Morgunblaðið - 30.04.1982, Page 1
56 SIÐUR
92. tbl. 69.
arg.
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Styrjöld Argentínumanna
og Breta talin óumflýjanleg
Argentínumenn hafna tillögum Haigs og lýsa yfir 200 mílna ófridarsvæði
Hinn nýskipaði landstjóri Arg-
entínu á Falklandseyjum á götu
í Port Stanley en hinir inn-
fæddu virða hann ekki viðlits.
Landflótta Falklendingar í
Bretlandi segja, að landar
þeirra sýni andstöðu sína við
innrásarmennina með því að
horfa undan eða niður fyrir sig
þegar þeir mæta Argentínu-
monnum.
I.ondon, Washington, Huenos Aires, 29. apríl. Al*.
KLUKKAN 11 fyrir hádegi í dag, fóstudag, gengur í gildi algert bann
Breta við ferðum erlendra llugvéla og skipa innan við 200 mílur frá
Falklandsevjum og er nú breska flotadeildin, 27 skip, þar af tvö flug-
móðurskip, tilbúin til tafarlausra átaka. Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Breta, sagði í dag á skyndifundi Neðri dcildarinnar, að Sameinuðu
þjóðirnar gætu ekkert frekar gert og vísaði á bug kröfum stjórnarand-
stöðuþingmanna um að draga flotann til baka. Argentínumenn höfnuðu
í dag síðustu friðartillögum Haigs, utanrikisráðherra Bandaríkjanna,
lýstu því yfir, að 200 mílur frá ströndum landsins væri ófriðarsvæði og
virðist nú fátt geta komið í veg fyrir styrjöld milli þeirra og Breta.
Al*-simam>nd.
„Það er hámark ístöðuleysisins
að rjúka til öll sem eitt og senda
flotann á vettvang og að vilja svo
ekki beita honum. Slíkar blekk-
ingar hittu aðeins sjálf okkur
fyrir," sagði Thatcher á fundi
Neðri deildarinnar í dag þegar
hún svaraði kröfu nokkurra
Verkamannaflokksþingmanna um
að flotanum yrði snúið við. Einn
úr þeirra hópi, Reg Race, spurði
þá hve mörgum mönnum hún væri
tilbúin til að fórna á vígvellinum
og svaraði Thatcher því á þessa
leið: „Það er aðeins eitt, sem er
mikilvægara friðinum, og það er
frelsið og réttlætið. Ef aðrir hefðu
ekki barist fyrir því handa okkur,
gæti háttvirtur þingmaður ekki
einu sinni spurt mig þessarar
spurningar." Francis Pym, utan-
ríkisráðherra, sagði við þessa um-
ræðu, að ef Argentínustjórn féllist
ekki á friðsamlega lausn, þá „verð-
um við að beita valdi".
Argentínustjórn hafnaði í kvöld
siðustu friðartillögum Haigs,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og kvað þær „hvergi fullnægj-
andi“. I þeim var lagt til, að Arg-
entínumenn og Bretar kveddu her
sinn á brott og að samstjórn
þeirra og Bandaríkjamanna yrði á
Falklandseyjum næstu fimm árin.
Argentínumenn lýstu því einnig
yfir, að 200 mílur frá ströndum
landsins væru nú ófriðarsvæði og
að breskar flugvélar og skip, sem
færu inn í land- og lofthelgi þeirra
yrðu tafarlaust skotin niður.
Viðbrögð Breta og Bandaríkja-
manna við þessari afstöðu Argent-
ínumanna voru enn ekki kunn
seint í gærkvöldi en ljóst er, að
stríðslíkurnar hafa nú aukist um
allan helming.
Breska útvarpið vitnaði í dag í
bandarískar leyniþjónustuheim-
ildir og sagði, að nokkur hópur
breskra landgönguliða hefði geng-
ið á land á Falklandseyjum fyrir
þremur dögum til að undirbúa
töku þeirra og í dag gáfu ónefndir
embættismenn bresku ríkisstjórn-
ar í skyn, að slík aðgerð væri nú
yfirvofandi. Aðspurður hvort hún
yrði um heigina svaraði einn því
til, að hún kynni að „koma fyrr.
Sum dagblaðanna segja, að stefnt
sé að árás á Port Stanley. Svo er
ekki. Við eigum margra annarra
kosta völ.“ Þessi orð eru túlkuð
þannig, að Bretar ætli sér að taka
fyrst Vestur-Falkland og hluta af
Austur-Falklandi og þrengja
smám saman að argentínska her-
liðinu í höfuðstaðnum.
Sjá
ið..
.Rússar ganga á
á bls. 15.
lag-
Við munum taka
U
upp merkið aftur
sögöu fyrstu Samstöðumennirnir sem fengu frelsi í gær
Varsjá. 29. apríl. AP.
IIERSTJORNIN i Póllandi lét í dag lausa fyrstu fangana af þeim 1000, sem hún
hefur tilkynnt, að fái frelsi á næstunni. Fjórir leiðtogar Samstöðu, sem fara
huldu höfði, gáfu í dag út yfirlýsingu og greindu frá stofnun nýrrar landsnefnd-
ar í stað þeirrar, sem var fyrir herlögin. Jafnframt hvöttu þeir til viðræðna við
stjórnvöld að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Meðal þeirra fyrstu til að fá frelsi
í dag voru 35 Samstöðumenn, sem
haldið hefur verið í Bialoleka-
fangelsi í Varsjá, og voru fimm
þeirra með rautt og hvítt armbindi
Samstöðu þegar þeir yfirgáfu fang-
elsið. „Okkur var bara sagt að taka
saman pjönkurnar og hypja okkur á
brott,“ sagði einn mannanna. „Nú
munum við taka upp merkið aftur
og berjast fyrir endurreisn Sam-
stöðu.“ Jan Kulaj, leiðtogi bænda
innan Samstöðu, var meðal þeirra,
sem var sleppt í dag en ekkert var
sagt um örlög Lech Walesa. Kona
hans, Danuta, sagði í dag í viðtali
við AP-fréttastofuna, að hún ætti
ekki von á að fá að sjá mann sinn
bráðlega.
