Morgunblaðið - 31.03.1982, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
15
Henry Fonda ásamt konu sinni, Shirlee (t.h.), og dóttur, Jane, eftir að hann hafði fengið hin eftirsóttu Óskarsverð-
laun í hendur á heimili sínu í Bel-Air í Hollywood.
„Ég er svo hamingju-
samur og hreykinn“
— sagði leikarinn Henry Fonda þegar hann hafði fengið sín fyrstu Óskarsverðlaun
Hollywood, 30. mars. AP.
„ÉG ER svo hamingjusamur og hreyk-
inn,“ sagði leikarinn aldni, Henry
Fonda, eftir að tilkynnt hafði verið, að
hann hefði hlotið Óskarsverðlaunin
fyrir leik sinn í myndinni „On Golden
Pond“. Mótleikari hans, leikkonan
Katharine Hepburn, fékk einnig
Óskarinn fyrir sitt hlutverk en hún var
ekki viðstödd verðlaunaafhendinguna
og hefur ekki verið sl. 11 ár. Þetta er í
fjórða sinn, sem hún fsr þessi eftir-
sóttu verðlaun.
„Hann fór bara að gráta. Hann er
,líka svo viðkvæmur," sagði Shirlee
Fonda, eiginkona Henry Fonda, á
heimili þeirra hjóna í Bel-Air í
Hollywood en Henry hefur verið
rúmfastur í nokkra mánuði vegna
hjartveiki og annarra kvilla. „Hann
var allur eitt sólskinsbros. „Vissi ég
ekki,“ var allt og sumt sem hann
sagði."
Henry Fonda er 76 ára að aldri og
hefur leikið í kvikmyndum í 48 ár.
Eins og fyrr segir eru þetta hans
fyrstu Öskarsverðlaun en hann hef-
ur oft verið heiðraður fyrir leik sinn
á öðrum vettvangi. Dóttir hans, Jane
Fonda, tók vtð verðlaununum fyrir
hans hönd en hún sagði frétta-
mönnum á eftir, að það hefði í fyrstu
verið ósk föður hennar, að móðir
hennar tæki við. „En hún vildi vera
með pabba í kvöld eins og alltaf,"
sagði hún.
Katharine Hepburn, sem er 74 ára
gömul, fær nú Óskarsverðlaunin í
fjórða sinn en hún hefur ekki sótt
hátíðina sl. 11 ár og var í gær í
Washington þar sem hún fer með
hlutverk í leikritinu „West Side
Waltz" eftir Ernest Thompson, en
hann fékk Óskarsverðlaun fyrir
handritið að „On Golden Pond“.
„On golden Pond“ fjallar um hjón
og dóttur þeirra, sem Jane Fonda
leikur, og fer leikurinn fram í
sumarhúsi fjölskyldunnar. Henry
Fonda leikur prófessor á eftirlaun-
um, sem gerir hvort tveggja að fagna
og kvíða ellinni, sem er að færast
yfir hann, en kona hans (Hepburn)
er þolinmæðin uppmáluð og gerir
sitt tii að sefa ótta hans og koma á
sáttum milli þeirra feðginanna.
Katharine Hepburn
Lögreglumenn standa vörð um vagninn, sem tcttist í sundur í sprengingunni, sem varð í hraðlestinni milli Parísar og
Toulou.se í Frakklandi. Fimm manns létust og 28 slösuðust í sprengingunni, sem yfírvöld telja án efa verk
hryðjuverkamanna. AP-símamynd.
Frakkland:
Lestarsprengingin talin
verk hryðjuverkamanna
Limoges, Frakklandi, 30. mars. AP.
DÓMSMÁLAYFIRVÖLD í frönsku borginni Limoges hafa byrjað sakamála-
rannsókn á sprengingunni, sem varð í dag í hraðíestinni milli Toulouse og
Parísar, en í henni fórust fimm manns. Þar með er Ijóst, að yfírvöld telja að
um hryðjuverk hafí verið að ræða.
Louis Dumond, saksóknarinn í
Limoges, sagði í dag í yfirlýsingu,
sem afhent var fréttamönnum, að
ríkisstjórnin hefði búið mál á
hendur óþekktum mönnum vegna
sprengingarinnar í hraðlestinni en
í henni sprakk einn lestarvagn-
anna að heita má í tætlur. Fimm
menn fórust eins og áður sagði og
28 slösuðust, þar af þrír mjög al-
varlega.
