Morgunblaðið - 25.04.1982, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRÍL 1982
ÍSRAEL
Hópur gengur á land ( Yamit til að ögra tsraelskum hermönnum.
í dag, 25. apríl, eiga ísraelar að afhenda Egyptum
síðustu landsvæðin á Sinai-skaga; um það ætti ekki að
þurfa að fjölyrða og raunar virðist stjórn Begins vera
staðráðin í aö standa við þetta ákvæði sem er í Camp
David-samningnum. Þetta hefur ekki gengið þrauta-
laust, þau átök og innanlandsólga sem hefur sett svip
sinn á ótrúlegustu staði í ísrael nú síðustu vikur er án
efa angi af Sinai-málinu. Margir ísraelar — svo að ekki
sé talað um trúarlega öfgahópa í landnemabyggðum á
skaganum — óttast að eftir að Egyptar hafa nú heimt
Sinai úr höndum ísraela muni þeir snúa við þeim baki og
hefja leynilegt samningamakk við aðrar Arabaþjóðir og
smátt og smátt fjarlægjast ísraela og renna á ný inn í
raðir Araba.
Texti: Jóhanna
Kristjónsdóttir
Begin forsætísráöherra hefur
löngum veriö sakaöur um ósveigj-
anleika í samningum viö Egypta,
en þaö er ekki nokkrum vafa und-
irorpiö, aö hann hefur alla tíð veriö
staöráöinn í aö standa viö þaö
samningsákvæöi, aö Sinai-skagi
færöist á ný á yfirráöasvæöi Eg-
ypta. Stjórnmálasérfræöingar
segja aö þaö sýni engu aö síöur
klókindi Begins aö hafa látið bæöi
Egypta og Israela vera i vafa fram
á síöustu stundu, hvort staöiö yröi
viö samninginn. Væntanlega hefur
tilgangur Begins veriö aö koma i
veg fyrir aö Bandarikjamenn og
Egyptar gæfu upp á bátinn aö
halda áfram hinum erfiöu og við-
kvæmu viöræöum um heima-
stjórnarmál Palestinumanna á
Vesturbakkanum og á Gaza-
svæöinu. ísraelska stjórnin vill aö
þessar viöræður beri árangur
vegna þess aö sjálfstjórn í þeim
mæli sem ísraelar hafa hugsaö sér
myndi tryggja aö þeir réöu í reynd
þessum hluta næstu fimm ár, og
síöan myndu þeir tryggja sér neit-
unarvald um framtíö landsvæöis
þessa sem er taliö mikilvægt fyrir
öryggi jsraelsríkis og framtíöar-
stööu þess.
Sá eini kostur, sem ella er um
aö ræöa er áframhaldandi herseta
og jafnvel gætu ísraelar hreinlega
neyðzt til aö innlima Vesturbakk-
ann í riki sitt, en þaö vilja þeir af
mörgum ástæðum foröast í
lengstu lög. Meö því myndu Arab-
ar veröa fjölmennari Gyöingum
sjálfum, á mjög skömmum tíma,
þar sem fjölgun meðal Araba er
langtum meiri en hjá Gyöingum.
Hins vegar hafa harkalegar aö-
geröir ísraelshers viö mótmælaaö-
gerðum á Vesturbakkanum og víð-
ar mælzt afar illa fyrir og meira aö
segja 620 þúsund ísraelskir Arabar
sem nú eru innan landamæra ísra-
aö tryggja öryggi israels og ísra-
elsku þjóöarinnar.
Siöan þessar orösendingar bár-
ust frá Egyptalandsforseta og
Reagan Bandaríkjaforseta hafa
ísraelar af auknum krafti haldiö
áfram aö flytja fólk á brott úr land-
nemabyggöunum. Eins og komið
hefur fram í fréttum hafa allmargir
strangtrúaðir búiö um sig í byrgj-
um í stærsta landnemabænum,
Yamit, og hóta aö fremja sjálfs-
morö ef reynt verði aö ráöast til
inngöngu í byrgin. Þeir hafa vitnaö
til atburöanna á fjallinu Massada,
þegar tugir Gyöinga frömdu
sjálfsmorö frekar en falla í hendur
Rómverja. ísraelar sem hafa reynt
aö telja fólkinu hughvarf segja frá-
leitt aö líkja því sem gæti gerzt í
Yamit viö Massada-fjöldasjálfs-
els hafa látiö í Ijós vaxandi samúö
með málstaö Palestínumanna og
þaö þarf ekki mikiö ímyndunarafl
til aö sjá aö slíkt gæti haft ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar.
israelar hafa sem sagt'þurft aö
beita sér á fleiri stööum en bera
burt reiöa landnema á Siani, á
Vesturbakkanum hafa óeiröir sett
sviþ sinn á lífiö þar upp á síökastiö
og í héruðum Drúsa í Golan-
hæöum, sem israelar innlimuðu
fyrir nokkru hefur verið hiö eldfim-
asta ástand, allsherjarverkföll og
skærur gegn ísraelskum hermönn-
um veriö þar síðustu vikurnar. At-
burðirnir í Jerúsalem á páskunum
þegar vitstola Gyöingur skaut aö
Aröbum á bæn í gömlu borginni
vakti heilaga reiði Araba og raunar
israela líka, þar sem þeir hafa lagt
Víöar hafur variA ókyrrt en á Sktai
•iótMtu vikur. Imnr myndir eru
frá Nabtus og Ramallah á Vestur-
bakkanum.
mikla áherzlu á aö allir ættu aö fá
aö iöka óáreittir sína trú í Jerúsal-
em.
En svo vikiö sé nú aö Sinai-
skaganum á nýjan leik má af ýmsu
ráöa, aö israelar hafa vitanlega
veriö á báöum áttum og í vikunni
lét háttsettur embættismaöur
fréttamönnum í té upþlýsingar um
aö stjórnin gæti allt eins endur-
skoöaö afstööu sína nema aö
skrifleg trygging bærist frá Egypt-
um um aö þeir myndu halda í
heiðri ákvæöi Camþ David-sam-
komulagsins og ekki draga sig ut
úr þátttöku í Vesturbakkaviöræö-
unum. Hosni Mubarak, forseti
Egyptalands, brá þá viö skjótt og
sendi bréf til Begins þar sem hann
sagöi meöal annars: „Viö ætlum
okkur aö halda áfram samninga-
viöræöum viö ykkur meö aöstoö
Bandaríkjamanna, unz viö kom-
umst aö samkomulagi." Walter
Stoessel, aöstoöarutanríkisráö-
herra sendi einnig bréf til ísraels-
stjórnar, þar sem ítrekaöur var
stuöningur Bandaríkjamanna viö
Camp David-samkomulagiö og
tekiö fram aö Reagan forseti geröi
sér grein fyrir þýöingu þess aö viö-
ræöunum yröi haldiö áfram. ísra-
elskur embættismaöur sagöi aö
bréf Bandarikjaforseta sýndi, svo
aö ekki yröi um villzt, að þar geröu
menn sér grein fyrir mikilvægi þess
Ekkert bendir til að hætt verði
við að aflienda Egyptum Sinai