega í sumar frá Manchester
ARNARFLUG hefur leigt brezka
flugfélaginu Britannia Airways
Boeing 737 200-farþegaþotu með
fimm áhöfnum til eins árs, en að
sögn Gunnars Þorvaldssonar, fram-
kvæmdastjóra Arnarflugs, er þetta
mjög sambærilegur samningur og
samningur sá er félögin gerðu með
sér á síðasta ári.
Þá voru fimm áhafnir Arnar-
flugs staðsettar í Manchester í
Englandi og flugu þaðan með
brezka sólarlandafarþega til Mið-
jarðarhafslanda. — Við flugum
2—3 ferðir á dag, frá 1. maí og út
októbermánuð, með fullar vélar,
en við fluttum alls liðlega 82 þús-
und farþega á þessu tímabili,
sagði Gunnar Þorvaldsson enn-
fremur.
— Þetta flug fyrir Britannia
gekk með afbrigðum vel síðasta
sumar og við erum því mjög
ánægðir með, að þessi samningur
skuli nú vera í höfn. Arnarflug
hefur leigt Boeing 737 200-far-
þegaþotu frá írska flugfélaginu
Air Lingus til verkefnisins, sagði
Gunnar Þorvaldsson ennfremur.
Gert er ráð fyrir, að flugið hefj-
ist 1. apríl nk. og verði a.m.k. flog-
ið út októbermánuð, en ekki hefur
ennþá verið ákveðið hvernig flugi
verður háttað eftir þann tíma.
Gunnar Þorvaldsson sagðist
gera ráð fyrir, að fjöldi farþega,
sem fluttir yrðu frá Manchester í
sumar, yrði eitthvað svipaður og á
síðasta ári, eða 80—90 þúsund.
Arnarflug hefur leigt
Electruna til Kamerún
SAMNINGAR eru nú á lokastigi milli Arnarflugs og Air
Kamerún um leigu á Electra-flugvél Arnarflugs, sem félagið
keypti af íscargó í síðustu viku.
Pilturinn sem lést
Myndin er af Garðari Inga Reynis-
syni frá Keflavík, sem lést í bruna í
Grindavík sl. sunnudagsmorgun.
Garðar Ingi var fæddur 3. október
1%2.
Samningurinn gerir ráð fyrir
a.m.k. þriggja mánaða flugi milli
Kamerún og Ítalíu með bygg-
ingarefni.
Að sögn Gunnars Þorvaldssonar
verða væntanlega með vélinni
tvær til þrjár áhafnir, en flugið
milli Kamerún og Ítalíu er mjög
langt, sjálft flugið tekur um 16
klukkustundir, en við það bætist
svo umhleðslutími, þannig að gera
má ráð fyrir, að hver ferð taki allt
að sólarhring.
Gunnar Þorvaldsson sagði í
samtali við Mbl., að vélin hefði
farið sitt fyrsta flug fyrir Arnar-
flug í gærmorgun með hesta til
Norðurlandanna og Hollands, en
væntanlega myndi hún síðan fara
beint í þetta flug fyrir Air Kamer-
ún um eða eftir helgi, en þá yrði
búið að ganga endanlega frá
samningum.
Helguvíkurmálið:
Iðnaðarráðherra ætlar að
athuga lögmæti samninganna
- segir f bréfi orkumálastjóra til Almennu verkfræðistofunnar
ALMENNU verkfræðistofunni barst
í gær bréf frá orkumálastjóra, Jak-
ob Björnssyni, þar sem tilkynnt er
formlega, að iðnaðarráðherra ætli að
láta fara fram athugun á lögmæti
samninga milli Orkustofnunar og
Almennu verkfræðistofunnar vegna
áætlaðra framkvæmda við Helguvfk.
Tilkynnt er einnig, að Orkustofnun
muni því eigi vera til viðræðu um
frekara samstarf fyrr en nánari
fyrirmæli hafi borist frá iðnaðar
ráðherra.
Svavar Jónatansson, forstjóri
Almennu verkfræðistofunnar
sagði í viðtali við Mbl. í gær, að
þeir hefðu ekki tekið ákvörðun um
hver viðbrögð yrðu í málinu. Mbl.
er kunnugt um, að bandarískir að-
ilar hafa lýst sig reiðubúna til að
taka starf þetta að sér, og munu
þeir tilbúnir að hefjast handa svo
til samstundis, ef þess verður
óskað.