Morgunblaðið - 25.04.1982, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. APRIL 1982
Spennandí og áhrifamikil
mynd um áhrif eiturlyfja
— segir Samúel Ingvarsson um kvikmyndina Krossinn og hnífsblaðið sem nú er sýnd í Reykjavík
SAMHJÁLP hvílasunnumanna, sem
hefur undanfarin ár rekið meðferð-
arheimili fyrir áfengissjúklinga i
Hlaðgerðarkoti, hefur jafnframt því
starfi sínu sinnt nokkurri útgáfu-
starfsemi. Bækurnar Krossinn og
hnifsblaðið, Hlauptu, drengur,
hlauptu og Láttu mig gráta hafa ver-
ið seldar í miklum upplögum.
Verið er nú að innrétta sérstaka
félagsmiðstöð í húsnæði Sam-
hjálpar í Reykjavík, að Hverfis-
götu 42. Er þar ætlunin að opna í
haust og bjóða upp á aðstöðu og
dagskrá fyrir þá unglinga, sem
mikið leita í miðbæ Reykjavíkur
um helgar.
Síðustu mánuði hafa Samhjálp-
armenn sýnt kvikmynd eftir sög-
unni um Krossinn og hnífsblaðið.
Mbl. ræddi stuttlega við Samúel
Ingvarsson hjá Samhjálp, sem
annast hefur þessar sýningar og
spurði hann um tilgang þeirra.
— I vetur hef ég ferðast nokkuð
um landið með þessa kvikmynd og
sýnt hana meðal nemenda 7.-9.
bekkjar grunnskóla og í nokkrum
framhaldsskólum. I myndinni
greinir frá flokkum óaldarungl-
inga í New York og hvernig presti
nokkrum, sem fær þá köliun að
starfa meðal þeirra, tekst að vinna
traust þeirra. Unglingarnir eru
eiturlyfjaneytendur og helsta iðja
þeirra eru rán og gripdeildir og
flokkarnir berjast hverjir gegn
öðrum.
Við teljum að ísienskir ungl-
ingar, sem komist hafa í nokkra
snertingu við áfengi og ýmsa
vímugjafa, hafi gagn af því að sjá
mynd sem þessa, en hún er eins
konar ábending eða viðvörun til
þeirra um hvaða líferni getur beð-
ið þeirra ef þau ánetjast vtmugjöf-
um.
En hæfir myndin íslenskum að-
stæðum?
Vinnum einnig fyrir-
byggjandi starf
— Auðvitað er þetta bandarísk
mynd um bandaríska unglinga, en
ég held að allir séu sammála um
að á Islandi er nokkurt eiturlyfja-
vandamál fyrir hendi og öðru
hvoru berast fregnir um alvarleg
ofbeldisverk. Við teljum að Sam-
hjálp eigi að vinna fyrirbyggjandi
starf og þess vegna höfum við ráð-
ist í bókaútgáfu og sýnum nú
þessa kvikmynd til að gefa mynd
af því hvað ofnotkun eiturlyfja og
áfengis getur haft í för með sér.
Samhjálp hefur að aðalmarkmiði
að hjáipa áfengissjúklingum og
þeim sem orðið hafa undir í bar-
áttunni við ofneyslu lyfja, en einn-
ig teljum við skyldu okkar að
reyna að vinna fyrirbyggjandi
starf.
Og Samúel greinir nokkru nán-
ar frá þeirri sögu er myndin fjall-
ar um:
— David Wilkerson heitir
bandarískur sveitaprestur, sem
finnur sig knúinn til að vinna
meðal afbrotaunglinga þegar
hann sér hvernig 7 unglingar voru
dæmdir fyrir morð á einum jafn-
aldra sinna. Honum tókst ekki að
ná sambandi við unglingana í
dómssalnum og verður fyrir mikl-
um vonbrigðum, telur að ekkert
þýði fyrir sig að reyna að komast
unglingarnir litu á hann sem sinn
mann og óvin yfirvalda. Hann
vinnur traust þeirra og kynnist
kjörum unglinga götunnar í Har-
lem- og Brooklyn-hverfunum, en
þar eru hvers kyns glæpir og bar-
dagar daglegt brauð. Unglingarnir
virðast hörð og hrjúf á yfirborð-
inu, mega ekki sýna tilfinningar
og í myndinni er aðallega fjallað
um einn foringja þeirra, Nicky
Cruz, sem allir óttast.
Ber umhyggju fyrir
afbrotaunglingum
David Wilkerson reynir að ná til
unglinganna í einmanakennd
þeirra og með boðskap sínum um
kærleika og trú kemst hann smám
saman að þeim og þau sjá að þar
er á ferðinni maður sem vill bera
umhyggju fyrir þeim. Þetta er
leikin mynd, framleidd af World
Films og leikur Pat Boone Wilk-
erson og Erik Estrada Nicky Cruz
og er hún sýnd með íslenskum
texta.
