Morgunblaðið - 22.04.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982
5
Tónleikar
í Norræna
húsinu
í KVÖLD halda Freyr Sigurjónsson
og Anna Guðný Guðmundsdóttir
tónleika í Norræna húsinu klukkan
20.30.
Eftir að hafa lokið prófi úr
Tónlistarskólanum í Reykjavík
héldu bæði utan til frekara náms í
Englandi, Anna Guðný í píanóleik
við Guildhall School of Music and
Drama í London, og Freyr í
flautuleik við Royal Northern
College of Music í Manchester.
A efnisskrá eru verk eftir tón-
skáldin Couperin, Pixis, Widor,
Martinu og Jolivet.
Messað í grunni
Víðistaðakirkju
FYRIR RÉTTU ári var tekin fyrsta
skóflustunga að væntanlegri Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði. Grunnur
kirkjunnar er nú uppsteyptur og
verður haldið áfram með bygging-
una eftir því sem fé hrekkur til. A
sumardaginn fyrsta er ráðgert að
messa á grunni kirkjunnar og verða
við þá athöfn skírð tvö börn.
Ef veður verður óhagstætt verð-
ur athöfnin færð inn í Víðistaða-
skóla, sem stendur skammt frá
væntanlegri kirkju. Við athöfnina
munu auk sóknarprests þjóna þeir
sr. Gunnþór Ingason og sr. Ingólf-
ur Guðmundsson. Að lokinni at-
höfninni verður kaffisala Systra-
félags Víðistaðasóknar og fer hún
fram í Víðistaðaskóla. Þar verður
og dregið í byggingarhappdrætti
kirkjunnar. Það er von allra, sem
að framkvæmd þessa vinna, að
sem flestir leggi leið sína á sumar-
daginn fyrsta á kirkjustæðið, njóti
þar guðsþjónustu og fái sér í leið-
inni sumarkaffi hjá Systrafélag-
inu.
Sigurður H. Guðmundsson.
Grund í Eyjafirði og
Hvítárvellir til sölu
Hjá fastcigna.sölunni Eignamiðlun í
Reykjavík eru nú til sölu tvær kunnar
jarðir, Grund í Eyjafirði og Hvítárvellir
í Borgarfirði. Jarðirnar bera raunar
nöfnin Grund II og Hvítárvellir II, þar
sem þeim hefur báðum verið skipt, og
er aðcins annar hlutinn til sölu í báð-
um tilvikum.
Grund í Eyjafirði er ein af kunn-
ustu jörðum á íslandi, og þar hafa
löngum búið þjóðkunnir menn, og
þar hefur verið rekið mikið bú fram
á síðari ár. Jörðin er í miðjum Eyja-
firði, einu frjósamasta landbúnað-
arhéraði landsins, og ræktað land á
Grund II er milli 80 og 100 hektarar.
Hvítárvellir II í Borgarfirði er
kunn laxveiðijörð, en jörðin á land
bæði að Hvítá og Grímsá. Landrými
er um 190 ha., þar af um 28 ha. full-
ræktaðs lands. Jörðin er húsalaus,
að öðru leyti en því að veiðihús er við
ármót Hvítár og Grímsár.
Margir kannast einnig við Hvít-
árvelli, af því að þar bjó á sinni tíð
hinn kunni umsvifamaður, er á ís-
landi hefur jafnan verið nefndur
„Baróninn á Hvítárvöllum, en við
hann er Barónstígur í Reykjavík
einnig kenndur.
Sverrir Kristinsson á Eignamiðl-
uninni sagði í samtali við blm. Morg-
unblaðsins í gær, að erfitt væri að
setja verð á jarðir þessar eða verð-
leggja þær nákvæmlega. Ljóst væri
þó, að um væri að ræða milljónir
króna í báðum tilvikum, hundruðir
milljóna gamalla króna.
Dalbrautarheimilid:
Opið hús hjá öldruðum
í DAG, sumardaginn fyrsta, verður
opið hús í Þjónustuíbúðum aldraðra,
Dalbraut 27 í Reykjavík.
Dagskráin hefst klukkan 13.45
með leik skólahljómsveitar Laug-
arnesskóla. Klukkan 14.00 verður
húsið opnað fólki til sýnis og verð-
ur forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, heiðursgestur. Gefst
fólki tækifæri til að skoða húsið
og kynnast starfseminni sem þar
fer fram allt til klukkan 18.00.
