Morgunblaðið - 25.04.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982
7
HUGVEKJA
eftir séra Ólaf Skúlason dómprófast
l*ú vorgyðja svífur úr suftrænum geim
á sólgeisla vængjunum breiAum
lil ísalands fannþöktu fjallanna heim
að fossum og dimmbláum heiðum,
ég sé hvar í skýjum þú brunar á braut,
ó, ber þú mitt Ijóð heim í ættjarðar skaut.
Þannig yrkir Steingrímur, og
hversu mörg hjörtu önnur en
hans eins hafa ekki glaðzt og
fundið orkugjafa við söng og
hljómkviðu vorsins. „Vorgyðj-
an“, sem heldur norður um höfin
til þess að færa íslands börnum
þá gleði, sem því fylgir að horfa
á bak dimmu vetrar og kulda
skammdegis, er ætíð hinn mesti
aufúsugestur.
En það er brothætt, vorið
okkar. Hversu oft höfum við ekki
haldið, að það sé nú endanlega
komið og hafi haslað sér völl það
tryggilega, að ekkert hniki því
framar fyrr en sumarið sjálft
leysi það af hólmi, og þó orðið að
sjá það víkja fyrir enn einum
voninni. Fyrstu hlýju dagarnir
eru teknir sem alvarleg vísbend-
ing, og vonbrigðin, sem þeim oft
fylgja, herða aðeins vissuna um
það, að næstu sólardagar boði
komu sumars í faðmi vorsins. Og
eru þetta e.t.v. töfrar þess um
leið? Óvissan, vonin þrátt fyrir
endurtekin vonbrigði, draumur-
inn, sem við íklæðum hjúpi
raunveruleikans? Og segir þá
ekki líka postulinn sjálfur: „Því
að von er sést, er ekki von. Því að
hver vonar það, sem hann sér?
En ef vér vonum það, sem vér
sjáum ekki, þá bíðum vér þess
með þolinmæði."
Og sagan er full dæma af
fólki, sem glataði ekki voninni,
þrátt fyrir erfiðleikana, sem
aðra buguðu. Spámaðurinn
Jeremía var einn slíkra. Hann
var í fangelsi fyrir hispursleysi
sitt við konung, og nú var óvina-
her kominn að borgarmörkunum
eins og bergmál af orðum og
gjörðum spámannsins.
Mér finnst svo oft, að við ætt-
um að láta þessa hijóðlátu en þó
máttugu von ráða meiru hjá
okkur en raun ber vitni. Það eru
alltof margir, sem annað hvort
forðast að þiggja þann styrk,
sem færir með sér frið, eða hafa
ekki hugmynd um það, hvar
hans er að leita. Jesaja spámað-
ur sagði: „Fyrir afturhvarf og
rósemi munuð þér frelsaðir
verða," og hvað er rósemi annað
en von, sem við látum móta
viðbrögð, þannig að í stað fums
og fáts komi yfirvegun og að-
gæzla? Hvað er afturhvarf ann-
að en að líta í spegil og viður-
kenna það, að í því er engin bót,
að finna ætíð afsakanir fyrir
sjálfan sig í ásökunum á aðra?
Afturhvarfið er að átta sig á því,
eins og glataði sonurinn, að eina
ráðið er að leita aftur til föður-
Vorsins von
köldum vetrarkrumlum, sem
ógna blómum og brumi trjánna.
Vorið er ætíð ævintýri og á það
sammerkt með barninu. Enginn
veit, hvaða stigu barnið velur sér
eða lendir á, og fáir munu slíkir
bjartsýnismenn, jafnvel þótt
þeir telji sig sjá góða innviði í
lund og gerð barnsins síns, að
þeir viðurkenni ekki þær hættur
allar, sem heft geta för þess og
lagt það jafnvel lágt við foldu.
Og eins er það með vorið, hversu
mörg sannindamerki, sem við
þykjumst þó hafa séð um end-
anlega komu þess, þá erum við
aldrei viss. Ekki einu sinni nú,
hinn fyrsta sunnudag í sumri.
