Morgunblaðið - 31.03.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
17
ismál
eftir að mælendaskrá væri lokað og
lagði til að þar sem til stæði að skrá
sögu Framsóknarflokksins síðustu
áratugi væri rétt og skylt að sjá til
þess að þar verði þáttar Eysteins
Jónssonar í því að gera herinn var-
anlegan hérlendis sérstaklega getið.
Einnig tók til máls Helgi H.
Jónsson fréttamaður. Hann sagði
m.a. að drögin væru hugsmíð hans
og Þórarins Þórarinssonar ritstjóra
Tímans. Ólafur Jóhannesson utan-
ríkisráðherra hefði lesið þau yfir,
þegar þau hefðu verið lengri og ít-
arlegri, þ.e. áður en þurft hefði að
stytta þau. Hann hefði gert ýmsar
athugasemdir, sem Helgi sagðist
telja að komið hefði verið til móts
við. Þá deildi Helgi einnig á Ólaf Þ.
Þórðarson fyrir að skopast að þvi
sem fram kæmi í tillögunum, sagði
Helgi að þrátt fyrir smæð okkar,
gætum við haft áhrif á alþjóða-
vettvangi.
Björn Líndal Reykjavík tók undir
orð Ólafs hvað varðar friðarhreyf-
ingarnar og sagði vitað mál, að þær
friðarhreyfingar sem borið hefði
hvað mest á hefðu viljað einhliða
afvopnun í V-Evrópu. En við mætt-
um ekki vera haldin þeim barna-
skap að halda að friður yrði tryggð-
ur með því að við ein afvopnuðumst.
Haraldur Ólafsson lektor sagðist
sammála um að fella ætti niður síð-
ustu málsgreinina. Hann sagði
varnir íslands miklu víðtækari og í
stærra samhengi en svo, að unnt
væri að afgreiða málið, eins og þar
væri gert.
Utanríkismálaályktun fundarins
er svohljóðandi, með þeim breyting-
um sem samþykktar voru í fundar-
lok: „Aðalfundur miðstjórnar
Framsóknarflokksins telur nauð-
synlegt að íslendingar geri hvað
þeir geta til að draga úr hættunni á
því, að kjarnorkustyrjöld brjótist út
í heimnum. Nauðsynlegt er að
Framsóknarflokkurinn hafi frum-
kvæði í þessum efnum.
Aðalfundurinn fagnar þings-
ályktunartillögu þingmanna flokks-
ins um alþjóðlega ráðstefnu um af-
vopnnn á Norður-Atlantshafi.
Fundurinn lýsir stuðningi við
frjáisar og óháðar friðarhreyfingar
sem vinna að gagnkvæmri afvopn-
un.
Enn sem fyrr er það stefna Fram-
sóknarflokksins að taka þátt í varn-
arsamtökum vestrænna þjóða en
jafnframt að hinn erlendi her fari
héðan jafnskjótt og aðstæður leyfa.
Við ríkjandi aðstæður telur fundur-
inn rétt að fylgt sé óbreyttri stefnu
> öryggismálum. Átelja ber allar til-
raunir varnarliðsins til afskipta af
innlendum málefnum. Því íeggur
fundurinn áherslu á að umsvif
varnarliðsins verði í engu aukin.
Skilið verði á milli herliðs og þjóðar
eftir því sem frekast er unnt. Fagn-
ar fundurinn því starfi sem utanrík-
isráðherra hefur unnið á þessu
sviði.
Aðalfundurinn telur nauðsynlegt
að gerð verði grein fyrir því með
hverjum hætti ætlunin er að verja
ísland, ef til átaka kæmi. Slíka vit-
neskju telur aðalfundurinn nauð-
synlega fyrir starfsemi Almanna-
varna ríkisins."
SIF-skýrslan um salt-
verksmiðju afhent iðn-
aðarráðuneyti í gær
SÖLUSAMBAND íslenzkra fiskframleiðenda, SÍF, afhenti í gær iðn-
aðarráðuneytinu skýrslu, sem það hefur látið vinna um hagkvæmni
saltverksmiðju á Reykjanesi. SÍF afhendir ráðuneytinu skýrsluna til
skoðunar, en samkvæmt upplýsingum Friðriks Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra, er skýrslan enn trúnaðarmál, en hann kvaðst hafa
óskað cftir því við ráðuneytið að skoðun skýrslunnar yrði flýtt.
Almenna verkfræðistofan hefur
unnið skýrsluna, en tilurð hennar
er þannig, að á aðalfundi SÍF í
sumar var samþykkt að stjórnin
léti fara fram hlutlausa skoðun á
því, hver væri hagkvæmni þess
fyrir saltfiskframleiðendur að
nota innlent salt i samanburði við
innflutt salt. Könnunin tók aðeins
til hagkvæmnihliðar málsins, en
hin hliðin, þ.e. hver gæði fisksins
yrðu við notkun á innlendu salti er
enn órannsökuð. En í könnuninni
er gengið út frá því að hvort-
tveggja saltið sé jafngott. Aðeins
er borinn saman geymslukostnað-
ur og flutningskostnaður á inn-
fluttu salti á móti innlendu og
hvað það þýðir í tekjur fyrir verk-
smiðjuna, eigi hún að keppa við
innflutt salt á jafnréttisgrund-
velli. Þyrfti í raun að kanna
fjöldamörg atriði til viðbótar, ef
hagkvæmnin reynist nóg.
Friðrik Pálsson sagði aðspurð-
ur, að hann vissi ekki, hvenær
unnt yrði að gera niðurstöður
skýrslunnar opinberar. Það
byggðist á því, hve lengi það tæki
ráðuneytið að skoða skýrsluna.
