Morgunblaðið - 22.04.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982
15
Er samband milli valíum-
neyzlu og heilarýrnunar?
BREZKIR sérfræðingar hafa uppgötvað samskonar heilaskrmmdir hjí
fólki sem neytt hefur valíums langtímum saman, og hjá stórdrykkju-
mönnum og alkóhólistum. Telja sérfræðingar sérstakrar aðgæzlu þörf við
notkun valíums og vara við notkun lyfsins nema stutt tímabil í senn.
Valíum er vinsælt róandi lyf og í hópi mest notuðu lyfja í veröldinni.
Samkvæmt niðurstöðum heilarannsókna á 20 sjúklingum, sem notað
höfðu valíum að staðaldri í fimm til tíu ár, reyndust aðeins fimm óskadd-
aðir á heila. Fimm aðrir reyndust með alvarlegar heilaskemmdir, heila-
rýrnun eða heilakorknun, eins og vart hefur orðið hjá alkóhólistum, og
hjá helmingi sjúklinganna var að finna viss breytingamerki, sem talin
voru benda til rýrnunar heila.
Stjórnandi rannsóknanna var
Malcolm Lader, prófessor í lyfja-
sálfræði hjá Institute of Psychi-
atry í Lundúnum. Hann lét svo
um mælt, að hér væri um byrj-
unarathuganir að ræða, undir-
búningsrannsókn, og mætti ef til
vill segja að þær væru ekki
marktækar í þessu sambandi.
Hann sagði að ekki væri hægt að
útiloka að heilaskemmdirnar
væru til komnar af öðrum
ástæðum. Jafnframt gæti svo
verið að því fólki sem á annað
borð væri líklegt til að neyta ró-
andi lyfja, væri hættara við
breytingum í heila. „En þangað
til við vitum nákvæmlega hverj-
ar orsakir skemmdanna eru ætt-
um við að sýna sérstaka aðgæzlu
við notkun róandi lyfja langtím-
um saman," sagði Lader.
Lader sagði það nú almennt
viðurkennt, að ýmsir yrðu fljótt
háðir valíum, þótt í litlum og
eðlilegum skömmtum væri. Hon-
um hefur reiknast til að í Bret-
landi séu 250 þúsund manns, sem
hafi neytt róandi lyfja í yfir sjö
ár, og í Bandaríkjunum sé ein
milljón manna, sem þannig sé
komið fyrir. „Ef tölur okkar eru
réttar, gæti það þýtt að í Bret-
landi séu eitthundrað þúsund
manns með heilarýrnun af þess-
um sökum," sagði Lader.
„Þessir 20 sjúklingar sem við
rannsökuðum eru hvorki alkó-
hólistar, eiturlyfjaneytendur, né
neytendur annarra lyfja, við
höfum gengið úr skugga um það.
Þeir eru flestir miðaldra hús-
mæður, sem tekið hafa valíum-
skammtinn sinn þrisvar á dag í
fimm ár eða lengur. Þær eru
yngri en alkóhólistar, sem orðið
hafa heilarýrnun að bráð, aðal-
lega á aldrinum 29 til 49 ára. Ein
mesta heilarýrnunin fannst í 34
ára karlmanni," sagði Lader.
Lader og lið hans urðu slegnir
af niðurstöðum athugana sinna,
og spurðust fyrir um það hjá
ýmsum lyfjaframleiðslufyrir-
tækjum, hvort sambærilegar
niðurstöður hefðu fengist í
þeirra rannsóknum, en hafa eng-
in svör fengið. Og á nýlokinni
ráðstefnu, þar sem Lader kynnti
niðurstöður sínar, urðu fulltrúar
lyfjaframleiðenda til að gagn-
rýna athuganir Laders harðlega.
Lífefnafræðingur Hoffman La
Roche, sem framleiða valíum,
sagði engar hættur fylgjandi lyf-
inu ef rétt væri með það farið.
Lader svaraði til, að þótt „til-
raunadýrin" hefðu verið sér-
staklega valið úrtak, þá væri
ekki hægt að daufheyrast við
þeim möguleika, að samband
væri á milli valíumneyzlu og
heilarýrnunar. Lyfin væru nyt-
samleg þegar aðgát væri höfð, en
alltof algengt væri, að fólk sem
einu sinni hefði fengið róandi
lyf, fengi nýja og nýja lyfseðla,
þótt lækni sæi það ekki nema
fyrsta sinni. ()bserver.
