Morgunblaðið - 17.03.1982, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1982
19
Janúar—nóvember 1981:
Ríkissjóður tók tvö erlend lán
að upphæð 372,7 milljónir króna
segir m.a. í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn
Matthíasar Á. Mathiesen um erlendar lántökur á tímabilinu
kosmngar færu illa í vor og kjara-
samningar drægjust á langinn.
Gunnar Tboroddsen, forsætis-
ráðherra, rifjaði upp tilefni þess-
ara umræðna utan dagskrár;
fyrirspurn Alþýðuflokksins um
hvort hann hefði kveðið upp úr-
skurð í ríkisstjórninni um vald-
svið ráðherra. Hann sagði að slíks
hefði ekki verið þörf, en ef slíkur
úrskurður yrði kveðinn upp myndi
hann skýra frá því opinberlega.
Þar með hefði spurningunni verið
svarað. Forsætisráðherra sagði,
að utanríkisráðherra hefði gert
grein fyrir stöðu Helguvíkurmáls-
ins í ríkisstjórn og það hefði verið
rætt á fleiri en einum ríkisstjórn-
arfundi.
Hann sagði það ekki venjulegt,
að forsætisráðherra væri krafinn
sagna um traust til einstakra
ráðherra, en sagði síðan: „Ég taldi
það mikinn feng og styrk fyrir rík-
isstjórnina er Olafur Jóhannesson
tók sæti utanríkisráðherra. Hátt-
virtur utanríkisráðherra hefur
notið og nýtur trausts forsætis-
ráðherra."
Svavar Gestsson (Ab) sagðist
hafa rætt ýmsa minnispunkta um
ríkisstjórnarsamstarfið á stjórn-
arfundi á þriðjudagsmorgun. í til-
efni af Helguvíkurumræðunum
sagði hann yfirleitt vilja í ríkis-
stjórn fyrir að leysa ágreinings-
mál. Svavar sagðist andvígur þeim
hugmyndum, sem utanríkisráð-
herra hefði lagt fram til lausnar
mengunarvandamálum Suður-
nesjabúa og sagðist sjálfur hafa
ákveðnar hugmyndir þar að lút-
andi, sem hann hefði kynnt.
Sighvatur Björgvinsson (A) sagði,
að úrskurður forsætisráðherra
hefði fallið og hann væri afdrátt-
arlaus.
Geir Hallgrímsson (S) sagði, að
ráðherrarnir hefðu ekki verið
langorðir við þessar umræður.
Þeir væru málglaðari við fjölmiðla
og sýndu þeim meiri tillitssemi
heldur en alþingismönnum. Geir
sagði, að það væri eins og það
kæmi forsætisráðherra á óvart, að
þingheimur krefðist svara um
brigzlyrði milli háseta hans. Hann
sagði, að þingmenn hefðu túlkað
svör forsætisráðherra og sagðist
vilja gera það á þann veg, að auð-
vitað fælist í þeim, að utanríkis-
ráðherra hefði fulla heimild til að
halda framkvæmdum áfram. Geir
sagði, að vilji meirihluta Alþingis
væri ljós, ef frá honum yrði vikið
væri það skylda Alþingis að grípa
í taumana.
Hersvæðið minnkað —
byggingarsvæði eykst
Karl Steinar Guðnaaon (A) sagði,
að hætta á mengun yrði enn meiri
ef olíugeymarnir yrðu fluttir ofar
í hæðina. Auk þess væri það at-
hyglisvert er Alþýðubandalagið
gripi upp tillögur fyrirtækis, sem
flokkurinn hefði áður kennt við
hermang, en fyrirtækið hefði með
tillögum sínum eingöngu verið að
þjóna eigin hagsmunum. Þá sagði
Karl Steinar að þetta væri í fyrsta
skipti, sem hersvæðið væri minnk-
að, samt sem áður væri Alþýðu-
bandalagið á móti framkvæmdun-
um. Það skipti flokkinn engu máli
þó á móti kæmi byggingarsvæði,
tífalt stærra en það svæði sem
færi undir geymana í Helguvík.
Ólafur Ragnar Grímsson (Ab)
sagði, að tillaga sú, sem Alþingi
hefði samþykkt um olíugeymana,
hefði verið bundin mengunarvörn-
um byggðarlaga á Suðurnesjum.
Nú væri hins vegar komið í ljós, að
tillögur utanríkisráðherra væru
annars eðlis og meðal annars ætti
að byggja sérstaka höfn, sem
Bandaríkin og Atlantshafsbanda-
lagið ættu að borga. Hann sagði,
að hreini tónninn í þessum um-
ræðum væri lof og traust á utan-
ríkisráðherra. Þingmaðurinn
óskaði utanríkisráðherra til ham-
ingju með það, en spurði hvað
væri að baki slíkum dýrðaróði.
