Morgunblaðið - 31.03.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. MARZ 1982
27
tengdabörn bið ég Guð að styrkja
á þessari hryggu stund.
Jón Jónasson.
Kveðja frá Meistara-
félagi húsasmiða
Þegar voveifleg tíðindi berast
okkur til eyrna, þá heyrum við að
vísu, en skynjum í fyrstu ekki til
fullnustu merkingu orðanna. Það
er eins og tíminn hægi á sér
augnablik.
Síðan kemur skilningurinn og
hugurinn fyllist örvæntingu og
sorg og loks tómleika og trega.
Þannig fór mér, þegar mér voru
færð þau hörmulegu tíðindi að
Sigurbjörn Guðjónsson hefði lát-
ist við vinnu sína ásamt Sigur-
karli syni sínum.
Sigurbjörn hefur um árabil ver-
ið einn af forustumönnum í sam-
tökum byggingameistara. Hann
var einn af stofnendum Meistara-
félags húsasmiða árið 1954 og var
alla tíð einn af virkustu félögum
þess. Hann átti sæti í aðalstjórn í
sex ár og þar af formaður í tvö ár
1970—’72. Síðan hefur hann gegnt
ýmsum störfum fyrir félagið, átt
sæti i trúnaðarmannaráði, verið
gjaldkeri styrktarsjóðs og fulltrúi
félagsins í fræðslunefnd og Iðn-
ráði Reykjavíkur, svo nokkuð sé
nefnt. Það er mikill fengur fyrir
félagssamtök að eiga í sínum röð-
um menn eins og Sigurbjörn, sem
ævinlega var tilbúinn til starfa ef
leitað var eftir og lagði góðum
málum lið með hlýrri og jákvæðri
framkomu sinni. En það var líka
happ fyrir félagið, að eiginkona
Sigurbjarnar, Stella Magnea
Karlsdóttir, hafði brennandi
áhuga á störfum hans, og studdi
hann af ráðum og dáð.
Þannig var hún frumkvöðull
þess að eiginkonur húsasmíða-
meistara stofnuðu með sér félag,
Kynningarklúbbinn Björk, og var
formaður hans fyrstu árin. Kynn-
ingarklúbburinn hefur starfað af
miklum þrótti og það er ekki
ofsögum sagt, að með tilkomu
hans hafi félags- og skemmtanalíf
húsasmíðameistara gjörbreyst til
hins betra. Meistarafélag húsa-
smiða stendur því í mikilli þakk-
arskuld við þau hjón, skuld fyrir
forustustörf þeirra, fyrir sam-
heldni þeirra og fyrir þann
ómælda tíma sem þau hafa gefið
samtökunum.
Við setjum von okkar og trú á
það, að allt okkar líf sé í alvalds-
hendi, en við skiljum ekki þau rök
sem að baki liggja. Við skiljum
ekki það vald sem refsar saklaus-
um með svo grimmilegum hætti,
sundrar fjölskyldum og skilur eft-
ir ógræðanleg sár.
En þegar klukkan fer aftur að
tifa og mesti sársaukinn hvarflar
frá, þá sækja minningarnar að og
við samferðamenn og samherjar
Sigurbjarnar eigum skýra mynd í
huga af gjörvilegum manni, fríð-
um sýnum, drenglunduðum, hóg-
værum en hreinskiptnum. Megi sú
mynd og minningar um störf hans
verða þeim, sem á eftir koma,
hvatning til góðra verka. Ég vil
persónulega og fyrir hönd Meist-
arafélags húsasmiða þakka þeim
hjónum ótaldar ánægjustundir við
störf og í leik, um leið og ég bið
Stellu Magneu og fjölskyldu henn-
ar allrar blessunar í hennar miklu
sorg.
Kristinn Kristinsson
Þegar allt leikur í lyndi og hlut-
irnir ganga að óskum, þá finnst
okkur að við höfum valið réttu
sporin, við séum sterk og reiðubú-
in til stórra átaka og séum vel bú-
in til þess að stýra fram hjá hverj-
um vanda og okkar vilji ráði og
áætlanir standist.
