Morgunblaðið - 17.03.1982, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
Geir Hallgrímsson, formaður utanríkismálanefndar:
3 þingflokkar styðja
utanríkisráðherra
Hvað gerist í næsta Löðurþætti ríkis-
stjórnarinnar, spurði Olafur G. Einarsson
GEIR Hallgrímsson (S), formadur utanríkismálanefndar Al-
þingis, sagði í umræðu á Alþingi í gær, að utanríkisráðherra
hefði gert nefndinni þá um morguninn grein fyrir fram-
kvæmd þingsályktunar um flutning eldsneytisgeyma varnar-
liðsins. Sagði Geir það mat fulltrúa Alþýðuflokks og Sjálf-
stæðisflokks í nefndinni, að meðferð utanríkisráðherra á
málinu hafi verið og sé að öllu leyti eðlileg — og í samræmi
við einróma samþykkt Alþingis. Þingflokkur Framsóknar
flokksins hafi og lýst yfir samstöðu með utanríkisráðherra.
Ljóst sé því að þrír af fjórum þingflokkum standi að baki
utanríkisráðherra í málinu. Alþýðubandalagið sé eitt á báti. I
Björgvinsson, formaður þing-
sama streng tók Sighvatur
flokks Alþýðuflokksins.
Forsætisráðherra skeri
úr um verkaskiptingu
Sighvatur Björgvinsson (A) vitn-
aði til ásakana ráðherra Alþýðu-
bandalags, þess efnis, að utanrík-
isráðherra hafi farið út fyrir verk-
svið sitt, varðandi svokölluð
Helguvíkurmál, sem og útgáfu
bæði félagsmálaráðherra og
utanríkisráðherra á reglugerðum,
er snerta skipulag varnarliðs-
svæða, og ekki komi heim og sam-
an. Þá vitnaði Sighvatur til laga-
ákvæða, þess efnis, að ef deilur
væru um það undir hvaða ráðu-
neyti mál heyri; beri forsætis-
ráðherra að skera úr því. Af þessu
tilefni hafi þingflokkur Alþýðu-
flokksins gert samþykkt um að
krefja forsætisráðherra úrskurðar
í deilumáli því, sem risið væri
milli utanríkisráðherra og félags-
málaráðherra.
Ekki þörf úrskurðar
Gunnar Thoroddsen, forsætis-
ráðherra, svaraði efnislega svo: I
því máli, sem hér er um spurt, er
ekki þörf úrskurðar, samkvæmt
tilvitnaðri lagagrein. Ef til þess
kemur að slíkt verði gert verður
úrskurðurinn að sjálfsögðu
kunngjörður opinberlega.
Hvad gerizt í
næstu löðurviku?
Ólafur G. Einarsson (S) sagði
klögumálin gánga á víxl hjá ráð-
herrum og að stór orð hafi fallið
um yfirgang þeirra, hvers í annars
garð. Utanríkisráðherra segi
vinnubrögð félagsmálaráðherra
markleysu. Félagsmálaráðherra
segir, að orð utanríkisráðherra
séu ekki lög (hér var kallað fram í:
Ólafslög). Félagsmálaráðherra
skipi eina skipulagsnefnd til að
fjalla um málefni varnarsvæð-
anna, utanríkisráðherra setji
aðra. Iðnaðarráðherra fyrirskipi
Orkustofnun, er undir hann heyri,
að hafa að engu undirritaðan
verksamning við innlent verktaka-
fyrirtæki um jarðvegskönnun á
fyrirhuguðu eldsneytisgeyma-
svæði — og færi þannig verk upp á
1 milljarð g.króna úr höndum Is-
lendinga í hendur útlendra. Þetta
er líklega hin margumtalaða ís-
lenzka atvinnustefna! Þannig tek-
ur iðnaðarráðherra einnig fram
fyrir hendur utanríkisráðherra.
Það var því ekki að ófyrirsynju að
forsætisráðherra er krafinn úr-
skurðar um verkaskiptingu, er
fagráðherrar hans deila svo
harkalega. En svarið var svo sem
eins og við var að búast: ekki neitt
að innihaldi. Forsætisráðherra
kappkostar að hafa enga skoðun í
þessum deilumálum.
í gegnum þennan leik allan geta
menn svo séð þá „virðingu Alþing-
is“, sem ríkisstjórnin var mynduð
til að verja. Og það er engin afsök-
un að þeir ráðherrar Alþýðu-
bandalagsins, sem hér koma við
sögu, hafi enga reynslu haft af
stjórnunar- eða þingstörfum, er
þeir settust á ráðherrastóla.