Ólafur Ragnar sagði það ný tíð-
indi fyrir sig, ef Framsóknar-
flokkurinn ætlaði að gerast for-
gangsflokkur um aukningu hern-
aðarumsvifa í landinu. Ef slíkt
yrði væri komin upp ný staða í
íslenzkum stjórnmálum og það
yrði þá Framsóknarflokkurinn,
sem ryfi stjórnarsamstarfið, en
ekki Alþýðubandalagið.
Arni Gunnarsson (A) sagði tvær
leiðir vera fyrir hendi til að leysa
þetta mál; að Alþýðubandalagið
kokgleypti öll stóru orðin eða sliti
stjórnarsamstarfinu. Hann sagði
það greinilegt, að utanríkisráð-
herra ætlaði ekki að láta Alþýðu-
bandalagið stjórna sér heldur
fylgja fram ályktun Alþingis.
Hann benti á að Esso, Olíufélagið
hf., fengi 4 milljónir dollara á ári
frá Varnarliðinu fyrir aðstöðu í
Hvalfirði, þetta vildi Alþýðu-
bandalagið styðja, en ekki væri
það göfugt.
Misjafn skilningur
á lýðræðinu
Gunnar Thoroddsen, forsætisr
áðherra, benti á að lögmál lýðræð-
is og samsteypustjórna væri að
leita málamiðlana og samkomu-
lags í lengstu lög og sagði, að í
þessu efni hefði komið fram
grundvallarmisskilningur hjá
Arna Gunnarssyni. Sagði forsæt-
isráðherra að slíkra leiða yrði leit-
að í þessu máli.
Arni Gunnarsson (A) sagði, að
það væri greinilega ætlunin að
beygja utanríkisráðherra og
sveigja hann frá samþykkt Al-
þingis um þetta mál. „Ef það er
lýðræði þá lít ég lýðræðið ekki
sömu augum og forsætisráð-
herra,“ sagði Árni Gunnarsson.
Halldór Blöndal (S) sagði, að
hugmynd forsætisráðherra væri
nú sú, að ekki yrði staðið við
þingsályktun Alþingis og alvar-
legur brestur væri í ríkisstjórn-
inni.
Kjartan Jóhannsson (A) sagðist
leggja þann skilning í síðustu orð
forsætisráðherra að beygja ætti
utanríkisráðherra í þessu máli.
Kjartan sagði það með öðrum orð-
um þýða, að forsætisráðherra
segði utanríkisráðherra hafa farið
út fyrir valdsvið sitt í málinu. Það
væri þó hvorki skilningur meiri-
hluta Alþingis né meirihluta þjóð-
arinnar.
Guðrún Helgadóttir (Ab) lýsti
hneykslan sinni yfir þessum um-
ræðum og líkti þeim við kennslu-
stund í ræðumennsku í smábarna-
skóla. í þeim skóla hefði þing-
heimur fengið núll i einkunn. Hún
sagði samstarf í ríkisstjórn byggj-
ast á því að finna lausn á deilu-
málum, ef hún fyndist ekki ætti
slík stjórn að segja af sér. Hún
sagði, að Alþýðubandalagið myndi
aldrei sætta sig við, að einhver
ráðherra sigldi án samráðs að eig-
in marki.
„Á (ímabilinu 1. janúar til
30. nóvember 1981 hefur rík-
issjóóur tekið tvö erlend lán,
15 milljónir sterlingspunda
og 30 milljónir dollara, en
síðara lánið er til skamms
tíma. Hluta af andvirði fyrr
nefnda lánsins var varið til
greiðslu lántökukostnaðar og
erlends skammtímaláns frá
árinu 1980, en innkomið and-
virði þessara lána er 372,7
milljónir króna á gengi 30.
nóvember sl.,“ sagði m.a. í
svari fjármálaráðherra við
fyrirspurn Matthíasar Á.
Mathiesen á Alþingi um lán-
tökur ríkissjóðs og ríkis-
stofnana á þessu tímabili.
— Þá segir, að framkvæmda-
sjóður hafi á árinu 1981 tekið lán
að upphæð tæplega 212,5 milljónir
króna reiknað á gengi lántöku-
dags. Áburðarverksmiðja ríkisins
tók lán vegna byggingar saltpét-
urssýruverksmiðju. Hinn 30. nóv-
ember sl. hafði verksmiðjan tekið
550 þúsund dollara af 2,2 milljón-
um dollara, sem lánsfjárloforðið
hljóðaði upp á. Ennfremur hafði
verksmiðjan tekið liðlega 3,3
milljónir franskra franka af öðru
lánsfjárloforði, sem var upp á lið-
lega 17,2 milljónir franskra
franka.
