Morgunblaðið - 17.03.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
Istanbul, 15. marz. Al*.
TVÍHÖFÐA barn dó í dag vegna
öndunarerdðleika, aðeins 36
stundum eftir fædingu.
F'ormælandi sjúkrahússins,
sem barnið fæddist í, sagði það
hafa fæðst með tvö sjálfstæð
hjörtu og tvö taugakerfi, er
starfað hefðu óháð hvort öðru.
Einnig var barnið, sem tekið var
með keisaraskurði, með kyn-
færakerfi beggja kynja. Óljóst er
hvað olli þessari vansköpun.
Fæddist tvíhöfða
Símamynd AP
Fangar pyntaðir
í hel í Tyrklandi
Ankara, 16. marz. AP.
TYRKNESKA stjómin viðurkenndi í dag að minnst 15 raenn, sem sitja í
fangelsi vegna pólitískrar hryðjuverkastarfsemi, hefðu látizt í fangelsi vegna
pyntinga síðan herinn tók völdin fyrir 18 mánudum.
Þetta kom fram í svari stjórnar-
innar við ásökunum Amnesty Int-
ernational um að 70 pólitískir
fangar í Tyrklandi hefðu verið
pyntaðir til dauða.
Ráðherrann Ilhan Oztrak sagði
að þeir sem ábyrgð bæru á dauða
fanganna hefðu verið leiddir fyrir
rétt. Hingað til hafa níu starfs-
menn öryggissveita og fangelsa
verið dæmdir.
Hann skýrði ekki frá því hvaða
dóma mennirnir hefðu fengið eða
hve margir ríkisstarfsmenn væru
viðriðnir pyntingarnar.
Oztrak sagði að 15 menn aðrir
hefðu látizt af öðrum orsökum,
átta sem Amnesty nefndi væru
látnir en hefðu aldrei verið fang-
elsaðir, fjórir væru í haldi en á
lífi, einn væri á lífi en ekki í haldi
og sex hefðu látizt í skotbardögum
við pólitíska andstæðinga eða ör-
yggissveitir.
Oztrak sakaði Amnesty um að
setja fram ásakanir gegn Tyrkjum
án þess að kanna gildi upplýsinga
sem væru hafðar eftir ýmsum
heimildum. Hann sagði að afstaða
Amnesty væri „ekki hlutlæg eða
alvarleg".
Hann varði meðferð grunaðra
hryðjuverkamanna í Tyrklandi og
sagði að stjórnin hefði aldrei leyft
pyntingar í fangelsum og kynnti
sér rækilega allar ásakanir um
pyntingar.
Skæruliðaárás
á San Salvador
San Salvador, 16. mars. AP.
TUGIR SKÆRULIÐA óku í flutningabifreiðum inn í þrjár útborgir norður af
San Salvador á mánudagskvöld og gerðu samræmdar árásir á herstöðvar. Sumir
sögðu að allt að 200 skæruliðar hefðu tekið þátt í árásunum.
Skæruliðar sögðu að leiðtogi
árásanna væri Anna Sonia Medina.
Þeir kváðust hafa fellt allt að sex
þjóðvarðliða í Cuscatancingo og
pólitískur fundur hefði verið hald-
inn þar. Itrekaðar voru áskoranir
til fólks um að undirbúa uppreisn
með söfnun matvæla, lyfja, benzíns
og efnis í götuvígi.
I Mejicanos leituðu skæruliðar
hælis í kaþólskri kirkju þegar her-
menn gerðu gagnárás og bardagar
geisuðu umhverfis kirkjuna.
Skæruliðar skutu a.m.k. fjórum
sinnum eldflaug á herstöð í bænum.
Liðsauki hermanna kom fljótlega
á vettvang, sótti í norðaustur og
réðst á stöðvar skæruliða með fall-
byssum og sprengjuvörpum. Her-
menn báru burtu nokkra særða her-
menn og óbreytta borgara og tóku
tvo menn til fanga. Undanhald
skæruliða hófst tveimur tímum eft-
ir að árásin hófst.
Stjórnartalsmaður sagði að
a.m.k. 100 skæruliðar og 10 her-
menn hefði fallið í vikulöngum að-
gerðum landhersins í vesturhérað-
inu San Vicente. Hann sagði að 17
búðum skæruliða hefði verið eytt
þar og í suðurhéraðinu Cabanas.
Á Costa Rica var tilkynnt að ör-
yggissveitir hefðu fundið gífurlega
miklar vopnabirgðir, sem senda
hefði átt til E1 Salvador. Verðmæti
vopnanna er talið 2,5 milljónir doll-
ara.
Níu hafa verið handteknir vegna
málsins, þar af fjórir Salvador-
menn. Einnig fannst prentvél, fjar-
skiptabúnaður, fjarstýrisútbúnaður
til sprengjunota, lyf og 150 gas-
grímur.