Svo alvarlegt sem þetta ástand
er þá fer það að minna mann á
vitleysuna sem sýnd er í sjónvarp-
inu, og nefnd er Löður. Hvað ger-
ist í næsta þætti?
• Verður Ólafur áfram utanrfk-
isráðherra?
• Eta kommarnir allt ofan í sig
(?), svo notuð sé orð utanríkisráð-
herra.
• Hvort fer skipulagsnefnd Ólafs
pi smmw ,f: 'i
Ólafur Jóhannesson
utanrfkisráðherra
eða Svavars með mál varnarliðs-
svæða í næstu viku?
• Verður samningur um Blöndu-
virkjun staðfestur í ríkisstjórn eða
var Hjörfeifur bara að stríða Páli?
• Hvor ræður meiru í þingflokki
Framsóknar, Páll Pétursson eða iðn-
aðarráðherra?
Löðurþáttur ríkisstjórnarinnar
verður æ meira spennandi. Óheil-
indin og baktjaldamakkið minna
þó ekki síður á annan sjónvarps-
þátt: Dallas, en Alþýðubandalagið
gengur upp í einhverskonar sam-
blandshlutverki úr þessum banda-
rísku sjónvarpsþáttum.
Að slepptu öllu gamni ætti for-
sætisráðherra að vera það bæði
skylt og auðvelt að skera úr, hvort
gjörðir utanríkisráðherra séu í
samræmi við stjórnarskrá Islands
— eða hvort afskipti félagsmála-
og iðnaðarráðherra séu eðlileg.
Eða er ríkisstjórnin sem heild
ekki bundin við venjulegar leik-
reglur. Upphaf hennar og tilurð
var það ekki. En ráðherrar skulda
bæði þingi og þjóð skýringar á
deilum sínum í fjölmiðlum að und-
anförnu.
Ekki sæmandi
forsætisráðherra
Sighvatur Björgvinsson (A) sagði
það ekki sæmandi forsætisráð-
herra að svara svo út í hött sem
hann hafi gert og ganga þannig á
svig við tvímælalausar skyldur
sínar. Sighvatur sagði það sitt
mat að utanríkisráðherra hafi í
engu farið út fyrir valdsvið sitt,
enda sé ljóst, að hann sé aðeins að
framfylgja og framkvæma þings-
ályktunartillögu, sem allir þing-
flokkar hafi staðið að. En eins og
mál horfi nú við sé æskilegt að
ráðherrann geri Alþingi grein
fyrir framkvæmd hans á viðkom-
andi þingsályktun við þóknanlegt
tækifæri.
Þrír þingflokkar að baki
utanríkisráðherra
Geir Hallgrímsson (S) rakti gang
þess máls allt frá því er nokkrir
þingmenn Reyknesinga fluttu
fyrst tillögu til þingsályktunar um
flutning eldsneytisgeyma varnar-
liðsins, en að baki hafi legið
þrennskonar röksemdir: 1) meng-
unarvarnir, en vatnsból viðkom-
andi byggðarlaga hafi verið talin í
hættu, 2) skipulagsmál, er byggð-
ust á eðlilegri samtengingu núver-
andi byggðasvæða, 3) að búa þess-
um þætti í öryggissamstarfi okkar
og bandalagsþjóða okkar aðstöðu
annarsstaðar.
Hann sagði utanríkismálanefnd
hafa orðið sammála um, hvern veg
bæri að afgreiða þessa tillögu
þingmanna Reyknesinga, og Al-
þingi samþykkt hana í endanlegu
formi samhljóða, þ.á m. þingmenn
Alþýðubandalags. í þessari tillögu
hafi utanríkisráðherra verið falið
að framfylgja efnisatriðum henn-
ar og hann fengið til þess frjálsar
hendur, innan ramma íslenzkra
laga.
Síðan rakti Geir Hallgrímsson
þróun þessa máls síðustu daga og
vikur, sem leitt hefði í ljós stig-
magnandi ágreining milli utanrík-
isráðherra annarsvegar og félags-
mála- og iðnaðarráðherra hins-
vegar. Hann las gagnstæðar yfir-
lýsingar þessara ráðherra, eins og
þær hafa birzt í blöðum liðna
daga, og gerði grein fyrir útgáfu
reglugerða, er færu á víxl, og
fyrirskipun iðnaðarráðherra til
Orkustofnunar um að sniðganga
undirritaðan verksamning, sem
utanríkisráðherra kallaði „vald-
níðslu". Hinsvegar hafi félags-
málaráðherra kallað gjörðir utan-
ríkisráðherra „valdarán".