Okkur hættir þá tl þess að
gleyma, hve skammt er á milli
þeirrar gæfuleiðar, sem við viljum
ganga og vegar sorgar og áfalla.
Þegar svo á reynir og vinir hverfa
á braut yfir móðuna miklu, vökn-
um við upp við það, hve vanmátt-
ug við erum, þegar við stöndum
frammi fyrir þeim örlögum, sem
við síst vildum mæta. Þá er afls
vant og við drúpum höfði meira og
minna ráðalaus, þá þörfnumst við
hjálpar og styrks frá þeim mátt-
arvöldum, sem veitt geta líkn í
nauð.
Orða var vant, þegar fregnin um
Guðrún Elísa Þórð-
ardóttir — Minning
hið sviplega fráfall feðganna Sig-
urbjörns Guðjónssonar og Sigur-
karls sonar hans barst. Stutt var
liðið frá því við Sigurbjörn vorum
saman á góðri stundu þar sem
glaðværðin ríkti. Sigurbjörn og
kona hans, Stella, yoru í góðum
hópi, sem kom reglulega saman
sér til gagns og ánægju undan-
farna vetur. Sigurbjörn átti vel
heima í slíkum hópi. Hann var
einstaklega léttur í lund og hug-
ljúfur maður og notalegt var að
vera í návist hans. Það leyndist
ekki að Sigurbjörn naut trausts
þeirra, sem þekktu hann. Hann
bar mikla umhyggju fyrir fjöl-
skyldu sinni og bar heimili þeirra
hjónanna þess vitni að það var
byggt upp af samhentum höndum,
smekkvísi og myndarskap. Sigur-
karl þekkti ég ekki nema af af-
spurn en þar fór góður og dugmik-
ill maður, sem mikils mátti af
vænta. Þegar við félagar Sigur-
björns kveðjum hann hinstu
kveðju þá þökkum við samveru-
stundirnar. Góður félagi er horf-
inn úr hópnum. Feðgunum biðjum
við blessunar á nýjum vegum. Éig-
inkonum þeirra og aðstandendum
öllum flytjum við innilegar sam-
úðarkveðjur.
Páll V. Daníelsson
Sú blákalda og hörmulega stað-
reynd að Sigurbjörn tengdafaðir
minn, eða Diddi eins og við kölluð-
um hann, og Sigurkarl mágur séu
látnir vekur mann til umhugsunar
um tilgang þessa lífs og maður
spyr sjálfan sig aftur og aftur
hvers vegna þeir hafi verið teknir
frá okkur, menn sem voru í blóma
lífsins, heilbrigðir og svo lífsglað-
ir. En maður fær ekkert svar. Það
er sárt að hugsa til þess að hinir
ástkæru feðgar sem voru svo mjög
dáðir hafi lokið sínu hlutverki hér
á jörðu, hlutverki sem hefði getað
orðið miklu lengra og sem þeir
höfðu gegnt svo vel. En til þess að
beiskjan nái ekki yfirtökum á
okkur gagnvart æðri máttarvöld-
um verðum við að trúa.því að þeim
hafi verið úthlutað öðru hlutverki
í öðrum heimi eins og bíður okkar
allra.
Því miður fékk ég ekki tækifæri
til þess að kynnast náið Sigurkarli
mági mínum vegna búsetu hans og
fjölskyldunnar í Svíþjóð en eftir
þau allt of stuttu kynni skilur
hann samt eftir sig minningu um
góðan dreng sem ætíð var svo kát-
ur og hress í viðmóti og sem hafði
svo skynsamlegar og fordómalaus-
ar skoðanir á hlutunum.
Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi
að fá að kynnast vel honum Didda
tengdapabba þar sem ég kom inn á
heimili þeirra aðeins 17 ára gömul
og má með sanni segja að mér hafi
verið tekið þar opnum örmum. Það
sem hreif mig mest í dvöl minni
hjá þeim var hve gott og innilegt
samband þeirra hjóna var sem ég
held að hafi verið með eindæmum.