Embættismenn járnbrautanna
segja, að 300 manns hafi verið með
lestinni þegar sprengingin varð en
hún var svo öflug, að brak úr
vagninum og fólkið, sem í honum
var, þeyttist allt að 50 metra frá
teinunum. Að sögn sprengjusér-
fræðinga getur það tekið allt að
tvær vikur að grafast fyrir um
orsök sprengingarinnar.
Franska lögreglan er viss um að
sprengju hafi verið komið fyrir
undir lestarvagninum en þrátt
fyrir það vilja menn ekki trúa því
að svo komnu máli, að Carlos,
hryðjuverkamaðurinn alræmdi,
hafi verið hér að verki, eins og
sumir hafa látið sér detta í hug, en
fyrr í mánuðinum hótaði hann að-
gerðum gegn frönskum stjórn-
völdum ef þau létu ekki lausa úr
haldi tvo félaga hans.
Handtökur
og átök á
Vestur-
bakkanum
Taibeh, ísrael, 30. mar.s. AP.
ÍSRAELSKIR lögreglumenn hand-
tóku í dag 38 Araba eftir að komið
hafði til allmikilla átaka víða á
Vesturbakka Jórdanar en Arab-
arnir voru að minnast þess, að
þennan dag árið 1976 féllu sex fé-
lagar þeirra í skothríð ísraelskra
hermanna.
Að sögn ísraelsku lögreglunn-
ar urðu óeirðir á fimm stöðum á
Vesturbakkanum og á Gaza-
svæðinu og hvað mestar í
Sakhnine í Norður-Galileu þar
sem fáni Palestínumanna var
víða dreginn að hún, en hann er
bannaður. I Jerúsalem var hand-
sprengju kastað á fjölfarinni
verslunargötu án þess þó að
valda fólki tjóni og þykir það
mikil mildi.
Um það bil 500 Arabar fóru í
friðsamlega mótmælagöngu í
borginni Taibeh, sem er um 30
km norðaustur af Tel Aviv, og
sagði borgarstjórinn í ræðu, sem
hann hélt, að Arabar væru að
„mótmæla innlimun lands okkar
í ísrael og aðgerðum stjórnar-
innar á Vesturbakkanum". Haft
er eftir heimildum, að ísraels-
stjórn hafi miklar áhyggjur af
ástandinu og óttist, að það geti
dregið dilk á eftir sér á alþjóða-
vettvangi svo ekki sé talað um
áhrifin í Arabaríkjunum.
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Arnarfell 19/04
Arnarfell .03/05
Arnarfell 17/05
ROTTERDAM:
Arnarfell 02/04
Pia Sandved 13/04
Arnarfell 21/04
Arnarfell 05/05
Arnarfell 20/05
ANTWERPEN:
Arnarfell 03/04
Pia Sandved 15/04
Arnarfell 22/04
Arnarfell 06/05
Arnarfell 20/05
HAMBORG:
Pia Sandved 17/04
Helgafell 22/04
Hvassafell 11/05
HELSINKI:
Zuidwal 15/04
Dísarfell 14/05
LARVIK:
Hvassafell 13/04
Hvassafell 26/04
Hvassafell 10/05
GAUTABORG:
Hvassafell 03/04
Hvassafell 14/04
Hvassafell 27/04
Hvassavell 12/05
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 15/04
Hvassafell 28/04
Hvassafell 12/05
SVENDBORG:
Helgafell 02/04
Hvassafell 16/04
Helgavell 23/04
Hvassafell 29/04
Helgafell 11/05
GLOUCESTER, MASS.:
Jökulfell 19/04
Skaftafell 27/04
HALIFAX, KANADA:
Jökulfell 21/04
Skaftafell 29/04
1 SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
FLUG OG BÍLL — SÉRGREIN ÚRVALS
Óýrasti ferðamátinn sumarið 1982
KAUPMANNAHÖFN
Fjölmargar geröir bíla - Ótakmarkaður akstur.
2 vikur 3 í bíl kr. 5.440.- á mann / 3 vikur 5 í bíl kr. 6.503.- á mann..
URVAL
S 26900
Umboðsmenn um allt land
Tryggðu þérfar
STRAX
í dag!
o
Við Austurvöli