I ljósi þessa fjölmiðlastríðs
„valdníðslu" og „valdaráns“, sem
háð hafi verið á milli ráðherra sé
það skýlaus skylda ráðherra að
gera Alþingi grein fyrir stöðu
mála og gagnstæðum orðum sín-
um í fjölmiðlum.
Utanríkisráðherra hafi í morg-
un (þ.e. í gærmorgun) gert utan-
rikismálanefnd grein fyrir þessu
máli. Engum blöðum sé um það að
fletta að utanríkisráðherra hafi í
einu og öllu verið að framkvæma
þingvilja, þ.e. að framfylgja ein-
róma þingsályktun, og sagðist
hann hafa umboð til að kunngjöra
það álit fulltrúa Alþýðu- og
Sjálfstæðisflokka í utanríkismála-
nefnd, að vinnubrögð utanríkis-
ráðherra séu að þeirra mati eðli-
leg og innan starfsviðs ráðuneytis
hans. Þingflokkur Framsóknar-
manna hafi ályktað í sömu veru.
Það er því ljóst að þrír þingflokk-
ar standa að baki utanríkisráð-
herra í þessu umdeilda máli — og
að Alþýðubandalagið rær eitt, eins
og fyrri daginn í þessum mála-
flokki. Ég undirstrika, sagði Geir,
að í framkvæmd þessa máls þarf
að gæta hagsmuna sveitarfélaga á
Suðurnesjum, bæði hvað varðar
mengunarmál, skipulagsmál og
eðlilega tengingu byggðahverfa,
samhliða því sem við búum í hag-
inn fyrir öryggishagsmuni okkar
og bandalagsþjóða okkar.
Geir sagðist ekki hafa neina trú
á því að þetta mál leiddi til stjórn-
arslita nú. Ljóst væri að vísu að
Alþýðubandalagið væri að búa sér
til ýmsar útgöngudyr úr stjórn-
arsamstarfinu, sem e.t.v. yrðu
nýttar síðar, ef flokkspólitískir
hagsmunir krefðust og innan-
flokksóánægja með frammistöðu
ráðherra þess færi enn vaxandi.
Viðbrögð ráðherranna í þessu
máli væri dæmigerð sýndar-
mennsku til að hressa upp á
minnkandi álit sitt og draga at-
hygli almennings frá öðrum
vandamálum, s.s. á sviði efna-
hagsmála, atvinnumála, kjara-
mála og orkumála. En það er mis-
skilningur hjá ráðherrum Alþýðu-
bandalagsins, ef þeir halda, að
hægt sé að slá svo ryki í augu hins
almenna borgara með Helguvík-
urmálum, að hann sjái ekki nekt
flokksins í þjóðmálum.
Matthías Á. Mathiesen (S) fjall-
aði í upphafi máls síns um að það
væri virðingu Alþingis ekki sam-
boðið hvernig ráðherrar hefðu
staðið að svonefndu Helguvíkur-
máli. Brigzlyrði og svívirðingar
hefðu gengið þeirra á milli í fjöl-
miðlum, en þegar alþingismenn
óskuðu eftir að þeim yrði gerð
grein fyrir stöðu þessara mála, þá
hefðu ráðherrar ekki tíma til að
sitja þingfundi. Hann bað þing-
menn að taka þetta til athugunar
og forsætisráðherra að gefa þessu
gaum og sagði, að ekki væri nóg að
hugsa um virðingu Alþingis þegar
verið væri að mynda ríkisstjórn.
Matthías vék sérstaklega að þögn
ráðherra Alþýðubandalagsins og
fjarveru formanns þess, Svavars
Gestssonar. „Hann er kannski að
gera Alþýðubandalaginu grein
fyrir þessu máli, sem hann hefur
ekki séð ástæðu til að gera Alþingi
grein fyrir," sagði Matthías.
Ólafur ánægður með
sinn skilning
Ólafur Jóhannesson, utanríkis-
ráðherra, sagðist telja sér skylt að
greina Alþingi frá því við þénan-
legt tækifæri hvernig að
svonefndu Helguvíkurmáli hefði
verið staðið af hans hálfu, þar sem
framkvæmdir væru byggðar á
þingsályktunartilögu frá Alþingi.