' ' í < í í í í'y i \ í í í
HllíHH llllli
■I 1111
Friðarsinnar í Menntaskólanum við Hamrahlíð, efndu til hátíðardagskrár 30. mars í tilefni af 33 ára veru
íslendinga í NATO. Dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra flutti ávarp við góðar undirtektir rúmlega
250 skólanema.
U tankjör s taðakosning
hefst laugardag 24. apríl
Utankjörstaðakosning til
bæjar- og sveitarstjórna hefst
laugardaginn 24. apríl nk.
Mbl. ræddi við Óskar Frið-
riksson um starfsvið utan-
kjörstaðaskrifstofu Sjálfstæð-
isflokksins sem hann veitir
forstöðu. Óskar kvað skrif-
stofuna m.a. annast kjör-
skrárkærur, en nokkur brögð
hefðu verið að þvi að fólk sé
ekki á kjörskrá sökum tölvu-
mistaka. Þess vegna vildi
hann brýna fyrir fólki að
ganga úr skugga um að það sé
á kjörskrá áður en kosið yrði.
Einnig reyndi skrifstofan að
fylgjast með því hvort kjósend-
ur flokksins væru erlendis er
gengið væri til kosninga. Þá
gæti hún tekið við atkvæðum
þeirra áður en þeir færu utan
og komið þeim til skila. Óskar
vildi koma þeirri bón á fram-
færi að þessir kjósendur hefðu
samband við flokkinn svo að
tryggt yrði að atkvæði þeirra
kæmust rétta leið.
Að sögn Óskars leitast
skrifstofan við að hafa sam-
band við þá námsmenn erlend-
is sem styðja flokkinn og sér
um að atkvæði þeirra skili sér.
Hann kvað það mikilvægt að
aðstandendur námsmannanna
gæfu skrifstofunni upplýsingar
um dvalarstað þeirra erlendis
Óskar Friðriksson
til að öruggt væri að samband
yrði við þá haft.
Ennfremur hefði skrifstofan
milligöngu um að koma til
skila atkvæðum þeirra stuðn-
ingsmanna flokksins sem ekki
hafa tök á því að kjósa í þeim
kjördæmum sem þeir eru
skráðir í.
Að lokum vildi Óskar hvetja
alla þá sem hyggjast greiða
flokknum atkvæði sitt í utan-
kjörstaðakosningu að kjósa
sem fyrst.
Guðmundur Frímann,
Gylfi Gröndal,
Hafliði Vilhelmsson,
Indriði G. Þorsteinsson,
Ingimar Erl. Sigurðsson,
Jón frá Pálmholti,
Jón úr Vör,
Kristján Árnason,
Kristján Jóhann Jónsson,
Leifur Jóelsson,
Líney Jóhannesdóttir,
Málfríður Einarsdóttir,
Nína Björk Árnadóttir,
Oddur Björnsson,
Ólafur Ormsson,
Ólafur Haukur Símonarson,
Olga Guðrún Árnadóttir,
Páll Baldvinsson og ('A 3ja),
Sigurjón Sighvatsson (‘/2 3ja),
Pétur Gunnarsson,
Pjetur Hafstein Lárusson,
Sigurður A. Magnússon,
Sigurður Pálsson, Einar Kristjánsson
Sigvaldi Hjálmarsson, frá Hermundarfelli,
Stefán Júlíusson, . Eiríkur Jónsson,
Stefán V. Snævarr, Guðjón Sveinsson,
Steingerður Guðmundsdóttir, Guðmundur Daníelsson,
Ulfur Hjörvar, Guðmundur G. Hagalín,
Valdís Óskarsdóttir, Gunnar Dal,
Vésteinn Lúðvíksson, Hannes Sigfússon,
Þórarinn Eldjárn, Helgi Sæmundsson,
Þóroddur Guðmundsson, Hrafn Gunnlaugsson,
Þorsteinn Antonsson, Inga Huld Hákonardóttir,
Þorsteinn Marelsson, Jóhannes Helgi,
Þórunn Elfa Magnúsdóttir, Jón Bjarman,
Þráinn Bertelsson, Jónas Guðmundsson, Kristján frá Djúpalæk,
2ja mánaða laun hlutu: Kristmann Guðmundsson,
Aðalsteinn Ásberg Sigurðss., Lúðvík Kristjánsson,
Agnar Þórðarson, Páll H. Jónsson,
Andrés Indriðason, Matthías Johannessen,
Ármann Kr. Einarsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson,
Björn Bjarman, Sveinbjörn I. Baldvinsson,
Einar Guðmundsson, Vilborg Dagbjartsdóttir.
Geðdeild Borgarspítalans:
Hannes Pétursson
ráðinn yfírlæknir
Hannes Pétursson, geðlæknir,
hefur verið ráðinn yfirlæknir geð-
deildar Borgarspítalans í Reykjavik.
Karl Strand, sem hefur gegnt því
starfi, lætur nú af því fyrir aldurs
sakir og bárust fjórar umsóknir um
stöðuna.
Hannes Pétursson er fæddur í
Reykjavík, árið 1947, og lauk hann
stúdentsprófi frá MR 1968.
Læknaprófi frá Háskóla íslands
lauk hann í júní 1975 og haustið
1976 hélt hann til framhaldsnáms
í geðlækningum í Englandi við
Maudsley Hospital í London. Lauk
hann þaðan sérfræðiprófi í maí
1979 og hefur jafnframt stundað
sérfræðinám og rannsóknir við
Institute of Pshyciatry. Vinnur
hann nú að undirbúningi doktors-
ritgerðar í sumar og kemur síðan
til starfa við geðdeild Borgarspít-
alans.
Kona Hannesar Péturssonar er
Júlíana Sigurðardóttir og eiga þau
tvær dætur. Hannes Pétursson geðlæknir