Og þó höfum við liðna daga litið
fagnandi til himins og glaðzt yf-
ir sólargeisla, sem freistar okkar
til að skilja yfirhafnir eftir, eða
rokið út í garðinn til að fjar-
lægja skjól það, sem að hausti
var búið blómum og jurtum, full-
viss um það, að nú sé öllu óhætt,
og börnin leika sér í vorleikjun-
um, í parís og með bolta. Bogin
bök verða rétt og ygglibrún
hverfur fyrir seiðmagni vorsins,
sem brosið eitt sæmir. Fáir
fagna slíkum aufúsugestum eins
og við vordögum.
Fáir gestir eru þá einnig
ótryggari á skör eða eirðarlaus-
ari á rúmbrík. Allt í einu horfn-
ir, og tjóir þá lítt að kalla á eftir
þeim: Nei, bíddu aðeins, ég var
búinn að undirbúa glæsimóttök-
ur, farðu ekki.“ En, það er horf-
ið, og skjólið sem fyrr skýldi við-
kvæmum gróðri er nauðsynlegt á
ný, ef hægt á að vera að bjarga
frá falli og forða frá tortímingu.
Og samt rænir ekkert okkur
og allir væntu þess, að fjand-
menn hertækju landið, svo að
eignir yrðu einskis virði og fólkið
jafnvel fært í herleiðingu eins og
svo oft tíðkaðist þá. Og Jeremía
átti frænda, sem hét Hanameel
og vissi vel um óvinaherinn, sem
hann átti ekki von á að væri
hægt að hrekja til baka. Þess
vegna vænti hann þess, að land
hans yrði senn einskis virði.
Hann hélt til Jeremía og bauð
honum forkaupsréttinn að land-
inu. Og Jeremía tók honum ekki
með hæðnishlátri, heldur gerði
sér lítið fyrir og keypti af honum
landið og gekk tryggilega frá
öllu með vottum og undirskrift
og vó andvirðið, sautján sikla
silfurs, og afhenti frænda sínum.
Það þarf ekki að efa það, að
margir, nei, flestir hafa talið
hann vitskertan. Þarna var hann
í fangelsi sjálfur og óvinaher á
næstu grösum. En Jeremía átti
sér aðrar ástæður fyrir kaupun-
um. Hann þurfti ekki akurinn,
en hann notaði hann til þess að
prédika yfir öðrum. Og boðskap-
ur hans var sá, að Guð mundi
ekki yfirgefa fólk sitt. Það ætti
aðeins að snúa sér að honum og
treysta honum og við þjónustuna
við Guð mundi það öðlast styrk.
Þess vegna sagði hann í nafni
Guðs: „Enn skulu hús verða
keypt og akrar og víngarðar í
þessu landi.“ Jeremía glataði
ekki voinni, þrátt fyrir allt hið
neikvæða. Hann vænti vors, þótt
aðrir litu gulnaða liti haustsins.
Hann hefði getað sungið með
okkur: Þú, vorgyðja svífur. „Því
að í voninni erum vér hólpnir
orðnir,“ sagði Páll löngu síðar
ins og biðja hann fyrirgefingar
08 þiggja blessun hans, þ.e. að
láta vonina ríkja til að ógnir
hverfi.
Vorið kemur. Það getur munað
einhverjum dögum, og stundum
þarf það að hopa á hæl fyrir
ágangi vetrar, sem ófús víkur
fyrir geislum þess. En hvernig
sem veður er á sumardaginn
fyrsta, þá bjóðum við sumarið
velkomið með geisla í augum og
von í hjarta, eins og við syngjum
og höfum sungið um vorgyðjuna,
sem svífur að sunnan og flytur
þann söng, sem skyldari er von-
inni en flest annað. Og í þeim
boðskap heyrum við líka vitnis-
burð Jeremía um það, að Guð
vitji lýðs síns og yfirgefi hann
aldrei, jafnvel þótt við munum
hann svo sorglega sjaldan. En
Guð vitjar okkar og Guð vekur
okkur. Megi hann vitja okkar nú
í blíðum blænum eins og spá-
mannsins forðum, sem frekar
átti þó von á honum í stormi eða
eldi. Minni hvert fagurskrýtt
blóm á viðkvæmu vori á hann,
sem allt hefur skapað og skapar
enn. Styrki hvert hret, sem
blóminu ógnar, von okkar um
bjartari tíma, svo að við verðum
aldrei rænd fullvissu trúarinnar
á hann, sem yfir öllu vakir, og
svo elskar, að hann gefur allt.
