Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
Biskupar deila á
ungverskan prest
Vín, 29. marz. AP.
MNG biskupa í Ungverjalandi hefur harðlega fordæmt „villukenningar" prests,
sem er sagður leiðtogi herskárra hópa kaþólskra manna, að sögn austurrísku
fréttaþjónustunnar Kathpress.
Þessi gagnrýni varð kunn vegna
ferðar Luigi Poggi, erkibiskups,
sendimanns páfa, til Ungverjalands.
Hann ræðir við stjórnvöld um erfið-
leika í kirkjunni og reynir að semja
við þau um skipun nýrra manna í
æðstu stjórn kirkjunnar.
Séra Gyoergy Bulanyi er sagður
andlegur leiðtogi róttækra kaþói-
ikka, sem sumir hverjir hafa hvatt
til þess að menn verði undaþegnir
herskyldu, ef þeir telji sig ekki geta
gegnt henni af samvizkuástæðum, og
beitt sér fyrir auknu sjálfstæði
sóknarpresta.
Heimildir í kirkjunni segja að
samtökin saki yfirmenn kirkjunnar
um að lifa ekki í anda guðspjallanna
og vinna of náið með ríkisstjórninni.
Stjórnin verður að samþykkja
skipun manna í biskupsembætti og
tilnefningar í stöður sóknarpresta
og kirkjunnar menn hafa svarið rík-
isstjórninni trúnaðareiða.
Biskupastefnan samþykkti á vor-
fundi sínum fyrr í mánuðinum að
vara við „alvarlegri undirróðurs-
hreyfingu, sem sæti gagnrýni trú-
aðra og réttsýnna manna og breiði
út rangar kenningar". Með tali um
undirróður virðast biskuparnir eiga
við að kenningar Bulanyi séu skað-
legar kirkjunni fremur en ríkis-
stjórninni.
Um 60% Ungverja, sem eru 10,7
milljónir, eru rómversk-kaþólskir,
a.m.k. í orði kveðnu.
Samkomulag virðist vera á næsta
ieiti í viðræðum Poggi og embætt-
ismanna um skipun biskupa og vara-
biskupa í fimm biskupsdæmum.
Hugiaðu vel
um lcnnumai
þær eru
beitarfrá
BOFORS framleiðir eingöngu gæðastál, sem notað er í gröfu-
tennur og marga aðra fylgihluti fyrir vinnuvélar.
BOFORS hannar alla fylgihluti þannig að hámarksnýting fæst
úr allri vélavinnu.
BOFORS lækkar ekki aðeins viðgerða- og viðhaldskostnað;
hönnunin tryggir betri nýtingu vélarinnar og þar með
ódýrari rekstrarkostnað líka. Það munar um minna.
BOFORS er betra en annað stál
, — það er sannað mál!
BOFORS á Islandi.
*Ð-
Tækjasalan hf
.....tæki í takt vió tímann.
Pósthólf21 200 Kópavogur S91- 78210
Leikkonan Jane Fonda flytur þakk-
arávarp eftir að hafa tekið við
Óskarsverðlaununum fyrir hönd föð-
ur síns, Henry Fonda, en þau fékk
hann fyrir bestan leik í aðalhlut-
verki í kvikmyndinni „On Golden
Pond“. Henry Fonda gat ekki tekið
við þeim sjálfur þar sem hann er
rúmfastur og hefur verið i nokkra
mánuði. APsimamynd
„Eldvagn-
arnir“
kjörin besta
kvikmyndin 1981
Hollywood, 30. nutre. AP.
„ELDVAGNARNIR“, bresk
mynd, sem fjallar um Óiympíu-
leikana 1924, kom öllum á óvart
með því að vinna Óskarsverð-
launin sem besta kvikmynd síð-
asta árs. Að auki var hún svo
verðlaunuð fyrir tónlistina, bún-
inga og upphaflegt handrit.
