Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
5
Hvað er framundan í
orkumálum Reykvíkinga?
Landsmálafélagið Vörður efnir til
fundar um orkumál í kvöld kl. 20:30
Hafskip fær
nýja Rangá
HAFSKII’ hf. hefur samið um leigu
á öðru skipi í stað Rangár, sem fórst
við Irlandsstrendur sl. föstudags-
morgun. Gengið var frá samningum
við eiganda spænsks skipafélags,
kapt. Alvares, að morgni laugardags,
en hann var staddur hérlendis er
Kangá strandaði og er hið nýja skip
sömu gerðar og mun bera sama
nafn.
Rangá var hið fyrsta af fimm
skipum sömu gerðar sem smíðuð
eru á Spáni og hefur Hafskip sam-
ið um leigu á næsta skipi. Páll
Bragi Kristjónsson hjá Hafskip
tjáði Mbl. í gær að þegar sýnt var
á föstudagsmorgun að mannbjörg
hafði orðið hefðu strax verið hafn-
ar viðræður við kapt. Alvares um
annað skip á leigu og voru samn-
ingar undirritaðir á laugar-
dagsmorgun. Er skipið væntanlegt
til landsins eftir 2—3 vikur og
mun það strax hefja siglingar á
áætlun Hafskips til Ameríku. Páll
Bragi sagði að leigja þyrfti skip til
að sigla eina ferð milli Ameríku
og íslands og var í gær útlit fyrir
að samningar væru að takast um
leigu á bandarísku skipi.
í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Rætt verður um stöðuna í
orkumálum með tilliti til hags-
muna Reykjavíkursvæðisins.
Frummælandi verður Birgir ísl.
Gunnarsson, alþingismaður og
fundarstjóri Þórir Lárusson,
formaður Landsmálafélagsins
Varðar.
KrélUlilkynning
Þórður Harðarson.
Þórður Harðarson skipaður
prófessor við læknadeild HÍ
FORSETI íslands hefur að tillögu menntamálaráðherra skipað dr. Þórð
Harðarson, yfirlækni lyfjadeildar Borgarspítalans, prófessor í lyflækningum
við læknadeild Háskóla íslands og yfirlækni lyfjadeildar Landspítalans. Er
embættið veitt frá 1. aprfl, en því hefur gegnt Sigurður Samúelsson prófessor.
Þórður Harðarson hlaut flest at-
kvæði er læknadeild greiddi at-
kvæði um umsækjendur að feng-
inni niðurstöðu dómnefndar. Hlaut
Þórður 29 atkvæði, Bjarni Þjóð-
leifsson og Snorri P. Snorrason 14
hvor og aðrir umsækjendur færri
atkvæði, en þeir voru Jón Þor-
steinsson, Guðmundur Þorgeirsson
og Birgir Guðjónsson.
Þórður Harðarson lauk stúd-
entsprófi frá MR 1960 og kandíd-
atsprófi frá læknadeild HÍ 1967.
Hóf hann þá framhaldsnám í
hjartalækningum innan lyflæknis-
fræði, fyrst hérlendis en síðar á
Hammersmith-sjúkrahúsinu í
Lundúnum árin 1971 til 1974. Lauk
hann doktorsprófi frá Lundúna-
háskóla árið 1974. Eftir það var
hann tvö ár í Bandaríkjunum, hið
fyrra í Houston í Texas og það síð-
ara í San Diego í Kaliforníu og
gegndi hann einnig kennslustöðu
við háskólann þar. Arið 1976 starf-
aði Þórður Harðarson í hálft ár á
lyfjadeild Landspitalans og í árs-
byrjun 1977 var hann skipaður yf-
irlæknir lyfjadeildar Borgarspítal-
ans. Kona hans er Sólrún Jensdótt-
ir sagnfræðingur og eiga þau 3
börn.
Úrskurður
um sérkjara-
samninga 19
félaga f næsta
mánuði
KJARANEFND og Kjaradómur
fjalla um þessar mundir um sér
kjarasamninga nokkurra félaga inn-
an BSRB og allmargra félaga innan
BHM. Eiga dómstólar þessir að
kveða upp úrskurði í byrjun aprfl.
Sérkjarasamningar voru gerðir
milli fjármálaráðherra og níu fé-
laga af 13 innan BSRB án þess að
málin færu til meðferðar Kjara-
nefndar. Samningar þessir fólu í
sér um 1% launahækkun, en þeir
voru gerðir við kennara, tollverði,
lögreglumenn, póstmenn, flug-
málastarfsmenn, starfsmenn á
sjónvarpi, útvarpi, í Sjúkrasam-
lagi Reykjavíkur og í stjórnarráð-
inu. Ekki náðust sérkjarasamn-
ingar við fjögur félög BSRB, þ.e.
Hjúkrunarfélagið, Ljósmæðrafé-
lagið, Starfsmannafélag ríkis-
stofnana og Félag ísl. símamanna.
Innan BHM eru 19 félög og náð-
ust sérkjarasamningar við fjögur
þeirra, þ.e. lögfræðinga, presta,
dýralækna og félagið Utgarð, en
innan vébanda þess eru þeir há-
skólamenntaðir starfsmenn ríkis-
ins, sem ekki eiga aðild að öðrum
fagfélögum innan BHM.
Sýnir í Ás-
mundarsal
JON Axel Björnsson mynd-
listarmaður sýnir um þessar
mundir olíumálverk í Ás-
mundarsal í Keykjavík. Lýk-
ur sýningu hans sunnudaginn
21. mars og er hún opin dag-
lega kl. 16 til 22.
Jón Axel Björnsson lauk
námi frá málaradeild Mynd-
lista- og handíðaskólans árið
1979. I Asmundarsal sýnir
hann 10 olíumálverk sem mál-
uð eru síðustu mánuði. Er
þetta fyrsta einkasýning Jóns
Axels, en hann hefur tekið
þátt í tveimur samsýningum.
Sunnudagskvöld, 21 mars kl. 19.00
Tískusýning ki. 21.00
Model 79 sýna frá 09 22/20
Kl. 19.00. Húsiö opnar fyrir matargesti. Big Band
Svansins. Grísaveisluréttur, kjúklingar og grísakjöt aö
hætti Spánverja. Verö kr. 150.00.
glæsilega vor og sumar
tísku
■ ■.. ... Kl. 20.15
Jass-sportf lokkurmn og 23.00
sem sannarlega hefur slegiö í gegn sýna nýtt
atriðí.
Dansflokkur
sýnir dansa siðustu 60
ára. JJ-/.
RJ Atriði sem allir verða
Ungfrú Utsýn ki. 24.00
Forkeppni —-
Glæsilegar stúlkur/ JtGQk
valdar úr hópi gesta! toú&Á
til þátttöku.
Ferðakynning ki. 19.30
sýndar verða myndtr frá Costa del Sol,
Torremolinos, Marbella og Mallorka.
Spilað verður um 3 Utsýnarferðir
að verðmætti kl. 18.00,-
Happdrætti fyrir alla gesti
Dregiö kl. 21.00.
Dregiö kl. 23.00.
Vinningar Útsýnarferö.
Verölaun
Útsýnarferð ^
til Spánar ^ j
Miðasala og borðapantanir
í dag kl. 16—19 í
Uúbhur
Kl. 22.35 Min nýja bráðskemmtitega hljómsvelt
og 24.15 Örvars Kristjánssonar
leikur fyrir dansi ásamt diskóteki.
Alfabakka 8, sími 77500.
Feróaskrifstofan
Vinningar kvöldsins
Utsýnarferðir til sex vinsælustu staða við Miðjarðarhafið
WKARNABÆ