11% skuldaaukning
A-Evrópuríkja
(ii*nf, 16. marz. AP.
SKULDIR kommúnistaríkja Aust-
urEvrópu við Vesturlönd jukust um
1 \% í fyrra og námu alls 80,4 millj-
örðum Bandaríkjadala. Illutur
Rússa í skuldunum hefur aukizt og
þeir bera megnið af skuldaaukning-
unni.
Búlgarar voru eina Austur-
Evrópuþjóðin sem grynnkaði á
skuldum sínum samkvæmt
skýrslu Efnahagsnefndar SÞ fyrir
Evrópu.
Raungildi skuldanna er talið
hafa minnkað um allt að sex millj-
arða dollara vegna batnandi stöðu
dollarans, þar sem ríkin skulda
mikið í öðrum gjaldmiðlum.
Pólverjar skulda mest, 22,4
milljarða dollara, miðað við 22,1
milljarð dollara 1980. Auk þess
skulda þeir öðrum Austur-
Evrópuríkjum 2,6 milljarða doll-
ara.
Bent er á að Pólverjar þurfi að
greiða á þessu ári þrjá til fjóra
milljarða dollara í vexti auk
endurgreiðslu á tæplega sjö millj-
arða dollara láni. Tekjur Pólverja
af útflutningi til Vesturlanda og
þróunarlanda námu 7,5 milljörð-
um dollara 1980 og 5,4 milljörðum
dollara í fyrra.
Skuld Rússa er talin hafa aukizt
um 44%, úr 13,5 í 19,5 milljarða
dollara.
Jafnframt hafa Rússar aukið
gullsölu á Vesturlöndum úr 90
lestum 1980 í 200—300 tonn í
fyrra, að verðmæti 2,7 til fjórir
milljarðar dollara.
Halli á viðskiptum Rússa við
Vesturlönd er talinn hafa numið
2,1 milljarði dollara, en það er
fyrsti viðskiptahalli þeirra síðan
1976.
Heildarskuldir Austur-Evrópu
við Vesturlönd eru sem hér segir (í
milljörðum dollara):
1979 1980 1981
Búlgaría 3,7 3,2 2,3
Tékkóslóvakía 3,1 3,5 3,6
Austur-Þýzkaland 8,1 9,6 11,3
Ungverjaiand 7,3 7,4 7,8
Pólland 20,1 22,1 22,4
Rúmenía 6,9 9,1 9,€
Sovétríkin 12,1 13,5 19,6
Comecon-bankar 4,0 4,0 4,2
Alls 65,3 72,4 80,7
Susan Sontag slær vinstra fólk út af laginu:
Hafnar kommúnisma
- segir hann fasisma
SU8AN SONTAG, rilhöfundur og
þjóðfélagsgagnrýnandi („Styles of
Radical Will“, „On Photography")
sem hefur dásamað byltingarhreyf-
ingar frá llavana til llanoi, hefur
snúið baki við kommúnisma og
valdið miklu uppnámi í röðum
vinstrisinna.
„Kommúnismi er fasismi,"
sagði hún á fundi til stuðnings
Samstöðu í Póllandi í New York.
„Fasismi og kommúnismi eru
hlutskipti allra kommúnistalanda
og í sjálfu sér er kommúnismi líka
afhrigði, árangursríkasta afbrigði
fasisma. Fasismi með mannlegu
yfirbragði," sagði hún.
Fundarmenn urðu ókvæða við
og gerðu hróp að henni. Þeir vildu
ekki láta hendla sig við hægri-
sinnaða „óvini", sem þeir telja
einfalda kommahatara. Meðal
fundarmanna voru þjóðlaga-
söngvarinn Pete Seeger og rithöf-
undurinn Fl.L. Doctorow.
„Imyndið ykkur einhvern sem
las aðeins „Reader’s Digest" á ár-
unum 1950 til 1970 og einhvern
sem las aðeins „Nation" eða „New
Statesman”. Hvor þeirra hefði
verið betur að sér um veruleika
kommúnismans? Eg held við ætt-
um að staldra við svarið. Gæti
verið að óvinir okkar hafi haft
rétt fyrir sér?“
Sontag, sem er 49 ára gömul,
hefur verið ákafur byltingarsinni
síðan á árunum eftir 1960 þegar
bókmenntaspekingar í New York
krýndu hana arftaka Mary
McCarthy. í grein um ferð til
Hanoi 1968 kallaði hún sig „vest-
rænan nýróttækling sem telur
byltinguna ekki aðeins leið til að
koma á pólitísku og efnahagslegu
réttlæti, heldur aðferð til að veita
útrás og afla staðfestingar á per-
sónulegri orku af öllu tagi, þar á
meðal ástarhneigð."
