Morgunblaðið - 22.04.1982, Page 19

Morgunblaðið - 22.04.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. APRÍL 1982 19 Guðmundur á biðskák við Wedberg GUÐMUNDUR Sigur jónsson, stórmeistari, tek- ur nú þátt í alþjóðlegu skákmóti í Noregi. 1 fyrstu umferð tefldi Guðmundur viö Norðurlandameistar- ann, Knut Helmers, og sömdu þeir um jafntefli. I gær tefldi Guðmundur við Thomas Wedberg frá Sví- þjóð og fór skák þeirra í bið. „Hún endar líklega með jafntefli, en um tíma hafði ég mjög vænlega stöðu,“ sagði Guðmundur í samtali við Mbl. Fjórir stórmeistarar taka þátt í mótinu, ásamt Guð- mundi tefla Gríinfeld, ísrael, Steen, Bretlandi og Kraid- mann, ísrael. Þá eru 12 al- þjóðlegir meistarar, og er Sví- inn Lars Karlsson þeirra kunnastur. Keppendur eru 28 og verða tefldar 9 umferðir eftir Monrad-kerfi. Stjórn Landssambands lög- reglumanna vill vekja athygli á síðustu sérkjarasamningum fé- laga innan BSRB, þar sem fram kom að stjórnvöld töldu ekki grundvöll fyrir kauphækkun nema sem svaraði 0,6%—0,7%, þó ca. 1% hækkun hafi náðst, með mikl- um erfiðismunum, við lok samn- inga. Þá vill stjórnin benda á niður- stöðu Kjaradóms, þar sem þeir hópar, sem hafa krafist hækkana með miklum þrýstingi, m.a. upp- sögnum, fá ca. 6—7% hækkun eða tvo launaflokka yfir heildina. Stjórn LL hefur hingað til talið að lögreglumenn verði að vera til eftirbreytni, m.a. með því að virða lög og rétt og eigi því ekki að þurfa að beita hótunum eða óeðli- legum þvingunum til þess að fá leiðréttingar á launum sínum. Síð- an 1974, er lögreglumenn urðu rík- isstarfsmenn, hafa þeir dregist verulega aftur úr þeim stéttum er þeir voru samhliða 1974. Ef heldur fram sem horfir munu lögreglumenn verða að endurskoða stefnu sína í launa- Lánskjaravísitala: Hefur hækk- aÖ um 44,35% á einu ári SEÐLABANKI íslands hefur rciknað út lánskjaravísitölu fyrir maímánuð 1982 og reyndist hún vera 345 stig. Hún hefur hækkað frá apríl- mánuði úr 335 stigum, eða um 2,99%. Á einu ári, þ.e. maí til maí, hef- ur lánskjarasvísitala hækkað úr 239 stigum í 345 stig, eða um lið- lega 44,35%. Ef hins vegar hækkunin milli aprílmánaðar og maímánaðar er framreiknuð um tólf mánuði þýddi það um 42,41% hækkun lánskjaravísitölu. Til samanburðar má geta þess, að vísitala byggingarkostnaðar hækkaði á tím^bilinu apríl 1981 til apríl 1982 um 48,83%, eða úr 682 stigum í 1.015 stig. Á tímabilinu 1. marz 1981 til 1. marz 1982 hækkaði framfærslu- vísitala hins vegar um liðlega 41,1%, eða úr 102 stigum í 144 stig. Grindavík: • • Oryggisgirðing verði fjær byggð „VIÐ FÓRUM fram á, að fram- kvæmdum yrði frestað við byggingu girðingar umhverfis radarmöstrin og urðu Islenzkir aðalverktakar góðfús- lega við þeirri beiðni. Við (orum fram á, að girðingin verði færð 180 metrum fjær byggðinni en fyrirhug- að var og ég vona að svar við þessari beiðni okkar verði jákvætt," sagði Jón Hólmgeirsson, bæjarritari í Grindavík, i samtali við Mbl. Islenzkir aðalverktakar höfðu hafið framkvæmdir við byggingu girðingar umhverfis radarmöstur þegar farið var fram á frestun framkvæmda þar til tekin hefði verið afstaða til erindis Grindvík- inga. „Það er brýn nauðsyn að setja girðingu umhverfis radar- möstrin, því þau geta verið fólki stórhættuleg. Við deilum ekki um girðinguna, heldur viljum við að hún verði færð fjær byggðinni, ef kostur er,“ sagði Jón Hólmgeirs- son. Þá sagði Jón, að ekki færi á milli mála, að girðingin, eins og hún var fyrirhuguð, hefði verið innan varnarsvæðisins. Stjórn Landssambands lögreglumanna: „... lögreglumenn verða að endurskoða stefnu í launamálum sínum“ STJÓKN Landssambands lögreglu- manna hefur sent frá sér eftirfar- andi ályktun um kjaramál lögreglu- málum og fylgja fram kröfum sín- um í samræmi við árangur ann- arra félaga. Akureyri: Saga frumsýnir ísl. leikrit LKIKKLURBURINN Saga á Akureyri frumsýnir á laugardagskvöldið í fé- lagsmiöstöðinni Ilynheimum nýtt ís- lenskt leikrit er nefnist „Anna Lisa“. Höfundur er Helgi Már Barðason og er þetta fyrsta leikverk hans í fullri lengd. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson, lýsingu hannaði Við- ar Garðarsson og söngva sömdu þau Jóhanna Birgisdóttir og Helgi Már Barðason. Hlutverk í leiknum eru alls 11, en með helstu hlutverk fara Sóley Guðmundsdóttir, Adolf Erlingsson, Guðbjörg Guðmunds- dóttir og Sigurður Ólason. í frétt frá Sögu segir að „Anna Lísa“ sé öðrum þræði gamanleikrit og fjalli um unglinginn og sam- skipti hans við fjölskyldu, vini og umhverfi. Leikritinu er skipt í þrjá meginþætti og segir hver þáttur frá Önnu Lísu og vinum hennar á mis- munandi aldursskeiðum. Sýningar í Dynheimum verða fjórar, en síðan leggur klúbburinn upp í leikför um Norðurland og sýn- ir á Hvammstanga 1. maí, Hofsósi 2. maí, í Hrísey 8. maí og á Grenivík 9. maí. í ágúst áformar klúbburinn að fara í leikför með „Önnu Lísu" til Danmerkur og verður verkið vænt- anlega sýnt í Reykjavík í leiðinni. í Leikklúbbnum Sögu eru nú um 20 félagar, allir á aldrinum 14—22 ára. Frá æfingu á Önnu Lísu. Hágæðahúsgögn fyrir fólk sem gerir kröfur Heimsþekkt merki, Lubke-boröstofusett og Eilersen-sófasett. Geysigott úrval af húsgögnum Sófasett — boröstofusett — eldhúsgögn — veggeiningar — kommóöur — forstofuhúsgögn — blómasúlur — blaöagrind- ur, o.fl., o.fl. Munid sérpöntunarþjónustu á húsgögnum frá Eilersen og LUbke Vid bjóöum ykkur velkomin í breytta og stærri verzlun. TV' ILJI Bláskógar ARMULI 8 SÍMi: 86080 1972 «2 AFMÆLI$SYNING ÍBLÁSKOGUM í dag kl. 2—5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.