Þá verður selt kaffi og meðlæti
og rennur allur ágóði til kaupa á
myndbandi fyrir íbúa hússins.
Megrunarnámskeið
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefst nýtt megrunarnám-
skeiö 29. apríl (bandariskt megrunarnámskeið sem hefur
notiö mikilla vinsaslda og gefiö mjög góöan árangur). Nám-
skeiðiö veiti: alhliöa frœóslu um hollar lífsvenjur og vel sam-
sett mataræöi, sem getur samrýmst vel skipulögöu, venju-
legu heimilismataræói.
Námskeióió er fyrir þá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma í veg fyrir aö vandamáliö endurtaki sig
• sem vilja foröast offitu og þaö sem henni fylgir.
Upplýsingar og innritun í síma 74204.
Kristrún Jóhannsdóttir,
manneldisfræöingur.
Gísli Sigurðsson sýnir að Kjarvalsstöðum:
Sextíu málverk sem
öll eru byggð á ljóðum
Ljósni.: Kristján Einarwwn.
Gísli Sigurðsson við eitt verks sinna á sýningunni, Martröð, eftir Ijóði
Kristjáns frá Djúpalæk um draum Guðrúnar á Bægisá.
f DAG, sumardaginn fyrsta klukkan
3 síðdegis, verður opnuð í Kjarvals-
sal á Kjarvalsstöðum sýning Gisla
Sigurðssonar á 60 málverkum, sem
hann hefur málað við jafn mörg Ijóð
og nefnir sýninguna í samræmi við
það: Myndir úr Ijóðheimi.
Listmálarar hafa oft sótt föng í
ljóð, en þetta mun í fyrsta sinn að
efnt er til stórrar sýningar, þar
sem einungis er leitað á þessi mið.
Lengst burt frá samtíðinni hefur
Gísli sótt í Njálu; auk Jjess er ein
mynd byggð á Sólarljóðum frá 13.
öld, en með einni undantekningu
er allt hitt byggt á ljóðum þessar-
ar aldar og eftir íslenzk skáld. í
sumum þeirra koma fyrir náttúru-
og árstíðalýsingar, í öðrum frá-
sagnir og sum eru súrrealísk.
Gísli Sigurðsson sýndi síðast
myndir hér syðra í Norræna hús-
inu 1978, en síðastliðin þrjú ár
hefur hann unnið markvisst að
þessari sýningu og hóf verkið með
því að leita sér að yrkisefnum í um
það bil 200 ljóðabókum. Sýn-
ingargestir fá í hendur veglega
sýningarskrá, þar sem viðkomandi
ljóð eru prentuð, en um það segir
Gísli í skránni:
„Þau 60 ljóð, sem ég hef sótt
föng í, eru að einhverju eða öllu
leyti prentuð í sýningarskránni.
Það er gert vegna þess að margir
hafa yndi af kveðskap og finnst ef
til vill fróðlegt að gaumgæfa,
hvering hægt er að nota skáld-
skaparmál í myndir. Ljóðin eru
hinsvegar ekki birt hér vegna þess
að það sé nauðsynlegt sýningar-
innar vegna. Umfram allt er
myndunum ætlað að vera sjálf-
stæð verk og þær eiga ekki að
þurfa neinar skýringar eða texta
með sér til þess að lifa á sinn
myndræna hátt.“
Lesendur Morgunblaðsins
þekkja Gísla og verk hans úr Les-
bókinni, þar sem hann hefur starf-
að ásamt með myndlistinni síð-
astliðin 15 ár. Fyrstu einkasýn-
ingu sína hélt hann 1964, en þessi
er sú sjöunda og mun hún standa
fram til 10. maí.
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
3, 5, 10, og 12 gíra reiðhjól.
Heimsfræg gæðavara.
Varahluta-og viðgerðarþjónusta á staðnum.
Reiðhjólahandbók Fálkans með leiðbeiningum um
notkun og viðhald fylgir öllum Raleigh reiðhjólum.
Útsölustaðir og þjónusta víða um land.
FALKINN
SUOURIANDSBRAUT 8, SIMI 84670 -<-T
J