Ef ég ætti að reyna að lýsa inn-
ræti tengdapabba þá rekur mig í
vörðurnar því ég held að það séu
ekki til nógu sterk og falleg lýs-
ingarorð yfir manngæsku hans og
geislandi persónuleika.
Tengdapabbi reyndist okkur
börnunum sínum ákaflega vel og
var hann okkar góði ráðgjafi. Um-
hyggja hans fyrir okkur var mikil
og áhugi á öllu því sem við tókum
okkur fyrir hendur, hvort sem það
var lærdómur, vinna eða uppbygg-
ing heimila okkar, og var hann
ailtaf boðinn og búinn til þess að
rétta okkur hjálparhönd ef eitt-
hvað bjátaði á og var aldrei í rónni
fyrr en úr rættist.
Barngóður var hann Diddi og
var mikil unun af því að horfa á
hve hann var ætíð óþreytandi í
leik við barnabörnin. Harma ég
það að Viktor Björn, sonur okkar 9
mánaða, hafi ekki fengið að kynn-
ast honum meira.
En við sem syrgjum hina látnu
feðga huggum okkur við fallegu
minningarnar um þá og að þeir lifi
ætíð í afkomendum sínum og
verkum.
Didda
Að morgni hins 24. mars bárust
okkur þau hörmulegu tíðindi, að
starfsfélagi okkar og vinur, Sigur-
karl Sigurbjörnsson, hefði farist
af slysförum ásamt föður sínum
kvöldið áður.
Sigurkárl heitinn starfaði sem
yfirmaður tölvudeildar islenskra
Aðalverktaka frá 1. mars 1981 til
dauðadags. Kynni okkar voru því
stutt, aðeins rúmt ár, en nægði þó
til að sannfæra okkur um mann-
dóm hans og kosti. Með hlýju við-
móti, drengilegri framkomu og
óbilandi samstarfsvilja, ávann
hann sér traust og virðingu allra
starfsfélaga sinna. Starfi Sigur-
karls var ærinn, á hans herðum
hvíldi hiti og þungi daglegs amst-
urs tölvuvæðingar fyrirtækisins,
og leysti hann öll þau störf af
hendi af stakri prýði.
Aðalsmerki Sigurkarls verður
okkur félögum hans þvi til eftir-
breytni um ókomna tíð, og verður
seint þakkað það lán að fá tæki-
færi til að kynnast slíkum öðling,
enda þótt samvera okkar hér í
heimi yrði styttri en efni stóðu til.
Má með ^nni segja að vegir Guðs
séu órannsakanlegir.
Við biðjum allar góðar vættir að
styrkja Hrefnu eiginkonu hans,
dæturnar tvær, móður hans og
aðra ástvini í hinni miklu sorg
þeirra.
Okkur þykir við hæfi að enda
þessa kveðju með eftirfarandi lín-
um úr Hávamálum:
Deyr fé, deyja frændur
deyr sjálfur et sama
en ordstír deyr aldregi
hveims sér gódan getur.
(F.h. starfsfélaga hans
hjá fsl. Aðalverktökum,
E.H., Ó.T., S.J.
Miðvikudaginn 23. mars síðast-
liðinn barst okkur sú harmafregn
að Sigurbjörn Guðjónsson og elsti
sonur hans, Sigurkarl, hefðu látist
af slysförum kvöldið áður, þar sem
þeir voru við byggingarfram-
kvæmdir í Mosfellssveit.
Sigurbjörn smiður, eins og við
kölluðum hann, hóf störf hjá
Karnabæ árið 1978 og sá þar um
viðhald og endurbætur á þeim
húsum sem fyrirtækið hefur að-
setur í. Má nærri geta hversu um-
fangsmikið slíkt starf er, því oft
þarf að breyta innréttingum í
fyrirtæki sem þessu. En Sigur-
björn leysti þessi verkefni með
stakri prýði. Æðruleysi og gott
skap voru hans aðalsmerki í dag-
legri umgengni. Ef eitthvað bját-
aði á, svo sem að rúða brotnaði,
krani fór að leka, eða það þurfti að
setja upp hillu, svo eitthvað sé
nefnt, þá var náð í Sigurbjörn. Úr
öllum slíkum vandamálum leysti
Sigurbjörn af slíkri samviskusemi
að eftir var tekið. Hnyttni í til-
svörum og léttleiki við störf eru
kostir sem hann var búinn í ríkum
mæli. Einnig er hann okkur minn-
isstæður úr skemmtikvöldum
þeim sem haldin hafa verið á veg-
um fyrirtækisins, þar var Sigur-
björn alltaf manna kátastur og
fyrstur til í alls kyns leikjum sem
þar voru til skemmtunar.
