Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 1
56 SIÐUR 71. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. PóUand: Þriggja ára verð- stöðvun? Varsjá, 30. marz. AP. í KJÖLFAR mestu verðhækkana sem orðið hafa i Póllandi hefur her- stjórnin i landinu nú gefið í skyn að á næstunni verði sett á þriggja ára verðstöðvun. Háttsettur embættis- maður lýsti því yfir í dag, að slík verðstöðvun væri nauðsynleg um leið og hann spáði því að þaö kynni að taka Pólverja sex ár að reisa við efnahagslífið í landinu, en ólíklegt væri að framleiðsla væri komin í samt horf og hún var áður en Sam- staöa fór að láta til sin taka, fyrr en eftir þrjú til fjögur ár. Fregnir bárust af því í dag að Lech Walesa hefði fengið að taka á móti eiginkonu sinni og yngstu dóttur, Maríu Viktoríu, um helgina þar sem hann er í stofufangelsi í úthverfi Varsjár. Hefðu mæðgurn- ar dvalist hjá honum á laugardag og sunnudag en komið aftur til Gdansk á mánudag. Fregn þessi hefur ekki fengizt staðfest, en sé hún sönn er þetta í fyrsta skipti sem Walesa fær að sjá telpuna, sem fæddist sex vikum eftir að herlög voru sett í Póllandi og verkalýðsleiðtoginn var sviptur frelsi. Myndin er tekin um leið og nefhjól geimferjunnar kom niður kl. 16.06 að íslenzkum tíma, en um leið skauzt þota frá NASA fram úr. AP-símmmynd. Lendingin tókst frábærlega Nýju Mexíkó, 30. marz. AP. GEIMFÖRUNUM Jack Lousma og Gordon Fullerton var fagnað sem hetjum eftir lendingu Kólumbíu á Hvítu söndum í Nýju Mexíkó í dag. Þóttu aðflug og lending takast frá- bærlega vel, en endanleg ákvörðun um lendingarstað var ekki tekin fyrr en hálfum öðrum tíma áður en lent var, og allt þar til ákvörðun var tek- in var tvísýnt hvort lending í dag væri möguleg vegna veðurs. Tíu minútum eftir lendinguna skall á hvassviðri á lendingarstað og leið ekki á löngu þar til skyggni var tekið að versna til muna, enda þótt ekki jafnaðist veðrið á við sandstorminn sem kom i veg fyrir lendingu Kól- umbíu í gær, eins og upphaflega var ráðgert. Á lendingarstað voru um 10 þúsund manns samankomin til að fagna geimförunum, en í gær höfðu um 25 þúsund safnazt þar saman. 39 mínútum eftir lendingu stigu geimfararnir út úr ferjunni og virtust þeir í fyrstu nokkuð stirðir. Við læknisskoðun kom í ljós að þeir eru við beztu heilsu eftir þessa átta daga för sína út í geiminn. Skömmu eftir lending- una ræddu þeir við Reagan forseta í síma. Óskaði forsetinn þeim til hamingju með afrekið og hældi þeim á hvert reipi fyrir frammi- stöðuna sem hann kvað til mikils sóma fyrir Bandaríkin. Geimfar- arnir léku á als oddi og sögðust hafa orðið varir við hross forset- ans er þeir flugu yfir búgarð hans í Kaliforníu. Vísindamenn telja að þessi þriðja ferð Kólumbíu hafi verið mjög árangursrík og segja þeir farkostinn tvímælalaust hafa sannað ágæti sitt þar sem allt hafi gengið að óskum þrátt fyrir ýmsa tæknilega erfiðleika. Veröur hún léttari á afmælinu? læeds, 30. marz. AP. DÍANA prinsessa, sem stödd er í Leeds ásamt sínum ektamaka, heiðr- aði í gær elliheimili með nærveru sinni og tók þá m.a. tali Edwin nokkurn Wilson. Talið barst að barneignum og afmælisdögum og lét Wilson þess getið að prinsessan og barnið yrðu á grænni grein ef fæðingin yrði 10. júní, en þann dag ættu þeir afmæli, Filippus drottn- ingarmaður og hann sjálfur. „Þannig verður þaö nú ekki,“ sagði prins- essan og hló. „Það er von á því 1. júlí, á mínu cigin afmæli.