Morgunblaðið - 22.04.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982
11
Meinafræðideild HÍ fær
tækjagjöf frá Svölunum
SVÖLURNAR — félag fyrrverandi
og núverandi flugfreyja, hefur gefið
IVleinafræðideild Rannsóknarstofu
Háskólans, nánar tiltekið litninga-
rannsóknardeild, tvær smásjár og
frystikistu, þar sem hægt er að
geyma viðkvæm efni, sem nauðsyn-
leg eru til rannsóknanna. Tækin eru
að verðmæti meira en 80 þúsund
krónur.
Litningarannsóknardeild Rann-
sóknarstofu Háskólans fæst við
sjúkdómsgreiningar hjá einstakl-
ingum, sem grunaðir eru um vissa
meðfædda sjúkdóma. Tveir megin-
þættir starfseminnar eru annars
vegar sjúkdómsgreiningar hjá
vansköpuðum börnum og hins veg-
ar greining litningasjúkdóma á
fósturskeiði. Stærsti hluti starf-
seminnar felst nú í rannsókn á
legvatni frá þunguðum konum,
sem af ýmsum ástæðum geta átt á
hættu að fæða börn með þá sjúk-
dóma, sem litningarannsókn getur
greint.
Litningarannsóknir hafa farið
fram hér á landi síðan 1967 en
legvatnsrannsóknirnar hófust
ekki hér á landi fyrr en 1978. Þess-
ari starfsemi hefur verið þröngur
stakkur sniðinn til þessa og þess
vegna er tækjagjöfin frá Svölun-
um ákaflega mikilvægur þáttur í
eflingu þessarar starfsemi að sögn
Skátamessur
SKÁTAGUÐSÞJÓNUSTA verður í
dag í Dómkirkjunni á vegum skáta-
félagsins /Egisbúa. Hún hefst kl.
11.00, prestur er séra Þórir Steph-
ensen og orgelleikari Marteinn H.
Friðriksson. Skátarnir munu á und-
an ganga fylktu liði um Vesturbæinn
og fjölmenna í kirkjuna.
Skátar í Skjöldungum í Voga-
og Heimahverfi hafa skátaguðs-
þjónustu í Langholtskirkju kl.
10.30. Prestur verður séra Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson.
Þá munu skátar í Dalbúum í
Laugarneshverfi fjölmenna í
æskulýðsguðsþjónustu í Laugar-
neskirkju kl. 11.00. Prestur verður
séra Jón Dalbú Hróbjartsson.
Skátarnir munu safnast saman
við DAS kl. 10.30 og ganga síðan
fylktu liði til kirkju.
Eftir hádegi munu skátafélög
austast í Reykjavík hafa dagskrá í
Elliðaáahólma.
Jóhanns Heiðars Jóhannssonar
læknis.
Svölurnar er, eins og fyrr segir,
félag fyrrverandi og núverandi
flugfreyja, sem nú er á sínu 8.
starfsári. Einn megintilgangur fé-
lagsins er að vinna að mannúðar-
málum og góðgerðarstarfsemi.
Auk þess eru haldnir mánaðarleg-
ir fræðslu- og skemmtifundir fyrir
félagsmenn.
Undanfarin ár hefur félagið
beitt sér fyrir aðstoð við fjölfötluð
börn, einkum með því að styrkja
sérkennara og fóstrur til fram-
haldsnáms erlendis. Þá hefur fé-
lagið einnig gefið tæki á sjúkrahús
í Reykjavík.
Fjáröflun félagsins byggir á
sjálfboðavinnu félagsmanna, sem
hafa varið ómældum tíma og
kröftum í þágu ofangreindra
mannúðarmálefna. Tekjuleiðir fé-
lagsins eru tvær, annars vegar
jólakortasala og hins vegar kaffi-
sala. 1. maí ár hvert hafa Svölurn-
ar kaffisölu í Súlnasal Hótel Sögu
þar sem félagsmenn sjálfir standa
fyrir veitingum. Aðsókn hefur
verið mikil undanfarin ár og ekki
sakar að minna á að jafnframt
kaffi og meðlæti gefst kostur á að
kaupa miða í happdrætti með
glæsilegum vinningum.
Heiðursfélagi Ægisbúa
Hrefna Tynes átti nýlega sjötugsafmæli og þá gerði m.a. skátafélagið /Eg-
isbúar hana að heiðursfélaga. Mvndin sýnir stjórn Ægisbúa og Hrefnu
Tynes, er henni hafði verið afhent viðurkenningin.
Alhlióa f ramleióslu
og þjónustuf yrirtæki
i vélaog
þjónustuiónaói
í rösklega hálfa öld hefur
Landssmiðjan átt þátt i
stórstigum framförum til
sjávar og sveita, i sjávar-
útvegi, iðnaði og landbúnaði.
Verkin eru víða og tala sinu
máli um hugvit og
verkkunnáttu.
Landssmiðjan á lika sinn
þátt i að innleiða reynslu og
hugvit erlendis frá. Fyrir-
tækið hefur umboð fyrir
vörur margra þekktra
erlendra framleiðenda véla,
tækja og áhalda, svo sem
Alfa-Laval og Atlas Copco.
Þannig býr Landssmiðjan
yfir innlendri og erlendri
reynslu og þekkingu, sem
nýtist i flestum greinum
atvinnulífs á íslandi og má
því segja, að fátt sé okkur
óviðkomandi.
Hafðu þetta i huga næst
þegar verk þarf að vinna, og
kannaðu hvort þú getur ekki
notið góðs af
LANDSSMIÐJUNNI.
LANDSSMIÐJAN,
alhliða framleiðslu- og
þjónustufyrirtæki i véla- og
járniðnaði.
LANDSSMmXAN
Q20-6-80