Lafði Díana
mun eignast son
Nafngift
Banana
ekki gild
Salisbury, Zimbabwr. 20. apríl. AP.
SALISBURY heitir því nafni enn aö þvi
er haft er eftir borgarstjóranum í þess-
ari höfuðborg landsins.
Sagði hann ennfremur að „mjög
fljótlega" yrði haldinn fundur í
borgarráðinu, þar sem blökkumenn
sitja í meirihluta, og ákvörðun tekin
um hugsanlega nafnbreytingu.
Forseti landsins, Canaan Banana,
hafði lýst því yfir að nafn borgarinn-
ar væri Harara. Sú nafngift virðist
eftir þessu að dæma ekki vera gild,
a.m.k. ekki enn.
AÐ SÖGN brezkra blaða mun
Iafði Díana prinsessa af Wales
eignast dreng í sumar, og allt
bendir til að hún verði léttari á
sjálfan afmælisdaginn sinn, 1.
júlí nk.
Blöðin herma að kvenlæknir
hirðarinnar, George Pinker,
hafi rannsakað prinsessuna ný-
verið og þá hefði í ljós komið að
hún bæri dreng undir belti, og
væri hann heilbrigður á alla
lund.
Hvort sem barnið verður
prins eða prinsessa, verður það
númer tvö í röð erfingja krún-
unnar, næst á eftir föður sín-
um, Karli prins drottningar-
syni.
Af hálfu hirðarinnar hefur
engin staðfesting verið gefin á
fregnum blaðanna um kyn
væntanlegs barns Díönu.
ERUM FUUTTIR
í nýja húsiö viö tiliöina
TIL
ÍSLANDS
Lestun í erlendum
höfnum
AMERÍKA
PORTSMOUTH
Junior Lotte 3. maí
Mare Garant 14. maí
Junior Lotte 24. maí
Mare Garant 4. júni
NEW YORK
Mare Garant 22. april
Junior Lotte 4. mai
Mare Garant 15. mai
Mare Garant 5. júni
HALIFAX
Hofsjökull 10. mai
Selfoss 28. maí
BRETLAND/
MEGINLAND
ROTTERDAM
Eyrarfoss 26. april
Alafoss 3. mai
Eyrarfoss 10. mai
Alafoss 17. maí
ANTWERPEN
Eyrarfoss 27. apríl
Alafoss 4. mai
Eyrarfoss 11. mai
Alafoss 18. maí
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 28. april
Álafoss 5. mai
Eyrarfoss 12. maí
Álafoss 19. maí
HAMBORG
Eyrarfoss 29. april
Álafoss 6. mai
Eyrarfoss 13. mai
Alafoss 20. mai
WESTON POINT
Helgey 4. mai
Helgey 18. maí
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Dettifoss 26. april
Dettifoss 10. mai
Dettifoss 24. mai
KRISTIANSAND
Mánafoss 3. maí
Mánafoss 17. mai
Mánafoss 31. mai
MOSS
Dettifoss 27. april
Mánafoss 4. mai
Dettifoss 11. mai
Mánafoss 18. mai
GAUTABORG
Dettifoss 28. april
Mánafoss 5. maí
Dettifoss 12. mai
Mánafoss 19. mai
KAUPMANNAHÖFN
Dettifoss 29. april
Mánafoss 6. mai
Dettifoss 13. mai
Mánafoss 20. mai
HELSINGBORG
Dettifoss 30. april
Mánafoss 7. mai
Dettifoss 14. maí
Mánafoss 21. mai
HELSINKI
Múlafoss 5. mai
Irafoss 17. mai
RIGA
Múlafoss 7. mai
Irafoss 19. mai
GDYNIA
Mulafoss 8. mai
Irafoss 20. mai
HORSENS
Irafoss 26. april
Múlafoss 10. mai
THORSHAVN
Mánafoss 29. april
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
- framog til baka
frá REYKJAVÍK alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI alla þriöjudaga
frá AKUREYRI alla fimmtudaga
EIMSKIP
SÍMI 27100