McCarthy, sem lengi hefur ver-
ið ein af hetjum andsovézkra
vinstrisinna, var ein þeirra sem
tóku upp hanzkann fyrir Sontag
eftir Samstöðuræðuna. „Eg fæ
ekki séð hvernig það getur hjálp-
að nokkrum að skilja (ástandið í
Póllandi) með því að kalla það
fasisma," skrifaði McCarthy.
„Samt sem áður styð ég Sontag í
því að taka af skarið og nota orð,
sem áheyrendur hennar greini-
lega töldu klúr, til að lýsa ástandi,
sem er klúrt."
Flestir aðrir félagar Sontag
svöruðu henni hins vegar með há-
værri gagnrýni, m.a. í „Nation".
Margir sögðu að bandarískir sósí-
alistar, þar á meðal Sontag, hefðu
lengi gagnrýnt Sovétríkin fyrir að
afskræma marxisma og þyrftu
ekki að hafa samvizkubit af
áframhaldandi syndum Moskvu-
manna. Ralph Schoenman, sem
skipulagði fundinn, skrifaði:
„Þeim sem hafa þekkt Sontag vel
og tekið þátt í fyrri tilraunum
hennar til að verja þá sem sæta
árásum í kommúnistaríkjum þótti
átakanlegast að hún játaði hluti
sem hún hefur ekki verið sek um.“
Sontag fékk einnig á baukinn
hjá þeim sem höfðu sagt skilið við
kommúnisma löngu áður. Diana
Trilling, sem réðst á þá, sem enn
væru trúaðir marxistar í bók
sinni „Við verðum að marséra
elskurnar mínar“ (1977) sagði:
„Það þykir greinilega ennþá and-
legt hugrekki að sjá og viður-
kenna það sem liggur í áQgum
uppi.“
I sama streng tók Bernard-
Henri Lévy, höfundur „Villi-
mennsku með mannlegu yfir-
bragði“ (1979) og leiðtogi fyrrver-
andi marxista í Frakklandi er
kalla sig „nýheimspekinga":
„Bandarískir menntamenn hafa
nú skilið að ríkisstjórn sem lokar
gagnrýnendur sína inni, sem
pyntar verkamenn sína ... og
dregur fram gömlu andgyðinglegu
skotfærin úr ruslahaug sögunnar
er fasistastjórn. Hvað finnst mér
um þessa stórfenglegu uppgötv-
un? Einfaldlega að það var tími
til kominn."
Andrew Kopkind blaðamaður
sagðist hafa verið með Sontag í
loftvarnabyrgi í Hanoi 1968 þegar
bandarískar B 52-sprengjuflug-
vélar gerðu árás. „Eg vissi þá
hverjir þorpararnir voru og hverj-
ir voru hetjur." Sontag svaraði
með því að kalla Kopkind, sem
hún dáði eitt sinn fyrir bækur
hans, „hinn kunna diskósérfræð-
ing áttunda áratugarins".
Gagnrýnendum sínum yfirleitt
svaraði Sontag með því að leggja
áherzlu á að nýleg sinnaskipti
hennar væru mikilvæg, þótt þau
væru varla frumleg: „Eins og
margir aðrir lýðræðissinnaðir
vinstrimenn skildi ég ekki harð-
stjórnina sem er grundvallareðli
kommúnistakerfisins.“
Þjooverji í
næstæðstu
stöðu NATO
Briisnel, 16. marz. Al*.
GÚNTER Kiessling hershöfðingi frá
Vestur-Þýzkalandi hefur verið
skipaður annar æðsti yfirmaður her
afla NATO í Evrópu.
Kiessling verður gerður að fjög-
urra stjörnu hershöfðingja 1. apríl
og tekur við af Gtinter Luther
aðmíráli sem staðgengill Bernard
W. Rogers hershöfðingja.
Kiessling hefur verið yfirmaður
liðsafla bandalagsins í Slésvík,
Holstein og á Jótlandi í tvö og
hálft ár. Hann gekk í þýzka herinn
1940 og varð lautinant 1945.
Hann gekk í þýzka sambands-
herinn, Bundeswehr, 1956 og hefur
m.a. verið yfirmaður 10. bryn-
vædda herfylkisins.
Móðir keisara
Irans er látin
l*arís, 16. marz. Al*.
MOÐIR íranskeisara, Taj Ol Mol-
ouk Pahlavi, lézt 10. marz í Acapulco
í Mexíkó, 90 ára gömul, að sögn
fjölskyldunnar í dag.
Hún vissi ekkert um dauða son-
ar síns, þar sem fjölskyldan ákvað
að segja henni ekki frá fréttinni
svo að hún kæmist ekki í uppnám.