I yfirlýsingu Samstöðuleiðtog-
anna fjögurra segir, að eitt megin-
skilyrðið fyrir samstarfi við stjórn-
völd sé að Walesa verði látinn laus
því að án hans verði engin lausn
fundin á vandamálum þjóðarinnar.
,Við erum reiðubúnir að grípa til
þeirra ráða, sem duga til að neyða
stjórnvöld til viðræðna við Sam-
stöðu undir forystu Walesa," sagði í
yfirlýsingunni en hana undirrita
Zbigniew Bujak, leiðtogi Samstöðu í
Varsjá, Wladyslaw Frasyniuk, fyrir
Slesíu, Bogdan Lis, fyrir Gdansk, og
Wladyslaw Hardek fyrir Suður-
Pólland. Þeir hvetja einnig til 15
mínútna verkfalls í öllum verk-
smiðjum 13. maí nk., á fimm mán-
aða afmæli herlaganna, og skora á
alla bílstjóra að stöðva farartækin í
eina mínútu þann sama dag og
þeyta hornin.
Eins og siðvenja er í ríkjum
kommúnista ætlar pólski herinn að
sýna mátt sinn og megin á hátíðis-
degi verkalýðsins, 1. maí, og telja
margir, að ef til átaka komi þá
kunni það að verða mjög afdrifaríkt
fyrir ástandið í landinu um næstu
framtíð.
Bandarískir þingmenn
vilja stuðning við Breta
Washinglon. 29. apríl. Al*.
UTANRÍKISMÁLANEFND banda-
rísku fulltrúadeildarinnar sam-
þykkti í dag ályktun þar sem skorað
er á Bandaríkjastjórn að sýna Bret-
um „fullkominn stuðning" í Falk-
landseyjadeilunni ef ekki tekst að
finna á henni friðsamlega lausn. í
öldungadeildinni hefur einnig verið
borin fram álvktun um stuðning við
Breta „með öllum tiltækum ráðum"
og gerast þar æ fleiri fylgismenn
hennar.
I ályktun utanríkismálanefnd-
arinnar, sem nú kemur til at-
kvæða í fulltrúadeildinni, segir, að
Bretar séu „dyggur bandamaður,
sem hefur staðið við hlið Banda-
ríkjamanna í gíslamálinu og
endranær á erfiðleikastundu".
Bent er á, að Bandaríkjastjórn
hafi lagt sig í líma við að leysa
deiluna með samningum og sagt,
að ef það beri engan árangur eigi
hún að styðja Breta heilshugar og
réttmætar kröfur þeirra. Flutn-
ingsmaður ályktunarinnar, Steph-
en J. Solarz, demókrati frá New
York, sagði í dag í umræðum um
hana, að afstaöa Bandaríkja-
manna myndi hafa afdrifaríkar
afleiðingar fyrir framtíðarsam-
skipti þeirra við Breta og önnur
Vesturlönd.
í umræðum í öldungadeildinni í
dag um stuðningsyfirlýsingu við
Breta sagði Joseph Biden, öld-
ungadeildarþingmaður fyrir Dela-
ware, að stjórnin ætti að búa sig
undir að beita öllum ráðum til að
tryggja brottflutning Argentínu-
manna frá Falklandseyjum og
sjálfsákvörðunarrétt íbúanna.
Þessi ályktun hefur ekki enn verið
lögð fram formlega en í dag lýstu
margir þingmenn yfir stuðningi
sínum við hana. Evrópuráðið skor-
aði í dag á Argentínumenn að fara
á brott frá Falkiandseyjum og
taka aftur upp eðlilega samninga
við Breta um framtíð þeirra. 20
þjóðir af 21 greiddu áskoruninni
atkvæði en Spánverjar sátu hjá.
Á MIÐNÆTTI bárust þær
fréttir, að Bandaríkjastjórn
væri að undirbúa stuðnings-
yfirlýsingu viö Breta þar sem
friðsamleg lausn væri útilok-
uö.
Forseti valinn
í E1 Salvador
San Salvador. 29. apríl. Al*.
DR. ALVARO Magana, bankastjóri
ríkisbankans í Kl Salvador, var í dag
kjörinn forseti landsins með 36 atkv.
gegn 17 en sjö sátu hjá. Dr. Magana
naut stuðnings fjögurra flokka af
fimm og var það aðeins hinn öfga-
sinnaði hægriflokkur D’Aubuisson,
fyrrv. majórs, sem honum var and-
vígur.
Dr. Alvaro Magana er hagfræð-
ingur að mennt, íhaldsmaður en
hlynntur þeim umbótum, sem
Duarte, fyrrv. forseti, hefur beitt
sér fyrir. Hann hefur oft verið
ráðunautur ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum og talinn mjög
hæfur maður á því sviði. Kristi-
legir demókratar studdu hann og
er talið, að úr þeirra hópi verði
a.m.k. tveir af þremur varaforset-
um.