Ólafur sagði, að forsætisráðherra
hefði ekki neitað því, að ágrein-
ingur væri um mál þettá innan
ríkisstjórnarinnar. Hins vegar
hefði hann sagt, að ekki væri
ástæða til að kveða upp.úrskurð
um valdsvið ráðherra í ríkis-
stjórninni vegna málsins. Ólafur
sagði, að menn legðu eflaust mis-
munandi skilning í orð forsætis-
ráðherra. „Ég legg minn skilning í
þau og er ánægður með minn
skilning," sagði utanríkisráðherra.
Halldór Blöndal (S) spurði hvers
vegna forsætisráðherra svaraði
ekki spurningu þeirri, sem fram
hefði verið borin. Spurningin hefði
verið einföld; um það hvort ráð-
herrar hefðu brotið lög eða ekki.
Hann sagði, að sér sýndist lítill
sómi að þögn forsætisráðherra
eins og mál þetta hefði verið rekið
af ráðherrum Alþýðubandalags-
ins. Halldór sagðist skilja svar
forsætisráðherra á sinn hátt og
„það breytir ekki því áliti, sem ég
hafði áður á manninum," sagði
Halldór Blöndal.
Kjartan Jóhannsson (A) sagðist
telja það einsdæmi, að forsætis-
ráðherra skyldi ekki verja utan-
ríkisráðherra sinn og það væri eft-
irtektarvert, að forsætisráðherra
skyldi ekki verja utanríkisráð-
herra, sem væri að framkvæma
vilja Alþingis. Kjartan ítrekaði
traust þingflokks Alþýðuflokksins
á utanríkisráðherra og sagðist
skora á forsætisráðherra að lýsa
yfir stuðníngi við hann.
Albert Guðmundsson (S) tók und-
ir stuðning við Ólaf Jóhannesson í
Helguvíkurmálinu. Hann sagðist
hins vegar ekki vilja taka þátt í að
pína Ólaf og Gunnar Thoroddsen
til að segja meira heldur en þeir
hefðu þegar gert og forsætisráð-
herra sagði hann vera í klemmu
milli Alþýðubandalags og Fram-
sóknarflokks. Hann sagði, að að-
eins lítill minnihluti þingheims
væri andvigur byggingu olíugeym-
anna og framkvæmdir yrðu því
ekki stöðvaðar, slíkt væri ólýðræð-
islegt. Albert fór þess á leit við
Svavar Gestsson að Alþingi yrði
upplýst um það, hvort Alþýðu-
bandalagið myndi slíta stjórnar-
samstarfi vegna þessa máls. Hann
sagði, að héldi valdníðslutal áfram
í fjölmiðlum hlyti ríkisstjórnin að
verða óstarfhæf og slíkt yrði Al-
þingi að láta til sín taka. Albert
sagði, að þessar deilur væru um
keisarans skegg, olíugeymarnir í
Helguvík væru framfaraspor, en
málið snerist um lífsskoðanir.
Annars vegar væru þeir, sem
styddu varnarsamstarf vestrænna
ríkja og hins vegar þeir, sem væru
andvígir þvi.
Jóhann Einvarðsson (F) lýsti full-
um stuðningi við Ólaf Jóhannes-
son og sagði, að hann hefði haft
fullt samráð við heimamenn um
framkvæmdir. Þetta væri eitt af
fáum málum, sem sveitarstjórnir
á Suðurnesjum hefðu getað fylgst
með og haft áhrif á frá byrjun. Að
hafa olíugeymana á svipuðum
slóðum og þeir eru nú, sagði Jó-
hann, teldi mikill meirihluti
heimamanna fráleitt.
Alþýðubandalagið alls
staðar í erfiðleikum
Friðrik Sophusson (S) sagði, að
ráðherrar Alþýðubandalagsins
hefðu valið þann kostinn í þessu
máli að tala digurbarkalega af síð-
um Þjóðviljans. A Alþingi væri
samsæri þagnarinnar í gildi hjá
ráðherrum flokksins. Hann spurði
hvort þetta upphlaup væri sýndar-
mennska ein eða til þess að höfða
til hernámsandstæðinga. Hann
sagði, að Alþýðubandalagið ætti
alls staðar í erfiðleikum og
flokksforystan væri nú að reyna
að skapa sér stöðu til að geta farið
úr ríkisstjórn ef sveitarstjórnar-
Ráðherrar Alþýðubandalagsins, Svavar Gestsson og Hjörleifur Guttormsson,
ræðast við.