Það er vandfyllt skarðið sem nú
hefur höggvið í okkar hóp. Við
starfsfélagar Sigurbjörns þökkum
fyrir samfylgdina og minnumst
Sigurbjörns og léttleika hans um
ókomna tíð.
Eiginkonu Sigurbjörns,
Magneu, börnum þeirra og öðrum
ættingjum, vottum við okkar
dýpstu samúð.
F.h. Starfsmanna-
félags Karnabæjar,
Örn Ingólfsson.
Fædd 8. apríl 1908.'
Dáin 2. mars 1982.
Síðbúin kveðja mín er helguð
minningu stjúpu minnar, Guðrún-
ar Elísu Þórðardóttur, er lést á
Landspítalanum annan þessa
mánaðar og hafði þá átt við lang-
varandi vanheilsu að stríða.
Guðrún var fædd í Holti á
Barðaströnd, Vestur-Barða-
strandarsýslu, 8. apríl 1908. For-
eldrar hennar voru Ingibjörg Elí-
asdóttir og Þórður Marteinsson og
systkinahópurinn var stór, 12
börn. Eftirlifandi systkini hennar
eru þrjú, Ólafía, Marta og Elías.
Ung að árum stofnaði Guðrún
til hjónabands með sveitunga sín-
um, Marteini Gíslasyni frá Siglu-
nesi, og hófu þau hjúskap sinn á
Patreksfirði, þar sem Marteinn
stundaði sjóinn. Og samhentum
höndum byggðu þau börnum sín-
um gott heimili þótt efnin væru
lítil. Börnin urðu fimm og fjögur
þeirra komust til fullorðinsára, en
fyrsta barn þeirra, lítil stúlka, dó
ung. Þau eru: Halldóra, gift Grét-
ari Jónssyni og búsett á Akranesi.
Halldóra lést árið 1974; Þórður,
kvæntur Guðrúnu Halldórsdóttur,
og búa þau í Holti; Þórdís, gift
Ólafi Davíðssyni, búset't í Sand-
gerði; Nói, kvæntur Fríðu Sigurð-
ardóttur og búsett í Tálknafirði.
En hamingjan er oft fallvölt í
lífi mannanna og skyndilega dró
ský fyrir sólu í lífi Guðrúnar þeg-
ar eiginmaður hennar dó af slys-
förum árið 1941. Börnin voru öll á
æskuskeiði og enginn dans á rós-
um i þá daga, frekar en nú, að
standa uppi einstæð fjögurra
barna móðir, án nokkurrar hjálp-
ar frá hinu opinbera, en verða
þess í stað að trúa á mátt sitt og
megin og treysta á góðsemi ann-
arra. Margt fólk, bæði skyldmenni
og vinir, lagði Guðrúnu liðsinni á
þessum erfiðu stundum og mat
hún það mikils æ síðan. „Drottinn
telur tárin mín, ég trúi og huggast
læt.“ Ljóðlínur þessar eiga vel við
Guðrúnu í þessum erfiðleikakafla
í lífi hennar. Hún trúði á Guð og
lét huggast, staðráðin í því að sjá
börnum sínum farborða og koma
þeim til manns.
Nokkru síðar fluttist Guðrún til
Breiðafjarðareyja ásamt tveimur
yngstu börnunum, Nóa og Þórdísi,
og réð sig í vinnumennsku í Hval-
látur og síðar í Svefneyjar. Elstu
börnin urðu eftir í góðum höndum;
Halldóra hjá móðursystur sinni,
Mörtu í Fit, og Þórður hjá afa sín-
um á Siglunesi. Húsbændur Guð-
rúnar voru gott fólk sem reyndist
henni og börnum hennar vel. En
vinnudagurinn var langur og
börnin þörfnuðust móðurblíðu og
umönnun. Hvorutveggja fengu
þau í ríkum mæli og alkunna var,
hversu mikið metnaðarmál það
var Guðrúnu, að börnin væru allt-
af hrein og snyrtileg. En þreytt
hefur hún að öllum líkindum oft
gengið til hvílu á kvöldin.