Varðveitum því vonina í fullri
þolinmæði á nýbyrjuðu sumri,
sem við væntum, að Guð láti
gjöfult reynast, fólki og fénaði,
landi og byggð. Verði sumarið
gleðilegt vegna trúarinnar á
hann, sem allt gjörir gott og
þann frið varðveitir og gefur,
sem enginn rænir.
X3 Félag AwÞ bókagerðarmanna Vantar þig? Húsgögn á allt heimilið fást hjá xrit d
Aðalfundur KM-
Félags bókagerðarmanna veröur haldinn í dag að Hótel Loftleiðum (Víkingasal), kl. 13.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. húsgögn, Kangholtsvegi 111, símar 37010—37144
(tlB) Veróbreíamarkaöur
Fjárfestingarfelagsins
GENGI VERÐBRÉFA 25. APRÍL 1982
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 1. flokkur
1970 2 flokkur
1971 1. flokkur
1972 1. flokkur
1972 2. flokkur
1973 1 flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1 flokkur
1975 1. flokkur
1975 2 flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1 flokkur
1977 2 flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1. flokkur
1980 2. flokkur
1981 1. flokkur
1981 2. flokkur
Sölugengi
pr. kr. 100.-
8.349,32
6.730,64
5.965,37
5.169.69
4.385,42
3.203,88
2.951,15
2.037,30
1.671,01
1.258.69
1.192,24
956,68
887,33
741,01
601,61
473,43
399,05
308,48
231,25
181,75
156,13
115,97
Meöalávöxtun ofangreindra flokka um-
fram verötryggingu er 3,7—5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVERÐTRYGGO:
Sölugengi m.v. nafnvexti
12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 40%
1 ár 68 69 70 72 73 82
2 ár 57 59 60 62 63 77
3 ár 49 51 53 54 56 73
4 ár 43 45 47 49 51 71
5 ár 38 40 42 44 46 68
VEÐSKULDABRÉF
MEÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./ári (HLV) verðtr.
1 ár 96,49 2% 7%
2 ár 94,28 2% 7%
3 ár 92,96 2'/2% 7%
4 ár 91,14 2W/o 7%
5 ár 90,59 3% 7%
6 ár 88,50 3% 7’/4%
7 ár 87,01 3% 7'/4%
8 ár 84,85 3% 7%%
9 ár 83,43 3% 7%%
10 ár 80,40 3% 8%
15 ár 74,05 3% 8%
VERÐTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLAI^
RÍKISSJÓÐS
ugengi
pr. kr. 100.-
B — 1973
C — 1973
D — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
J — 1977
1. fl. — 1981
2,419,77
2.057,88
1.744,97
1.193,71
1.193,71
791,83
754,48
574,05
534.19
106,01
TÖKUM OFANSKRÁÐ VERÐBRÉF í UMBOOSSÖLU
Verðbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavík
lónaðarbankahúsinu Simi 28566
Skólar í Englandi
Pantanir á sumarnámskeið í Englandi veröa afgreiddar
næstu vikur. Beztu og vönduöustu skólarnir.
Mímir
) Brautarholti 4.
Sími 10004 (kl. 1—5 e.h.).
T3ílamatl:adutinn
s^-taitisgotu 12-18
SÝNISHORN
ÚR SÖLUSKRÁ:
Datsun Bluebird 1981
Brúnn, ekinn 15 þús. 5 gira, út-
varp. Skipti á ódýrari. Verö 140
þús.
Toyota Tercel 1980
Ljósbrúnn, ekinn 28 þús. Verö
86 þús.
Honda Accord 1980
Vinrauður, ekinn 40 þús., út-
varp, segulband. Verö 128 þús.
Mazda 323 1981 Sport
Grænsanz, ekinn 6 þús. 5 gíra.
Verö 123 þús.
Volvo GL 244 1981
Brúnn, ekinn 12 þús. Sjálfskipt-
ur, aflstýri. Verð 190 þús.
Subaru 1800 4x4 1982 piat Ritmo 1980
Grænn, ekinn 5 þús. Verð 158 Grænn, ekinn 16 þús. Verð 80
ÞÚS. h(is
Peugeot 504 dísel 1981 Citroen GS 1978
Grænn, ekinn 100 þús., útvarp, Brúnn, ekinn 39 þús. Utvarp,
segulband. Verö 190 þús. segulband. Verö 72 þús.