Morgunblaðið - 17.03.1982, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
ÍC'u^n
'í
■ f ■ y» ■ • ■' *. •»* '
V . vy* , *,,•< - ,
. " ' VARNARMÁIADEILD
UTANRfKiSRADUNEYTISINS.
A
• ’;í LElGULAND ÚR LANDl
KEfLAVÍKUlRe/EJAR
a. * . ? .*•;
'#■ \
K 9 vt '
HELGU
VIK
SKIPU-
LAGIÐ OG
HELGUVÍK
í varnarsamningi íslands og Bandaríkjanna frá 1951, sem
hefur lagagildi hér á landi, segir í 2. grein: „ísland mun afla
heimilda á landsvæðum og gera aðrar nauðsynlegar ráðstaf-
anir til þess að í té verði látin aðstaða sú, sem veitt er með
samningi þessum, og ber Bandaríkjunum eigi skylda til að
greiða Islandi, íslenskum þegnum eða öðrum mönnum gjald
fyrir það.“ í samræmi við þetta hefur íslenska rfkið aflað
lands fyrir starfsemi varnarliðsins þar. Og í varnarsamningn-
um er slíkt land nefnt „samningssvæði“ en á síðari tímum
hefur verið rætt um slíkar landspildur sem „varnarsvæði“.
Samkvæmt lögum frá 1954 og reglugerð um stjórnarráð Is-
lands frá 1969 fer utanríkisráðherra með forræði mála á
þessum svæðum, þótt forræðið sé hjá öðrum ráðherrum utan
svæðanna.
Á þessari loftmynd sést afstaða
Helguvíkur bæði gagnvart
Keflavíkurflugvelli, Njarðvík og
Keflavíkurkaupstað og því
svæði, þar sem ráðgert er að
reisa hina nýju eldsneytisgeyma
varnarliðsins.
Neðst í vinstra horni sést
flugskýlið stóra á Keflavíkur-
flugvelli, sem er fyrir norðan
flugstöðvarbygginguna. Fyrir
ofan Njarðvík, sem er neðsta
samfellda byggðin hægra megin,
eru gömlu eldsneytisgeymar
varnarliðsins, sem valda meng-
unarhættu fyrir byggðina í
Njarðvík og skapa erfiðleika í
skipulagi milli Njarðvíkur og
Keflavíkur, sem á land fyrir
norðan svörtu línuna, sem dreg-
in er í sjó út.
Inn á loftmyndina er fyrir
norðan Helguvík merkt hið 13
hektara svæði á Hólmsbergi,
sem bæjarstjórn Keflavíkur
samþykkti hinn 9. mars sl. að
leigja varnarmáladeild utanrík-
isráðuneytisins afnot af gegn af-
notum Keflavíkur af 100 hekt-
ara landi á umráðasvæði varn-
armáladeildar annars staðar. Á
Hólmsbergi er varnarmáladeild
heimiluð mannvirkjagerð, sam-
kvæmt samþykkt bæjarstjórnar
Keflavíkur, svo sem bygging
hafnargarðs, olíuleiðslu og vega
og fleira. Fellst Keflavíkurkaup-
staður á að heimilt sé að byggja
umræddan hafnargarð í Helgu-
vík. Varnarmáladeild er heimilt
að leyfa öðrum aðilum afnot
landsins í ofangreindu skyni,
segir og í samþykkt bæjar-
stjórnar Keflavíkur frá 9. mars.
Þar er meðal annars sett það
skilyrði, að þannig verði staðið
að hafnargerðinni, að hún komi
að sem fyllstum notum við frek-
ari hafnargerð í Helguvík
Áform munu vera uppi á veg-
um varnarliðsins um að byggja
hafnargarð frá ysta tanga
Hólmsbergsins þvert fyrir
Helguvíkina og loka henni þann-
ig. Við þennan garð yrðu olíu-
skip losuð og olíunni dælt eftir
leiðslum um Hólmsbergið til
eldsneytisgeyma, sem yrðu í
reitnum, sem merktur er með
brotinni línu á myndinni. Svarta
línan, sem gengur út í sjó við
brotnu línuna, sýnir mörkin
milli Keflavíkur og Gerða-
hrepps. Hins vegar er þessi hluti
Gerðahrepps norður að hinni
svörtu línunni á myndinni
„agreed area" eins og segir á
myndinni eða „samningssvæði"
samkvæmt varnarsamningnum
og því á valdi utanríkisráðherra
að ráðstafa því og ákveða skipu-
lag og framkvæmdir þar.
Sé litið á þessa mynd og hún
skoðuð miðað við þá deilu um
skipulagsmál, sem risið hefur
milli Ólafs Jóhannessonar,
utanríkisráðherra, og Svavars
Gestssonar, félagsmálaráð-
herra, þá hefur Ólafur sett
reglugerð, sem nær til varnar-
svæðisins, þar sem reisa á elds-
neytisgeymana. Svavar telur sig
hins vegar hafa úrslitavald um
skipulagsmál á Hólmsbergi og í
Helguvík og sýnist, ef marka má
orð hans, vilja ganga í því efni
þvert á samþykkt Keflavíkur-
kaupstaðar, eiganda Helguvíkur
og Hólmsbergs. Ætli Svavar
Gestsson að beita ráðherravaldi
til að koma í veg fyrir hafnar-
gerð í Helguvík og lagningu veg-
ar og olíuleiðslna á Hólmsbergi
gengi hann með því ekki einung-
is gegn vilja bæjarstjórnar
Keflavíkur í skipulagsmálum.
Pólland:
Gerðu hróp að óperi
Gmdon, 15. marz. AP.
UM EITT hundrað félagsmenn
pólsku verkalýðsfélaganna Sam-
stöðu fjölmenntu í óperuna í Varsjá
um helgina og trufluðu sýningu sem
þar stóð yfir á „II Trovatore" eftir
Verdi. . Mennirnir gerðu hróp að
Leonard Mroz, aðalsöngvaranum,
þegar hann birtist á sviðinu og
héldu síðan uppteknum hætti með
frammíköllum, blístri og púi.
Samstöðumennirnir sögðu, að
þeir hefðu ákveðið að fara í óper-
una til að láta í ljós andúð sína á
Mroz, sem hefði verið sérstaklega
samvinnuþýður við herstjórn
landsins eftir að herlög voru sett
12 létust um helgina í
Gronoblc, 15. marz. AP.
BJÖRGUNARSVEITIR fundu lík
skíðamanns, sem saknað hafði ver-
ið um helgina, síðla mánudags, og
var þá ljóst að tólf manns höfðu
farizt um helgina í Frönsku ölpun-
um í mörgum minniháttar snjó-
flóðum sem urðu í Taillefert-
fjöllum.