Leið Guðrúnar lá síðan til Flat-
eyjar og þar kynntist hún föður
mínum, Jóni Matthíassyni, sem
leiddi til þess að þau fara að búa
saman. Arið 1948 fæddist þeim
dóttir, Lilja Sigurrós, gift Ægi
Geirdal og eiga þau fjögur börn.
Fjórum árum síðar fluttu þau suð-
ur og festu kaup á húsi á Bjarn-
hólastig 8 í Kópavogi. Þar var
heimili þeirra æ síðan og ári
seinna, eða 1953, giftu þau sig.
Faðir minn og Guðrún voru ólík
að eðlisfari, en sambúð þeirra
reyndist farsæl og byggðist á
gagnkvæmum skilningi og tillits-
semi þroskaðs fólks. Þegar aldur
og heilsuieysi sótti á, studdu þau
og hjálpuðu dyggilega hvort öðru.
Bæði höfðu ánægju af því að
blanda geði við fólk og oft var
gestkvæmt á heimili þeirra þrátt
fyrir lítil húsakynni, enda allir
hjartanlega velkomnir og vel var
veitt þótt efnin væru lítil.
Lilja varð þeim góð dóttir og
styrka stoðin í veikindum þeirra.
Hún og eiginmaður hennar Ægir,
höfðu rétt nýlokið við að byggja
nýtt hús á Bjarnhólastíg 8, þar
sem Guðrún hefði átt ríkulega
hlutdeild og skipað stóran sess í
heimilislífinu, hefði henni auðnast
að lifa hér áfram.
Sama máli gegndi um önnur
börn Guðrúnar og barnabörn, sem
öll hugsuðu vel um mömmu sína
og ömmu. Sérstaklega vildi ég þó
nefna elstu dætur Lilju og Ægis,
Freyju og Sigurborgu. Þær voru
óþreytandi að heimsækja ömmu
sína í spítalalegum hennar og
dvöldu hjá henni næturlangt í ein-
veru hennar eftir að hún missti
mann sinn í fyrra.
Guðrún var hin sterka eik sem
bognaði ekki, þótt stormarnir
næddu, oft hvasst, í lífi hennar. í
síðasta hretinu sýndi hún okkur
það svo sannarlega, en það var
þegar hún, sársjúk, neytti allra
sinna krafta til þess að annast eig-
inmann sinn í banalegunni, en
bann dó 17. mars fyrir ári.
Ég þakka Gunnu okkar fyrir
mína hönd og barna minna, allar
liðnar samverustundir og óska
henni góðrar heimkomu til ljóss-
ins byggða.
Aðalbjörg Jónsdóttir
t
Konan mín,
CATHERINE MURPHY AXELSSON,
andaöist 25. mars 1982. Bálförin hefur farið fram.
Björn Axelsaon,
1722 Scenic Orive.
Meryville, Tenn. 37801,
USA.
t
Eiginkona mín, móöir okkar og tengdamóöir,
OKTAVÍA JÓHANNA KARLSDÓTTIR,
er lézt 22. marz, veröur jarösungin frá Sauöaneskirkju í dag,
miövikudaginn 31. marz, kl. 2 e.h.
Þorgrfmur Kjartansson,
börn og tengdabörn.
t
Eiginkona mín,
INGIBJÖRG GUDBJARNAROÓTTIR,
Lindargötu 29,
sem lóst 25. mars, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 1. apríl kl. 10.30.
Siguröur Bjarnason.
t
Litli drengurinn okkar,
SIGURÐUR INGI,
andaöist i Landspítalanum 19. marz sl.
Jarðarförin hefur farið fram.
Thelma Sigurðardóttir, Jón Otti Jónsson.