í myndinni segir frá tveimur
spretthlaupurum, sem keppa á
Olympíuleikunum í Amsterdam
1924. Eric Liddell (Ian Charle-
son) leikur trúaðan Skota, sem
ætlar að helga Drottni almátt-
ugum sigur sinn á hlaupabraut-
inni, en Harold Abrahams (Ben
Cross) er gáfaður Gyðingur,
sem einnig ætlar sér að sigra og
sýna um leið fram á þröngsýn-
ina og fordómana, sem honum
finnast allsráðandi í bresku
þjóðlífi. Á hlaupabrautinni tak-
ast þeir svo á í fleiri en einum
skilningi. Leikstjóri myndar-
innar er Hugh Hudson en
handritshöfundur Colin Wel-
land.
Carl Orff látinn
Miinchen, 30. mars. AP.
GARL Orff, tónskáldið þýska, sem
samdi „Carmina Iturana", er látinn i
Miinchen 86 ára að aldri, að því er
talsmaður Ríkisóperunnar í Bæjara-
landi tilkynnti í dag.
Carl Orff var hvað þekktastur
fyrir kantötuna „Carmina Bur-
ana“ fyrir einleikara, kór og
hljómsveit, en verkið samdi Orff
árið 1936 og er það byggt á latn-
eskum drykkjuvísum frá 13. öld.
Einnig gat hann sér gott orð fyrir
tilraunir með tólf tóna tónlist og
naut í því efni brautryðjendanna,
Schönbergs, Weberns og Bergs.
Orff var prófessor við Tónlistar-
háskólann í Bæjaralandi og for-
seti Bach-félagsins og hefur skrif-
að kennslubók í tónlist, sem haldið
hefur nafni hans hátt á loft. Carl
Orff var fæddur 10. júlí 1895 og
hóf tónlistarferil sinn í Múnchen,
höfuðborg Bæjaralands, þar sem
hann stundaði hljómsveitarstjórn.
ísknattleiksmenn
flýja í Austurríki
Klagenfurt, Austurríki, 30. mars. AP.
ÞRÍR pólskir landsliösmenn i is-
knattleik, sem hurfu úr hópi félaga
sinna í síðustu viku, hafa nú beðið
um hæli í Austurríki sem pólitískir
flóUamenn, að því er haft var eftir
talsmanni lögreglunnar í dag.
Pólverjarnir tóku þátt í B-riðli
heimsmeistarakeppninnar í ís-
knattleik, sem lauk sl. laugardag,
en nokkrum stundum eftir lokin
létu tveir leikmannanna sig
hverfa í leigubíl, sem þeir stukku
upp í, og sá þriðji komst úr greip-
um gæslumanna sinna með því að
stökkva út úr hraðlestinni til Vín-
ar. Að sögn lögreglunnar dvelja
mennirnir nú á heimilum vina
sinna.
Höfundur Nancy-
bókanna látinn
New Jersey, 29. mars. AP.
HOFUNDUR Nancy-bókanna, sem svo mörg íslensk ungmenni kannast við
frá bernskuárum sínum, Harriet Ntratemeyer Adams, lést af hjartaslagi
aðfaranótt sunnudags að heimili sínu; 89 ára gömul.
Það var faðir hennar, Edwart
Stratemeyer, sem lagði grunninn
að Nancy-bókunum. Hann skrifaði
fjöldann allan af bókum áður en
hann lést 1930, auk þess sem hann
lagði til hugmyndir í fjölda ann-
arra, sem hinir og þessir fullgerðu
síðan.
Er hann lést var hann með
þrjár Nancy-bækur tilbúnar.
Dóttir hans, Harriet, tók við
verkinu. Endurskrifaði bækurnar
undir dulnefninu Carolyn Keene.
Undir því nafni skrifaði hún
meira en 200 bækur fyrir útgáfu-
fyrirtækið, sem faðir hennar
stofnsetti.