Á þessu tímabili tók Sements-
verksmiðjan eitt erlent lán að
upphæð 1.272.500 dollarar til 7
ára. Þá má nefna, að Útgerðarfé-
lag Norður-Þingeyinga tók lán að
upphæð liðlega 1,9 milljónir doll-
ara, sem jafngilti á lántökudegi
27,2 milljónum íslenzkra króna.
Búlandstindur hf. tók liðlega 2,8
milljóna dollara lán, sem jafngilti
um 23 milljónum íslenzkra króna
á lántökudegi.
Varðandi innlendar lántökur
kom fram, að seld hafa verið
spariskírteini að andvirði 37,7
milljónir króna. Seld hafa verið
happdrættisbréf fyrir 5 milljónir
króna. Bankar og sparisjóðir
höfðu 30. nóvember sl. keypt
skuldabréf af ríkissjóði fyrir 53,9
milljónir króna og lífeyrissjóðir
höfðu 30. nóvember sl. keypt
skuldabréf af ríkissjóði fyrir 52,2
milljónir króna.
Húsnæðismálastofnun fékk
lánsheimild hjá Seðlabankanum
ENDANLEGUR framboðslisti
Sjálfstæðisflokksins í Siglufirði til
sveitarstjórnarkosninganna í vor var
ákveðinn á fjölmennum fundi full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna hér I
Siglufirði í dag. Er hann skipaður
eftirtöldum mönnum:
1. Björn Jónasson, sparisjóðs-
stjóri, 2. Birgir Steinþórsson,
kaupmaður, 3. Axel Axelsson, rit-
ari, 4. Guðmundur Skarphéðins-
son, verkstjóri, 5. Konráð Bald-
vinsson, húsbyggingameistari, 6.
Listi sjálfstæðismanna á Hellis-
sandi hefur nú verið kunngerður. 10
efstu sæti listans skipa eftirtaldir:
1. Hákon Erlendsson, kennari,
2. Ólafur Rögnvaldsson skrif-
stofumaður,
3. Örn Hjörleifsson, skipstjóri,
4. Haukur Mattíasson, skóla-
stjóri,
5. Kristján Guðmundsson,
hreppstjóri,
6. Ingibjörg Óskarsdóttir, hús-
fyrir 40 milljónum króna. Um sl.
áramót hafði stofnunin notað 20
milljónir króna af þessari -lán-
tökuheimild. Hinn 30. nóvember
sl. höfðu lífeyrissjóðirnir keypt
skuldabréf af fjárfestingarlána-
sjóðum ríkisins fyrir 323 milljónir
króna og loks má geta þess, að
Áhaldahús Vegagerðarinnar tók
lán hjá Framkvæmdasjóði að fjár-
hæð 5,7 milljónir kréna og er það
lán gengistryggt.
Óli J. Blöndal, bókavörður, 7.
Kristín Halldórsdóttír, frú, 8.
Gunnar Ásgeirsson, vélstjóri, 9.
Valbjörn Steingrímsson, verka-
maður, 10. Karl Pálsson, kaup-
maður, 11. Haukur Jónsson, skip-
stjóri, 12. Sigurður Ó. Hauksson,
forstjóri, 13. Soffía Andersen, frú,
14. Runólfur Birgisson, fulltrúi,
15. Matthías Jóhannsson, kaup-
maður, 16. Margrét Árnadóttir,
frú, 17 Hreinn Júlíusson, verk-
stjóri, og 18. Knútur Jónsson,
skrifstofustjóri. FréttariUri.
móðir,
7. Baldur Kristinsson, skipstjóri,
8. Steinunn Kristjánsdóttir, hús-
móðir,
9. Guðrún Haraldsdóttir, hús-
móðir,
10. Sigurður Kristjónsson, skip-
stjóri.
Til sýslunefndar verða í kjöri
Óttar Sveinþjörnsson, rafvirkja-
meistari, og Ólafur Rögnvaldsson,
skrifstofumaður.
Sveskjusulta Blonduð ávaxtasulta Appelsínumarmelaði Biaberjasulta og Jarðarbeijasulta
Sanitas sultan er nú fáanleg í m.a. 650 gr. og 800 gr. glerkrukkum í 5 tegundum.
Sanitas
Siglufjörður:
Framboðslisti Sjálf-
stæðisflokksins ákveðinn
Siglufirði, 16. marz.
Listi Sjálfstæðismanna á
Hellissandi (Neshreppi)