Hvað fannst unglingum hér um
þessa mynd?
— Þau hafa mörg tjáð sig um að
þetta sé í senn spennandi og
áhrifamikil mynd og vel upplýs-
andi um þennan heim ungling-
anna. Áður en ég sýni myndina
hef ég kynnt hana nokkrum orðum
og rætt t.d. um eiturlyf og áfeng-
isneyslu, bent á þá skaðsemi, sem
sannað er að geti hlotist af neyslu
þessara efna og hvatt unglingana
til að tileinka sér efni hennar, þ.e.
þá viðvörun, sem þar kemur fram.
Þessar kvikmyndasýningar í
skólunum hafa verið í samvinnu
við skóiastjóra og nemendafeiög.
að þeim, en síðar kom í ljós að
AAalpersóna myndarinnar, Nicky Cruz, þjarmar hér að öðrum foringja óald-
arflokks: Ég gæti drepið þig, en ég get líka látið það vera og ég ætla ekki að
drepa þig í þetta sinn.
DOLAV
700 lítra rúmtak. Fáanleg fyrir snúnings-
lyftara eöa meö losanlegum hjólum. Eitt
sponsgat eöa alsett götum á botni og
hliöum. Krókagöt á hornum.
DOLAV einkaumboð á íslandi
Klapparstíg 29
101 Reykjavík
S. 91-24620 — 26488
PLASTKÖR
DOLAV plastkörin eru nú þegar í notkun
í fiskverkunarstöövum um allt land. Yfir
2000 kör.
Vinsældir DOLAV karanna er engin tilvilj-
un. Þau eru ódýr, sterk, auðveld í þrifum
og viðhaldi, létt (40 kg) og meðfærileg.
Fjölhæf:
Hvort sem er í saltfiskverkun,
skreiöarverkun, til geymslu á fiski í mót-
töku o.fl. o.fl.
Tæknilegar upplýsingar:
Oaldarflokkarnir í hverfum New
York-borgar börðust hverjir gegn
öðrum og ofbeldi hvers konar og
blóðsúthellingar voru daglegt brauð,
en sveitapresturinn David Wilker-
son vann traust unglinganna og
hafði áhrif á að þau breyttu um
stefnu.
Ég hef fengið að kynna myndina í
bekkjum og síðan er hún sýnd
utan skólatíma, síðdegis eða um
kvöldið og er seldur aðgangur.
Hafa unglingarnir sótt myndina
mjög vel, um það bil 60% þeirra,
en færri í þeim framhaldsskólum
sem ég hef heimsótt. Búið er að
sýna hana meðal unglinga á
Reykjavíkursvæðinu, Snæfellsnesi
og Borgarfirði, á Suður- og Norð-
urlandi og ráðgert að fara til ísa-
fjarðar eftir nokkrar vikur.
Síðustu sýningar í Reykjavík
Er þetta einkum mynd fyrir
unglinga?
— Nei, ég tel hana eiga jafnmik-
ið erindi til fullorðinna og því höf-
um við fengið Gamla bíó á leigu til
að sýna hana nokkrum sinnum í
vikunni. Verður myndin sýnd frá
mánudegi til fimmtudags, kl. 17,
19:15 og 21:30 þessa fjóra daga. I
þessum sýningum er að sjáifsögðu
nokkur fjárhagsleg áhætta fólgin
fyrir Samhjálp, en við teljum
myndina eiga erindi og því viljum
við gefa fólki kost á að sjá hana
hér.
jt-
Atvinnuljósmyndari í ísrael, með
áhuga á hjólreiðum, tónlist og
ferðalögum. Hann er 28 ára:
Eliezer Hadashi,
6 Aminadav Street,
Kamat Gan 52 342,
ISRAEL
Átján ára japönsk skólastúlka,
getur ekki um áhugamál:
Hiromi Aoshia,
16—3 Nishikusabuka-cho,
Shizuoka-city,
Shizuoka-pref. 420,
JAPAN
Fimmtán ára japönsk skólastúlka
með áhuga fyrir Íslandi:
Shoko Kimura,
662—39 Kamisugeta-cho,
Hodogaya-ku,
Yokohama-shi,
Kanagawa-ken,
240 JAPAN
Átján ára vestur-þýzk stúlka með
áhuga á ferðalögum, íþróttum,
tónlist, frímerkja- og póstkorta-
söfnun. Skrifar á ensku, frönsku
eða þýzku:
Eva-Maria Stolberg,
P.O. Box 1746,
D-4670 Liinen,
W-GERMANY.