“ Eins og nærri má geta ollu fjölmiðlamanna sé réttur, að þessi ummæli miklu annríki hjá fjölmiðlum og í Buckingham- höll. Konunglegur fæðingalækn- ir vill ekkert láta hafa eftir sér og þeir hallarbúar segjast ekki hafa neinu að bæta við orð prinsessunnar, en vilja sízt af öllu staðfesta að sá skilningur barninu verði hjálpað í heiminn á afmælisdegi móður sinnar. Stjörnuspámenn fóru á kreik þegar í dag og spá þeir barninu löngu og ljúfu lífi, fæðist það þennan dag. Myndin hér að ofan er tekin í Leeds. Andstæðingar Duartes í E1 Salvador: Stefiia að myndun samsteypustjórnar San Salvador, 30. marz. AP. ÞÓTT treglega gangi að telja atkvæði í kosningunum til stjórnlagaþings í El Salvador, sem fram fóru um helgina, er mikið lagt upp úr því að kjörsókn hafi verið mikil, enda þótt skæruliðar hafi gengið hart fram í því að meina kjós- endum aðgang að kjörstöðum. Þær töl- ur sem fyrir liggja hafa ekki raskað þeim hlutróllum sem fram komu i fyrstu, en samkvæmt þeim hefur flokk- ur Duartes forseta hlotið 40% greiddra atkvæða en fimm flokkar sem orðaðir eru við hægri stefnu 60%. Flokkarnir fimm lýstu því yfir í dag að þeir stefndu að myndun stjórnar en í sam- eiginlegri stefnuskrá sem þeir birtu í dag er áherzla á það lögð að þeir muni hver um sig ekki haggast í hugmynda- fræðilegri afstöðu sinni. í stefnu- skránni er þjóðin lofuð fyrir að hafna kommúnisma og ofbeldi. Flokkarnir fimm eru sagðir hafa boðið Duarte aðild að fyrirhugaðri stjórn, en hann mun hafa hafnað til- boði um slíka samstjórn. Af opin- berri hálfu hefur óvíða verið fjallað um kosningarnar, en helztu blöð á Vesturlöndum eru á einu máli um það að hin mikla kjörsókn sé áfall fyrir skæruliðana í landinu, en kosn- ingaúrslitin muni sízt af öllu hafa í för með sér lok borgarastyrjaldar- innar. Le Monde, hið virta franska blað, sem aðhyllist vinstri stefnu, segir að kjörsóknin ein feli í sér ósig- ur uppreisnarmanna, um leið og hún sé vatn á myllu valdhafa í E1 Salv- ador og Bandaríkjastjórnar. Komm- únistamálgagnið franska, Le Matin, segir að kosningagrímuball herfor- ingjaklíkunnar hafi verið ömurlegur skrípaleikur, en gagnvart Banda- ríkjastjórn sé nú búið að innsigla einræðið, eins og komizt er að orði. Aftenposten í Osló spáir áframhald- andi borgarastyrjöld í kjölfar kosn- inganna og Die Welt og Frankfurter Allgemeine í V-Þýzkalandi eru sam- mála um að kosningarnar hafi verið ósigur skæruliða. The New York Times varar við því að of mikið mark sé tekið á niðurstöðum þeim sem virðist í sjónmáli en bendir á að kjörsóknin bendi til þess að lýðræð- islegir stjórnarhættir í E1 Salvador séu ekki eins fráleitir og margir hafi talið. Kosningafréttirnar virðast fara mjög í taugarnar á Sovétstjórn- inni, ef marka má árás TASS í dag, þar sem sagt var að Salvador-búum hafi verið smalað á kjörstað með morðhótunum og úrslitin séu „sigur ógnarinnar". Mexíkó: Þrjú þorp undir hraun Villahermosa, Melikó. 30. mars. AP. ÞRJÚ þorp hafa grafizt undir ösku og hrauni frá því að eldfjallið El Chichon- al í SA-Mexíkó tók að gjósa á mánu- daginn, auk þess sem slysfarir hafa orðið miklar i þessum hamförum. Björgunarmenn vita ekki til þess að fólk hafi grafizt undir rústum þorp- anna, en frá þvi í dögun á mánudag hafa um fimmtíu þúsund manns verið flutt á brott frá heimilum sinum í nám- unda við eldfjallið. I nágrenni eldstöðvanna eru helztu olíulindir í landinu, en ekkert tjón hefur orðið á mannvirkjum þar. Tugir manna eru í sjúkrahúsi vegna áverka sem þeir hafa orðið fyrir þegar gosefni hafa þeytzt upp úr gígnum. A.m.k. þrír eru í lífs- hættu. Björgunarsveitir eiga í mikl- um erfiðleikum með að sinna störf- um sínum, þar sem næsta nágrenni fjallsins er hulið gosefnum og brenn- andi ösku. Þó eru horfur á því að unnt sé að komast að fjallinu á næstu dögum og er óttazt að þá muni tala slasaðra hækka mjög.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.